Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1982, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1982, Blaðsíða 13
13 Guðrún Helgadóttir efni, t.d. framkvæmdir Blindra- félagsins, hafa verið gerðar að forgangsverkefnum, því að ekki má gleymast að blindir eru líka þroska- heftir. Svæöisstjóminni er fullkomlega ljóst, hvar skórinn kreppir fastast í málefnum þroskaheftra. Okkur er öllum ljóst að mikil þörf er á litlum stofnunum fyrir fjölfatlaða, fleiri sambýlum, betri vinnumiðlun og umfram allt betri þjálfun til likama og sálar allt frá fæðingu. En hlutverk stjórnarinnar er fyrst og fremst að vinna aö nýtingu þeirra starfskrafta sem fáanlegir em, samnýtingu stofn- ana, en ekki einvörðungu að byggja nýtt bákn. Við veröum að gera okkur Ijóst, að lítið gagn er í milljóna- byggbigum, ef ekki er veitt þar sú aöhlynning sem best er hverju sinni, svo að hinn þroskahefti öðlist þann þroska sem honum er gefin getan til. Samvinna hinna ýmsu nefnda Við sem um árabil höfum unnið á einhverjum vettvangi að málefnum þroskaheftra fögnum því ávallt að umræða verður um þessi mál. En fleiri nefndir geta stundum flækt mál meira en þær koma að notum. Þess vegna er það mín skoöun, að meira samráð hefði mátt hafa um stofnun hinnar nýju nefndar á vegum borgarinnar við svæðisstjórn, þar sem tveir fulltrúar og tveir embættismenn borgarinnar sitja nú þegar. En til þess gefst nægur tími, og sjálf hef ég fallist á að taka sæti í hinni nýju nefnd sem fulltrúi borgar- stjórnarflokks Alþýðubandalagsins, en aðrir svæðisstjómarmenn eiga ekki sæti í henni. Ég tel alveg nauð- synlegt aö milli þessara tveggja nefnda þurfi að verða samstarf, annars er verr af stað fariö en heima setið. Með lögunum um aðstoð við þroskahefta var brotið blað í sögu þessara mála hér á landi. Um ára- tugaskeið hafði allt þetta starf fariö fram fyrir fmmkvæöi Styrktarfélags vangefinna og annarra slíkra sam- taka og verður það starf seint full- þakkað. Með lögunum var komið á skipulagi á framkvæmd þessara mála og lögskipuðum nefndum falin framkvæmd þeirra auk þess sem tugir milljóna hafa verið veittir til þessara mála beint frá ríkinu í Framkvæmdasjóð öryrkja og þroskaheftra. Og árangurinn er ótrúlegur á þessum þrem árum, sem lögin hafa verið í gildi. Því er þessi greinargerð skrifuð, að menn missi ekki sjónar á heildar- stöðu þessara mála, þegar nú er kallað til almenns borgaraf undar um málefni þroskaheftra af hálfu hinnar nýju nefndar. Sú nefnd á eflaust eftir að vinna gott starf undir forustu Alberts Guömundssonar, en lögum samkvæmt hlýtur hún að hafa náið samstarf við þann aðila, sem bera skal ábyrgö á þjónustu við þroska- hefta í Reykjavík en það er svæðis- stjóm Reykjavíkur um málefni þroskaheftra. Allt lið við störf hennar erkærkomið, en samvinna er öllu nauðsynlegra í þessum málum sem öðrum. Guðrún Helgadóttir alþingismaður Það öriar á viti Vinur minn einn, sem um langan aldur hefur haft fólksflutninga að at- vinnu, hefur löngum verið gagnrýn- inn á vegagerð hérlendis, jafrivel svo að sum ummæli hans í þeim efnum hafa fengið á sig hálfgerðan þjóð- sagnablæ. Eitt af þvi sem hann gagn- rýndi hvað mest fyrir nokkrum ára- tugum var þegar Krísuvíkurvegur- inn var gerður að vetrarvegi milli höfuðborgarinnar og Suðurlands. Þann veg urðu hann og fleiri að klöngrast, þegar snjór lokaöi gamla Hellisheiðarveginum. Þá var hann ófáanlegur til að kalla Krísuvíkur- veginn annað en lönguvitleysu. Hann sagði að þessi mál yrðu aldrei í lagi fyrr en almennilegur vegur hefði verið lagður yfir Hellisheiði og benti margoft í ræðu og riti á framtíðar- vegarstæðið. Svo þegar við fórum að rétta úr kútnum og leggja almenni- lega vegi, var vegur lagður austur yfir heiði, eins og við þekkjum í dag, og einmitt á þeim stað, sem hann hafði sjálfur bent á. Þá gat kunningi Ofseint Þaö sem ekki verður þó fram hjá litið er það, að ráðstafanir koma aUt of seint. Það á bæði við gengisfelling- una sjálfa og ráðstafanir vegna viðskiptahalla. Mánuöum saman hefur verið ljóst hvert stefndi, hvað sem líður öllum dagsetningum á skýrslum og tillögum. Mánuðum saman hefur einnig verið ljóst að afleiöingin hlaut að verða kjara- skerðing í einhverju formi. Strax og ljóst varð að ekki yrði veidd loðna á þessu ári — og það var ljóst þegar á útmánuðum — hlutu menn aö sjá að útflutningur myndi stórlega dragast saman og viðskiptahalli þar með að aukast ef ekki yrði að gert. Þegar svo þorskaflinn minnkaði einnig, sölutregða óx á áli og jámblendi og bankarnir dreifðu útsölugjaldeyri viku eftir viku, þurfti mikla glám- skyggni til að komast hjá því að sjá hvert stefndi. Samt tók það rikisstjórnina Á f immtudegi Magnús Bjamfreðsson Ráðherrar komaá rikisstjómarfund til að ræða vandann. £ „Ég óttast að langvarandi óstjórn efna- hagsmála... sé ekki úr sögunni, heldur sé sumra ætlun að dylja hana aðeins um stund- arsakir,” segir Magnús Bjamfreðsson. hans ekki á sér setið og spurði gamla manninn, hvort honum fyndist vega- gerðinni ekki vera að f ara f ram. Þá á hann að hafa svarað: „Það má kannski segja að þetta sé fyrsti vegarspottinn á Islandi, þar sem örlar á viti.” Meira fékkst hann ekki til að segja. Eitthvað svipað mun sumum hafa flogið í hug nú um síðustu helgi, þegar kunngerðar voru efnahagsráð- stafanir ríkisstjórnarinnar. Nú hefi ég ekki séð þetta merkisplagg í heilu lagi, þegar þetta er skrifað, en ljóst er þó að menn hafa safriað í sig kjarki og allavega viðurkennt aö illa sé komið. Með því er vissulega tals- verðum áfanga náð, þótt margir utan ríkisstjórnar hafi raunar séð f yrir löngu hvert stefndi. margar vikur að ná samkomulagi um ráðstafanir, sem sennilega duga þó allt of skammt. Gengið er enn of hátt skráð, miðað við markaðsverð í viðskiptalöndum okkar og það verð, sem við þurfum aö fá fyrir afurðir okkar. Kjaraskerðingin hlýtur í raun að verða meiri en ákveðið hefur verið, vegna þess hve illa er komið. Þó verð ég að viðurkenna að ekki er hægt að áfellast ríkisstjórnina fyrir þaö að hafa ekki gengiö lengra þar. Það þarf alltaf pólitískan kjark til þess að ganga eins beint framan að mönnum og þar er gert, og ekki von til þess að launþegasamtökin kyngi stærri bita í einu. Útlit er fýrir að þau ætli að sætta sig viö orðinn hlut, enda frámmámenn þar engir asnar. Ef áframhald verður hins vegar á viðskiptahallanum og verðbólgan æðir enn áfram verður kjara- skerðingin óumflýjanlega meiri. En það er eins og menn sætti sig við sumar tegundir kjaraskerðingar á meöan menn æsa sig upp út af öðrum, þótt útkoman sé kannski í raunhin sama. Blekkingin mikla Þegar verðbólgan æðir áfram rýrnar kaupmáttur launa, hvað sem allri vísitölu líður. Þar kemur einkum tvennt til. 1 fyrsta lagi mælir vísitalan nú aðeins hluta þeirra út- gjalda sem menn óhjákvæmilega þurfa að inna af hendi. Hún hefur ekkert mið tekið af hinni gífurlegu lífskjarabreytingu, sem orðið hefur undanfarna áratugi. Verði þeirra vörutegunda, sem þyngst vega í vísi- tölu, er miskunnarlaust haldiö niðri, á meðan verð á öðrum vörum, sem fólk þarf að nota, æðir áfram. Kannski er þama nóg að nefna dæmi um mjólk og bensín. I öðru lagi hafa stjómvöld svo lengi notað það ósvífna bragð til aö halda vísitölu og þar með launum niðri, að grípa til tímabundinna niðurgreiðslna á vöru- tegundum, stundum rétt á meðan visitalan hefur verið reiknuð út. Þetta hafa menn sætt sig við, að vísu ékki möglunarlaust, en látið kyrrt liggja. Auðvitað hefur fleira komið þarna til, en þetta tvennt nægir til aö sýna hve vísitalan er í dag vitlaus viðmiðun. Nú dettur mér ekki í hug að áfellast launþegasamtökin fyrir það að vilja halda í vísitölu, samt sem áður. Hún er eina nauðvörn þeirra gegn verðbólgunni, og á meðan ekki er hægt að benda á raunverulegan árangur í baráttunni gegn henni, er ekki von að þau séu fús til að láta hana fyrir borð. Reynslan hefur líka sannað að það er ekki nóg aö kippa vísitölunni úr sambandi til þess aö ráða niðurlögum verðbólgunnar. Það getur verið nauðsynlegur liður í víðtækari aögerðum en eitt sér dugar þaðekki. Hins vegar er mér óskiljanlegt með öllu ef forsvarsmenn launþega- samtakanna era á móti því, aö tekið sé mið af raunverulegum fram- færslukostnaöi venjulegrar fjöl- skvjdu í landinu, þegar vísitala er reiknuð út, en vilja í þess stað miða við lífsmátann á árunum eftir stríö. Eg held að það ætti að vera skýlaus og ófrávíkjanleg krafa þeirra að nýr vísitölugrunnur sé fundinn og vísi- tala reiknuð út frá honum. Þar með er ég ekki aö segja að sá vísitölu- grunnur, sem mun í raun fæddur, sé sá eini rétti, ég hefi ekki vit til að dæma um það. En ef menn sjá ekki aðra leið en vísitölu til að tryggja kaupmátt launa, hlýtur það aö vera krafa launþega aö hún sýni á hverjum tíma kostnaðinn við að lifa í landinu, og síðan aö komið sé á ein- hvern hátt í veg fyrir hinar sífelldu falsanir með skammtímaaðgerðum. Margt vantar Eg get ekki að því gert að mér finnst margt vanta í hinar nýju aðgerðir og ég óttast aö það muni hefna sín. Hvaða ákvörðun hefur verið tekin um vexti? Mér er ljóst að atvinnuvegir þola ekki einu sinni þá vexti sem þeir bera nú, hvað þá hærri, en hvernig á að koma í veg fyrir að bankar tæmist, ef bilið milli verðbólguog vaxta á enn að aukast? Halda menn að afborgunaræðið minnki í kannski helmingsmun vaxta og verðbólgu? Hvers vegna er ekki gripið í taumana strax varðandi eyðslulán? Halda menn aö þaö sé nóg, þegar búið er að þvæla málum vikum saman í þinginu, einhvern tímann í nóvember? Eða á að hækka vextina og setja annaö eða þriðja hvert fyrirtæki í landinu á hausinn? Hvað um eyðslu opinberra stofnana? Eitt af því sem þessi ríkisstjóm hefur verið mikið skömmuð fyrir, og það alveg með réttu, er það endemis ráðslag að láta opinberar stofnanir fjármagna rekstur sinn með erlendum lánum. Á að halda því áfram, eða á aö láta þær stórhækka gjaldskrár sínar um leið og verð- bætur eru skertar? Eða á kannski bara að segja forsvarsmönnum sumra þeirra það, sem hefði átt að vera búið að segja þeim fyrir löngu, að ef þeir ekki geti rekið fyrirtæki sitt miðað við aðstæður verði að fá aðra menn til þess? Nei, það þori ég ekkiaðvona. Það eru ýmsar svona spurningar, sem vekja þær grunsemdir, að þrátt fyrir það, að valin hefur verið ný leið í efnahagsmálum um stundarsakir sé ætlunin að aka lönguvitleysu að nýju eftir nokkrar vikur. Eg óttast að langvarandi óstjórn efnahags- mála, eins og miðstjórn ASI talar réttilega um í ályktun sinni, sé ekki úr sögunni, heldur sé sumra ætlun að dylja hana aðeins um stundarsakir. En stundum vonar maður, að maður hafi rangt fyrir sér. Það vona ég svo sannarlega núna. Magnús Bjarnfreðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.