Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1982, Page 32
40
DV. MÁNUDAGUR 25. OKTOBER1982.
Andlát
Bjamey Jörgensen lést 18. október.
Hún fæddist á Patreksfiröi 21. janúar
1901. Bjarney lærði fatasum í Dan-
mörku. Hún giftist Alfred Jörgensen,
sem lést árið 1960. Þeim varð þriggja
barna auðið. Utför Bjarneyjar verður
gerö frá Fossvogskirkju í dag kl. 15.00.
Hrefna Eggertsdóttir lést 17. október.
Hún fæddist 14. júní 1897 í Fremri-
Langey á Breiðafirði. Foreldrar henn-
ar voru Eggert Gíslason og Þuríður
Jónsdóttir. Hrefna fluttist ung til
Reykjavíkur og vann þar við ýmis
störf. Hrefna giftist aldrei. Utför henn-
ar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag
kl. 13.30.
Marteinn Marteinsson, Hverfisgötu 29,
Siglufirði, verður jarösunginn frá
Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudag-
inn 26. október kl. 13.30.
Kristin G. Sigfúsdóttir, Álftamýri 16,
andaöist í Lahdspítalanum að morgni
22. þ.m. Utför tilkynnt síðar.
Þorsteinn Steinsson frá
Vestmannaeyjum, Vesturbrún 16, lést
í Landakoti, fimmtudaginn 21. októ-
ber.
Guðfinnur Jónsson, Heiðarvegi 5, Sel-
fossi, andaöist í Borgarspítalanum,
fimmtudaginn 21. október.
Helga Marinósdóttir frá Skáney,
Reykholtsdal, Kaplaskjólsvegi 39, lést
21. október í Landsspítalanum.
Hallgrímur Oddsson varð bráökvadd-
ur á Grand Kanarí 21. október sl.
Magnea Ósk Halldórsdóttir, Kjartans-
götu 7, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju þriðjudaginn 26. okt. kl.
13.30.
Gyða Guðmundsdóttir, Hjaröarhaga
28, verður jarðsungin miðvikudaginn
27. október kl. 15.00 frá Fossvogs-
kirkju.
Valdimar Eliasson, garðyrkjumaöur
veröur jaiðsunginn frá Fossvogs-
kirkjii þi iðjudaginn 26 október kl. 15.00.
Sigurbjörg Sigríður Þorbergsdóttir
veröur jarðsungin frá Dómkirkjunni
26. október kl. 13.30.
Tilkynningar
Áhugahópur um
orgeltónleika
Nýlega komu nokkrir organleikarar í borg-
inni saman til ráðagerða um einhverskonar
styrktarfélagakerfi fyrir orgeltónleikahald í
höfuðborginni. Fundur organleikaranna sam-
þykkti að leita eftir undirskriftum þeirra sem
áhuga hefðu á slíku reglubundnu tónleika-
haldi í höfuðborginni. I þessu skyni munu
áskrifendalistar liggja frammi á tónleikunum
í Fíladelfiukirkjunni. Undirskriftin verður á
engan hátt bindandi, en haft verður bréflegt
samband við þá sem skrifa sig á listana þegar
viöbrögðin verða ljós því að mikið veltur á því
hvemig undirskriftalistunum verður tekið.
Listarnir munu einnig hggja frammi í
kirkjum og víðar á næstunni.
Sænsk myndlistarsýning
í Norræna húsinu
Tveír sænskir listamenn, Erland Cullberg og
Peter Tillberg sýna í sýningarsölum Norræna
hússins frá 26. okt. til 7 nóv. nk. Á sýningunni
eru 17 olíumálverk eftir Erland Cullberg og 22
kolteikningar eftir Peter Tillberg. Listamenn-
irnir koma og setja sýninguna upp og verða
viðstaddir opnunina, þriðjudaginn 26. okt. kl.
18.00. Erland Cullberg er fæddur 1931. List-
nám stundaöi hann við listaakademiuna i
Stokkhólmi og við Valands listaskólann í
Gautaborg. Hann hefur haldið margar einka-
sýningar í Svíþjóð og tekið þátt í samsýning-
um. Peter Tillberg er fæddur 1946. Hann nam
við listaakademíuna í Stokkhólmi. Hann
hefur haldið margar einkasýningar og tekið
j)átt í samsýningum á Norðurlöndum og víðar.
Sýningin, sem þeir nefna Snjógöngur, hefur
farið víða um Svíþjóð. Héðan fer hún til hinna
Norðurlandanna. Listamennirnir hafa fengið
styrk úr norræna menningarmálasjóðnum til
Islandsferðarinnar.
Útvarp
Um helgina
Sjónvarp
Færeysk myndlist í
Norræna húsinu
Amariel Norðoy frá Kalksvík í Færeyjum
sýnir 8 pastelmyndir og sex litógrafíur í and-
dyri Norræna hússins. Sýningin stendur til 1.
nóvember nk. Amariel Norðoy er fæddur 1945
í Klaksvík. Hann hefur stundað listnám viö
listaakademíuna í Kaupmannahöfn. Hann
var meöal listamanna sem sýndu í Norræna
húsins 1973, meðan færeyska vikan stóð yfir í
húsúiu. Amariel Norðoy hefur sýnt víða í Fær-
eyjum og Danmörku, auk þess sem hann
hefur sýnt í Osló og á norrænu listamiðstöð-
inni i Helsinki. Sýningin er opin á opnunar-
tima hússins, kl. 9—19 alla daga nema sunnu-
dagakl. 12-19.
Kvenfélag Fríkirkjunnar
í Reykjavík
heldur basar að Hallveigarstöðum laugardag-
inn 30. október kl. 14. Félagskonur og aðrir
velunnarar kirkjunnar eru beðnir um að
koma kökum og munum sem þeir vilja gefa
að Hallveigarstöðum eftir kl. 17, föstudaginn
29. október.
Fríkirkjusöfnuðurinn
í Reykjavík
Kjörskrá vegna væntanlegra prestskosnúiga
liggur frammi á skrifstofu kirkjunnar á
þriðjudögum og fúnmtudögum til 2. nóvem-
ber nk. kl. 17—19, súni 14579.
Fríkirkjufólki sem haft hefur aðsetursskipti
er sérstaklega bent á að athuga hvort það sé á
kjörskrá safnaðarins. Kærufrestur er til 9.
nóv. nk.
Frá „Hálft
í hvoru"
Sönghópurinn „Hálft í hvoru’’ situr ekki auð-
um höndum þessa dagana. Að undanfömu
hefur hann haldið tónleika i allmörgum fram-
haldsskólum á höfuðborgarsvæðmu, og n.k.
þriðjudag (26. okt.) verða stórtónleikar í sal
Menntaskólans við Hamrahlíö. Tónleikamir
eru öllum opnir og hefjast kl. 20.30.
Miðvikudaginn 27. okt. verður síðan haldið
á Akranes, þar sem sönghópurinn kemur
fram á nokkrum vinnustöðum á vegum
Mennmgar- og fræðslusambands alþýöu. Um
kvöldið verða tónleikar í Fjölbrautaskólanum
og er það í fyrsta sinn sem „Háift í hvoru”
sækir Skagamenn heim.
Styrkur til háskóla-
náms í Noregi
(Brunborgar-styrkur)
Ur Minningarsjóði Olavs Brunborg verður
veittur styrkur að upphæð fúnm þúsund
norskar krónur á næsta ári.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja íslenska
stúdenta og kandídata til háskólanáms í
Noregi. (Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsúis
er styrkurinn aðeins veittur karúnönnum).
Umsóknir um styrkúin, ásamt námsvott-
oröum og upplýsingum um nám umsækjenda,
sendist skrifstofu Háskóla Islands fyrir 15.
nóvember 1982.
Samhygð
Hefurðu áhuga á að kynnast Samhygð? Kynn-
úigarfundir alla þriðjudaga kl. 20.30 að Ár-
múla36 uppi. (GengiðinnfráSehnúla).
Félagssamtök og aðrir sem hafa áhuga á að
fá kynningu til súi geta hrúigt í súna 37829
milli kl. 16 og 18 alla virka daga.
Ensku knattspymuna í
beinni útsendingu
Dagskrá sjónvarpsins og útvarps-
ins var nokkuö lífleg um helgina og
munar þar mestu um nýju fram-
haldsþætti sjónvarpsins Schultz í her-
þjónustu og Félagsheimilið, en
þessir þættir ásamt Fjandvinunum,
sem sýndur er á mánudagskvöldum,
eru allir léttir og oft á köflum stór-
fyndnir. Aö vísu var ég ekki eins
ánægöur meö Félagsheimiliö á
laugardaginn var og þann sem
sýndur var fyrir hálfum mánuöi.
Þátturinn var ekki nógu fyndinn og
eins var hann alltof langdreginn. Þó
voru þama skemmtilegar senur og
minnist ég sérstaklega hrepps-
nefndarfundarins. Gaman er aö vita
til þess aö íslenska sjónvarpið hafi
áhuga á aö framleiða innlent
skemmtiefni.
Eg hefi haft þann siö undanfarin ár
aö horfa á ensku knattspymuna og
minnist ég ekki aö ég hafi misst úr
leiki hátt á tíunda ár. Þess vegna fer þaö
mjög fýrir brjóstiö á mér aö viö Frón-
búar sitjum ekki viö sama borö og aörir
Noröurlandabúar í sambandi viö knatt-
spymuleiki á laugardögum.
I Danmörku, Noregi og Sví-
þjóö er á veturna sýndur í beinni
útsendingu leikur úr ensku knatt-
spymunni á hverjum laugardegi.
Finnst mér þaö hart aö hafa ekki
sama tækifæri og aörir knattspyrnu-
unnendur aö fylgjast meö ensku
knattspymunni því leikir sem viö
sjáum hér á Islandi em orönir viku-
gamlir þegar þeir em sýndir.
Reynslan sýnir aö sjónvarpiö hefur
haft hagnað af beinum útsendingum
á knattspyrnuleikjum vegna
auglýsingatekna og skora ég því á
forráöamenn sjónvarpsins aö gera
þaö bragarbót á. Væri til dæmis
tilvaliö aö sýna leiki í beinni
útsendingu um jólin en þá leika
Englendingar oftar venju.
Mér leist ekkert á nýju menningar-
þáttinn Gluggann í upphafi en nú
líkar mér hann stórvel. Er hann
mjög f jölbreyttur og áhugavekjandi.
Otvarpið er nokkuö traust þó svo
alls konar synfóníutónlist tröllríöi
þeirri stofnun. Fréttimar eru til
dæmis mjög vel unnar og er víöa
farið til aö leita fanga. Spuminga-
þátturinn sem geröur er út frá Akur-
eyri hefur skánað mjög en var algjör
hörmung í byrjun. Til dæmis var
gaman aö vita aö krækiber geti veriö
hvít þó svo aö sá fróðleikur muni ef
til vill aðdrei verða manni aö gagni.
Það sem þó kom mér mest á óvart í
dagskrá ríkisfjölmiðlanna um
helgina var framlag stúlkna frá
Seyöisfiröi í barnatimanum. Var ég
alveg hlessa hve ófeimnar þær voru
og lagvissar. Og alltaf var útkoman
betri og betri eftir því sem þær héldu
áfram og bjóst ég satt aö segja viö
því aö næsta lag þeirra yröi Take
Five en þá hættu þær snögglega.
Þess vegna hef ég alltaf sagt aö sjón-
varpiö sé ekki alvont þar sem það
færir heiminn inn í stofuna hjá
manni.
Eiríkur Jónsson.
Rithöfundakynning
Héraðsbókasafn Kjósarsýslu og Leikfélag
Mosfellssveitar gangast. fyrir rithöfunda-
kynningu í dag, mánudag 25/10 kl. 20.30, í
bókasafninu Mosfellssveit. Að þessu sinni
verða þeir Anton Helgi Jónsson og Jón Ormur
Halldórsson kynntir og lesið verður úr nýjum
skáldsögum þeirra.
Fótaaögerö á vegum
Kvenfélags Hallgrímskirkju
fyrir eili- og lífeyrisþega er byrjuð og verður
hvern þriðjudag á milli kl. 13 og 16 í vetur
(inngangur í norðurálmu kirkjunnar).
Upplýsúigar og túnapantanir í súna 39965.
Fuglalíf í Papey
Fyrsti fræðsiufundur Fuglaverndarfélags Is-
lands á þessum vetri verður í Norræna húsinu
þriðjudaginn 26. okt. kl. 20.30. Þorsteinn
Eúiarsson fyrrverandi íþróttafulltrúi flytur
erúidi með litskyggnum um fuglalif í Papey.
öllum heúnill aðgangur.
Stjórnúi
íþróttir
Afmæli
60 ára er í dag, 25 október, Baldvin
Jónsson, framkvæmdastjóri Happ-
drættis DAS, Alfheímum 38, Reykja-
vik. Afmælisbamiö ætlar aö taka á
móti gestum á heimili sinu og eigin-
konu sinnar, Magneu Haraldsdóttur, í
Álfheimum milli kl. 16—19 á afmælis-
daginn.
80 ára afmæli á í dag Jón Eiríksson.
Jón er fæddur 25. október 1902 í Garð-
húsum í Gerðahreppi. Áriö 1928 kvænt-
ist Jón Mörtu Jónsdóttir, hún lést áriö
1948 þau eignuðust 4 böm. Núverandi
kona hans er Ingibjörg Ingólfsdóttir.
Jón starfar nú hjá kassagerð Reykja-
víkur.
50 ára er i dag Páll Árnason
málarameistari á Selfossi. Hann er
kvæntur Benediktu Guönadóttur.
Æfingatafla knattspyrnu-
deildar Þróttar,
gildir frá 10. október
ISunnudaga kl. 9.40—11.10 5. flokkur, kl.
11.10-12.45 M. flokkur, kl. 12.45-13.50 6.
flokkur, kl. 13.50-15.10 3. flokkur, kl. 15.10-
16.40 4. flokkur, kl. 16.40—18 2 flokkur.
Fimmtudaga kl. 22—23.30 eldri flokkur.
Allar æfingar fara fram í Vogaskóla. Mætiö
stundvíslega. Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Ekiðáfull-
orðna konu
Ekiö var á fulloröna konu á móts viö
hús númer 54 viö Hverfisgötu um
hádegisbilið á laugardaginn. Konan
var á leið noröur yfir götuna er hún
varö fyrir bifreiö sem ók upp Hverfis-
götu.
Konan fékk höfuöhögg en ekki eru'
meiösli hennar talin alvarleg. -ás.
Innbrot á Skaganum:
Þjófurog
þýfi náðust
Brotist var inn í Söluskálann Björg á
Akranesi aöfaranótt laugardags.
Innbrotsþjófurinn braust inn í vöra-
bílastöö og þaðan inn í söluskála sem
er í sama húsi. Stal hann sælgæti, sam-
lokum og skiptimynt og haföi á brott
meðsér.
Lögreglan á Akranesi haföi hendur í
hári þjófsins og náöi þýfinu aftur.
Reyndist þjófurinn vera strákur úr
plássinu og haföi framið verknaöinn
undir áhrifum áfengis, aö sögn lögregl-
unnar á Akranesi.
ás.
Alþingi:
Stef nuræða forsætis-
ráðherra í kvöld
Stefnuræöa forsætisráöherra veröur
flutt á alþingi í kvöld og veröur ræö-
unni og umræöu um hana útvarpað.
Eldhúsdagsumræöumar hefjast meö
því aö forsætisráðherra flytur stefnu-
ræöu sína og hefur hann allt að 30 mín-
útur til umráöa. Því næst fá þing-
flokkamir 20 mínútur. I seinni umferð
umræönanna fá síöan þingflokkamir
og sjálfstæöismenn í ríkisstjóm 10
mínúturhvertil umráöa.
Auk forsætisráöherra tala Pálmi
Jónsson landbúnaöarráöherra fyrir
hönd sjálfstæðismanna í ríkisstjórn.
Fyrir sjálfstæðismenn í stjórnarand-
stööu tala þeir Geir Hallgrímsson og
Lárus Jónsson. Fyrir Framsóknar-
flokkinn tala Steingrímur Hermanns-
son og Halldór Ásgrímsson, fyrir Al-
þýöuflokk þeir Vilmundur Gylfason,
Magnús H. Magnússon og Eiöur
Guðnason og fyrir Alþýðubandalag
þeir HelgiSeljan ogSvavarGestsson.
Stefnuræöunni og umræöum um
hana er sem fyrr segir útvarpaö og
hefst útvarp frá alþingi kl. 20.00
ás.
Vísitölunefnd aftur af stað:
Reynt til þrautarað semja
um vísitölumálið
Vísitölunefndin fór aftur af staö í
morgun. Nú á aö þrautreyna hvort
samkomulag getur oröiö um nýtt
vísitölukerfi. Þaö var eitt af fyrir-
heitunum þegar stjómin setti bráöa-
birgðalögin.
Vísitölunefnd hóf fundi í ráðherra-
bústaönum klukkan 9 í morgun. Þar
mættu fyrstir fulltrúar Alþýðusam-
bandsins. Síöan var von á fulltrúum
Vinnuveitendasambandsins, banda-
lags háskólamanna, BSRB, banka-
manna, Farmanna- og fiskimanna-
sambandsins og Stéttarsambands
bænda. Ágreiningur er um ýmis at-
riöi sem vísitölunefndin haföi komið
sér niöur á í ágúst. Alþýðubanda-
lagiö tók aö tefja málið eftir aö ljóst
var aö bráðabirgðalögin kynnu aö
falla á jöfnu í neöri deild alþingis.
alþýöubandalagsmenn óttast aö í
hinni nýju vísitölu felist hætta á að
stjórnvöld geti dregiö úr niður-
greiðslum á búvörum og notaö féð til
tollalækkana til dæmis, sem gæti við
vissar aöstæöur þýtt 3—4 prósentu-
stiga skerðingu á launum. Þrátt
fyrir ágreininginn mun Þröstur
Ólafsson, fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins, aö líkindum taka þátt í
hinum miklu f undahöldum í dag.
-HH.