Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1982, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1982, Síða 13
DV. FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER1982. 13 orðiö að atvinnuvegi, sem hefur sivax- andi þýðingu fyrir afkomu okkar allra. Mig grunar samt að enn vanti mikið á að allir geri sér grein fyrir þvi hve mikla og margþætta þýðingu hann hef- ur fyrir þjóöarbúið. Þótt sjá megi tölur um beina gjaldeyrisöflun ferðamanna- þjónustunnar, skortir mikið á að þær einar gefi rétta mynd af þeirri þýð- ingu, sem ferðamál hafa fyrir okkur. Þótt hér í höfuðborginni séu mörg myndarleg hótel og um hana fari obb- inn af þeim ferðamönnum, sem sækja okkur heim, þá held ég að raunveruleg þýðing ferðamannastraumsins fari fyrir ofan garð og neðan hjá flestum á höfuðborgarsvæðinu, enda mun mála sannast að hann hafi meiri þýðingu úti á landsbyggðinni. Til þess aö skynja það þurfa menn að ferðast um eigiö land í stað þess að fara sífellt á sólarstrendur. Atvinnan í kríngum ferðamenn Þegar ekið er hringinn í kringum landið komast menn ekki hjá því að sjá þann mikla fjölda veitinga- og gisti- staða, sem opnir eru að sumarlagi til þess að veita ferðamönnum þjónustu. Á þessum stöðum vinna margir, þar á meðal skólafólk, sem vart myndi hafa aðra atvinnu yfir sumarmánuðina. Á ferðamannastöðunum hafa á síðustu árum risið margar stórar og nýtísku- legar verslanir, sem yfir sumartímann eru fullar af viðskiptavinum. Sumum þeirra er lokað, þegar ferðamanna- straumnum lýkur, aðrar eru opnar all- an ársins hring og nýta ágóðann af ferðamannaversluninni til þess að geta aUt árið boðið viðkomandi byggðarlagi þokkalega þjónustu. Á sömu stöðum vinnur fjöldi fólks á bifreiðaverkstæð- um, í söluskálum, bensínafgreiðslum og minjagripaverslunum, sem selja framleiðslu fólks, er annars hefði enga möguleika á því að hagnýta sér sköp- unargleði sína til tekjuöflunar. Ekki megum við heldur gleyma þeim fjölda fólks, sem vinnur beint við ferða- mannamóttökuna á ferðaskrifstofum og við leiösögustörf. Að síðustu skal þess svo getið, að straumur ferða- manna fáa sumarmánuði gerir þaö kleift að reka árið um kring nokkra fullkomna gististaði fyrir landsmenn sjálfa, sem sumir hverjir að minnsta kosti bæta úr m jög brýnni þörf. „Góðir ferðamenn" og „siæmir" Ekki má þó gleyma að tekjur af feröamönnum, beinar jafnt sem duldar, segja okkur ekki alla sögu. Vissulega hafa þessi mál einnig sínar dökku hliðar, en sem betur fer ekki dekkri en svo að okkur ætti að vera í lófa lagið aö bæta þar úr. Lega lands okkar setur því nokkrar skorður hvemig æskilegt er að ferðamanna- straumurinn dreifist. Islensk náttúra er ákaflega viðkvæm og það getur tek- ið hana áratugi og aldir að bæta fyrir það, sem fyrirhyggjuleysi eina dag- stund getur valdið. Því er ekki að neita að í þessum efnum eimir enn eftir af barnaskap okkar í garð útlendinga. Það þykir „ófínt” eða jafnvel skaðlegt að setja ferðamönnum skorður. Sjálf- sagt þykir að „blessaðir mennimir” fái að valsa um eins og þeim sýnist, annað væri taliö dónaskapiu- við út- lendinginn. Sannleikurinn er þó sá að hér mrf- um við aö athuga okkar gang, ef við eigum ekki bæði að verða að athlægi í augum útlendinga og jafnframt að blóðmjólka þá mjólkurkú, sem ferða- málin gætu orðið okkur. Það er stað- reynd, hvort sem fólki líkar betur eða verr, aö Island er þegar oröið að at- hlægi í augum ýmiss konar erlendra braskara, sem koma hingað og ræna náttúrugersemum og selja við dýru verði erlendis. Þessir menn þverbrjóta öll tollalög, bæði þegar þeir koma hing- að og fara héðan, og segja gamansögur erlendis af viöskiptum sínum við inn- fædda, þótt þeir spili á hégómagirnd- ina og sm jaðriö, á meðan þeir eru hér. Þaö er best að segja það hreint út að velflestir þessara manna koma með færeysku ferjunni Smyrli hingað til lands, eru hér flestum til óþurftar og fáum til gagns og virða islensk lög og reglur lítils. Við þessi mál er erfitt aö eiga, því vitaskuld koma einnig margir ágætir ferðamenn með því skipi hing- að, en það er b jargföst sannfæring mín eftir ferðalög um landið og viötöl við marga þá, sem starfa að ferðamálum og náttúruverndarmálum, að ferða- menn meö Smyrli eru sérstakt vanda- mál, sem verður að taka sérstökum tökum fyrr en seinna. Hin raunverulegu feiZ ~ná/ En jafnframt Miótum við einnig að taka hin raunverulegu má! föstum tök- um, ferðamanna-,,iðnaðinn”, sem stundum er nefndur svo. Við hljótum að gera okkur grein fyrir því að hér er um að ræða atvinnuveg, en ekki tóm- stundagaman þeirra sem hafa sam- skipti við útlendinga. Jafnframt því hljótum við að gera okkur grein fyrir því að við þurfum aö standa viö bakiö á þeim, sem þessa atvinnu stunda, ef á móti blæs, rétt eins og öðrum, því við njótum góðs af störfum þeirra þegar vel gengur. Þeir hafa hingað til verið veitendur en ekki þiggjendur, og sýnt það öðrum mönnum fremur að þeir geta stundað sína atvinnu án almanna- hjálpar. Við skulum því ekki tala um ölmusur, þótt við þurfum að hliðra til fyrir þeim, og við skulum einnig gera okkur grein fyrir því aö við getum ekki endalaust ætlast til þess að þetta fólk moki gjaldeyri inn fyrir þröskulda okkar, án þess að við virðum störf þess, atvinnutæki og fyrirtæki til ja&is við hliðstæöur þeirra í öðrum atvinnu- vegum. Magnús Bjarnfreðsson Limlesting á lýðræði? Hvað kostar atkvæðið? Sumir vilja réttlæta ríkjandi mis- mun atkvæðisréttar með vísan til þess, aö sumir þjóðfélagshópar, einkum þeir sem í dreifbýli búa, beri skarðan hlut frá borði í samfélags- legri þjónustu. Menn nefna t.d. háan kyndingarkostnað á olíusvæðum, lé- legar samgöngur, bágboma heil- brigðisþjónustu, takmarkað skóla- hald o.s.frv. Sumir láta á sér skiljast, að þeir séu reiðubúnir til pólitískrar verzlun- ar með atkvæöisrétt sinn, gegn aukn- um fjárframlögum til þessara hluta. Þá þykir sumum sem flest sé orðið falt við fé, ef mannréttindi eru orðin að pólitískri verzlunarvöru. Þeir sem helzt tíunda ókosti þess að búa í dreifbýli sleppa gjarnan aö minnast á kostina. Þéttbýlið hefur sína ókosti, eins og t.d. tímafrek ferðalög til og frá vinnu, hærri bensínkostnað vegna lengri vega- lengda, sem aka þarf daglega, tor- veldara samneyti við óspjallaða náttúru, meiri hraða, ys og streitu. Ekki hefur þetta enn heyrzt nefnt sem röksemd í kosningaréttarmál- um þéttbýlisbúa. Enda fráleitt. Fjölmargir þjóðfélagshópar búa við skerta aðstööu til að njóta félags- legrar þjónustu. Manni verður fyrir að nefna sjómenn, sem eru langdvöl- um f jarri heimilum sínum. Einhverj- ir myndu nefna hreyfihamlaða og fatlaða, sem naumast komast leiðar sinnar um opinberar þjónustustofn- anir. Nú er spurningin: Eigum við að bæta þeim þetta upp, með t.d. fimm- földum atkvæðisrétti á við þá, sem guð hefur gefiö óskerta líkamlega heilsu? Ekki hefur sú krafa verið sett fram enn. Konur eru áberandi fá- mennar á Alþingi. Eigum við að bæta þeim það upp, með því eins og að þre- falda atkvæöisrétt kvenna? Ekki nefndi kvennaframboðið það í vor, svoaðégmuni. Möríandinn og milljónirnar Því hefur heyrzt fleygt í þessu sambandi, aö Islendingar myndu una því illa, t.d. á vettvangi Samein- uðu þjóðanna, að fara þar meö minna en eitt atkvæöi á móti þúsund milljón kínverskum. Hvers vegna þá aö gera veður út af bara fimmföldu atkvæðamisrétti í okkar eigin félags- skap? Hér er aftur verið að rugla saman óskyldum hlutum. Samvinna full- valda ríkja á alþjóðavettvangi felur í sér eins konar samning. Alþjóða- samvinna fullvalda ríkja felur í sér nokkurt afsal fullveldis. Þar á móti kemur, að þessi samvinna er gagn- kvæm, og upp tekin af frjálsum og fúsum vilja og á jafnréttisgrundveUi. Islendingar vilja ekki, að Kínverjar ráðskist með sín mál og breytir engu þótt okkur gangi það böslulega sjálf- um. Trúlega er þetta gagnkvæmt. Hins vegar hefur það hingaö tU þótt lýðræðislegt sjónarmið, að Kínverj- ar, hver og einn, hafi jafnan rétt tU áhrifa á sín mál. Og Islendingar sömuleiðis. Manngiidi og ærgildi Um svo augljós rök á ekki að þurfa að deila. Þess er skemmst að minn- ast, að það var ríkjandi skoðun íhaldsmanna í eina tíö, að atkvæöis- réttur ætti að vera bundinn eign og efnahag. Menn uröu að vera gUdir bændur, eiga nokkur kýrhundruö í landi eða nokkrar spesíur í handrað- anum tU þess að fá að neyta at- kvæðisréttar. Sömuleiðis þótti þeirr- ar tíöar mönnum fráleitt aö konur teldust f ullgUdir þegnar. Það var sögulegt hlutverk jafnað- armanna og annarra frjálslyndra afla að kveða niður slíka fordóma. Ásamt meö almannatryggingum var þaö helzta baráttumál Alþýðuflokks- ins fyrsta hálfan annan áratug sögu sinnar aö tryggja ungu fólki og efna- Utlu þau almennu mannréttindi sem feiast í óskertum og jöfnum kosn- ingarétti. Héðinn Valdimarsson lét sig ekki muna um það aö flytja árið 1927 frumvarp til laga um breytingu á stjórnarskrá, sem gerði ráö fyrir fækkun þingmanna um þriðjung. Hins vegar hvarflaði aldrei að hon- um að gera kosningarétt öreiga í þéttbýli að verzlunarvöru við sveita- afturhald þeirrar tíðar. Þess vegna er það ósæmandi jafnaðarmönnum, hvar sem þeir hafa valið sér búsetu, aö vekja upp slíkar afturgöngur, sem löngu var búið að kveða niður. Við megum gjaman minnast þess, að þegar Héðinn Valdimarsson flutti fyrst frumvarp um byggingu verka- mannabústaða í Reykjavík, risu mosavaxnir íhaldsfauskar upp á aft- urfæturna og mótmæltu því. Rök- semdirnar áttu að heita þær, að verkamannabústaðir á mölinni • myndu ýta undir fólksflótta úr sveit- um, þar sem væri að finna allt það bezta, sem til væri með þjóðinni. Nær væri að verkamenn flyttu upp í sveit. Ef fjallið vildi ekki koma til Múhameðs, átti Múhameð að koma til f jallsins. Óafsalanleg mannréttindi Þvílíkar röksemdir höfðu ekki heyrzt í hálfa öld þar til formaður þingflokks Framsóknarflokksins, Páll á Höllustöðum, sagði í útvarps- viðtali að Reykvíkingar og Suður- nesjamenn gætu bara flutt upp í sveit, ef þeir gerðu kröfur til sama atkvæðisréttar og Húnvetningar. Það er tímanna tákn, að íhaldsupp- vakninga af þessu tagi er nú einkum að finna í framsóknaralþýöubanda- laginu. Grundvallarreglan: einnmaður — eitt atkvæði, er hvorki meira né minna en hornsteinn lýðræðislegrar þjóðfélagsskipunar. Atkvæðisréttur- inn er hverjum einstaklingi óafsalan- leg mannréttindi. Hann er ekki póli- tísk verzlunarvara. Hann á ekki að vera falur. Menn sem kenna sig við lýðræðisjafnaðarstefnu geta undir engum kringumstæðum léö máls á stuöningi við þvílíkt íhaldssjónar- mið. Valddreifing — vaidbeiting En hvað um baráttuna fyrir jöfnun á aðstöðumun ýmissa þjóðfélags- hópa eftir búsetu, starfsstéttum, kynferði, heilsufari eða annarri þjóð- félagsstöðu? Sú pólitiska barátta er auðvitaö í fullu gildi. Þar sem annars staðar eiga jafnaðarmenn að vera fremstir í flokki. Kjarni málsins, að því er varðar aðstööumun dreifbýlis og þéttbýbs, er sá, að það þarf að flytja vald, ábyrgð og tilsvarandi fjármuni frá miðstjórnarvaldinu til sveitarstjórna og héraða. I því máli eiga jafnaðarmenn aö móta sér skýra og afdráttarlausa stefnu. Þaö þarf að sameina sveitarfélög, stækka þau og efla til þess að ráða við stærri verkefni. Þaö þarf að færa valdið og f jármunina í hendur þeirra, sem yfir staöarþekkingu ráöa. Á seinasta þingi flutti Magnús H. Magnússon, fv. félagsmálaráðherra, ítarlegt frumvarp um þetta efni. Það vakti athygli, að forkóifar fyrirgreiðslu- pólitíkur á þrngi svöruðu þessu frum- varpi með þögnmni. Það væri leiðinlegt til afspurnar ef íslenzkir jafnaðarmenn tækju nú upp á því að setja blett á glæsilega, sögu- lega erfö sína, þar sem er óslitin bar- átta þeirra fyrir jöfnum mannrétt- indum þegnanna (þ.m.t. jöfnum at- kvæðisrétti), hvar sem þeir kjósa sér búsetu í ríkinu, eða hver svo sem þjóðfélagsstaða þeirra er. Minnugir uppruna síns eiga jafnaðarmenn að standa með mannréttindabaráttu fólksins gegn þvergirðingshætti for- réttindahópa. Árið 1932 gaf Alþýðuflokkurinn út í bæklingi greinargerð Jóns Baldvins- sonar fyrir störfum hans í milli- þinganefnd um kjördæmamálið. Stefna Alþýðuflokksins í málinu kemur fram af heiti bæklingsins: Landiö eitt kjördæmi. Með því móti, segir Jón Baldvinsson í niðurlagsorð- um greinargerðarinnar „er viður- kennt á borði jafnrétti kjósenda til að hafa áhrif á skipun Alþingis, hvar á landinu sem þeir eru búsettir. Þá fellur það niður, sem nú er algeng- ast, að alþingismenn telji sig fulltrúa fyrir tiltekinn fjölda ferhymings- mílna af meira og minna hrjóstrugu landi, jöklum og eyðisöndum. Þá verða þeir fulltrúar þjóöarinnar, fulltrúar fólksins, sem landiö bygg- ir.” Jón Baldvin Hannibalsson, ritstjóri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.