Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1982, Page 40
ÓDÝRARI FILMA SEM
FÆST ALLS STAÐAR
Útvegsbankinn:
Kreditkortin
vinsælli en
búistvarvið
„Kreditkortin njóta mikilla
vinsælda, og viö höfum þegar gefiö
út 700 kort,” sagði Bjarni
Guöbjörnsson, bankastjóri Útvegs-
bankans, í samtali viö DV. „Satt best
aö segja bjuggumst viö ekki viö aö
þróunin yröi svona ör. 95% af
kortunum sem viö höfum gefið út eru
ætluð til notkunar í útlöndum,” sagði
Bjarni.
Otvegsbankinn, Verslunar-
bankinn og fyrri eigendur
Kreditkorta sf. standa nú aö útgáfu
Eurocard kreditkortanna. Bjami
sagöi aö kortin væru einnig notuð
innanlands en hann kvaöst ekki telja
aö þau heföu dregiö úr notkun manna
á heföbundnum bankareikningum,
til dæmis ávísanareikningum.
„Kreditkortin sem gefin eru út til
. notkunar erlendis maekki nota lerrxa
í vissum tilgangi. Menn mega ekki
nota þau til aö versla heldur aöeins
til aö borga uppihald, fæði, flugfarog
annan slíkan kostnaö. Ef menn mis-
nota kortin eru þeir sviptir þeim.
Reikningamir sem hingað berast frá
útlöndum bera ævinlega meö sér í
hvaöa tilgangi kreditkortin hafa
veriö notuö og því er auövelt aö
fylgjast meö því aö þau séu ekki mis-
notuð,”sagöiBjarni. -SKJ.
Krafa stjórnar-
andstæðinga:
Stjórnin sitji
sem
„starfsstjóm”
1 kröfu stjórnarandstæðinga um aö
ríkisstjórnin fari frá felst aö hún sitji
áfram sem „starfsstjóm”. Stjórnin
segöi þá af sér en sæti áfram meö
þessum hætti fram yfir kosningar aö
beiðni forseta. Slík stjórn gæti annast
venjulegan erindisrekstur en ekki
gefið út bráöabirgöalög.
Sjálfstæöismenn í stjórnarandstööu
og alþýöuflokksmenn munu telja aö
staöa þeirra í kosningum yröi betri ef
svona færi. Þeir stæöu betur aö vígi ef
risið á stjórninni yröi þannig lækkaö.
Fundir verö,' í dag í þingflokki
Framsóknar og framkvæmdastjórn og
Þingflokki Alþýðubandalags.
Búist er viö aö kröfu stjórnarand-
stöðunnar veröi vísað á bug.
Geir Hallgrímsson og Kjartan
Jóhannsson settu fram kröfu um aö
rikisstjórnin færi frá á fundum meö
ráðherrum á föstudag.
-HH
Ætii Pólverjarnir hafí
fengið nóg af efnahags-
ástandinu?
Ballið er byrjað. Á höfuðborgarsvœðinu var mikil hálka í morgun og ösin
að byrja á dekkjaverkstæðunum. Allir drífa sig nú í að „umtútta" eins og
töffarinn sagði. Það ku heita að umfelga á finna máli.
DV-mynd: Bjarnleifur.
PIERPOm
Svissnesk quartz gceða-úr.
Fást hjá flestum
úrsmiðurn
AUGLÝSINGAR
SIÐUMULA 33
IFSTOFA
AFGREIÐSLA
ÞVERHOLTI 11
MÁNUDAGUR 25. OKTÓBER 1982.
Unglings-
piltar réð-
ustátvær
gamlar
konur
miklum eymslum í mjööm, en þar
mun hún hafa átt við talsverð meiösli
að stríða lengL I veski konunnar
voru gleraugu og skilríki.
Konan sem ráðist var á á laugar-
dagskvöld var á gangi á Klappar-
stígnum. Þegar hún var stödd rétt
fyrir ofan verslunina Hamborg komu
aö henni tveir unglingspiltar og réð-
ust á hana. Tókst þeim aö ná veskinu
af henni og koma sér í burtu. Konan
hlaut enga áverka við þessa fólsku-
legu árás, en í veski hennar voru sex
hundruö krónur í peningum, auk
gleraugna og skilríkja. Engir sjónar-
vottar voru að árásinni, sem var um
klukkan hálfátta á laugardagskvöld.
Unniö er aö rannsókn þessara
þjófnaöa en engir piltanna hafa veriö
handteknir.
-JGH
Ráöist var á tvær gamlar konur í
gærkvöldi og á laugardagskvöld.
önnur þeirra var flutt á slysadeild
Borgarspítalans eftir árásina og
mun vera nokkuð slösuð. Unglings-
þiltar munu hafa veriðað verki í báö-
um tilvikum en enginn þeirra hefur
náðst'.
Gamla konan, sem ráðist var á um
klukkan átta í gærkvöldi, var að
koma úr heimsókn frá sjúklingi á
Landakotsspítala. Hún er lítillega
bækluð og gekk þvi viö staf. Hún býr
í vesturbænum og var á leið heirh til
sín eftir Ægisgötunni er tveir
unglingspiltar réöust skyndilega á
hana. Hentu þeir henni harkalega í
götuna, tóku af henni veskið og hlupu
síðan á brott. Maöur er átti leið
framhjá konunni sá hana liggja í göt-
unní. Gamla konan var flutt á slysa-
deildina og kvartaöi hún undan
Raf magnsveita Reyk javíkur:
Tekur 67
milljóna króna
eiient lán
Rafmagnsveita Reykjavíkur tók í Markaðsvextir eru nú um 12 prósent.
síöasta mánuði erlent lán aö f járhæö „Lániö er til aö greiöa upp
4,3 milljónir dollara, sem eru um 67 skammtímalán frá því í fyrra sem
millj ónir íslenskra króna. tekin voru vegna tregöu til hækkana.
„Lánið er tekið vegna rekstrar- Auk þess er lániö tekið til aö mæta
erfiöleika Rafmagnsveitunnar. Þaö hallaáþessuári,”sagöiAöalsteinn.
má segja að lániö komi í stað gjald- „Það er andstætt okkar stefnu að
skrárhækkana sem ekki hafa fengist taka lán. En við höfum verið
á undanförnum tveim árum,” sagöi þvingaðir til þess vegna tregðunnar.
Aðalsteinn Guöjohnsen rafmagns- Það er ekki nokkur vafi á því að
stjóri. lántaka af þessu tagi kemur út í
Lánið er tekið hjá Gulf-bankanum hærra rafmagnsverði tU neytenda
íBahrain. Þaðertilfimmára.Afþví þegar upp er staðið,” sagöi raf-
ber að greiða markaðsvexti að magnsstjóri.
viðbættu hálfu prósenti á ári. -KMU.
BROTSJÓR
REIÐ YFIR VÉL-
BÁTINN SIF
Vélbáturinn Sif IS 225 fékk mikinn
brotsjó á sig á laugardag er hann var
á leið frá Siglufiröi til Flateyrar.
Báturinn var út af Homvík á leiö
vestur er hann fékk mikinn brotsjó á
sig. Vélin stöövaöist, sjór komst í
tæki og lest og báturinn brotnaöi
nokkuö mikið. Gátu skipverjar ekki
komiö boðum frá sér. Þrír menn
voru um borð í bátnum og slasaðist
einn þeirra nokkuö.
Um klukkan fimm á laugardag
sigldi Bæjarfoss fram á Sif þar sem
hún var hjálparvana. Er Bæjarfoss'
ætlaði að koma hjálpartaug til Sif jar
tókst ekki betur til en svo að taugin
festist í skrúfu Bæjarfoss. Vom því
bæði skipin þama hjálparvana.
Nokkuö mikill sjór var er þetta gerö-
ist og norð-norðaustan 3—4 vindstig.
Skipin vom skammt frá landi og
sagði Hannes Hafstein hjá Slysa-
vamafélaginu að þetta hefði litið
nokkuð illa út um tíma. Tilkynninga-
skyldan hafði samband við báta á
svæðinu og varðskip var nærri.
Leystist máliö þannig aö vélbátur-
inn Öm frá Keflavík kom á staöinn
og tók Sif í tog en Bæjarfossmönn-
um tókst að losa taugina og komast
tilFlateyrar.
Örn hélt með Sif í togi til Isafjaröar
og tók varðskipið viö áhöfninni til aö
koma hinum slasaða sem fyrst á
sjúkrahús á Isafirði.
Aö sögn Hannesar Hafstein vom
meiðsli hins slasaöa ekki eins alvar-
leg og talið var í fyrstu.
ás.