Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1982, Page 11
DV. FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER1982.
11
Með
pottþéttan
söluvaming
— DV spjailar við Þórarin E.
Sveinsson, nýráðinn
samlagsstjóra við Mjólkur-
samlag KEA á Akureyri
Nýlega var Þórarinn E. Sveinsson
mjólkurverkfræöingur ráöinn í starf
samlagsstjóra viö Mjókursamlag KEA
á Akureyri. Áöur haföi Þórarinn
starfaö sem framleiöslustjóri hjá
sama fyrirtæki í rúm þrjú ár.
Þórarinn lauk kandidatsprófi í
mjókurverkfræði frá landbúnaöar-
háskólanum á Ási í Noregi 1977. Hann
er kvæntur Ingu Einarsdóttur og eiga
þau tvo syni.
... mejeriingeniör...
— Þórarinn, hvaö þýöir eiginlega aö
vera mjókurverkfræöingur?
— Mjókurverkfræöingur er eigin-
lega slæm þýðing á danska orðinu
mejeriingeniör. Aö mínu mati er þetta
sambærilegt viö aö vera matvælaverk-
fræöingur, sem aftur á móti er slæm
þýöing á danska oröinu ernærings-
ingeniör. Munurinn er mjólkurfræöi og
mjólkurverkfræöi er sá að þaö síðar-
nefnda lærist í háskóla, hitt er iönnám.
Mjólkurverkfræðingi er ætlað að hafa
yfirumsjón meö mjólkinni allt frá því
hún kemur úr kúnni og þar til hún kem-
ur fullunnin á markað. Nám þetta er
unnt aö stunda bæöi í Noregi og Dan-
mörku. Eg lauk mínu námi viö land-
búnaðarháskólann á Ási í Noregi 1977,
en vann síöan hálft annað ár úti, m.a.
viö rannsóknir hjá landbúnaöarháskól-
anum. Svo kom ég heim í ársbyrjun
1979 og tók þá til starfa hér hjá KEA.
Ung hjón
að sunnan
— Nú er sagt aö Akureyringar séu
lítt ginnkeyptir fyrir aökomufólki.
Eruð þiö hjónin kannski aö norðan?
— Nei, hvorugt okkar. Eg er frá
Reykjavík og Inga er frá Keflavík og
því enn meiri Sunnlendingur en ég. En
okkur hefur báöum fallið vel aö búa á
Akureyri. Þaö er bara eins og hver
önnur þjóösaga aö erfitt sé aö kynnast
Akureyringum. Ætli þaö sé ekki mest
undir manni sjálfum komiö hvernig til
tekst meö nýtt líf á nýjum staö?
— Nú getur varla veriö um margar
samlagsstjórastöður aö ræða á
landinu. Ertu þá ekki einmitt kominn í
stööu sem fólk heldur dauöahaldi í
fram ó eftirlaunaaldurinn?
— Mjókursamsölurnar á öllu
landinu eru 17 talsins og þetta er næst
stærsta samlagiö á eftir Mjókurbúi
Flóamanna. Svo víst er þetta góö staöa
og í alla staði áhugaverö. En ég vona
nú samt aö þetta sé ekki ævistarfið
eins og þaö leggur sig. Slíkt er bæði
fráhrindandi og hættulegur hugsunar-
háttur, sem hlýtur að leiöa til stöön-
unar. Eigum við ekki aö oröa það svo
aö ég stefni fremur aö því aö geta
keypt mér gullúr sjálfur eftir svo sem
30 ár en treysta því aö ég fái það þá frá
einhverju fyrirtæki?
— Og hvernig gengur svo rekstur-
inn?
— Viö fengum ný húsakynni undir
starfsemina 1980 og eftir vissa
byrjunaröröugleika hefur reksturinn
gengiö tæknilega mjög vel. Aö sjálf-
sögöu höfum viö ekki peninga til aö
gera allt þaö sem viö vildum gera, en
þar erum viö bara á sama báti og öll
önnur iðnfyrirtæki á landinu.
Einir um
smjörva og kotasælu
— Hvaðan fáiö þiö mjólkina og hvaö
framleiðið þiö úr henni?
— Viðfáummjólkfrámjólkurfram-
leiðendum í Eyjafiröi og Fnjóskadal og
sjáum sömu svæöum fyrir ferskvör-
um. Við framleiöum jógúrt sem
ferðast víöar, eða t.d. um Skagafjörö
og Húnavatnssýslu. Smjöri og osti er
aftur á móti dreift um land allt í
gegnum Osta- og smjörsöluna í
Reykjavík. Viö erum meö lang stærsta
ostagerðarbúið á landinu. Af þeim
rúml. 20 milljónum lítra, sem viö
tökum árlega á móti, fara um 80% í
osta og smjör. Jafnframt erum viö
eina samlagið á landinu sem framleiö-
ir smjörva og kotasælu. 1 heild bjóðum
viö upp á svona 20—30 vörutegundir.
— Nú er varla talaö um annaö en
kreppu og samdrátt í þjóðfélaginu. En
er samt ekki óhætt að fullyröa aö þiö
eruð meö pottþéttan söluvarning hvaö
sem á dynur?
— Ef ég á aö miða viö sjálfan mig
veit ég aö ég þyrfti aö vera ansi langt
leiddur til aö hætta aö drekka mjólk!
Meö þaö í huga þori ég auðvitaö alveg
aö fullyrða að viö erum meö pottþéttan
söluvarning, jafnvel þótt almenningur
þurfi að herða aö sér ólina eins og póli-
tíkusarnir oröa þaö! jþ
jf
<F<F<H><F<H><F<H><F<H><F<H* <f<f<t<HKKt<^<f<f<fíf
NÝKOMNIR "
ungbarnaskór úr leðri,
skinnfóðraðir á leðursóla.
Þrjár gerðir
Litir: hvítur, rauður, biár
oggrænn.
Stærðir: 18—23. Verð: kr. 240,00.
SKÓBÚÐIN, SNORRABRAUT 38,
REYKJAVÍK. - SÍM114190.
VERSLUNIN LIPURTÁ,
KEFLAVÍK. - SÍMI 92 3033.
SKÓBÚÐIN, LAUGAVEGI62,
REYKJAVÍK. - SÍMI29350.
<*
<í
<t
<J
<*
<*
Þórarínn E. Sveinsson að störfum /nýjum húsakynnum KEA.
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN - HALLARMÚLA 2,