Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1982, Blaðsíða 3
DV. MÁNUDAGUR1. NOVEMBER1982.
DV-i
Húsbruni i
Laugardal
—fjórir fluftir á slysadeild
Fjórir menn voru fluttir á slysadeild
á laugardagsmorgun, er eldur kom
upp í húsinu Bræðraparti við Engjaveg
í Reykjavík. Allir fengu þeir þó að fara
heim að rannsókn lokinni, en húsið er
mjög illa farið.
Það var laust fyrir klukkan níu á
laugardagsmorgun aö slökkviliöið í
Reykjavík var kallað að húsinu, sem
er í eigu Reykjavíkurborgar. Þegar
slökkviliðiö kom á vettvang var mikill
eldur á miðhæö hússins, sem er járn-
varið timburhús, og stóðu logar út um
útidyr. Allir íbúar hússins voru komnir
út, en fjórir þeirra voru fluttir á slysa-
deild vegna hugsanlegrar reykeitrun-
ar. Slökkvistarfið gekk vel og var því
lokiðréttfyrirhádegi. -KÞ
Bflvelta
við Húsavík
Nærri lá að illa færi skammt fyrir ut-
an Húsavík er bíll valt ofan í á á
laugardagskvöld.
Slysið varð við bæinn Ytri-Skála við
Otkinn um 40 kílómetra frá Húsavík.
Þar er mjög kröpp beygja og síðan
brú. Mun ökumanni hafa fipast eitt-
hvað í beygjunni með þeim afleiðing-
um að bifreiðin valt ofan í ána. I
bifreiðinni voru þrír auk ökumanns,
allt ungir Húsvíkingar. Komust þau öll
hjálparlaust út úr bílnum utan einn,
sem sat fastur í bifreiðinni úti í ánni.
Var hann fluttur á sjúkrahús, en
reyndist lítið slasaður.
-KÞ
Stykkishólmur níutíu ára
Stykkishólmshreppur á níutíu ára
afmæli um þessar mundir. I tilefni
þess bauð hreppurinn öllum íbúum
Stykkishólms á skemmtun í félags-
heimili bæjarins síðastliðinn laugar-
dag.
Á milli sex og sjö hundruð manns ,
komu á skemmtunina, sem þótti tak-
ast í alla staði mjög vel. Oddviti
hreppsins, Ellert Kristinsson, flutti
ávarp, tveir hreppsnefndarmenn
fluttu sögulega upprifjun og þeir
Magnús Jónsson óperusöngvari og
Omar Ragnarsson skemmtu. Aö lok-
um var svo boöið upp á kaffiveiting-
ar.
Um kvöldiö frumsýndi leikfélagiö
Grímnir, sem á fimmtán ára afmæh
þessa dagana, leikritið Skugga-Svein,
í félagsheimilinu. Húsfyllir var á
sýningunni og voru leikendur og leik-
stjórinn,Jón Júlíusson,margklappað-
ir upp í lok sýningarinnar. Þá afhenti
sveitarstjórinn í Stykkishólmi,
Sturla Böövarsson, leikfélaginu
gjafabréf i félagsheimilinu og tók
formaður leikfélagsins, Björgvin
Guðmundsson, viö bréfinu fyrir hönd
leikfélagsins.
Þessa dagana heldur Olafur Torfa-
son sýningu í hótelinu í tilefni af mælis
hreppsins, en hann bjó um skeið i
bænum, en er nú búsettur á Akur-
eyri.
Að lokum má geta þess að hreppur-
inn býður öllum ellilífeyrisþegum í
Stykkishólmi á leikritið Skugga-
Svein annaðkvöld, þriöjudagskvöld.
Róbert/JGH.
ÆriNGASTOÐIN
ENGIHJALLA 8 * «46900
Burt með sleniðl
Þreytuna og aukakílóin!
Taktu af skarið og gerðu líkamsrækt
að þinni tómstundaiðju núna strax!
15 daga æfinganámskeið fyrir byrjendur eru að hefjast.
Fjölbreyttar æfingar undir stjórn þjálfara - og um leið getur
þú kynnst notkun og möguleikum nýjustu líkamsræktartækja
Fyrstu námskeiðin byrja mánudaginn 1. nóv. kl. 9 og 10, 14, 15 og 16
ALMENNIR TÍMAR ALLA VIRKA DAGA KL. 8 - 22 Á KVÖLDIN
NÝTTU ÞÉR NÝJUSTU TÆKNI í LÍKAMSRÆKT SEM
HEFUR FARIÐ SIGURFÖR UM ALLAN HEIM!
INNRITUN
ER
HAFIN
ÍSÍMA 46900
Nuddtímar allan daginn - Einnig kvöld-
tímar - Tímapantanir í síma 46900
Nýtt frá
Orvari
Heyr mitt
Ijúfa lag
Þetta er eflaust langbesta platan sem Örvar hefur sungið
og spilað inn á. Þetta er ósvikin tólflaga-plata og nikkan
þanin í hverju lagi, textarnir ágætir og hljóðfæraleikur
og útsetningar í höndum þekktra smekkmanna. Ef til er
íslensk sveitatónlist, er hún hér komin, betri en fyrr.
Örvar Kristjánsson slær enn einu sinni í gegn. Tryggðu
þér eintak.
FÁLKINN