Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1982, Blaðsíða 11
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. OKTOBER1982.
11
Á bænum Hrauni viö Reyðarfjörð
býr Hávaröur Bergþórsson, ásamt
konu sinni Þórunni Magnúsdóttur.
Hæi, en því nafni gengur hann ætíö
undir, er að því leyti merkilegur að
hann er alltaf svoóvenju b'fsglaður og
ánægður með tilveruna að eftirtektar-
vert er. En þeim fer fækkandi sem í
dag una glaðir sínu hlutskipti. Nú á
tímum er kjörorðiö: viö heimtum, við
krefjumst, við boöum verkfall.
Hæi á aö baki litskrúöugan lífsferil
þótt hann sé ekki nema 62 ára. Mest-
alla ævina hefur hann stundaö sjóinn,
ýmist hjá öörum eða rekið sína eigin
útgerö. Hann var fyrsti maðurinn á
síðari tímum sem lagði þorskanet í
Norðfjarðarflóa með góðum árangri.
Sjálfsbjargarviðleitni hans á sér vart
takmörk. Hann hefur rekið vörubif-
reiö, stundað búskap, og nú síðast saltar
hann síld og heitir söltunarstöðin
Hraun. Auk þessa málar hann í
frístundum. Eins og hjá svo mörgum
öörum hefur líf þessa manns ekki verið
neinn dans á rósum en samt sem áöur
hafa þau hjónin komið upp 8 börnum
sem öll eru góðir og gegnir þegnar í
þjóðfélaginu.
Það má ljóst vera af þessari stuttu
mannlýsingu að sitt hvað er í manninn
spunniö. Sú reynsla sem aö baki er
hefur kennt honum að vera ekki
hræddur við að hafa skoðanir á hlutun-
um, enda er Hæi ómyrkur í máli þegar
svo ber undir. Fréttaritari DV hitti Há-
varð nú um helgina þar sem hann var
að dytta að síldartunnum en síldar-
söltun er að sjálfsögöu hafin hjá hon-
umeinsogöðrum.
Betra að eiga
Labrador-tík
Hvemig er aö vera smábóndi á ís-
landií dag?
— Það er hábölvaö. Sannleikurinn
er sá að verið er aö útrýma bændum af
minni stærðargráðu. Eg hef veriö beð-
inn um að hætta mínu sauðfjárhaldi.
En hvaö skyldu nú vandamál land-
búnaðarins lagast þótt bóndi meö 50—
60 ær hætti búi? Þaö fæ ég ekki skibð.
Eg tel að það sé búið að ganga þannig
frá sauðf járhaldi í þessu landi í dag aö
ástandið hefur varla veriö aumara hjá
þessari þjóö. Tökum til að mynda
bónda með um 50 ær. Hann hefur tví-
mælalaust meira upp úr því að eiga
eina Labrador-tík og láta hana gjóta
tvisvar á ári, en búast má við allt að 6
hvolpum í hverju goti. En vel að
merkja, hér þarf vissulega að vera um
hreinræktaöa tík að ræða. En þetta er
því miöur sannleikur, það er ekki leng-
urspuming hvort er hagkvæmara.
Bændur þessa lands hafa verið þolin-
móðir í gegnum árin. Hver hefur heyrt
þá kvarta þótt þeir þurfi að bíða í allt
að eitt og hálft til tvö ár eftir að fá
fullnaðaruppgjör frá kaupfélögunum á
innleggi? Og hver hefur heyrt þá tala
um verðbætur? Þetta ættu menn að at-
huga.
Vinstri mönnum að kenna
Áður fyrr var vandamál þjóðfé-
lagsins það aö þá komust bara þeir til
mennta sem voru af ríku fólki komnir.
En í dag komast albr sem vilja og það
er stórt vandamál. Þetta stóra vanda-
mál þjóðarinnar er vinstrimönnum aö
kenna. Þeir hafa breytt þjóðfélaginu til
hins verra. Nú sitja menn á skólabekk
bara til að sleppa við að vinna í fiski en
ekki vegna fróðleiksfíknar. Þetta er
stærsta efnahagsvandamál okkar Is-
lendinga, þ.e. of fáar hendur vinna
fyrir of marga sem ekkert gera.
Reykjavík er að drepa þjóðfélagið. Allt
menntafólkiö sest þar aö. Reykjavík er
þjónustumiöstöð, en þeir sem vinna viö
undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar
búa úti á landi og það er oft litiö niður á
það fólk af menntafólkinu í Reykjavík.
Mér er sagt aö hérlendis séu um 40.000
manns í skólum. Ég spyr: Hverjir eiga
að halda þjóöfélaginu gangandi?
Svo er þetta menntafólk svo einhæft.
Það má Ukja því við mann, sem kann
aðeins að nýta einn fingur af 10. Og viö
sjáum hve slæm nýting það er. Þaö
sem þjóöfélagið þarfnast er fólk sem
hefur reynt sem flest. Auk þess gefur
það lífinu gildi að prufa margt.
0
Nú sitja menn á skólabekk bara til að sieppa við að vinna í fiski, en ekki
vegna fróðleiksfiknar. . . Þetta stóra vandamál er vinstri mönnum að
kenna.
Menntahroki og valdníðsla
Annars fáum við einn og einn
menntamann út á land, og reynslan af
þeim er misjöfn. Eg get sagt frá einu
dæmi sem sýnir hve menntahrokinn og
valdníöslan er mikU hjá þessum köll-
um. Hér á næsta bæ viö mig býr
fatlaður bóndi, Jón Vigfússon á Hólm-
um. Hann hefur gegnum árin hugsaö
um æðarvarpið í hólmunum hér við
Reyöarf jörö. En bærinn aö Hólmum er
gamalt og frægt prestssetur, þótt eng-
inn prestur sitji þar núna. Presturinn
Hefur ekki verið oft erfitt hjá þér í
gegnum árin?
— Jú, vissulega hefur það verið. En
þaö er nú svo að þegar ég hef verið
hvað blankastur hef ég fengið hvað
mesta athafnaþrána og það hefur
bjargað mér. Nú er ég að salta þriðja
árið í röð. I fyrra saltaöi ég í 130 tunn-
ur. Nú hef ég bætt aðstöðuna mikið og
ég vonast til að geta saltaö talsvert
meira. Eg er bjartsýnn á framtíðina,
það þýðir ekkert annað.
Emil Eskifiröi.
„Reykjavík erað drepa þjóðfólagið."
Hábölvað að vera
smábóndi í dag
- verið að útrýma bændum af minni stærðargráðu segir Hæi,
Hávarður Bergþórsson bóndi á Hrauni við Reyðarf jörð
býr á Eskifirði. En svo við víkjum aft-
ur aö Jóni bónda, þá hugsar hann um
varpið og hlúir að því eins og hann hef-
ur mátt og getu til. Það var svo í kring-
um 1970 að á Eskifirði sat prestur, séra
Kolbeinn Þorleifsson. Hann gerði sér lít-
ið fyrir og sölsaði undir sig varpið,
þ.e.a.s. Jón leggur fram ómælda vinnu
í sambandi við varpið en presturinn á
Eskifiröi tekur stóran hlut af dúntekj-
unum og þaö af fötluðum manninum.
Þetta sýnir nú mannkærleika presta-
stéttarinnar. Og presturinn, sem er á
Eskifirði í dag, séra Davíö Baldursson
er enginn eftirbátur Kolbeins, sem
þótti nú af mörgum sýna hinn mesta
hroka gagnvart öryrkjanum, sem býr
að Hólmum. Eg vil nú segja það, þar
sem nú er verið að tala um að skera
niður bændastéttina, að ég tel fulla
ástæðu til að skera niður prestastétt-
ina. Það er alveg nóg að hafa fjóra
presta í landinu einn í hverjum fjórö-
ungi. En þaö þarf jafnframt að vera
skilyröi að þessir fjórir prestar hafi
þyrlupróf og þyrlu til afnota. Einnig
eiga þeir aö flytja sinn boðskap í fjöl-
miðlum og á kassettum. Ráðandi menn
í þjóðfélaginu ættu að íhuga þetta og
ekki einblina bara á bændastéttina.
Þeir finna enga lausn á efnahags-
vandanum þótt þeir fækki bændum og
sauðfé í landinu.
Bylting í starfsaðstöðu skurðstofu sjúkrahússins á Akureyri:
HÚSNÆHÐ
FIMMFALDAST
„Nýja húsnæðið veldur gjörbyltingu
í starfsaðstöðu skurðstofunnar og gjör-
gæslunnar,” sagði Ásgeir Höskulds-
son, framkvæmdastjóri Fjóröungs-
sjúkrahússins á Akureyri, í samtali við
DV.
Um sl. helgi flutti gjörgæsludeild og
skurðstofa sjúkrahússins í nýja þjón-
ustubyggingu, sem hefur verið í bygg-
ingu á undanfömum árum. Formlega
veröur nýja byggingin tekin í notkun á
109 ára afmæli sjúkrahússins 11.
nóvember nk.
Þjónustubyggingin er á tveim
hæðum. Á neðri hæöinni hefur skrif-
stofu sjúkrahússins verið komið fyrir
til bráðabirgða, en í framtíðinni eiga
að vera þar röntgendeild, slysadeild,
skiptistofa og göngudeild. Stefnt er aö
því að göngudeildin og slysadeildin
verði tilbúnar á næsta ári en að öðru
leyti verður unnið að innréttingu
hæðarinnar eftir því sem fjárveitingar
leyfa á næstu3 árum, aö sögn Ásgeirs.
Á efri hæðinni er skurðstofan og
gjörgæsludeildin, en einnig eru þar 6—
7 rúm fyrir sjúklinga augnlækna og
háls-, nef- og eyrnarlæknis.
Skurðstofa sjúkrahússins var áður
til húsa á 2. hæð gömlu byggingarinnar
þar sem hún hafði búið við svipaöan
húsakost allt síðan 1954. Viðbrigöin
verða því mikil, því nýja húsnæðið er
fimmfalt stærra. I það pláss sem losn-
ar kemur bæklunardeild með 15 rúm-
um og 10 rúma viðbót við kvensjúk-
dómadeild.
-GS/Akureyri.
Hárskeri
áEsju
Sigurlaug Bragadóttir hárskeri tók
nýlega til starfa á Hótel Esju.
Rakarastofa hennar starfar í nánum
tengslum viö Hárgreiðslustofu
Dúdda og Matta. Þá er einnig snyrti-
stofa á sama staö.
Auk herra- og dömuklippinga
býður Sigurlaug upp á permanent,
skol, djúpnæringu og fleira sem
viðvikur hársny rtingu.
Hár- og snyrtiaöstaðan á Hótel
Esju er í húsnæði á jarðhæð
hótelsins, sem nýlega hefur verið Sigurlaug Bragadóttir hárskeri afl
tekið í notkun. störf um í Hótel Esju.