Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1982, Síða 27
DV. MANUDAGUR 25. OKTOBER1982.
35
Sími 27022 Þverholti 11
Smáauglýsingar
Kona, sem er í f östu og góðu starfi,
með dreng á níunda ári, óskar eftir
íbúð á leigu. Reglusemi og góðri
umgengni heitið. Uppl. í síma 75731.
3ja-4ra berb. íbúð óskast,
Þarf aö vera í Reykjavik. Fyrirfram-
greiðslu og algjörri reglusemi heitið.
Uppl. í síma 11294.
2ja eða 3ja herb. góð íbúð
óskast til leigu. Góö umgengni. Uppl. í
sima 85328.
Reglusöm ung kona
óskar eftir góðri 2ja-3ja herb. íbúð sem
næst miðbænum. Skilvísar greiðslur og
fyrirframgreiðsla ef óskað er. Uppl. í
síma 35291 eftir kl. 19.
Ung hjón með bam
á skólaaldri, bráðvantar íbúð sem
fyrst. Fyrirframgreiðsla og öruggar
mánaðargreiðslur. Góöri umgengni
heitið. Nánari uppl. í síma 76525.
Einstæð móðir með eitt bam
óskar eftir 2ja herbergja íbúð, hámark
fyrirframgreiðslu um 20 þús.
Vinsamlegast hringið í síma 23224 milli
kl. 6 og 10 á kvöldin.
Úska eftir 2ja herb. íbúð.
Fyrirframgreiðsla ef óskaö er. Uppl. í
síma 23224.
Kona með eitt bam
óskar eftir 2ja herb. íbúð. Reglusemi
heitiö, fyrirframgreiðsla ef óskað er.
Uppl. í síma 23452 e. kl. 13.
Gamli bærinn / vesturbær.
Ungur maður óskar eftir íbúö,
einstaklingsíbúð eöa rúmgóðu her-
bergi með aðgangi að eldhúsi. Algjörri
reglusemi og góðri umgengni heitið.
Einhver fyrirframgreiðsla. Uppl. í
síma 28737.
Reglusöm kona,
rúmlega fimmtug, óskar eftir
einstaklingsíbúð, eða rúmgóðu herb.
og aðgangi að eldhúsi, getur borgað
fyrirframgreiöslu og einnig látið í té
húshjáip. Uppl. í síma 27147.
Óska eftir að taka
á leigu einstaklingsíbúð. Algjörri
reglusemi og góðri umgengni heitið.
Einhver fyrirframgreiðsla og öruggar
mánaðargreiðslur. Nánari uppl. í síma
77266 Helga Kristinsdóttir.
Tvö systkini í námi
óska að taka á leigu 2—3ja herb. íbúð.
Reglusemi, góðri umgengni og skilvís-
um greiðslum heitið. Uppl. í síma
83658.
HP húsgögn
auglýsa eftir lítilli íbúö, eða herbergi
með eldunaraðstöðu og baði, fyrir einn
af starfsmönnum fyrirtækisins.
Uppl. í síma 85153 á virkum
dögum eða 28673 á kvöldin og um
helgar. Reglusemi og góðri umgengni
heitið.
Atvinnuhúsnæði
Óska eftir að taka á leigu
iðnaðarhúsnæði fyrir bílaviðgerðir.
Þarf að vera í Reykjavík eða í Kópa-
vogi. Þárf ekki að vera fuliklárað.
Uppl. í síma 66838.
10—30 fm geymslu- og
viögerðarhúsnæði óskast á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Margt kemur tii
greina. Skilvísar greiðslur. Uppl. í
síma 41647 milli kl. 18 og 19 í kvöid og
næstukvöld.
Bilskúr óskast á leigu
sem geymslupláss, helst í Kleppsholti.
Vinsaml. hringið í síma 34632.
Til leigu á góðum stað
nálægt miðbænum, skrifstofu- og lag-
erhúsnæöi, um 60 ferm, á jarðhæð.
Hentar lítilli heildverslun eða
hreinlegum iönaði. Tilboð merkt
„Gamalt hús 808” sendist DV fyrir 27.
okt. ’82,__________________________
Óskum að taka
á leigu 80—150 fermetra iðnaðarhús-
næði. Uppl. í síma 78727.
Iðnaðar- eða geymsluhúsnæði,
ca 60 fm, til leigu nú þegar. Tilboö
sendist DV merkt „Húsnæði 74” fyrir
27. okt.
Vinnustofa—Rcykjavík.
Listakonu vantar húsnæði undir vinnu-
stofu frá 50 ferm, snyrtiaöstaða nauö-
synleg, má þarfnast lagfæringar.
Uppl. í síma 13681 milli kl. 18 og 20.
Óska eftir
að taka á leigu bjarta og rúmgóða
áðstöðu fyrir rólega vinnu í miö- eöa
vesturhluta bæjarins (1—2 herb.).
Fyrirframgreiðsla. Uppl. í síma 19756.
Iðnaðarhúsnæði í Hafnarf irði.
Oska eftir að kaupa iðnaðarhúsnæði
ca 60 til 120 fermetra í Hafnarfirði eða
á Reykjavíkursvæðinu. Uppl. á DV á
auglþj. DV í síma 27022 eftir kl. 12.
H—681
Atvinna í boði
Beitingamenn vantar
í Reykjavík. Uppl. í síma 53990.
Kona óskast
til að taka í gegn íbúð einu sinni í viku í
Hlíöunum, ca 4 tíma. Uppl. gefnar í
síma 15715 eftir kl. 16.
Verksmiðjustarf.
Starf er laust viö pappírsiðnað hjá O.
Johnson & Kaaber hf. Upplýsingar
gefnar í síma 24000. O. Johnson &
Kaaber hf.
Óskum eftir að ráða
í eftirtaldar stööur: 1 Stúlka í
afgreiðslu hálfan eða allan daginn.
Stúlka í pökkun allan daginn. Reglu-
semi og stundvísi áskilin. Uppl. í sima
17261 eöa á staðnum. Verslunin
Nóatún.
Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur
Ævintýri
æskunnar
í þýðingu Rúnu Gísladóttur.
— Endurprentun.
I bókinni, sem hefur verið ófáanleg í
nokkur ár, eru 29 ævintýri frá 17 lönd-
um. Hún er ríkulega myndskreytt.
Sngölfsson
Birgir &
Ásdís
eftir Eðvarð Ingólfsson
Birgir & Ásdís er eldhress skáldsaga
um ástir unglingsáranna, fyrsta barn-
ið, sambúðina og mörg þau vandamál,
sem henni geta fylgt. Ung pör sem
hefja sambúð komast fljótt að því að
lífið er ekki eins einfalt og það sýnist í
kvikmyndum og afþreyingarbókum.
Birgir & Ásdís er sjálfstætt framhald
unglingabókarinnar Gegnum bernsku-
múrinn, sem kom út fyrir tveimur
árum og vakti mikia athygli.
Eðvárð Ingólfsson er22 ára. Birgir &
Ásdís er þriðja skáldsaga hans.
¥
Eðvarð hefur starfaö mikið meö ungl-
ingunum og hefur um skeið stjómað
vinsælum unglingaþáttum í útvarpinu,
fyrst „Bollu-bollu” og nú þættinum
„Ur stúdíó4”. Það er því ekki undar-
legt aö hann sæki söguefni sitt til þess
aldurshóps, sem hann gjörþekkir.
NAR PORSTEINSSC
eyðarópið
Já stálsmiðiuniti
Neyðarópið
hjá
stálsmiðjunni
barna- og unglingabók eftir
Ragnar Þorsteinsson.
Þetta er 10. bók Ragnars. Af fyrri
bókum hans má nefna Skjótráður skip-
stjóri og Upp á líf og dauða — um sjó-
mennskuævintýri Silju og Sindra.
— Neyðarópið berst frá Sveini, 13 ára
gömlum, sem þrír stálpaðir strákar
þjarma að. Og Þorlákur Vilmundarson
bregður skjótt við.... En má hafnar-
verkamaður um sextugt sín einhvers
gegn flokki pörupiita sem leiðst hafa út
í notkun allskyns vímuefna ? —
I bókinni kemur margt á óvart. Hún
er fjörleg og spennandi frásögn af
samskiptum Þorláks og drengjanna.
Kjamakonur á ýmsum aldri koma og
við þessa sögu sem gerist að hluta á
sjó. ;
Með kveðju
f rá kölska
eftir C.S. Lewis
Bókaútgáfan Salt hefur gefið út bók-
ina Með kveðju frá Kölskaren hún er
eftir enska rithöfundinn C.S. Lewis og
heitir á frummálinuScrewtape letters.
Þýðandi ersr. Gunnar Bjömsson. For-
mála ritar dr. Sigurbjöm Einarsson
biskup og gríski listamaðurinn Papas
myndskreytti bókina.
Clive S. Lewis var prófessor í
(kmiill íiri V
iknfanHWi
Marlsbmhr
enskum bókmenntum við háskólann í
Oxford og var framan af ævi fráhverf-
ur kristinni trú, en sannfærðist síðar
um sanngildi hennar og varö ljóst að
Guð teflir ekki til úrslita á skákborði
heilans heldur hjartans, ritar dr. Sig-
urbjöm Einarsson m.a. í formála sín-
um. „Með glettnum glampa í augum
flytur hann hinn alvarlegasta boðskap.
I hjúpi hrjúflegs skáldskapar boðar
hann fagnaðarerindið,” segir enn-
fremur í formála dr. Sigurbjörns.
Bréf þessi birtust fyrst almenningi í
Bretlandi árið 1941 og voru þau oft
gefin út á ný á næstu ámm. Þá hefur
þessi metsölubók verið þýdd á fjöl-
mörg tungumál.
Bókin er að öliu leyti unnin hjá
Prentsmiðju Hafnarf jarðar hf.
Viðhorf og
vandi
Viðhorf og vandi er heiti á safni erinda
um kristilega siðfræði er bókaútgáfan
Salt hefur nýverið gefið út. Voru erindi
þessi flutt í mars 1981 á ráðstefnunni
Líf í trú, en aö henni stóðu nokkur
kristileg félög er starfa innan þjóð-
kirkjunnar.
Erindin eru sex aö tölu og eru
höfundar þeirra sr. Guðmundur Öli
Olafsson, sr. Gísli Jónasson, Gunnar J.
Gunnarsson guöfræðingur, sr. Karl
Sigurbjörnsson, Kristín Sverrisdóttir
kennari og Sigurður Pálsson náms-
stjóri. Efni erindanna er m.a. Hvað er
kristin siðfræði? Fjölskyldan og hjóna-
bandið. Að vera kristinn í nútímaþjóð-
félagi o.fl.
Setningu og umbrot annaðist Prent-
stofan Blik hf. og prentun og bókband
Prentverk Akraness hf.
A leið til
annarra manna
Bók um fjölfatlaða stúlku
IÐUNN hefur gefið út bókina Á leið til
annarra manna, undirtitill: Hvemig
fjölfötluð stúlka rauf tjáningarfjötra
sína. Höfundur er Trausti Ólafsson
kennari. Hann starfar við Þjálfunar-
skóla ríkisins við Kópavogshæli. Þar
kynntist hann Sigríði Osk Jónsdóttur,
ungri stúlku sem var afar mikiö fötluð,
var nánast ófær um að tjá sig og hafði
af þeim sökum verið talin vangefin.
Hún haföi verið á hælinu í sjö ár þegar
Trausti kemur til skjalanna og vill ekki
SKoP
fallast á að stúlkan sé vangefin. Bókin
lýsir síðan tilraunum hans til að rjúfa
einangrun stúlkunnar, komast í
samband við þær sálargáfur sem hann
taldi sig finna að hún byggi yfir, eins
ogkomsvoíljós.
Bókin skiptist í nokkra kafla: Fálm-
kennd skref og stutt; Losnar um
hömlur; Ritlistin; Skáldskapur; Enn
nýjar námsaðferðir. I bókinni eru
nokkrar myndir. Á leið til annarra
manna er 68 blaðsíður. Oddi prentaði.
f%
9
•
1
2544
Ef þú bara getur drifiö þig i að gera við Ijósið, þá skal ég sjá um
umferðina.