Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1982, Qupperneq 7
DV. FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER1982.
7
Neytendur Neytendur Neytendur
Fisksalar leggja mest upp úr þvi að eiga nýjan og saitaðan fisk. Örfáir verka fiskinn á skemmtilegan hátt,
krydda hann og selja tilbúinn á pönnuna. DV-mynd S
Ófrosinn fiskur í verslunum:
Fiskborgarar
lokur og rúllur
f grænmetiskryddlegi
Kjötvöruverslanir og kjörbúðir eru
flestar með glæsilegt kjötborð. Gefur
þar á að líta allavega tegundir kjöts,
ýmist marinerað, nýtt, saltað eða til-
búið beint til matreiðslu. Öðru máli
gegnir um fiskinn. Hann getum við
keypt nýjan og nætursaltaðan í fisk-
búðum, einnig fæst hann víða frosinn.
Blaðamönnum DV lék forvitni á að vita
hvar seldur væri ófrosinn, kryddaður
fiskur, tilbúinn beint á pönnuna. Við
hringdum í fisk- og kjörbúðir, til að
kanna fiskúrval að einhverju leyti. Fá-
einar fiskbúðir hafa glæsilegt fiskborð,
með allavega tilbúnum fiskrúllum og
borgurum. Aðrar hafa einungis nýjan
og saltaðan fisk og þá er oftast ekki
eldhúsaðstaða til að vera með tii-
breytni af hverri fisktegund.
FiskrúHur með sveppum
rækjum, aspas og osti
Fiskbúðin í Noröurbæ í Hafnarfirði er
ársgömul. Þar er seldur fiskur bæði
nýr og allavega verkaður. Beinlaus
ýsa í raspi kostar þar 44 krónur,
kryddlegin ýsa og fiskborgarar 52
krónur kílóið. Ýsurúllur með rækjum,
aspas, sveppum og osti, kosta 64 krón-
ur, sama verð er á lúöurúllum og stór-
lúðu í kryddlegi. Stórlúöa niðursneidd
þvert, kostar 57 krónur, ýsan í fiskbúö-
inni Norðurbæ kostar 16.50 heil en kíló-
verð á ýsuflökum er 32 krónur. Venju-
legur flattur saltfiskur er þar seldur á
30 krónur kílóið. Sjó-siginn fiskur 35 kr.
kg-
Lúðulokur og skötuselur
Fiskbúðin Sæver hefur mikið úrval af
ófrosnum fiski, sem er útbúinn á fjöl-
breyttan hátt. Ekki verður allt upptal-
ið hér en meðal þess sem við skráðum
niður eru t.d. lúðulokur. Kílóverð af
þeim er 80 krónur. Marineraöir ýsubit-
ar kosta 52 krónur, ýsubitar í raspi 53
krónur og ýsustykki í spænskri sósu
kosta 50 krónur. Ýsubitar með ostafyll-
ingum kosta 79 krónur kílóið. Beinlaus
skötuselur krónur 60, heil ýsa í versl-
uninni Sæver kostar 16.80, ýsuflök
30.85, flattur saltfiskur 29 krónur en
snyrt flök 52 krónur.
Fiskbollurog borgarar
og fiskfars með papriku
Ýsuflök í grænmetiskryddblöndu, sem
bæði eru roð- og beinlaus kosta 55 krón-
ur kílóið í fiskbúðinni við Amarbakka.
Flökin eru ætluð til suðu, en einnig eru
þar seld hveitikrydduð fiskstykki í
brauðmylsnu, tilbúin á pönnu sem eru
á sama verði. Fiskborgarar kosta þar
55 krónur.
Fiskfars, bollur og fleira getum viö
keypt ófrosið í SS Glæsibæ. Fiskfars
með lauk kostar 49 krónur hvert kíló,
fiskfars með kryddi, lauk og papriku
kostar 54 kr. Söxuö ýsa í kryddlegi
kostar 65.50, einnig selja þeir litlar
fiskibollur á 67.50 kílóið. Fiskbollumar
eru smáar, þær fást einnig 12 saman í
480 g kassa á 32,40. Bollurnar eru frá
Humli hf.
Bieikja, humar, lúða,
reykt ýsa og skata
Fiskbúðin Hafrún selur ýsuna út á
sama verði og í flestum fiskbúðum eða
á 17 heil ýsa og 30.85 ýsuflök. Einnig
hafa fengist þar kryddlegin ýsuflök í
grænmetiskryddi en þar er lagt mest
upp úr því að selja spriklandi fiskinn
og var fisksalinn með glænýja lúðu í
öllum stærðum, þegar blm. hafði sam-
band við hann. Þar var til nógur hum-
ar og kílóverð á honum er 180 krónur.
Kaupgarður í Kópavogi selur ófros-
inn fisk í matarboröinu. Ysuflök með
rækjum, osti og fleiru kosta 69 krónur,
ýsa í raspi 45 krónur, skata 47 krónur,
ýsuhakk 45 krónur. Nýja bleikju er þar
að fá á 39 krónur kílóið. Ysuflök 36
krónur og reykt ýsa 51 'krónu kílóið.
Ysuflök 36 krónur og reykt ýsa 51
krónu.
Verslunin Sæbjörg var einnig með
smábleikju en þar er kílóverð 45 krón-
ur og ýsan á gangverði. Aðrar fisk-
verslanir sem hringt var í selja ekki
fiskinn útbúinn á neinn sérstakan hátt.
Álit f isksala er mis jafnt og segja sumir
þeirra að fólk leiti ekki í verslanir til að
fá fiskinn öðmvísi en beint úr sjó. Aðr-
ir vilja meina að eftirspum sé hvað
álíka eftir fiski í heilu lagi eða
verkuðum og jafnvel krydduðum.
Flestir eru í tímaþröng og vilja kaupa
matinn sem mest tilbúinn hina virku
dagavikunnar. — RR
DÖMUR OG HERRAR!
Nýtt 4 vikna námskeið hefst 4. október
Hinir vinsælu herratímar í hádeginu ’
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum.
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértimar
fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af vöðva-
bólgum. Vigtun — mæling — sturtur — gufuböð — kaffi — og hinir
vinsælu sólaríum-lampar.
Leikfimi fyrir konur á öllum aldri.
^ Júdódei/d Ármanns
Ármíila ?? Innritun og upplýsingar alla virka daga
nnuia kL 13_22 í Síma 83295. —*
Einstaklingar,
minni fjölskyldur
Nú er tækifærið að eignast glæsilegan og góðan
Komdu til okkar og kynntu þér hvernig þú getur
steikt, soðið og hakað allan venjulegan mat á ör-
skammri stund.
Hvernig þú getur affryst matvæli á stuttri stund
og gert þér heilsusamlega máltíð á auðveldan og
hagstæðan hátt.
Með Toshiba ofninum fylgir matreiðslunámskeið
og þú getur orðið listakokkur eftir stuttan tíma.
Við fengum takmarkað magn á þessu hagstæða
verði, kr. 5.990.
Hagstæð kjör, útb. 1.000 og eftirstöðvar 1.000 kr. á
mánuði.
Líttu inn og ræddu við okkur um hvernig
Toshiba ER 539 ofninn getur gjörbreytt matreiðsl-
unni.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTADASTRÆTI 10A - SlMI 16995
ítölsk dömu-
— og herra-
vetrarstígvél/skór
IMýtt — mikið úrval
AIRPORT
Laugavegi 23 ^21015