Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1982, Side 16
16
DV. FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER1982.
Spurningin
Hjálparðu makanum
við að vaska upp?
Birna Bjömsdóttir húsmóöir: Ja, viö
eigum nú uppþvottavél. Og við hjálp-
umst bæöi viö að raöa í vélina.
Birgir Steinþórsson bókari: Mjög
sjaldan. Hvers vegna ekki? Veit það
ekki. Finnst það ekkert leiðinlegt, en
geri það samt sem áður m jög sjaldan.
Freyr Hreiöarsson bilamálari: Já, það
geri ég á hverjum degi og elda auð-
vitað líka. Uppvaskið ekkert leiðin-
legt? Nei, það finnst mér ekki.
Öðinn Guðmundsson sjómaður: Já, já,
ég geri það. Hjálpa henni eins oft og ég
get. Nei, nei, finnst alls ekki svo leiðin-
legt að vaska upp.
Hreinn Guölaugsson bifreiðastjóri: Jú,
það kemur fyrir, en heldur er það
sjaldan. Finnst uppvaskiö hálf leiðin-
legt.
Guðmundur Magnússon: Jú, það geri
ég oft. Finnst það alls ekki svo leiðin-
legt. Þværðu eða þurrkarðu? Geri
hvort tveggja.
Lesendur Lesendur Lesendur
Unglingar fyrir utan Villta tryllta Villa. Ásgeir Kárason segir, að vilji 7079-5612 sjá ekta svall, þá só nær að Hta á h'fið umhverfis skemmtistaði hinna
fullorðnu. O V-mynd: Sv. Þ.
OPIÐBREFTIL 7079-5612:
Fullorðna fólkið svallar
— ekki unglingarnir, segir lesandi
Ásgeir Kárason skrifar:
Eg vissi eiginlega ekki hvort ég
ætti að hlæja eða gráta þegar ég las
lesandabréf 7079—5612 um Villta
Villa. Bréfið er með betri bröndur-
um, sem ég hef séð á minni lífsleið,
enda vel kryddað.
Þessi 7079-5612 telur upp 10 ókosti
skemmtistaðarins. Kennir þar
margra grasa, svo sem aö áfengi sé
faliö í skúmaskotum úti og að krakk-
arnir haldi áfram að svalla umhverf-
is staðinn langt fram eftir nóttu.
7079-5612 fer sem sé ekki að sofa
heldur vakir fram eftir öllu, senni-
lega meö kíki, til þess að geta nú
fylgst með hvað við unglingamir
erum að gera af okkur. Finnst þetta
greinilega vera mjög spennandi.
Eg skora á þennan aðila að fara nú
meö kíkinn og líta á lífið umhverfis
skemmtistaði hinna fullorðnu. Þá
fær hann að sjá ekta svall, læti og
áfengi falið í skúmaskotum.
Svo segir aumingja 7079-5612 aö
lögreglan sé hætt að sinna útköllum
að Villta Villa og hafi ekkert eftirlit
með staðnum. Hins vegar kemur
fram, þegar blaöamaöur DV hefur
samband við Oskar Olason, yfirlög-
regluþjón, að lögreglan hefur einmitt
sérstakt eftirlit þarna, ekki síst um
helgar.
Það besta í bréfi 7079-5612 eru þó
yfirlýsingar um drukkna unglinga
slangrandi langt fram eftir nóttu.
Ekki veit ég um neinn, sem hefur
nennt því.
Víst kemur fyrir að unglingar
skvetti í sig, en það er af hófsemi,
nema þá örfáir þeirra eldri. Þessi
hófsemi er nú eitthvað sem þið full-
orðna fólkiö skiljið ekki, því þaö eruð
sko þið sem svallið.
7079-5612 segir íbúðina sína hafa
fallið svo rosalega í verði síðan Villti
Villi opnaöi. Ekki er nú öll vitleysan
eins. Síöan er það uppspuni frá rót-
um að krakkar séu að sparka og
berja í bíla. Þaö mætti halda að við
værum einhverjar skepnur ný-
sloppnar af Sædýrasafninu.
7079-5612, ég veit aö það er ofsa-
lega spennandi að skrifa svona í
blöðin, en væri nú ekki betra að hafa
sannleikskomin einhver? Nei, vinur
minn, þetta fór ekki vel hjá þér, en
ég og vinir mínir erum þeirrar
skoðunar að þú eigir þér framtíð í
skemmtanabransanum. Þú myndir
slá í gegn.
Misréttið í „föstudagsmyndum” DV:
Aldrei
mynd af
karlmanni
— hvers eigum við konurnar að gjalda?
til ykkar á DV að fara nú að gera karl-
mönnum jafn hátt undir höfði og kven-
fólkinu.
I hverri viku er „föstudagsmyndin”
ykkar af þessari konunni eða hinni. En
er nú ekki tímabært, á þessum jafn-
réttistímum, að við fáum einhverjar
myndir af karlmönnum með loðna
bringu og stælta vöðva.
Eða hvers eigum við konurnar að
gjalda að fá aldrei neinar myndir
okkur til ánægju?
G.G. hringdi frá Akureyri:
Eg beini þeim eindregnu tilmælum
G.G. á Akureyri vill fyrir hvern mun
fá „föstudagsmyndir" af karimönn-
um „með loðna bringu og stælta
vöðva". Til bráðabirgða birtum við
þessa myndi huggunarskyni.