Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1982, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1982, Blaðsíða 34
34 DV. FIMMTUDAGUR 28. OKTOBER1982. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið 1971: í hlutverki sínu i kvikmynd- inni„Þetta var Roy Bean '. 1977: / hlutverki sínu i sjónvarps- þáttunum „ Draumaeyjan 1982: Victoria é hétindi fegurðar sinnar sem Pamela Bwing i Daiims. Victoría verdur fegurri með árunum Þótt vín verði betra og dýrmætara með árunum hefur það því miður verið alveg öfugt með konur. Ýmsum þekkt- um konum hefur þó tekist að sýna rækilega fram á annaö, eins og t.d. henni Victoríu Principal sem leikur Pamelu Ewing í Dallas. Eins og meðfylgjandi myndir sýna verður Victoría nefnilega fegurri með hverju árinu sem líður. Victoría fæddist í Japan þar sem faðir hennar gegndi herþjónustu. 1967 var hún kjörin „Ungfrú Miami” á Flórída. Hún lagði stund á leiklistar- nám, en var nógu hagsýn til að læra líka sjúkranudd. Hún vann svo sem ljósmyndafyrirsæta en fékk fyrsta kvikmyndahlutverkiö sitt 1971. Þaö var í mýndinni „Þetta var Roy Bean” en leikstjóri var John Huston. 1972 skildi Victoría við eiginmann sinn, Benie Cornfield, og tóksaman við leikstjórann Robert Evans. 1974 fékk hún hlutverk í stórslysamyndinni „Jarðskjálfti”. 1975 hætti hún allri leikstarfsemi og opnaði umboðsskrif- stofu fyrir listamenn. Eftir tvö ár var hún búin að fá nóg af henni og sneri sér aftur að leiklistinni. Fékk hún þá gestahlutverk í sjónvarpsþáttunum „Draumaeyjan”. 1978 fékk hún svo hlutverk Pamelu Ewing í Dallas. Ári síðar giftist hún leikaranum Christopher Skinner. Þaö hjónaband dugöi í ár og hefur Victoría þótt æði dugleg í karlamálunum siðan. Hún bjó um tíma með söngvaranum Andy Gibb. Aðrir sem hafa veriö tilnefndir sem elskhugar Victoríu eru saudí-arabíski milljónamæringurinn Kashoggi, handritahöfundurinn Em- est Thompson, fasteignasalinn Mark Nathanson, hárgreiðslumeistarinn José Eber, leikarinn Tom Selleck og skurðlæknirinn Harry Glassman. I apríl sl. var Victoría kjörin vinsælasta leikkona Bandarikjanna. Gömlu Genesis-félag- amir sameinudust á einum tónleikum — rokkathurður ársins, segir Melody Maker Hljómsveitin Genesis má muna fífil Keynes Concert Bowl skammt fyrir ut- sinn fegurri. A árunum 1972—1975 voru an London, á dögunum. þeir með albestu sveitum veraldar að margra áliti, en eftir að söngvarinn Genesis mætti til leiks með Peter Peter Gabriel og síðar gítarieikarinn Gabriel en auk hans skipuðu sveitina SteveHackettsögðuskiliðviðsveitina, Phil Collins og Chester Thompson fórbráttaðharðnaádalnum. (trommur) Darryl Stuermer (gítar) Michael Rutherford (bassi, gítar) Það þóttu því meiriháttar tíðindi er Tony Banks (trommur). Auk þess lét tilkynnt var að Peter Gabriel kæmi Steve Hackett sjá sig og spilaði á gitar- fram með Genesis á tónleikum í Milton inn í síöustu lögunum. Að sögn gagn- rýnanda Melody Maker heppnuðust tónleikamir frábærlega vel. Sveitin rif jaði upp gömlu góðu lögin, og Gabri- el klæddist búningum sem hann var frægur fyrir að klæðast á mektar- dögum Genesis. Og að sjálfsögðu var uppklappslagið The Knife, eins og áður fyrr. Gagnrýnandi MM skefur ekki ut- anaf því. Hann segir að þetta hafi verið atburður ársins í rokki. Gjafvaxta prinsessa Spænsku konungshjónin voru ný- lega í frii á Maliorca, ásamt bömum sínum þremur, Elenu, Christinu og Felipe. Vakti Elena þar mikla at- hygli fyrir fegurð og prúðmennsku. Blöðin hafa gert mikiö að því að reyna að spyrða þau saman, Elenu og Andrés Bretaprins. En það var áður en Andrés stakk af í fríið með klámleikkonunni Koo Stark. Eftir það hneykslið er talið að spænsku konungshjónunum þyki hann lítt fall- inn sem eiginmaöur handa hinni sak- lausu dóttur sinni. Qlgjaraari tung- ur halda því aftur á móti fram að prinsinum þyki lítið til Elenu koma í samanburði við hina lífsreyndu Koo. Hvað Elenu finnst er ekki vitað enda hefur enginn tekið að sér að ímynda sérþaðfyrirhana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.