Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1982, Side 37
DAGBLAÐIÐ& VlSIR. MANUDAGUR 28. JUNI1982.
45
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Francois Desbans sendiherra afhendir Albert Guðmundssyni oröuna Frönsku sendiherrahjónin ásamt Albert og Brynhildi. Frá vinstri Albert, Madame Francoice Desbans.
og heiðursskjalið frá frönsku rikisstjórninni. Brynhildur Jóhannsdóttir og Francois Desbans sendiherra. DV-myndir Bjarnleifur Bjarnieifsson.
Alice Saunier-Seite fyrrum
mennta- og háskólamálaráðherra
Frakklands óskar Albert til ham-
ingju i hófinu.
Albert ásamt móður sinni og systur. Frá vinstri Indiana Bjarnadóttir,
Albert og Erla Guðmundsdóttir.
Ludvig Hjálmtýsson ræðir við hjónin Helgu Björnsdóttur og Gisla
Sigurbjörnsson.
Albert
í síðustu viku buðu frönsku sendi-
herrahjónin, Francois, Desbans og
frú, nokkrum tugum gesta í hóf í
sendiherrabústaðnum við Skálholts-
stíg. Tilefnið var að ríkisstjórn
Frakklands hafði sæmt Albert
Guðmundsson æðsta heiðursmerki
Frakka, sem veitt er fyrir íþrótta-
og æskulýðsstarf. Aðeins örfáir
menn utan Frakklands hafa hlotið
orðuna Médaille d’Or de la Jeunesse
et des Sports.
„Mér kom þessi afhending mjög á
óvart en er Frökkum innilega
þakklátur fyrir þann vináttuhug,
sem þeir sýna mér,” sagöi Albert
Guömundsson eftir aö franski sendi-
herrann haföi afhent honum gullorö-
una og heiöursskjal undirritaö af
tveimur frönskum ráðherrum.
Desbans sendiherra sagði m.a. í
ræöu sinni, að Frakkar gleymdu
aldrei hvað Albert hafi gert fyrir
franskar íþróttir og Frakkland. Af-
reka hans væri minnzt í Frakklandi,
þegar talaö væri um knattspyrnu. Þó
fílokkrir gestanna i hófinu hlýða á ræðu Desbans sendiherra. Frá vinstri Kristjana Pétursdóttir, Jóhann Halldór Albertsson, Berta Snædal,
Leif Miiller, Katrin Sívertsen, Jakob Sigurðsson, Ingi Björn Albertsson og Franz Pálsson.
eru 28 ár síðan Albert lék í Frakk-
landi á árunum 1947 til 1954 með
stuttri dvöl á ítalíu. Lengst meö Nice
þar sem hann varö bæöi franskur
meistari og bikarmeistari. Þetta er í
fjóröa sinn, sem Frakkar heiðra Al-
bert. Hann er heiðursborgarstjóri í
Nice.
Nokkrir tugir gesta, íslenzkir og
franskir, voru í hófi frönsku sendi-
herrahjónanna og nutu góöra
veitinga hinna alúölegu gestgjafa.
Desbans-sendiherrahjónin láta af
störfum hér á þessu ári. Hafa veriö
fulltrúar Frakklands hér í f jögur ár
eöa frá 1978. -hsím.