Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1982, Page 18
18
DV. FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER1982.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Blikarnir
með góðan
lokasprett
— semgeröiútaf við
Hauka
Haukar úr Hafnarfiröi sitja á botni 2.
deildarinnar eftir fjögurra marka tap
fyrir Breiðablik á heimavelli sinum í
Hafnarfirði í gærkvöidi. Þar sigruðu
Blikarnir 22—18 og var það sanngjarn
sigur.
Breiöablik komst í 7—4 í fyrri hálf-
leik en Haukar jöfnuðu í 10—10 fyrir
hlé. I síðari hálfleik voru Blikamir yfir
— oftast 1 til 2 mörk — en á loka-
sprettinum náðu þeir að komast 4
mörkum yfir, og viö þvi áttu
Haukamir ekkert svar.
2. DEILD
Staðan í 2. deild eftir síðustu tvo
leiki:
Afturelding-Ármann 15—15
Haukar-Breiðablik 18—22
Breiðablik 2 1 1 0 41—37 3
Afturelding 2 1 1 0 32—31 3
Þór, Vestm. 3 111 61—65 3
Grótta 1 1 0 0 29—23 2
HK 2 1 0 1 39—38 2
Ármann 2 0 2 0 35—35 2
KA 2 0 1 1 40—42 1
Haukar 2 0 0 2 34—40 0
Næstu leikir:
Þór-Afturelding á föstudag,
Ármann-HK, KA-Haukar á laugardag,
og Breiðablik-Grótta á sunnudag.
Allir lands-
liðsmenn
Alsír komnir
í leikbann
Allir bestu knattspymumenn Alsír
voru dæmdir í bann frá öllum íþróttum
í gær eftir að þeir höfðu neitað aö fara í
sex mánaða æfinga- og keppnisferð til
Marokkó. Þetta voru 24 leikmenn,sem
höfðu verið valdir til fararinnar.
Eftir að ljóst var að þeir neituðu að
fara var knattspymulið hersins í Alsír
sent í staðinn til Marokkó, þar sem að
leikmenn liðsins taka að sjálfsögðu út
herskyldu sína í góðu yfirlæti. -SOS
Hún var þétt vömin hjá KR-ingum í gærkvöldi enda tókst Þrótturum ekki að
skora nema 13 mörk í leiknum þar af aðeins 2 fyrstu 20 minútumar. Hér reynir
Guðmundur Sveinsson, Þrótti, skot, en á sýnilega erfitt með að finna smugu i
svarthvíta varnarmúraum. DV-mynd Friðþjófur.
„Góðir, en ekki tíu
mörkum betrí en við”
— segir Páll Ólafsson um KR-ingana
„Þeir em góðir KR-ingamir, en þeir
em samt ekki tíu mörkum betri en
við,” sagði Páll Ólafsson, landsliðs-
maður úr Þrótti, eftir að hann og félag-
ar hans höfðu verið teknir í bakariið af
KR-ingum í 1. deild íslandsmótsins í
handknattleik karla i Laugardalshöll-
inni i gærkvöldi. KR-ingamir sigmðu í
þeim leik 23—13 eftir að hafa verið 11—
5 yfir i leikhléi.
„Vömin hjá þeim var mjög góð og
þeir komu okkur á óvart með að leika
hana svona aftarlega,” sagði Páll.
„Annars liggur munurinn einfaldlega í
því að þeir eru í miklu betri æfingu en
IR-ingar eru
ekki með
Bandaríkjamam
ÍR-ingar verða þeir einu sem ekki
tefla fram Bandaríkjamanni i Úrvals-
deildinni i körfuknattleik sem hefst um
næstu helgi. Þeir eru aftur á móti með
bandariskan þjálfara, Jim Doyle, sem
er einnig landsliðsþjálfari íslands.
Eins og hefur komiö fram þá hafa
Valsmenn fengiö Tim Dwyer aftur til
liðs við sig, en hann lék aðalhlutverkið
hjá Valsmönnum, þegar þeir voru
ósigrandi fyrirtveimur ámm.
Bandaríkjamennimir, sem leika nú
með úrvalsdeildarliðunum, eru:
KR: Stewart Johnson.
KEFLAVÍK: TimHiggins
NJARÐVlK: Alex Gilmore
VALUR: TimDwyer
FRAM: DouglasKintzinger
Njarðvíkingar og Framarar eru
með nýja leikmenn.
Lítið hefur verið um félagaskipti
fyrir keppnistimabilið. KR-ingar hafa
misst þrjá leikmenn sem léku með
þeim sl. keppnistímabil. Þeir Kristján
Rafnsson og Kristján Oddsson hafa
gengið til liðs við IR og Birgir
Michaelsson er farinn til náms erlend-
is.
Njarðvíkingar þurftu að horfa á
eftir landsliðsmanninum Jónasi
Jóhannssyni til Reynis í Sandgerði og
Keflvíkingurinn Viðar Vignisson er
farinn til náms í Bandaríkjunum.
Fyrsti leikurinn verður í Keflavík
annaö kvöld. Þá fá nýliðar Keflvíkinga
KR í heimsókn kl. 20. Á laugardaginn
leika Fram og Njarðvík kl. 14 og á
sunnudaginn mætast Valur og IR kl.
14.
-sos.
við. Eg fann það best á sjálfum mér —
ég hef varla átt svona lélegan leik um
dagana. Eg var svo þreyttur og þungur
aö ég gat varia skotið á markið í síðari
hálfleiknum og þannig vorum við flest-
ir Þróttaramir í þessum leik.”
Páll, sem er ein aðalskytta Þróttara
og jafnan markhæstur — sérstaklega
eftir að Sigurður Sveinsson fór til
Þýskalands, — skoraði ekki nema 2
mörk í þessum leik — bæði í fyrri hálf-
leiknum. I þeim síðari reyndi hann
varla skot. Ef hann gerði það hitti hann
ekki markið eða þá að Gisli Felix
Bjamason varði frá honum. Gísli var
frábær í marki KR í þessum leik. Varði
fjöldan allan af skotum og ein 3 víti þar
að auki — þar af 2 frá Páli.
Þróttararnir reyndu allt til að
klekkja á KR-ingunum. Best gekk
þeim á tíma í síðari hálfleiknum þegar
þeir settu „yfirfrakka” á danska leik-
manninn Anders Dahl Nilsen. Minnk-
uöu þeir þá bilið úr il—5 í 13—10. Þá
fundu KR-ingamir svar við þeim leik
— þeir nafnamir Haukur Ottesen og
Haukur Margeirsson svo og Gunnar
Gíslason brutust inn í homunum og
breyttu stöðunni úr 14—11 í 18—11KR í
vil.
Eftir það reyndu Þróttaramir aö
leika „maður á mann” en það gekk enn
verr hjá þeim. Utkoman varð hálfgerð-
ur skrípaleikur þar sem KR skoraði 4
Þorsteinn
byrjar vel í
billjardinum
Golfmafturinn góðkunni, Þorsteinn Magn-
ússon, varft sigurvegari í fyrsta biiljard-
mótinu á þessum vetri. Var þaft eitt af f jórum
vetrarmótum hjá Júnó í Skipholti og mættu
þar nú til leiks 16 keppendur.
Mótift stóft yfir í tvo daga, laugardag og
sunnudag. Voru leiknar 15 umferftir — allir
við aUa. Þorsteinn hiaut samtals 11,5 vinn-
inga, en í 2. og 3. sæti komu þeir Stefán Aftal-
steinsson og Gunnar Júliusson meft 10,5 vinn-
inga hvor. Hlaut Stefán 2. sætið eftir umspil
vift Gunnar.
-kip-
síðustu mörkin og komst þar meö 10
mörkum yfir, 23—13. Fyrir sh'kar töl-
um var ekki útlit í byrjun leiksins þeg-
ar bæði liöin vom að þreifa fyrir sér.
Þá var staðan 2—1 fyrir KR eftir 13
mínútur og annað mark sitt í leiknum
skoraði Þróttur þegar 20 mínútur voru
búnar!!
KR-liðið var mjög jafnt í þessum
leik. Mest bar á bræðruntim Alfreð og
Gunnari Gisla og þá var Friðrik Frið-
riksson góður bæði í vöm og sókn.
Bestur KR-inganna var þó Daninn
Anders Dahl — jafnvel þegar hann var
tekinn úr umferð. Stefán Halldórsson
reyndi lítið að skora í þessum leik, —
hélt spilinu þess í stað gangandi og var
gaman að sjá til hans í því hlutverki.
Hjá Þrótti var Guðmundur Sveins-
son einna skástur í sókninni, — en
vamarleikurinn var aftur á móti sterk-
ari hliðin af liðinu í þetta sinn, sérstak-
lega þó á sínum kaflanum í hvorum
hálfleik.
Mörkin í leiknum gerður:
Fyrir Þrótt: Guðmundur Sveinsson
3, Páll 2, Magnús 2, Jens 2, Konráð 2,
og þeir Lárus Karl og Lárus Láruss. 1
mark hvor.
Fyrir KR: Alfreð Gíslason 6, Gunnar
Gíslason, 5, Haukur Ottesen 3, Anders
Dahl 3 (2 víti) og Friðrik 2, Haukur
Geirmunds 2, og þeir Stefán og Ragnar
1 mark hvor.
Dómarar voru þeir Guðmundur Kol-
beinsson og Rögnvaldur Erlingsson.
Dæmdu þeir yfirleitt vel en virtust þó á
köflum vera næmari fyrir því sem þeir
heyrðu til leikmanna en þeir sáu.. -klp-
Santana
hættur
— sem landsliðsþjálf-
arí Brasilíu
Tele Santana, landsliðsþjálfari
Brasilíu, sagði starfi sínu lausu í Río
de Janeiro í gærkvöldi. Santana, sem
er 41 árs, gerðist landsliðsþjálfari í
febrúar 1980 og náði brasilíska lands-
liöiö mjög góðum árangri undir hans
stjóm. En eftir að ttalar slógu
Brasilíumenn út úr HM á Spáni í
sumar var ljóst að Santana yrði ekki á-
fram landsliðsþjálfari Brasilíu. Aðeins
HM-titillinn var lykillinn að áfram-
haldandi starfi. -SOS.
Met Sigurðar P.
18.143 metrar
— íklukkustundarhlaupi
Sigurður P. Sigmundsson,
hlauparinn kunni i FH, hljóp
18.143 metra á einni klukkustund,
þegar hann setti íslandsmetin á
Fögruvöllum í fyrradag. Bætti
árangur og islandsmet Halldórs
Guðbjörassonar, KR, frá 1971 um
1075 metra. Það var 17.068
metrar. Því miður urðu mistök í
frásögn af þessu meti Sigurðar
Péturs, hagfræðings, í blaðinu í
gær.
Sigurður Pétur setti einnig
nýtt fslandsmet í 20 km hlaupi.
Hljóp vegalengdina á einni
klukkustund, sex mínútum, 9,6
sekúndum. Halldór Guðbjöms-
son átti einnig gamla
íslandsmetið á þeirri vegalengd,
1:10.01,6 og Sigurður bætti það
þvi um tæpar f jórar mínútur.
-hsim.