Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1982, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1982, Qupperneq 7
DV. MÁNUDAGUR 25. OKTOBER1982. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Saga: Thailand og Mexíkó eftir áramótin Farandi: „Vi5 skipuleggjum ferö til Thailands í febrúarmánuöi. Veröur þaö þriggja vikna ferö, veröiö er ekki enn ákveðið, en reikna má með aö feröin komi til með að kosta 26—27 þúsund krónur,” sagði Jón Guðnason, framkvæmda- stjóri ferðaskrifstofunnar Sögu. Er Thailandsferöin skipulögö í samvinnu við bresku feröaskrifstofuna Blue Sky Holiday. „Viö fórum nokkrar ferðir til Mexíkó í fyrravetur og var góö þátt- taka í þeim. Viö höfum í hyggju aö taka aftur upp þráöinn eftir áramótin, en máliö er í buröarliðnum ennþá. Þær ferðir munu líklega hef jast seinnihluta janúarmánaöar og veröa reglulega fram í mars-apríl. Verð er erfitt aö ræöa um á þessu stigi málsins, en hugsanleg tala fyrir þriggja vikna ferö til Mexíkó er 30 þúsund krónur,” sagöi Jón í Sögu. Tók framkvæmda- stjórinn fram aö ferðaskrifstofan Saga seldi í Kanaríeyjaferöir í gegnum Am- sterdam með Amarflugi og eins í beinu feröirnar til Kanaríeyja meö Flugleið- um. Flest allir þeir feröamöguleikar sem nefndir hafa verið af starfsmönn- um hinna ferðaskrifstofanna standa einnig til boöa hjá Ferðaskrifstofunni Sögu. -ÞG Urval: Fífipps- Thailand og Pattaya eyjar me^ Globetrotters mÆmm 'im f : •§* og Hong Kong „Fyrirhuguð var ferö á okkar vegum til Suður-Afríku núna í októberlok, en vegna ónógrar þátttöku fellur sú ferö niöur,” sagði Haraldur Jóhannsson hjá Feröaskrifstofunni Farandi. „En viö förum í langferð 17. des., það veröur mánaðarferð. Viö förum til Filippseyja, flogið til London, þaöan fariö til Hong Kong og síðan til Manila. Fyrstu fimm dögunum verjum við á baöstrandarhóteli, fólk hefur þar tækifæri til aö stunda sólböö og hvilast. Manila er stórkostleg borg, þar er merkileg blanda af vestrænni og austrænni menningu. Víöa veröur fariö um svæðiö og margt skoöað. Á heimleiö veröur gist í Hong Kong í fjór- ar nætur og farið í dagsferð til Rauða- Kína. Viö fómm samskonar ferö í fyrra ogvarhúnmjögánægjuleg. Nokkuö hefur roskiö fólk sótt ílang- feröir okkar. Til dæmis var fólk í Fil- ippseyjaferðinni í fyrra sem var komið á áttræöisaldur. Feröin var því fólki ekki erfiðari en yngra fólki”. Haraldur gat þess einnig aö þaö heföi aukist tölu- vert aö fólk óski eftir ferðum til fjar- lægra og framandi staöa. Mánaöarreisa til Filippseyja á vegum feröaskrifstofunnar Farandi kostar kr. 40.000 á mann. „Það fara sextán manns frá okkur til Thailands 29. október. Fyrsti áfangi er Kaupmannahöfn og gist þareina nótt,” sagöi Inga Engilberts, sölustjóri hjá Feröaskrifstofunni Urval. „Þetta er annað árið í röö sem Urval býöur upp á þessa vinsælu ferð til Thailands í sam- vinnu viö dönsku ferðaskrifstofuna „Globetrotter”. Fyrirhugað var hjá Urvali aö bjóöa upp á Indlandsferð, einnig i október. I vor var áætlaður kostnaöur í þá ferð ca 30 þúsund krónur, en vegna gengis- breytinga hækkaöi ferðin í 40 þúsund krónur. Einnig vom flóð nú í haust á svæðum sem fara átti um í þeirri ferð. Þau röskuöu ferðatilhögun og auka- kostnaöur fylgdi þeim breytingum. Mjög dró úr þátttöku vegna aukins kostnaöar og ferðin felld niður. Thai- landsferöin sem Inga segir frá hér á undan kostar 26 þúsund krónur fyrir manninn (í tveggja manna herbergi) og 30 þúsund krónur í eins manns her- bergi. I verðinu er allt flug innifaliö. Gisting í tveggja manna/eins manns herbergjum með baöi, síma, minibar og svölum. Morgunverður og flutning- ur milli hótela og flugvalla eriendis. Frá Kaupmannahöfn er flogiö til Bang- kok og dvalið þar næstu fimm dagana. Það er haldið til Pattayastrandarinnar og lifsins notið þar í hálfan mánuð. Flogið er í gegnum Kaupmannahöfn til Islands aftur. Ferðin stendur yfir í 23 daga. „Þessi heimshluti og staöir eins og Thailand, Singapore, Hong Kong og Bali, svo aö einhverjir séu nefndir, em orönir vinsælir ferðamannastaðir. Hafa veriö það í mörg ár fyrir Evrópu- búa, en þaö era tvö, þrjú ár síðan ís- lendingar fóra að átta sig á ferðamögu- leikum á þessa staði,” sagöi Inga sölu- stjóri, er hún var spurð um vinsældir langferöa á meðal Islendinga. „Feröir þessar kosta ekki svo ýkja mikiö meira en ferðir innan Evrópu. Fólk hefur líka hug á aö breyta feröa- venjum sínum, fara til dæmis frekar y fir vetrarmánuöina í f rí og þaö er tím- inn til að heimsækja austuriöndin.” -ÞG jfcSéfc.- - sólud snjódekk - Þessi snjódekk eru sóluð eftir ströngum bandarískum staðli. Þau hafa dúndurgóða spyrnu, endast von úr viti og eru öll með hvítum hring. Þú ættir að hafa samband við næsta útsölustað og tryggja þér gang því verðið er ótrúlega lágt. Reykjavik: Hjólbarðahúsiö, Skeifunni 11 Flateyri: Sigurður Sigurdórsson Ólafsfjörður: . wmm iin iii iiih Múlatindur Hjólbarðaþjónusta Hreyfilshúsinu, Fellsmúla 24 Nýbarði sf., Borgartúni 24 ísafjörður: Hólmavík: Hjólbarðav. Jónasar Björnssonar Vélsmiðjan Vík Húsavfk: Helgi Jökulsson (Vélsm. Múli) Víkurbarðinn Garðabær: Nýbarði, Lyngási 2 Hvammstangi: Vélaverkstæðið Laugarbakka Egilsstaðir: Hjólbarðaverkstæðið Brúarlandi Kópavogur: Hjólbarðaviðgerð Kópavogs, Skemmuvegi 6 Blönduós: Bílaverkstæðið Vísir Fáskrúðsfjörður: Bíla- og búvélaverkstæðið Ljósalandi Mosfellssveit: Holtadekk sf., Bjarkarholti Sauðárkrókur: BílaverkstæðiðÁki Höfn: Verslun Sigurðar Sigfússonar Akranes: Hjólbarðaþjónustan Varmahlíð, Hallur Jónasson, Lindarbrekku Hella: Hjólbarðav. Björns Jóhannssonar, Lyngási 5 Stykkishólmur: Nýja Bílaver Skagaf.: Selfoss: Gúmmívinnustofa Selfoss Grundarfjörður: Hjólbarðaþjónusta Grundarfjarðar Siglufjörður: Bílaverkstæði Birgis Björnssonar Hveragerði: Bifreiðaverkstæði Bjarna Búðardalur: Patreksfjörður: Dalverk sf. Bílaverkst. Guðjóns Hannessonar Akureyri: Dalvík: Höldursf. Bílaverkstæði Dalvíkur Vestmannaeyjar: Hjólbarðastofan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.