Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1982, Blaðsíða 20
DV. FIMMTUDAGUR 28. OKTOBER1982.
m
Hans Guömundsson
landsliðinu.
— nýliði í
Sambadans
í Gautaborg
— eftirað Hammerby
vann óvæntan sigur 2:1
yfir UEFA-meisturunum
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni — frétta-
manni DV í Svíþjóð. — Spútnikliðiö
Hammerby kom heldur betur á óvart
þegar það vann sætan sigur yfir
UEFA-bikarmeisturum IFK Gauta-
borg 2—1 í fyrri úrslitaleik liðanna um
sænska meistaratitilinn á Ullei-leik-
vanginum í Gautaborg í gærkvöidi.
Geysilegur fögnuður hinna hörðu
stuðningsmanna liðsins, sem komu til
Gautaborgar með tíu manna
hljómsveit sem iék SAMBA allan
leikinn, eins og stuðningsmenn
Brasilíumanna eru þekktir fyrir,
braust út eftir leikinn og tóku þeir létt
dansspor á götum Gautaborgar í gær-
kvöldi.
Gautaborgarliðið átti allan leikinn
— sótti nær látlaust aö marki
Hammerby sem varöist vel. Leikmenn
Hammerby fengu aðeins tvö tækifæri í
leiknum, sem þeir nýttu fullkomlega.
IFK Gautaborg tók forustuna með
marki Hakan Sandbergs en Efraims-
son náði að jafna fyrir leikhlé og síðan
skoraöi Peter Gerhardsson sigurmark
Stokkhólmsliðsins aðeins þremur mín.
fyrir leikhlé. Seinni leikur liðanna
verður á Södra-Stadion í Stokkhólmi á
sunnudaginn.
-GAJ-SOS.
Stórsigur
Sunderland
á Úlfunum
Úrslit í mjólkurbikarnum enska í gærkvöld
urðu þessi:
Blackburn-Brentford 0—0 (Brentford vann
samanlagt3—2).
Bradford-Rochdale 4—0 (Bradford vann 5—
0).
Everton-Newport 2—2 (Everton vann 4—2)
Leicester-Lincoln 0—1 (Lincoln vann 3—0).
Man. City-Wigan 2—0 (Man. City vann 3—1)
Newcastle-Leeds 1—4 (Leeds vann 4—2)
Oxford-Huddersfield 1—0 (Huddersfield vann
2-1)
Sunderland-Wolves 5—0 (Sunderland vann
6-1).
WBA-Nottm. Forest 3—1 (Forest vann 7—4).
í undanúrslitum skoska deildabikarsins
sigraði Celtic Dundee Utd. 2—0 og Rangers
vann Hearts einnig 2—0. Síðari leikirnir verða
10. nóvember. Sama dag. verður þriðja
umferð mjólkurbikarins enska.
Stjömumenn í
landsliðshópinn
í handknattleik. Fjórir nýir menn valdir í hópinn. Þorbjöm Jensson gefur ekki
kostásér
Hilmar Björnsson, landsliðsþjálfari í
handknattleik, hefur valið fjóra nýja
leikmenn i landsliðshóp sinn, sem er að
hefja fyrstu lotuna í undirbúningnum
fyrir B-keppnina í handknattleik í
Holiandi, sem hefst í lok febrúar.
Hilmar hefur bætt f jórum mönnum við
hópinn sem tók þátt i keppnisferðalagi
landsliðsins til Júgóslavíu sl. sumar og
eru tveir leikmannanna frá Stjörnunni
í Garðabæ — þeir Brynjar Kvaran
markvörður og Magnús Teitsson.
Þá hefur FH-ingurinn Hans Guð-
mundsson verið valinn og Ólafur Jóns-
son, fyrrum landsliðsfyrirliði úr
Víking.
Þorbjörn Jensson, fyrirliði Vals,
gefur ekki kost á sér í landsliðið þar
sem hann getur ekki tekið þátt i hinum
mikla og stifa undirbúningi landsliðs-
ins í vetur. Landsliðið mun byrja að
æfa um helgina fyrir landsleiki gegn
Frökkum og V-Þjóðverjum í Reykja-
vík í lok nóvember.
DV hefur áður sagt frá þeim fjórtán
leikmönnum sem fóru til Júgóslavíu.
Við skulum þó rifja upp hvernig lands-
liðshópurinn er skipaður:
Markverftir:
Kristján Sigmundsson, Vikingi
Einar Þorvarftarson, Val
Gísli Felix Bjamason, KR
BrynjarKvaran, Stjömunni
Aftrirleikmenn:
Þorbergur Aftalsteinsson, Víkingi
Kristján Arason, FH
GuftmundurGuftmundsson, Víkingi
Alfreft Gísiason, KR
Bjami Gufimundsson, Nettelstedt
Steindór Gunnarsson, Val
Jóhannes Stefánsson, KR
Páll Olafsson, Þrótti
SigurfturSveinsson, Nettelstedt
Þorgils Ottar Mathiesen, FH
Hans Guftmundsson, FH
Olafur Jónsson, Vikingi
Magnús Teitsson, Stjömunni.
Þeir Brynjar Kvaran, Magnús Teits-
son og Hans Guðmundsson hafa ekki
leikiö landsleik.
-sos.
Hvað sögðu spánsku leikmennirnir:
MVar dauðhræddur
við íslendingana”
— sagði Luis Arconada, markvörður Spánar
— Frá Kjartani L. Pálssyni — frétta-
manni DV í Malaga. — Varnarleik-
menn íslands voru mjög traustir. Ég
ætlaði aö skora mark. Já, fleiri en eitt,
en því miður tókst mér það ekki.
Leikmaður nr. 5 (Marteinn Geirsson)
var mjög sterkur og það var nær
vonlaust fyrir mig að reyna að ná
skallaboitum frá honum, sagði marka-.
kóngurinn mikli hjá Real Madrid,
Santillana, sem sagði að það væri
óvenjulegt fyrir sig aö vinna ekki mörg
skallaeinvígi í leik. — Því miður tókst
mér ekki að skora, en það kemur
dagur eftir þennan dag.
Santillana sagöi að Spánverjar
hefðu verið mjög góöir í seinni hálf leik,
en þeim hefði ekki tekist að skora fleiri
mörk þar sem þeir áttu við samhenta
vamarleikmenn Islands að etja. Hann
sagði aö leikmenn nr. 7 (Atli Eðvalds-
son), nr. 8 (Arnór Guöjohnsen), nr. 5
(Marteinn Geirsson) og markvörð-
Key man: keeper
krconada /s
}! the very
Luis Arconada — markvörður.
„Islendingar geta
verið stoltir”
- sagði Migul Munoz, þjálfari spánska landsliðsins
Frá Kjartani L. Pálssyni — frétta-
manni DV í Maiaga: — Þótt
Spánverjar gætu ekki unnið stórsigur
yfir íslendingum, eins og þeir ætluðu
sér, voru þeir ánægðir með sigurinn.
Það var gleði Lherbúðum þeirra.
— „Islendingar geta veriö stoltir
af árangri sínum hér á Spáni — að tapa
aöeins 0—1 fyrir Spánverjum á
tveimur stöðum hér á heimavelli
okkar, sama kvöldið, er mjög góður
árangur hjá áhugamönnum,” sagði
Migul Munoz, landsliðsþjálfari
Spánverja, eftir leikinn.
— Ég er mjög ánægður með leik
okkar og útkomuna. Sigur er alltaf
sigur og maður gleöst ávallt yfir
honum, þó að ég hefði óskaö mér að
hann væri stærri. Ég get þó eklú lokað
augunum fyrir því að miðað við
tækifærin sem iiðin fengu í fyrri hálf-
DV í Malaga
leik, hefði ekki verið ósanngjarnt að
Islendingar hefðu haft yfir 2—0, sagði
Munoz.
Munoz, sem þjálfaði Real Madrid
hér á árum áður, sagðist hafa verið
búinn að afla sér mikilia uppiýsinga
um Islendinga. Islenska liðið er mjög
vel agað og leikmenn liösins eru
skynsamir — þeir reyna ekki að gera
meira en þeir ráða viö, sagði Muroz,
sem var mjög hrifinn af Þorsteini
Bjarnasyni markverði, Arnóri
Guðjohnsen og Pétri Péturssyni. — Þá
var vamarleikur liðsins yfirhöfuð
mjög sterkur og yfirvegaður. Við
áttum erfitt með að koma vamarleik-
mönnum Isiands úr jafnvægi. Þeir
voru allan tímann mjög rólegir —
jafnvel þó oft hafi verið mikill hama-
gangur inni í vítateignum hjá þeim,
sagði Munoz. -klp/-SOS.
DV í Malaga
urinn (Þorsteinn Bjamason) hefðu
verið bestu leikmenn Islands að hans
mati.
„Dauðhræddur"
Luis Arconada, markvörður Spán-
verja og fyrirliði liðsins, sagðist hafa
verið dauðhræddur við leikmenn
íslenska liðsins. Ég var heppinn að
þurfa ekki að ná í knöttinn í netið. Sér-
staklega þegar Camacho bjargaði á
marklínu.
— Bjargaði hann á hendi?
— Ég get ekkert sagt um það, því aö
ég sneri bakinu í markið þegar þetta
gerðist — eftir að hafa misst knöttinn
yfirmig.
Hvað sagði þessi snjalli markvörður
um Þorstein Bjarnason, markvörð? —
„Staðsetningar hans voru mjög góðar
og hann vann vel á milli stanganna og
tæmdi teiginn einnig vel. Hann gerði
hlutina rétt og þarna er góður mark-
vörðurá ferðinni, sagði Arconada.
„íslendingar
komu mér á óvart"
Juan Jose Jimenez frá Real Madrid,
sem lék sinn fyrsta landsleik, var
óánægður meö leik sinn og spánska
iandsliðsins. — Islendingar komu mér
mjög á óvart. Ég vissi aö þeir væru
sterkir og harðir, en ég bjóst ekki við
eins skipulögðum leik frá þeim eins og
þeir sýndu hér. Sigur okkar var of lítill
en sigur engu aö síður. Ég er ánægöur
meðþað.
-klp/-SOS.
Spánsku leik-
mennirnir
fengu37 þús.
Spönsku landsliAsmennirnir fengu kr. 37.000
á mann fyrir sigurinn gegn islendingum í
Malaga í gærkvöldi og mega þeir vera ánægft-
ir með það. Það munafti þó ekki miklu að þeir
færu til heimahaga sinna meft tóma vasa.
-kip-
DV. FIMMTUDAGUR 28. OKTOBER1982.
Þorsteinn Bjamason — landsliðsmarkvörð-
ur íslands, átti snilldarleik í Malaga í gær-
kvöldi og fær hann mikið hrós fyrir leikinn.
O Marteinn Geirsson
• Jóbannes Atlason
„Marteinn
fær ekki
að hætta”
— sögðu landsliðsmenn íslands og
Jóhannes Atlason landsliðsþjálfari
— Frá Kjartani L. Páls-
syni — fréttamanni DV í
Malaga:
Ég var mjög ánægður
með leikinn. Það var góð
barátta hjá okkur og
strákamir stóðu sig frá-
bærlega. Það hefði verið
skemmtilegt aö enda
iandsleikjaferil sinn með'
sigri, eða að minnsta
kosti jafntefli, sagði Mar-
teinn Geirsson, fyrirliði
landsliðsins, sem hefur
ieikiö 66 landsleiki fyrir
ísland — Þar af 34 erl-
endis. Marteinn sagði að
nú væri hann búinn að
leika sinn síðasta lands-
leik.
Jóhannes Atlason
landsiiðsþjálfari og leik-
menn landsliðsins voru
ekki sammála Marteini í
þeim efnum. — Ég vil
ekki trúa þvi aö þetta hafi
DV í Malaga
verið síðasti landsleikur
Marteins. Marteinn á
mikið eftir, það hefur
hann sýnt í landsleikj-
unum gegn Irum í Dublin
og hér í Malaga gegn
Spánverjum. Hann er
maður með mikla reynslu
og hann hefur verið kjöl-
festa landsliðsins — bæði
innan og utan vallar
undanfarin ár. Við höfum
ekki efni á því að missa
Martein.
Landsliðsmennirnir
voru sammála því í rút-
unni sem flutti hópinn frá
Malaga til Torremolinos,
þar sem þeir búa, að Mar-
teinn væri ómissandi úr
landsliöshópnum. Þeir
voru ákveðnir í að Mar-
teinn fengi ekki að hætta.
Viö eigum eftir aö leika
með honum aftur næsta
vor, sögðuþeir.
„Það verður
erfittað
sofna”
— eftir að hafa misnotað svona færi,”
sagði Arnór Guðjohnsen
Frá Kjartani L. Pálssyni —
fréttamanni DV í Malaga:
,J>að verður erfitt fyrir mig að
sofna í nótt eftir að hafa ekki nýtt það
gullna marktækifæri sem ég fékk,”
sagði Arnór Guð johnsen, eftir leikinn
hér á La Rosaleda, en hann komst á
Sauðan sjó þegar 5 mín. voru til leik-
hlés og átti þá aðeins við Arconada
markvörð að glíma. — „Ég tók þá
ákvörðun að vippa knettinum yfir
hann, sem ég og gerði — ég sá knött-
inn stefna í markið og var að fara
að lyfta upp höndum til að fagna
þegar knötturinn þaut fram hjá. Ég
sá þá strax að það hafði verið of lítiU
snúningur á knettinum,” sagði
Arnór.
„Ekkert annað
en vítaspyrna"
Sigurður Grétarsson, miðherji frá
Kópavogi, var einnig óhress. — „Það
var grátlegt að fá ekki vítaspymu
þegar Camacho slá knöttinn frá með
hendinni. Það var svo mikil þvaga uppi
við markið að dómarinn var ekki í
21
„Jafnþreyttur
— sagði Jóhannes Atlason landsliðsþjálfari
Arnór Guðjohnsen
aöstöðu til að sjá þegar Camacho sló
knöttinn.”
— „Þetta var erfiður leikur og það
var ekkert gaman að eiga við nýliðana
Alverez og Bonet, þar sem þeir voru
danglandi í mann í tima og ótíma og
þaö sem meira var — þeir hræktu á
mig margsinnis, þannig að það var oft
á tíðum eins og maður væri undir
sturtu,” sagði Sigurður.
-klp-/-SOS.
Frá Kjartani L. Pálssyni — fréttamanni
DV í Malaga: — Ég er jafn-
þreyttur og strákarnir — það tekur á
taugamar að þurfa að sitja á bekknum
og horfa á aðra berjast og puða fyrir
mann, sagði Jóhannes Atlason lands-
liðsþjálfari.
Jóhannes sagðist vera mjög
ánægður með leik íslenska liðsins og þá
sérstaklega fyrri hálfleikinn. — Ef við
hefðum náð að skora er ekki að vita
Klöppuðu íslend-
ingum lofílófa
Ahorfendumir hér á La Rosaleda kunnu vel
að meta leik islenska liðsins því aft þeir fögn-
uðu íslenska liftinu ákaft eftir leikinn — klöpp-
uðu leikmönnum lof í lófa. Einnig var þeim
fagnafi þegar þeir fóru að langferftabifreift-
inni sem flutti þá frá vellinum. Þær voru því
ekki dónalegar móttökumar sem íslensku
leikmennirnir fengu. -klp-
hvað hefði gerst. Það hefði komiö
meiri pressa á Spánverjana, sem
hefðu þurft að koma fram til að jafna
og þá hefðu þeir eflaust gleymt sér í
vörninni þannig að við hefðum getað
hreilt þá meö skyndisóknum, sagði
Jóhannes.
— Þetta var leikur sem þróaðist
þannig í fyrri hálfleik þegar við
fengum pláss til að gera ýmsa hluti.
Það er ekki aö efa að þeir Asgeir Sigur-
vinsson, Pétur Ormslev og Janus
Guðiaugsson hefðu allir notið þess að
leika á miðjunni í þessum leik ef þeir
hefðu gengið heilir til skógar. Þaö var
slæmt að hafa þá ekki hér. Ég er ekki
með þessu að gera lítið úr hlut strák-
anna sem léku. Þeir stóðusig mjög vel.
Keyrðu á fullu, en undir lokin voru þeir
orðnir þreyttir, sem kom fram í því aö
þeir voru byrjaðir að fá sinadrátt,”
sagði Jóhannes. -klp-/-SOS
DV í Malaga
DV í Malaga
DV í Malaga
Þorsteinn eins
milli stanganna
íslendingar óheppnir að skora ekki tvö mörk áður en Spánverjar skoruðu
— Frá Kjartani L. Pálssyni —
fréttamanni DV í Malaga: —
Þorsteinn Bjarnason, landsliðsmark-
vöröurinn snjalli frá Keflavík, var
hreint frábær hér á La Rosaleda-
leikvellinum í Malaga, þar sem 25.000
Spánverjar sáu hann oft verja
meistaralega — hann var eins og klett-
ur í markinu þegar hver stórsóknin á
fætur annarri, hjá Spánverjum, buidu
á íslenska markinu í seinni hálfleikn-
um. Þá tókst Spánverjum að skora
eina mark leiksins — prjóna sig í
gegnum hina sterku íslensku vörn og
rak nýliðinn Juan Pedraza endahnút-
inn á sóknina með því aö skora sigur-
markið (1:0) með góðu skoti. Þor-
steinn gerði heiðarlega tilraun til að
verja skotið — knötturinn rétt straukst
við fingurgóma hans.
Leikmenn íslenska liðsins börðust
hetjulega á hinum glæsilega velii og
vörðust vel í upphafi leiksins, þegar
Spánverjar byrjuðu með miklum
látum og ætluðu sér greinilega að kaf-
færa Islendinga, sem voru ekki á þeim
buxunum að gefast upp fyrr en í fulla
hnefana. Þorsteinn Bjarnason var vel
á verði — þurfti strax að taka á honum
stóra sínum.
Okkar
maöur
KjartanL
Pálsson
íMalaga
DV í Malaga
Vörnin mjögtraust
Vamarleikur íslenska liðsins var
mjög sterkur, þar sem Marteinn Geirs-
son stjórnaði honum eins og herforingi.
Sævar Jónsson var traustur við hliðina
á honum og Atli Eðvaldsson var á
mikilli hreyfingu fyrir framan þá, sem
varnartengiliður. öm Oskarsson og
Viðar Halldórsson, bakverðir, vom
ekki á því að láta hina snöggu útherja
Spánverja leika sig grátt.
íslendingar fá tvö gullin
tækifæri
Pétur Pétursson og Amór Guðjohn-
sen — glókollamir í íslenska liðinu,
sem vöktu mikla athygli hér, voru
mjög hreyfanlegir á miðjunni — fengu
oft góðan tíma til að leika með knött-
inn. Þá var Omar Torfason alltaf á
fullri ferð — þyngdarlaus. Hann lék
mjög vel á miðjunni og gerði fá mistök.
Islensku leikmennirnir fóm að sækja
í sig veðrið og hófu sóknarlotur. Á 15.
mín. átti Atli Eðvaldsson góðan skalla
til Sigurðar Grétarssonar þar sem
hann var vel staðsettur fyrir framan
spánska markið. Sigurður skallaði
knöttinn. Luis Arconada, markvörður-
inn frægi, varði — missti knöttinn yfir
sig og hann dansaöi á marklínunni, þar
sem Camacho lá á fjórum fótum og
náði gð sópa knettinum með hendi
aftur fjTir endamörk. Greinileg víta-
spyrna! Dómarinn frá Portúgal, sem
dæmdi leikinn vel, var greinilega ekki í
góöri aðstöðu til að sjá brotið því að
hann dæmdi hornspymu en ekki víta-
spymu á Camacho. Þama sluppu
Spánverjar með skrekkinn og blaða-
menn hér önduðu léttara.
Araór Guðjohnsen var nærri búinn
aö skora mark á 40. mín., eftir að hann,
Sigurður Grétarsson og Pétur Péturs-
son voru búnir að prjóna sig skemmti-
lega í gegnum vörn Spánverja — hrein-
lega tættu vömina í sig. Arnór komst á
auðan sjó með knöttinn — aöeins Ar-
conada til vamar. Arnór vippaöi
knettinum skemmtilega yfir hann —
en heppnin var ekki með honum því að
knötturinn fór rétt fram hjá.
Spánverjar vakna til Irfsins
Leikmenn spánska liðsins voru
greinilega teknir í gegn í leikhléi — af
Munoz þjálfara. Þeir komu mjög
ákveðnir til leiks í seinni hálfleik og fór
þá hinn skemmtilegi bakvörður, Juan
Jose Jimenez, nýliði frá Real Madrid,
að taka virkan þátt í sókninni —
brunaði oft skemmtilega upp hægri
kantinn og áhorfendur fóru að hrópa:
„Ole, Ole, Oie....” — þegar hann fékk
knöttinn og fór fram. Jimenez reyndi
mikið af krosssendingum fyrir mark
íslenska liösins, en vamarleikmenn Is-
lands og Þorsteinn B jamason áttu ekki
í erfiöleikum með þær. Spánverjar
hættu með krosssendingarnar þegar
þeir sáu að íslensku vamarmennirnir
voru sterkir í loftinu. Þeir tóku þá upp
á að reyna mikinn einleik og stutt spil
— til að komast í gegnum „íslenska
múrinn”. Jimenez lék oft glæsilega í
gegn en þessi litli leikmaður er mjög
sérkennilegur — með skegg niður á
bringu og mikið sítt hár. Hann náði
tveimur dúndurskotum á mark Islands
en Þorsteinn var vel á verði og varði
meistaralega.
Þorsteinn réð síðan ekki við skot
Pedraza á 59. mín., eins og fyrr segir.
Eftir markið fóru leikmenn íslenska
liðsins að sýna þreytumerki, enda ekki
Pétur Pétursson
nema von — þeir vom búnir að leika á
fullu gegn hinum hreyfanlegu spánsku
leikmönnum, sem voru með frábærar
hreyfingar og knatttækni. Arconada,
markvörður þeirra, hafði lítið að gera
en aftur á móti fékk Þorsteinn Bjarna-
son nóg aö gera. Það má segja að leik-
menn íslenska iiðsins hafi andað léttar
þegar flautað var til leiksloka. Þeir
höfðu unniö frækilegt afrek — léku vel
gegn Spánverjum sem ætluðu sér stór-
sigur.
Þorsteinn Bjarnason lék mjög vel og
vömin var sterk. Viðar Halldórsson
var ekki öfundsverður — fékk nóg að
gerá þegar Jimenez fór að taka þátt í
sóknarieiknum og bmna upp hægri
kantinn með geysilegum hraöa og
látum.
Marteinn var geysilega traustur —
rólegur og yfirvegaður. Sævar Jónsson
var góður við hliðina á honum og Atli
Eðvaldsson stóð sig vel í vamarleikn-
um. Amór og Pétur Pétursson voru
mjög góðir á miðjunni — sérstaklega í
fyrri hálfleik þegar þeir léku oft við
hvern sinn fingur. Omar Torfason
vann mjög vel á miðjunni. Sigurður
Grétarsson stóð vel fyrir sínu en hafði
lítið að segja einn í tvo miðverði
spánska liösins.
Spánverjar voru mjög léttleikandi,
leiknir með knöttinn og mjög fljótir.
Juan Jose Jimenez frá Real Madrid
var bestur þeirra — hreint út sagt frá-
bær.
Jóhannes Atlason landsliðsþjálfari
gerði tvær breytingar á liði sínu.
Heimir Karlsson kom inn á fyrir Áma
Sveinsson og lék sinn fyrsta landsleik
og Gunnar Gíslason tók stööu Sigurðar
Grétarssonar. Eftir að Gunnar kom
inn á var Heimir settur sem fremsti
maöur. -klp/-SOS
Þorsteinn
frábær!
— segirReuter
Hið nýja lið Spánar, þar sem aðeins
fjórir frá HM lékn, stóð frammi fyrir
öðmm höfuðverk þar sem íslenski
markvörðurinn Bjarnason var. Hann
var frábær og tókst að halda marki
sínu hreinu þar til á 59. mín að nýliðinn
Juan Pedraza kórónaði sinn fyrsta
landsleik með frábæru marki. Tveir
aðrir nýliðar, Real Madrids Juan Jose,
„Sandokan” Jimenez náði knettinum
rétt innan vailarhelmings íslands og
renndi honum til miðherjans frá Zara-
goza, Juan Senor. Hann gaf á Pedraza,
sem sendi þrumufleyg í íslenska mark-
ið af 30 metra færi. Þorsteinn Bjama-
son átti ekki möguleika á að verja.
hsim.
Þreytandi ferð
— landsliðshóparnir
koma heim í nótt
Frá Kjartani L. Pálssyni — fréttamanni DV á
Costa del Sol. — Það voru þreyttir leikmenn
landsliðsins sem héldu héðan frá
Torremolinos kl. 4.00 í nótt, eða aðeins sex
timum eftir að landsleik þeirra gegn Spán-
verjum lauk í Malaga í gærkvöldi. Ferðinni
var heitið til Sevilla og var farið í langferða-
bifreið, sem kom til Sevilla kl. rúmlega 8.00 í
morgun.
Þangað komu svo leikmenn 21 árs landsliðs-
ins í morgun. Landsliðshóparnir héldu síöan
til London og eru væntanlegir heim til ísiands
í nótt og þegar íslensku leikmennirnir koma
heim til sín eru þeir búnir aö vera á ferðinni í
tuttugu klukkustundir og hafa þeir lítið sem
ekkert sofið síðan í gærmorgun. Þegar þeir
komu frá Malaga til Torremolinos í gærkvöldi
þá þurftu þeir að fara að pakka niður farangri
sínum og gera sig klára fyrir aksturinn til
Sevilla. Flcstir leikmannanna eiga að mæta
til vinnu í f y rramálið!
Þorsteinn deyfður fyrir leikinn
Frá Kjartani L. Pálssyni -
fréttamanni DV í Malaga: Það
þurfti að deyfa tvo fingur Þorsteins
Bjamasonar, markvarðar frá
Keflavík, fyrir leik Spánverja og
Islendinga - hann meiddist á
æfingu hér þegar hann fékk
knöttinn framan á fingurgóminn.
Ég var með smá seiðing i hend-
inni fyrir ieikinn, sem betur fer
lagaðist það við fyrsta skot sem ég
varði, sagði Þorsteinn og hlð. -
Ég hélt fyrst að ég myndi eiga
erfitt með að verja skot, en sem
bctur fer komu meiðsiin ekki að
sök,
Þorsteinn sagöi að hann hefði litið
haft að gera í markinu i fvrri hálf-
leik, en þess meira i seinni hálfleik.
Það var leiðinlegt að geta ekki
varið skot Pedeaza því að ég varði
mörg erfiðari skot frá Spánverjum
í leiknum, sagði Þorsteinn.
DV í Malaga
DV í Malaga