Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1982, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1982, Síða 10
10 DAGBLAÐIÐ&VlSIR. M ÁNUDAGUR 28. JUNI1982. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Eyöilegging eftir innrás ísrælsmanna ergffurieg — Óbreyttir borgarar hafa orðið hart úti Innrás Israelsmanna í Líbanon hefur haft alvarlegar afleiöingar í för meö sér. Eins og í öllum stríöum er þaö al- menningur sem tapar. Tölur um fallna og særöa eru nokkuö tíma aö finna rústirnar af heimili sínu. Ungur ísraelskur hermaður sagði viö fréttamann Newsweek: ,,Eg hélt aö þetta yrði ekki svona. Eg finn til meö borgurunum semhafa látizt.” lem, 15 ára. Fréttamenn hittu hana og bróöur hennar Abduilah, 7 ára, í spítala á staönum. Israelsk sprengja haföi sprengt af þeim fætuma og drep- iö foreldra þeirra og tvo bræður. Áfall- aö 2000 fallnir sé nær lagi. Ein af sprengjum Israelsmanna sprakk á heimili kaupmannsins Akhram Zaharia Kursa sem er 53 ára gamall. Kursa sagöi fréttamönnum frá atburö- unum í mikilli geöshræringu vegna áfallanna, en hann missti foreldra sína, konu og son en annar sonur hans skaöbrenndist. Viö veg nærri strönd- inni hrófluðu palestínskir flóttamenn upp bráðabirgðabúðum. 200 til 300 manna hópur faldist í lundi nokkrum viö vegg sem á voru krotuö slagorö til stuönings PLO hetjum. Israelsmenn hafa í haldi 6000 Palestínumenn, grunaöa um að vera skæruliðar. Marg- ar fjölskyldur veröa þvíaðsjá fyrir sér án karlmannanna. „Þaö eina sem skiptir máli er aö viö fáum þá aftur,” sagöi Namat Wahbi, 19 ára Palestínu- kona. Flóttafólk hefur streymt inn í vesturhluta Beirút. Þar búa aöallega múhameöstrúarmenn og hefur íbúa- fjöldinn rokiö upp í 1,2 milljónir. Flóttamennina skortir sárlega mat, vatn, ábreiöur og lyf. Hinir heimilis- lausu flóttamenn eru auk þess auöveld bráö fyrir vopnaða þjófaflokka þar sem þeir híma í alinenningsgörðum og dyragættum. Yfirmaöur Rauöa kross- ins í Beirút sagöi aö ástandið væri enn verra, ef Palestínumenn og Líbanir væru ekki svo vanir slíkum hörmung- um. fallinna og særöra séu óbreyttir borgar- ar, þar af 60% böm og konur. Á boröi læknisins lágu sprengikúlur sem tekn- ar höföu verið úr líkömum særöra. Svo margir höföu látizt í borginni aö lík- húsin létu 3 lík í hverja kistu. En Israelsmenn ráöast ekki aðeins á búðir Palestínumanna. 1 verkamanna- hverfi í Beirút voru lík 73 manna dreg- in út úr íbúöabyggingu sem haföi orðið fyrir sprengjum Israelsmanna. Verka- menn bjuggust viö aö finna 12 lík til viöbótar. Kamel Mneimne tónlistar- maöur sagöi viö fréttamenn: „Konan mín, systir mín og bömin mín fjögur eru ennþá þarna inni. Hér er ekkert hemaðarlegt skotmark,” sagði hann bitur. Ný kynslóð mun alast upp í hatri Alls staöar í borginni syrgöi fólkiö hina látnu og við og viö mátti sjá fólk bugast og gráta úti á götum. Sumir Líbanir fögnuöu ósigri PLO, en eru ekki neitt of hrifniraf tsraels- mönnum, og tilraunir Israelsmanna til hjálparstarfs viröast ekki ætla aö vinna þeim traust. Líbönsk móðir harmi slegin yfir ætt- mennamissi. Palestínumenn flytja særða manneskju á börum. Sjúkrahús eru full af illa særðu fólki. Ískyggílegt ástand I bænum Damur sem er 15 kílómetra fyrir sunnan Beirút er eyöileggingin alger. Næstum því öll hús og íbúöa- byggingar hafa eyðilagzt í árás tsraelsmanna. Daunninn af rotnandi líkum er í loftinu og reykjarsúlur teygja sig til himins. Eina lífsmarkiö eru nokkrir hundar og gömul hvíthærö líbönsk kona. Hún hefur búiö í Damur allt sitt líf en þegar sprengjuregniö stytti upp, tók þaö hana fleiri klukku- norglr eins og Beirút, Týrus, Sídon og Damur eru í rústum og fólkið lifir við ákaflega þröngan kost. á reiki. Javier Pérex de Cuéllar, aöal- ritari Sameinuöu þjóöanna, segir aö bardagar hafi þjáö eina og hálfa millj- ón manna. Líbanir segja aö 10 þúsund hafi fallið og 16 þúsund særzt. Banda- riska utanríkisráðuneytiö segir að 600 þúsund hafi oröiö fyrir beinum áhrif- um af völdum bardaga, en Rauöi krossinn telur þessar tölur of háar. Al- þjóðlegar hjálparstofnanir teija aö 6000.000 hafi oröið aö fiýja heimili sin um lengri eöa skemmri tíma. Hjálparstarf Israelsmenn hafa valdiö miklum hörmungum í Líbanon en mest eru þeir þó gagnrýndir fyrir aö hindra hjálpar- starf. Þeir hafa m.a. snúið við skipi sem kom frá Kýpur, hlaðið hjálpar- gögnum. Þeir krefjast þess aö fá aö stjóma dreifingu hjálpargagna innan Ijbanon. Rauði krossinn hefur failizt á þaö. tsraelsmenn hafa þó sent nokkrar sjúkrabifreiöir og 25 lækna til aö hjálpa bágstöddum. Ástandið er sem betur fer þolanlegt enn sem komið er í matvælamálum því aö bardagar hafa lítt snert sveitimar. Bandaríkjamenn hafa lofað aö senda 20 milljón dollara neyöarhjálp til Líbanon og Frakkar hafa sent skipiö Argens meó 35 tonn af hjálpargögnum. Sameinuðu þjóöimar ætla að senda umtalsveröar fjárhæðir til matvælakaupa, læknisaöstoöar og skýlagerðar fyrir heimilislausa. Er hér um aö ræöa 13 milljónir dollara. Þaö veldur erfiðleikum aö bardagar hafa geisaö í kringum alþjóðaflugvöll- inn í Beirut, þannig aö Rauöi krossinn hefur neyðzt til aö senda aöstoð í gegn- um Sýrland og Israel. Almenningur í Israel hefur reynt aö senda hjálpargögn svo sem teppi og föt til Líbanon og verkalýðshreyfingin í Israel hefur á prjónunum aö taka við líbönskum mæörum meö ungaböm þangað til ástandið skánar í Líbanon. iö sem þau höföu oröiö fyrir kom í veg fyrir aö þau létu sorg sína í ljós. Þegar þeir spuröu hana um líöan reyndi hún meira aösegja aö brosa. Borgin Sídon varö jafnhart úti og Týrus og Damur. Aðalgötumar hafa nánast veriö lagðar í auðn af Israelsmönnum sem réöust á borgina af sjó, lofti og landi. Israelsmenn segjast hafa drepið í borginni 400 manns sem ekki voru „hryðjuverka- menn” eins og Israelsmenn kalla alla Palestínumenn. Borgaryfirvöld telja ísraelsmenn ráðast ekki aðeins á Palestínumenn En Beirút slapp ekki viö árásir held- ur. Flóttamannabúöir Palestínu- manna fyrir sunnan borgina eru illa út leiknar. Starfsmenn hjálparstofnana óttast mjög aö Israelsmenn ráðist inn í borgina til að ganga milti bols og höf uös á PLO í eitt skipti fyrir öll. Abu Walid, læknir á Gaza sjúkrahús- inu í Beirút, telur að 90 af hundraöi „Þaö er mikil hræösla viö Is- raelsinenn. Þeir em orðlagöir fyrir miskunnarleysi,” sagöi Zahia Pelkes, sjötug palestínsk kona. Hún lá á sjúkrarúmi og allt í kringum hana vom palestínsk börn, mikið særö. Fæt- ur hennar voru afhöggnir, eftir aö hún varö fyrir ísraelskri sprengju. Hún mælti: „Þetta skiptir mig öngvu máli, ég er svo gömul, en hvaö um hina ungu sem hafa lífið framundan?” Svarið er aö innrás Israelsmanna hefur skapað nýja kynslóö sem hatar. ÁS-Newsweek/Time og fl. Borgin Tyrus hefur einnig orðiö hart úti í loiíárásum Israelsmanna. Helmingur borgarinnar er í rústum. Enginn veit hve margir bggja undir rústunum. Dr. Ahmed al Merouwi, yfirmaöur sjúkrahúss í borginni, álítur aö 100 óbreyttir borgarar hafi fallið og rúmlega 300 særzt aðeins þá daga sem bardagar vom haröastir. Börnin og óbreyttir borgarar þjást mest Eitt fórnarlambanna var Ismat Hes-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.