Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1982, Page 17
DV. MANUDAGUR 25. OKTOBER1982.
17
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Deilan hjá Iðn-
nemasambandi
íslands:
SEGLUM HAGAD EFTIR
VINDlf MÁLEFNUMINSÍ?
Óskar I. Sigurðsson skrifar:
I grein Haralds Kristjánssonar í
tímaritinu Stefni, þar sem hann
ræöir m.a. málefni INSI, lýsir hann
ánægju sinni vegna þeirrar stefnu-
breytingar sem hefur átt sér stað
innan samtakanna í þjóðmálum.
Segir hann að samtökin starfi
ópólitiskt. Þykir mér þetta stangast
nokkuð á við skoðanir ..nýkjörinnar
stjómar” þar sem hún gaf þá yfir-
lýsingu í Mbl. þann 20.10. að það væri
fjarstæða að fráfarandi stjórn starf-
aði ópólitískt.
Af þessu dreg ég þá ályktun að
H.K. og co hagi seglum sem mest
eftir vindi og birti það sem hentar
best hverju sinnL
„Hingað tiihafa bðm getað farið til heimilistannlœknis sins. Siðan greiddu
foraltfrar honum og fengu endurgreitt hjá Sjúkrasamlagi Reykjavikur," —
segir Sóirún Konráðsdóttir.
Nýjar reglur um tannlæknaþjónustu
skólabama:
FREKLEGUR YFIR-
GANGUR OG BROT
Á PERSÓNUFRELSI?
Sólrún Konráðsdóttir hringdi:
Um daginn kom auglýsing frá
tryggingatannlækni og yfirskóla-
tannlækni þess efnis, að öll böm 6—15
ára eigi nú að fara til sins skóla-
tannlæknis. (Að öðrum kosti verða for-
eldrar sjálfir að greiða fyrir
tannviðgeröir bama sinna.)
Nemendum í fáeinum skólum er að
vísu heimilt að leita til heimilis-
tannlækna sinna, eða „einka-
tannlæknis”, eins og komist er að orði.
Yfirleitt eiga börn samt að leita til
skólatannlækna í öörum skólum eða
upp á heilsuvemdarstöð, ef ekki er
tannlæknir við þeirra skóla.
Þessu mótmæli ég eindregið.
Hingað til hafa börn getaö farið til
heimilistannlæknis sins. Síöan greiddu
foreldrar honum og fengu endurgreitt
hjá Sjúkrasamlagi Reykjavíkur. Mér
finnst þessi nýja ráðstöfun vera
freklegur yfirgangur og brot á per-
sónufrelsi.
Foreldrar, ég skora á ykkur að láta
til ykkarheyra um þetta mál.
Samkvæmt samningi milli
T ryggingastof nunar ríkisins
og Tannlæknafélags
íslands
„Þegar Tryggingastofnun ríkisins
gerði samning við Tannlæknafélag
Islands, 1974 eða 5, að mig minnir,” —
sagði Stefán Yngvi Finnbogason, yfir-
skólatannlæknir — „þá var það í tilefni
þess að tryggingalögunum var breytt
þannig að Tryggingastofnun ríkisins
fór að taka þátt í tannlækninga-
kostnaöi.
I samningi þessum segir að tann-
lækningar hinna tryggðu skuli fara
fram hjá skólatannlæknum eða á
heilsugæslustöðvum, þar sem því verði
viö komið.
Til skamms tíma gátu skóla-
tannlæknar Reykjavíkur ekki annað
öllum börnum og unglingum sem rétt
áttu á þessari þjónustu. Nú hefur stofn-
uninni vaxið sá fiskur um hrygg að
hún telur sig geta uppfyllt þetta atriði
samningsins,” sagöi yfirskóla-
tannlæknir a ö lok um.
Þorgrímur Jónsson tryggingatann-
læknir sagði: „Auglýsing þessi er í
fullu samræmi við samning
Tryggingastofnunar ríkisins og
Tannlæknafélags Islands, 1975”.
Tannlæknafélag íslands í við-
ræðum við heilbrigðisyfirvöld
Reykjavíkurborgar
„Um 90% foreldra skólabama í
Reykjavík eru ánægð með skóla-
tannlæknakerfiö,” sagði Gunnar Þor-
mar, formaður Tannlæknafélags
Islands. — „Svo að þeir fáu aðilar, sem
fremur kjósa að senda böm sín til
heimilistannlækna ættu ekki að valda
kerfinu þaö miklum aukakostnaði að á-
stæöasétilþess aðtakafyrir þetta.
Um þessar mundir á Tannlækna-
félag Islands í viðræöum við heil-
brigðisyfirvöld Reykjavíkurborgar um
þetta mál.”
-FG.
USA POLARIS
USA - USA— USA - USA— USA- USA- USA-
Ameríkureisa
með
Polaris
Ótakmarkað fíug um Bandaríkin
í a/lt að 90 daga.
Verðið ótrúlega hagstætt Kr. 13.850
Ferð í sérf/okki
í samvinnu við
Fiugieiðir og Pan Am
Ferðaskrifstofa
S* PÓLARIS
POIARIS Bankastræti 8
Reykjavík. Símar 28622 og 15340.
USA— USA— USA— USA— USA- USA- USA- USA- USA- USA-
Afsláttarkjör
fyrir ellilíf eyrisþega á ári aldraðra
Náttúrulækningabúðin veitir 10% AFSLÁTT til áramóta 1982/1983
Þeir sem njóta afsláttar eru:
• ellilífeyrisþegar
• öryrkjar
• þroskaheftir
• og aðrir þeir sem standa verr að vígi en við sem heilbrigð erum.
Afslátturinn er veittur af eftirafarandi vöruflokkum:
• vítaminum
• ginseng-töflum, í belgjum og ampúlum
• lecithini — í belgjum og granulat
• Royal Jelly í belgjum og ampúlum
• og öllum öðrum vörum okkar sem flokkast undir f æðu-uppbótarefni.
Auk þessa afsláttar fá allir okkar viðskiptavinir 10% magnafslátt af þessum upptöldu vöru-
flokkum þegar úttekt þeirra fer yfir kr. 1.000 — eitt þúsund krónur —
Við sendum í póstkröfu um allt land.
Þeir sem senda greiðslu með pöntun losna við póstkröfukostnað.
NÁTTÚRULÆKNINGABIJÐIN
Laugavegi 25, símar 10262 og 10263, og við Óðinstorg, sími 10228.