Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1982, Qupperneq 8
8
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MANUDAGUR 28. JUNI1982.
Útlönd
Utlönd
Útlönd
Útlönd
Utanríkisráðherraskiptin í Bandaríkjunum:
REAGAN HEFÐIEKKI
GETAD VAUD BETUR
— segir Alexander Haig um eftirmann sinn
George Shultz, hinn nýútnefndi ut-
anríkisráöherra Bandaríkjanna, hef-
ur um helgina átt ítarlegar viöræður
við ráöherra i stjórn Bandarikjanna
um utanríkisstefnu stjómarinnar.
Schultz átti langar viöræður við
Reagan forseta og Alexander Haig,
sem hann leysir nú af hólmi sem ut-
anríkisráðherra.
Haig sagði af sér embætti mjög
óvænt á föstudaginn og sagði að
stjórn Reagans fylgdi ekki lengur
þeirri „varfæmislegu leið” í utan-
ríkismálum sem hann og forsetinn
heföu orðið ásáttir um er hann tók
við embætti utanríkisráðherra fyrir
sautján mánuöum.
Þeir Shultz og Haig ræddust við í
næstum þrjár klukkustundir í gær.
Ekkert var látið uppi um efni við-
ræðna þeirra.
Á laugardag eyddi Shultz meira en
tveimur klukkustundum með Reag-
George Shultz: „Þöglir dagar fram-
undan.”
ekki get;> 5 valið betur.”
an forseta í Camp David. Eftir við-
ræður þeirra sagðist Shultz sann-
færður um að sér ætti eftir að reyn-
ast auðvelt að aðlagast stjóm Reag-
ans.
Shultz hefur neitað að ræöa viö
fréttamenn um einstök atriði utan-
ríkismála fyrr en eftir að hann hefur
gengizt undir yfirheyrslu þingnefnd-
ar sem sennilega byrjar 12. júlí.
„Þetta verða þöglir dagar,” sagöi
hann eftir fundinn með Reagan.
Charles Percy, formaður utan-
ríkismálanefndar þingsins, spáði því
að staðfesting á útnefningu Shultz
myndi ganga greiölega fyrir sig.
Percy kvaðst hafa rætt viö Haig sem
hefði sagt að forsetinn „hefði ekki
getaðvalið betur”þegar hann valdi
Shultz sem utanríkisráöherra. Shultz
gegndi áður embættum atvinnu- og
fjármálaráðherra ístjóm Nixons.
Baráttan verður milli
Kennedys og Mondales
Eftir landsþing demókrata, sem Kennedy og lagði áherzlu á að demó- kratar yrðu í stefnu sinni að leggja
haldið var í Philadelphia um helgina,
virðist augljóst að slagurinn um hver
verður frambjóðandi flokksins í for-
setakosningunum 1984 kemur til með
að standa á milli Edwards Kennedys
og Walter Mondales, fyrmm varafor-
seta.
Þeim var báðum fagnað gífurlega á
þinginu og er augljóst að aðrir hugsan-
legir frambjóðendur komast ekki með
tærnar þar sem þeir hafa hælana í vin-
sældum. Einkum voru það stuðnings-
menn Kennedys sem létu mikið að sér
kveðaoghrópuðu: „ViðviljumTed”.
Er Kennedy flutti ræðu sína á þing-
inu í gær varð hann í 61. skipti aö gera
hlé á máli sínu vegna fagnaðarláta.
„Frá því að Ronald Reagan tók við
embætti hafa þrjár milljónir Banda-
ríkjamanna misst atvinnu sína,” sagöi Edward Kennedy. Walter Mondale.
— þeimvarfagnað
gífurlegaá
landsþingi
demókrata
um helgina
áherzlu á baráttuna gegn atvinnuleysi
og fátækt.
Walter Mondale sló á svipaða strengi
í ræðu sinni á föstudag og sakaði Reag-
an um að hafa dregiö taum hinna ríku
ákostnaöfátækra.
Aðrir hugsanlegir frambjóðendur á
landsþinginu voru John Glenn fyrrum
geimfari frá Ohio, Gary Hart frá Colo-
rado, Alan Cranston frá Kaliforníu,
Emest Hollings frá Suður-Karólínu og
Reuben Askew fyrrum ríkisstjóri í
Flórída.
Samgöngu-
kerfi
Breta lamað
Hótanir Saudi-Arabíu
ástæða afsagnar Haigs
— segir dagblaðið The Sunday Times
Þrýstingur frá Fahd, konungi Saudi-
Arabíu, á Bandaríkin átti stóran þátt í
afsögn Alexanders Haigs úr embætti
utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Því
heldur The Sunday Times fram um
helgina.
Blaðið segir að Fahd konungur hafi, í
þeim tilgangi að tryggja vopnahlé í
IJbanon, hótað að stöðva alla olíuflutn-
inga til Bandarikjanna, taka inneignir
Saudi-Arabíu út úr bandarískum bönk-
im og að taka upp fullt stjómmála-
amband við Sovétríkin.
Blaðið vitnaði í fulltrúa úr öryggis-
ráöi Bandaríkjanna sem sagði aö það
hefði „ekki verið nein tilviljun” að
Israelsmenn, sem sitja um Beirút, hafi
ulkynnt um vopnahlé rétt eftir að af-
sögn Haigs var tilkynnt.
Sambandsleysi meðal bandarískra
ráðamanna varð þess valdandi að
Haig gaf frá sér yfirlýsingar sem
stönguðust á við loforð sem William
lark öryggisráögjafi hafði gefið Fadh
konungi um að ísraelsku hersveitimar
i .yndu draga sig út úr úthverfum
I eirútborgar.
Osamræmiö í málflutningi Banda-
Fabd, konungur Saudi-Arabíu, bafðl í
hótunum.
ríkjamanna olli reiði Fahds konungs
sem hótaði hefndaraðgerðum ef
Bandaríkjamenn beittu Israelsmenn
ekki þvingunum. Þegar svo var komið
tilkynnti Reagan forseti um afsögn
Haigs. Klukkustundu síöar var til-
kynnt um vopnahlé. Þetta var að sögn
The Sunday Times meginástæðan til
afsagnarHaigs.
Umsjón:
Gunnlaugur
A.Jónsson
Verkföll lama allt samgöngukerfi á
Bretlandseyjum í dag. Tvær og hálf
milljón manna hefur um það að velja
að reyna aö komast til vinnu sinnar á
annan hátt en venjulega eða að dvelja
heima.
Verst verða Lundúnarbúar úti, þar
sem neðanjarðarlestakerfiö stöðvast.
svo og hluti af strætisvögnum borgar-
innar. Búizt er viö umferðaröngþveiti í
miöborg Lundúna vegna mikillar
a ukningar einkabif reiða þar í dag.
Utvarp rauðu khmeranna:
Við felldum
20 Sovétmenn
Skæruliöar hinna rauðu khmera
sögðust í gær hafa drepið eða sært
tuttugu sovézka ráðgjafa og tækni-
menn í fyrrisát í Suður-Kampútseu
fyrr i mánuðinum.
I október í fyrra sögðust skæru-
liðar sömuleiðis hafa drepið 25 Sovét-
menn í svipaðri fyrirsát í Kampong
Som. Vestrænir hernaðarsérfræðing-
ar telja að um 300 sovézkir ráðgjafar
og tæknimcnn séu með vietnamska
innrásarliðinu i Kampong Som og
auk þess séu nokkur hundruð Sovét-
menn viðs vegar um landið.
Rauðu khmerarnir sögðust í út-
varpi sinu hafa fellt 134 andstæðinga
sína í átökum um miðjan mánuðlnn.
Þar af hefðu verið tuttugu Sovét-
menn.
Haigvar
synda-
hafur
segir
Pravda
Pravda, málgagn sovézka kommún-
istaflokksins, sagöi í gær að Reagan
Bandaríkjaforseti hefði notað Alex-
ander Haig, fyrrum utanríkisráð-
herra, sem syndahafur vegna mistaka
bandarísku ríkisstjórnarinnar.
Þetta var fyrsta beina athugasemd
Sovétmanna vegna afsagnar Haigs á
föstudag. Blaðið sagði að stjórn Reag-
ans ætti nú mjög í vök að verjast bæði
heima fyrir og erlendis. „I þessari
stöðu þarfnaöist Reagan syndahafurs
og Haig varð fyrir valinu,” segir
Pravda.
Áöur haföi Tass fréttastofan sovézka
getiö sér til að afsögn Haigs ætti rætur
sínar aö rekja til innrásar Israels í
Líbanon. En Pravda segir ástæðuna
vera almennt skipbrot utanríkisstefnu
Bandaríkjanna.
Aðdáandi
Hitlers
dæmdur
íKína
Kínverskur námsmaður hefur verið
dæmdur í átta ára fangelsi í Beijing
fyrir að hrósa Adolf Hitlerog að ,,mæla
með að komiö yrði á fót samtökum í
ætt við Gestapó,” eftir því sem útvarp-
ið í Beijing hefur skýrt frá.
Utvarpið sagði að námsmaður væri
sekur um „gagnbyltingarstarfsemi”
meö því að standa gegn stjóm
kommúnistaflokksins.
Gaddafi
aðvarar
ríki
Austur-
Evrópu
Muammar Gaddafi, leiðtogi Líbýu-
manna, áövaraði ríki Austur-Evrópu
um helgina. Hann sagði að afskipta-
leysi þessara ríkja af innrás Israels í
Líbanon tefldi vináttu þeirra og rót-
tækariarabaríkjaí hættu.
Aðvörun sinni kom Gaddafi á fram-
færi er hann ávarpaði sendiherra
Sovétríkjanna, Póllands, Ungverja-
lands, Búlgaríu, Rúmeníu, Tékkó-
slóvakíu og Austur-Þýzkalands á fundi
sem stóö aðeins í fimm mínútur.
Gaddafi bað sendiherrana að skila
því til ríkisstjórna landa þeirra aö „við
höfum engin svör við spumingum
óbreyttra araba ura afstöðu vina okkar
til kúgunar Síonista og Bandaríkja-
manna.”
Páfinn
hindrar
verkfall í
Vatikaninu
Jóhannesi Páli páfa H. tókst um
helgina að komast hjá að til fyrsta
verkfalls í sögu Vatíkansins kæmi.
Páfi bauðst til að rannsaka sjálfur um-
kvörtunarefni verkamanna innan
Vatíkansins og lofaði þeim einnig að
þeir fengju aö stofna verkalýðsfélag.
Verkamenn hafa að fengnum þess-
um lof oröum páf a dregið til baka hótun
sína um tveggja klukkustunda alls-
herjarverkfall í Vatíkaninu. Meöal
þess sem þeir krefjast er 36 klukku-
stunda vinnuvika.