Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1982, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1982, Blaðsíða 6
6 DV. MÁNUDAGUR1. NOVEMBER1982. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur t: GuÖmundur Borgþórsson forseti JC-Reykjavík afhendir Ninu Hjaltadóttur fyrsta bæklinginn. Fræðsluriti um hjartahnoð dreift á vegum JC-félaga Heilsuvemd: Mataræði læknar krabbamein Tímarit Náttúrulækningafélags íslands, Heilsuvernd, (1. hefti 1982) er nýkomið út. Að venju eru margar fróölegar greinar í ritinu og upp- skriftir af grænmetisréttum. Athyglisverð frásögn af lækningu dr. Anthony Sattilaro’s af krabba- meini er í blaöinu. Þar segir læknir- inn, sem var dauövona, frá þvi að breyting á mataræöi hafi læknaö hann. Röntgenmyndir sýndu í júní 1978 aö Dr. Sattilaro var meö stórt æxli í vinstri síðunni, krabbamein í hauskúpunni, hægri öxlinni, tveim hryggbeinum, sennilega bringubein- inu og stórt æxli í sjötta rifi vinstra megin. Einnig kom í ljós ð hann var meö krabbamein í kynfærum. Lækn- arnir voru ekki vissir um hvort þaö væri í blööruhálskirtlinum eöa eistunum eöa hvoru tveggja. Nokkrar skuröaögerðir voru gerðar á lækninum, en á tímabili var hann mjög kvalinn þrátt fyrir lyfin sem hann tók inn daglega (blanda af morfíni, kókaini og compazine). í ágúst sama ár var dr. Sattilaro ráö- lagt aö breyta um matarræði og snúa sér að makrobiotics fæöi. En grund- vallannatarræöi macrobiotics er um það bil 50 soðin heil hýðishrís- grjón, allt að 35% grænmeti ræktaö á staönum, 15% baunir og sjávarjurtir og afgangurinn súpur, krydd, ávext- ir, fræ og hnetur. Til aö gera langa sögu stutta, kom í ljós ári siðar aö ekkert krabbamein var eftir í líkama dr. Sattilaro. Frásögn læknisins nær yfir fimmtán mánaða veflrindatímabil og hélt hann nákvæma skýrslu allan tímann. Skýrsla hans ásamt því aö hann er læknir, sem er mikils metinn í starfi sinu, hefur gert dr. Sattilaro að mikilsvirkum talsmanni macro- biotics sem Iækningaaöferð viö krabbameini og öörum hrömunar- sjúkdómum. Dr. Sattilaro vinnur að því að koma upp macrobiotic lækningastöö í einhverjum tengslum viö Methodist Hospital í Phila- delphiu, þar sem hann starfar. I þessu hefti Heilsuvemdar þar sem frásögn læknisins birtist er einnig grein um tref jaefni eftir Ársæl Jónsson lækni. Þorgerðiu- Hermannsdóttir ritar þar um austur- lenskar alþýöulækningar og segir frá námi í The Michio Kushsi Institute of London. I grein Þorgerðar er sagt frá almennum , reglum um hollari mataræði og breyttar lífsvenjur. Svo sem sjá má á ofanrituðu er megin- efni ritsins um áhrif mataræðis á likamann og sjúkdóma. -ÞG. samband íslenskra sparisjóða kostar JC-fólagar munu dreifa bæk/ingum um hjartahnoð / þýð/ngu Nínu Hjafta- dóttur. Samband íslenskra sparisjóða kostar útgáfuna. útgáfuna JC-félagar Reykjavík hafa nýlega gefið út litið hefti um hjartahnoö. Það var Nina Hjaltadóttir sem tók að sér að þýða þetta litla rit, en samband spari- sjóða greiðir allan kostnað við útgáful þess. Ritinu verður dreift í öll hús og er vonast til að menn hafi það síðan á handhægum stað. Ritið er ekki kennslutæki, það getur ekki komið i Annaó Alls stað námskeiðs en er ágætis upprif jun. Sama stærð er á þessu og á öku- skirteinum, það fer því vel í veski eða vasa og ættu allir að bera þessar upplýsingar á sér. Þar stendur meöal annars á baksiöu þessa blaðs: „Skökk handbrögö geta valdið innvortis áverka.” Þá eru réttu handbrögöin sýnd stig af stigi í mynd- kr______________l kr. I i um og máli. Upphaf ritsins er þannig: „Ef maður hefur hnigið niöur og liggur hreyfingarlaus. Talið til hans, hristiö axlir varlega. Ef hann sýnir engin viö- brögö, þá er öndunarvegur opnaður. Sveigiö höfuöiö varlega aftur, meö aöra hönd á enni sjúkiings, en hina undir hnakkagróf.” Athuga þarf hvort sjúklingurinn andar. Ef brjóstkassinn hnígur, þá er biásið fjóra snögga blástra. Rísi brjóstkassinn ekki við það, þá ber aö athuga æðaslátt. Tveir fingur eru lagöir á barkakýlið og látnir renna örlítiö til hliðar niöur á slagæö- ina. Þá segir orörétt: „Ef æöasláttur er til staðar, en engin öndun, haldiö áfram að blása.” Hefjið hjartahnoö, ef enginn æða- sláttur er. Finniö þá rétta handstöðu, ýtið bingubeininu niður um 3—5 cm. 1 hjálparmaöur hnoöar 15 sinnum á móti 2 blástrum. Haldiö áfram þar til hjálp berst. Eftir eina minútu ber að athuga æðasláttinn og síöan á nokkra minútna fresti. Þá er sýní á myndum hvemig finna beri rétta staöinn til að þrýsta á. Ann- arri hönd er þrýst ofan á hina, til að auka þrýsting og olnbogar eru haföir beinir. Um 50.000 eintök af þessu fræðsluriti voru prentuð og liggja þau meöal ann- ars á heilsugæslustöövum og í sjúkra- húsum, auk þess munu JC-félagar dreifa þeim í hús, eins og fyrr var greint frá. „Við erum 5—6 ár á eftir timanum hvað slíka fræðslu varðar,” sagöi Nína Hjaltadóttir. „Viö fylgjum Danmörku, en Bandaríkin og Kanada eru langt á undan.” Þá mældi Nína sérstaklega meö bók um h jálp í viðlög- um eftir Jón Oddgeir. Skyndihjálp er kennd í Iðnskólanum og í fjölbrauta- skólum, einnig er þetta liður í meira- prófi. Þaö er tilgangur JC-hreyfingarinnar aö hjálpa til og ýta málunum áfram. Meöal einkunnaroröa JC eru þau aö manngildið sé mesti fjársjóöur manna. -RR Raddir neytenda: Neitar að greiða símtal frá útlöndum Olafur Friðfinnsson er rétthafi símanúmers 45785. Nýlæega fékk hann sendan símareikning aö upp- hæð kr. 91,-. Var sá reikningur fyrir „collect” símtal þann 2.9. sl. „Coll- ect” simtöl eru greidd af þeim sem hringt ertiL „Það hefur ekki verið hringt í mitt símanúmer frá útlöndum hvorki beint né „collect”. Eg kannast því ekki viö símtalið umræddan dag og vil ekki greiða þennan reikning,” sagöi Olafur er hann haföi samband- ið viö okkur. ,3g er búinn að tala við marga aöila hjá símanum og mér er alltaf vísaö á einhvem annan. Það viröist ekkí vera hægt að fá leiðrétt- ingu á þessu smámáli. Er ekki líka skylda aö hringja í viökomandi aöila þegar um „collect” simtöl aö utan er að ræða og spyrja hvort greitt verði fyrirsímtalið?” Viö könnuðum máliö og höfðum meðal annars samband við starfs- mann í tvöluskráningardeild Pósts og síma. Þar fengum viö þau svör aö þar sem öll „collect” símtöl færu í gegnum erlendar símstöövar, bæri símadömum á stöövum erlendis að hringja fyrst í umbeðiö símanúmer og athuga hvort aöilar þar vilji greiöa símtaliö að utan. Ef það er samþykkt er gangur málsins síöan sá að reikningar eru sendir i pósti á milli landa og hér eru þeir endur- skrifaöir og sendir út. Var okkur einnig tjáð aö þegar menn kannist ekki við símtöl erlendis frá, er skrif- aö út og beðiö um að láta rannsaka málið. I þessu tilfelli, máli Ölafs Friöfinnssonar, er búiö að skrifa út, en ekkert svar hefur borist ennþá. -ÞG Upplýsiiigaseóilí til samanDurðar á heimiliskostnaói Hvaö kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendiö okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátltak- andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjolskvldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nvtsamt heimilis- tæki. Nafn áskrifanda Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks__ Kostnaður í október 1982 Matur og hreinlætisvörur kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.