Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1982, Síða 36
44
DV. MANUDAGUR 25. OKTOBER1982.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Marilyn Monroe: Skrifaði ijóð i dagbókina sína.
Dagbók Marílyn Monroe
Löngum var talið að Marilyn Monroe
hefði haldið dagbók þótt ekki væri unnt
að finna hana að henni látinni. En nú er
dagbókin loks komin í leitimar eftir 20
ár. Segir leikarinn Ted Jordan að hann
hafi grafið hana í jörð niður í Lancast-
er, Ohio,áriöl962.
Sl. sumar hélt leynilögreglumaður-
inn Milo Sperigilo því fram að Marilyn
hefði verið myrt af fulltrúum CIA.
Sagðist hann hafa sannanir þess efnis.
Opinberlega var talið að leikkonan
hefði látist af of stórum lyfjaskammti.
■ Speriglio segir aö Marilyn hafi trúað
dagbókinni fyrir þvi aö CIA ætlaði aö
láta myrða Castro Kúbuleiðtoga. Hafði
hún frétt þetta hjá þáverandi dóms-
málaráðherra Bandaríkjanna, Robert
Kennedy. Réttarlæknirinn Lionel
Grandison sagðist einnig hafa flett
bókinni áður en hún hvarf og staðfestir
hann sögu leynilögreglumanns-
ins. Grandison segist hafa verið t
neyddur til að undirrita falskt dánar-
vottorð fyrir Marilyn. Einnig er sagt
að lögreglumaðurinn sem kom fyrstur
til íbúðar Marilyn hafi fundið þess
merki að einhver hafi gert húsleit hjá
henni.
Eftir allar þessar morðfullyrðingar
sl. sumar buðu yfirvöld rúma milljón
króna í verðlaun þeim til handa sem
fundið gæti dagbókina. Og nú hefur
Ted Jordan komiö henni fram í dags-
ljósið.
Ted Jordan segist hafa verið elsk-
hugi filmstjömunnar á fimmta ára-
tugnum. Og fyrir 22 árum lagði hann
Ted Jordan: Segist hafa verið elsk-
hugi Marílyn á fimmta áratugnum.
að eigin sögn dagbók hennar ásamt
öðmm munum í skartgripaskrín og
gróf það niður í nágrenni við heimili
sittíOhio.
Jordan vill þó ekki taka undir morð-
tilgátuna, heldur þvert á móti.
— Mér finnst kominn tími til að
binda enda á allar þessar sögusagnir,
segir hann. — Ég vil að Marilyn fái að
hvíla í friði. Þess vegna hef ég ákveðið
að láta dagbókina í hendur yfirvöldum
„Rauða" dagbókin hennar Marilyn:
Lá grafin i skríni i 22 ár.
í Kaliforníu. Hún inniheldur nefnilega'
ekki annað en nokkur ljóð og heimilis-
föng fólks sem er alveg laust við að
vera dularfullt eða líklegt til að standa
í sambandi við morð.
Þolinmæði þrautir
vinnurallar
Fyrir 29 árum reyndi Betty Tudor
frá Exeter í Englandi að þreyta öku-
próf en hún stóðst ekki prófið. Hún
vildi þó ekki gefast upp við svo búið.
A næstu ámm tók hún 300 kennslu-
stundir og reyndi 11 sinnum við próf,
en árangurslaust. Þá voru 3 aksturs-
skólar búnir að neita að taka hana í
kennslu og einn ökukennari var flutt-
ur á sjúkrahús með taugaáfall eftir
að hafa gert tilraun til að kenna
henni.
En í síöustu viku tókst Betty (51
árs) loks að ná hinu langþráða prófi
— í 13. tilraun. Betty rekur veitinga-
hús í Exeter ásamt manni sinum og
var haldin mikil veisla þar í tilefni
■ökuprófsins. Fullyrti maður hennar,
Tom Tudor, að hann væri þrátt fyrir
allt ekkert hræddur við að láta konu
sína aka sér í framtíðinni.
Ný bamastjarna f Ameríku
Ameríka hefur nú loks fengið nýja
bamastjörnu sem þykir verðugur arf-
taki Shirley Temple. Heitir nýja
stjarnan Bridget Andersen, 7 ára
gömul og 105 cm á hæð. Ekki er Bridg-
et heldur dónalega ættuö, því hún er af
sama slekti og danska ævintýraskáldið
fræga, H.C. Andersen. Voru það lang-
afi hennar og langamma sem fluttu til
Ameríku á tímum heimsstyrjaldarinn-
arfyrri.
Bridget var ekki nema tveggja ára
þegar hún fói að auglýsa fyrir þekkt
fyrirtæki í sjónvarpinu eins og t.d.
McDonalds, símafyrirtækið Bell og
leikfangaframleiöandann Matell. Varð
kaupiö hennar brátt 1000 dalir á dag. 7
ára gömul tekur hún tifalda þá upphæö
fyrir að koma fram í smáhlutverki í
kvikmynd en fyrir hlutverk sitt í
myndinni Savannah Smiles, sem frum-
sýnd verður í Bandaríkjunum um jól-
in, fær hún 50.000 dali. Segja þeir sem
hafa séð hana leika að hún sé jafnvel
betri en Shirley Temple var á sínum
tíma.
Bridget Andersen lærir allan texta á
ótrúlega stuttum tima enda reyndist
hún hafa gáfnakvótann 158 við mæling-
ar á gáfnaprófi. Til samanburðar má
geta þess að meðalkvótinn er 100 og af-
burðasnillingurinn Einstein hafði
gáfnakvótann 185.
Foreldrar hennar segja að þær svim-
andi háu upphæðir sem Bridget vinnur
sér inn séu allar settar í bankann og
eigi aö geymast þar til Bridget þarf á
peningum aö halda til að kosta skóla-
göngu sína. Þeir vilja nefnilega að
dóttirin „læri eitthvað almennilegt”
þegar þar að kemur.
Bridget Andersen: Stórauðug þótt ekki sá hún há iloftinu.
John James leikari tekur á afmiklum krafti.
En afíeiðingamar oru ahrariegar, — hann brenndist illilega á hendi.
REIPTOG BANDA-
RÍSKRA SJÓN-
VARPSSTÖDVA
Bandariskar sjónvarpsstöðvar
eiga í mikilli samkeppni hverjar við
aðrar. Ekki nóg meö aö þær bítist um
áhorfendur og auglýsingar heldur
standa þær i meiriháttar slag. A dög-
unum héldu þær sameiginlega reip-
togskeppni og gerðu út um sin mál.
ABC sjónvarpsstöðin sigraði glæsi-
lega.
Fremstur í flokki stjömuprýdds
liðs fór John nokkur James, leikari í
geysi-vinsælum framhaldsþætti sem
heitir Dynasty. Ofsinn var svo mikill
að John James brenndist svo alvar-
lega á hægri hendi að flytja varð
hann á sjúkrahús „meðdet samme”.