Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1982, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1982, Page 37
DV. MANUDAGUR 25. OKTOBER1982. 45 Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Kate Bush: Upptekin afsjálfri sór. Kate Bush vill ekki giftast Enska söngkonan Kate Bush hefur undanfarin 6 ár búið með sama mann- inum og þykir það nú heldur betur trygglyndi hjá poppstjömu. Heitir sá Del Palmer og hafa margir vinir þeirra undrast aö þau skuli þá ekki bara skella sér í hjónabandiö. — En við höfum það svo gott saman án allra slikra pappíra, segir Kate Bush við þeirri spumingu. Hjóna- bandið skiptir engu máli nema fólk ætli sér að eignast börn. Og til þess langar mig ekki enn þá. Mörg stúlkubörn hugsa ekki um annað en giftingu alveg frá 12 ára aldri en þannig hef ég aldrei verið. Eg er alltof upptekin af sjálfri mér. Og ef einhverjum finnst það galli verður bara að hafa það. Philippe og Fabíóla sinna opinber- um skyldustörfum saman. Bláttblóö heillarPhil- ippe mest Baldvin Belgíukonungur og Fabíóla drottning láta nú Philippe, bróðurson Baldvins, æ oftar taka við opinberum skyldum fyrir sig. Enda veitir ekki af aö æfa hann í slíku þar sem hann mun síðar taka við ríkinu því Baldvin og Fabíóla em sjálf baralaus. Philippe er 22 ára og þykir ákaflega aðlaðandi ungur maður. Hann er hinn mesti lestrarhestur en ekki við eina fjölina felldur í þeim málum því hann hefur jafnmikla ánægju af fagbók- menntum og fagurbókmenntum. Hann þykir heldur ekki við eina f jöl- ina felldur í kvennamálunum þótt það séu nú einkum stúlkur með blátt blóð í æöum sem hann hefur áhuga á. I því sambandi hafa þær verið nefndar Elena dóttir spænsku konungshjón- anna og Farahnaz dóttir fyrrverandi Iranskeisara og Fömh Díbu. Skálað fyrir vináttu fslendinga og Finna Forseti Finnlands og kona hans héldu af landi brott á laugardag. Hinni opinberu heimsókn var þar með lokið en flugvél þeirra fór frá Reykjavík klukkan 10 um morguninn. A miðvikudagskvöld hélt forseti Is- lands veislu til heiðurs hinum er- lendu gestum sínum að Hótel Sögu. Vigdís Finnbogadóttir tók á móti Mauno Koivisto og Tellervo, konu hans, er þau komu í hótelið laust fyr- ir klukkan tuttugu. Gengu forsetam- ir síðan í Súlnasal. Boöið var upp á fimmréttaðan kvöldverð. Byrjað var á kjötseyði með kjúklingakjöti og svartsvepp- um. Því næst var borin fram laxa- og sjávarfiskkæfa. Aðalrétturinn var steiktur lambahryggur með íslensk- um kryddjurtum. I eftirrétt fengu gestir f jólu- og ananasís og loks var drukkið kaffi. Þriggja manna hljómsveit lék borðtónlist. Leikin vom verk eftir Mozart, Sibelius, Jón Leifs, Pál tsólfsson, Sigvalda Kaldalóns og Waldteufel. Hljómsveitina skipuðu Þorvaldur Steingrímsson, Jóhannes Eggertsson og Carl Billich. Á tromp- et léku Lárus Sveinsson, Jón Sigurðs- son og WilliamGregoria. Tvær ungar stúlkur, þær Ásta Kristjana Sveinsdóttir og Katja Ahlfors, lásu úr Hávamálum og Kalevala. Manueala Wiesler lék á flautu. Meðal veislugesta má nefna ráð- herra Islands, forseta Alþingis, for- menn stjórnmálaflokka, ritstjóra dagblaða, sendiherra, ráðuneytis- stjóra, lögreglustjóra, leikhússtjóra, forseta Hæstaréttar, formenn ým- issa samtaka og kunna listamenn. Hér á síöunni birtum við nokkrar svipmyndir úr veislunni. —KMU Glösum lyft fyrir vlnáttu islandsogFlnnlands. DV-myndir: GVA. Davið Oddsson borgarstjóri heilsar Herði Sigurgestssyni, forstjóra Þær Ásta Krlstjana Svainsdóttir og Katja Ahlfors lásu úr Hávamalum og Eimskipafólagsins, ianddyrinu. Kalevala. Manuela Wiesler lók á flautu. Forsoti Sameinaös þings, Jón Helgason, og kona hans, Guðrún Þor- Hlýttá þjóðsöngva. kelsdóttír, koma til kvöidveröarins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.