Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Qupperneq 13
DV. LAUGARDAGUR 5. MARS1983.
13
Mannlíf að norðan
99Spékoppur"
Akureyringa
— ný bék væntanleg á markaðinn
„Bókin geymir gamanmál um
Akureyringa og atburöi nýliðins árs á
Akureyri i spéspegli sagöi Ragnar
Lár aðspuröur um bók sem væntanleg
Ragnar Lir teiknar Akureyringa i
spóspegli.
er um miöjan mánuðinn. Aö útgáfunni
standa auk Ragnars þeir Rögnvaldur
Rögnvaldsson ráðhúsherra og Þórður
„Doddi” Pálmason, barþjónn og
skipasmiður. ,,Spékoppur” heitir bók-
in og um tilurð hennar orti Rögnvald-
ur:
Ýmsum þætti ævin þur
andlaus bæöi og loppin.
Ef Ragnar, Doddi og Rögnvaldur
réttu þeim ekki koppinn.
„Bókin er í myndum og máli, þar á
meðal bundnu máli eftir Rögnvald,”
hélt Ragnar áfram. „Eg er búinn aö
vera með þetta í maganum frá því ég
flutti til Akureyrar en fæðingin hefur
dregist á langinn. Bæjarfélagið er ekki
of stórt, en það er samt nógu stórt til að
svona lagað geti gengið.”
— Ertu ekkert hræddur um að Akur-
eyringar séu hörundsárir?
„Nei, það er ég ekki, því þó sneitt sé
að mönnum í bókinni þá er það ekki
gert á þann hátt að viö óttumst máls-
höfðun. Bókin er í nokkurs konarann-
álsformi og inni á milli eru auglýsing-
ar sem þó eru hluti af efninu og í létt-
um dúr. Okkur hefur verið mjög vel
tekið sem sést best á því að við urðum
að loka fyrir auglýsingar. Það hlýtur
að vera Islandsmet,” sagði Ragnar og
hló við.
Ragnar Lár var í mörg ár með
Spegilinn, samvisku þjóðarinnar—
góða eða vonda eftir aðstæðum. „Spé-
koppur” Akureyrar verður áþekkur, í
brotinu A4 og blaðsíðurnar verða aö
líkindum 64. -GS/Akureyri.
Rögnvaidur Rögnvaldsson ráðhús-
herra sór um bundið mái i bókinni.
DV-myndir GS/Akureyri
Endurtekið vegna
mikillar þátttöku
NÁMSKEIÐ í JAPANSKRISTJÓRNUN
FYRIR STJORNENDUR FYRIRTÆKJA OG STOFNANA
VERÐUR ENDURTEKIÐ ÞRIÐJUDAGINN 8. MARS
J. INGIMAR HANSSON
Fyrirlesari
Ingimar fór nýlega í námsferð til
Japan.
Feröin var skipulögð af Banda-
riska iðnaðarverkfræðinga-
félaginu.
Auk námskeiða í japanskri
stjómun var faríð í heimsóknir
til iðnfyrirtækja.
J. Ingimar Hansson er rekstrar-
verkfræðingur að mennt og
stofnaði Rekstrarstofuna 1974.
GUNNAR H. GUÐMUNDSSON
Fyrirlesari
Gunnar hefur annast athuganir
þær sem Rekstrarstofan hefur
staðíð fyrir á japanskri iðnaðar-
uppbyggingu og áhrifum hennar
í Bandaríkjunum og á Vestur-
löndum.
Gunnar H. Guðmundsson er
rekstrarverkfræðingur aö mennt
og er ráðgjafi á sviði stjórnunar,
skipulags, upplýsingakerfa og
tölvumála.
BOLLI MAGNÚSSON
Fundarstjóri
Bolli starfaöi um skeið í Japan
sem fulltrúi togarakaupenda og
kynntist starfsháttum við
skípasmíðar þar i landi.
Bolli Magnússon er skipatækni-
fræðingur að mennt og er ráð-
gjafi á sviði skipasmíða og
útgerðar.
Lærum af forystuþjóð á sviði stjórnunar.
Veist þú:
• Hvaö núllgallastefna er?
• Hvers vegna aukin gæöi leiöa til lægri framleiðslu-
kostnaöar?
• Hvað er Poka Yoke?
• Hvers vegna blönduð framleiðsla er hagkvæmari en
fjöldaframleiösla?
• Af hverju verkföll eru nær óþekkt í stærri iðnfyrir-
tækjum í Japan?
• Hvernig staðið er að starfsmenntun í Japan?
• Hvernig unnt er að ná og viðhalda miklum
afköstum?
• Hvað núllbirgðastefna er?
• Hver eru tengsl iðnfyrirtækja og banka í Japan?
• Er allt sem sýnist?
Námskeiðið verður haldið að Hótel Loftleiðum,
Leifsbúð, þriðjudaginn 8. mars kl. 13.30 til 18.00.
Þátttökugjald kr. 2.500,-
Vinsamlegast tilkynniö þátttöku í síma 44033
sem fyrst. Fjöldi takmarkaður.
Ráðgjafaþjónusta
Stjórnun — Skipulag
Skipulagning — Vinnurannsóknir
Flutningatækni — Birgðahald
Upplýsingakerfi — Tölvuráðgjöf
Markaðs- og söluráðgjöf — Samstarf sjálfstæðra rekstrarráðgjafa á mismunandi sviðum —
stjórnenda- og starfsþjáifun Hamraborg 1 202 Kópavogi Sími 91-44033
REKSTRARSTOFAN
BÆKUR TIL SÖLU
Við erum þessa dagana að taka fram nokkur góð
söfn íslenzkra bóka frá öllum tímum prentsögunn-
ar. Nokkur dæmi:
Reykjahlíðarættin, Islenzkar ártíðaskrár (með töflunum),
Skútustaðaætt, Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi eftir
dr. Guðna Jónsson, Manntal á Islandi 1703, Manntal á Islandi
1816, Niðjatal Eiríks Olafssonar á Litlalandi, Skagfirðingabók
1—10, bækur Arna Ola: Grafið úr gleymsku og Blárra tinda
blessað land o.fl. bækur höf., Skólameistarasögur Sögufélags
1—7, Vatnaniður eftir Björn Blöndal, Alþingismannaförin
1906, Bókaskrá Olaf Klose og Bókaskrá Gunnars Hall, Það
vorar um Austuralpa, hin umdeilda bók Knúts Amgrímsson-
ar, Um Njálu eftir dr. Einar Ölaf, Heimsstyrjöldin 1914—1918
eftir Þorstein Gíslason, Ljóðmæli eftir sr. Jón Þorleifsson
prest, ásamt Þjóðsögum, Kh. 1868, Samsom fríði og
Kvintalín kvennaþjófur, riddarasaga, A refOstigum eftir
Upton Sinclair, Fróðlegt Ijóðasafn, 2. hepti, Ak. 1857, I
óaðgætni eftir Þórð Sveinsson lækni, Bókin um veginn (gamla
útgáfan) Misjafn sauður í mörgu fé eftir Eirík á Brúnum,
Svartálfadans eftir Stefán Hörð Grímsson og Glugginn snýr í
norður eftir sama, Eitt kvöld í júní, fyrsta ljóðabók Einars
Braga, Ljóðmæli Jóns Olafssonar, Rvík 1896, Ljóðmæli
Jónasar Hallgrimssonar, frumútgáfan Kh. 1847, Lenínisminn
eftir Jósep Stalín, Hvað vOl Kommúnistaflokkur Islands?
(gamli flokkurinn), „Helgakver” (Hálfdanarsonar), Æfi-
minningar frá Letigarðinum eftir Armóð Vergangsson, Söng-
bók Jafnaðarmanna, Starfsárin og Undirbúningsárin eftir sr.
Friðrik Friðriksson, Bjarnargreifamir eftir Eschtruth,
Kirkjusöngsbók Jónasar Helgasonar, Organtónar Brynjólfs
organista Þorlákssonar, Frjálsar ástir eftir Katrínu Thor-
oddsen, Verk Chaucers, í fólíóútgáfunni, alskinn, útgefin
1602, Kennslubók í bókbandi og smíðum, Tímarit Máls og
menningar, litla ritið, Far veröld þinn veg eftir Jörgen Frants
Jacobsen, Móðirin 1—2 eftir Gorkí, Islandske Folkesager
(Andersen), Privatboligen paa Island eftir dr. Valtý
Guðmundsson, Heimsbókmenntasaga Kristmanns 1—2 og
Bókmenntasaga Kristins E. Andréssonar, Lýsing Islands 1—4,
eftir Þorvald Thoroddsen, allt frumprent, Kvæði Einars
Benediktssonar í alskinni, Tímaritið Sunnanfari komplet,
Búalög, Hrappsey og Reykjavík, Islenzkt mannlíf 1—4 eftir
Jón Helgason, Að vestan 1—4, Islenzkir samtíðarmenn 1—2,
Tímaritið Réttur frá upphafi, Bragfræði og háttatal eftir
Sveinbjörn Beinteinsson, Siðaskiptamenn og trúarstyrjaldir
eftir Sverri Kristjánsson, Vor í vemm eftir Jón Rafnsson. Die
Vögel Islands eftir Timmermann.
Við höfum ennfremur bækur eftir nær alla
íslenzka höfunda fyrr og síðar, t.d. Thor
Vilhjálmsson, Halldór Laxness, Þorgeir Þor-
geirsson, Þórberg Þórðarson, Njörð P. Njarðvík,
Sigurð A. Magnússon, Guðrúnu frá Lundi, Arna
Ölafsson, Flosa Ölafsson, S.jón, Sigurð Z. ívars-
son, Svövu Jakobsdóttur, Skugga, Einar Kvaran,
Einar Guðmundsson, Helga Þorgils, Jón úr Vör
og hundruö annarra, lifandi og látna, viður-
kennda hérlendis og erlendis, einnig hina ungu
óþekktu höfunda.
Hjá okkur er miðstöð pocketbóka-viðskiptanna.
Höfum þúsundir enskra nýlegra pocketbóka.
Við kaupum og seljum allar íslenzkar bækur og
flestar erlendar.
Heil bókasöfn og einstakar bækur.
Gefum reglulega út bóksöluskrár um íslenzkar
bækur og sendum þær ókeypis til þeirra sem óska
utan Reykjavíkursvæðisins.
Sendum í póstkröfu hvert sem er.
Vinsamlega hringið, skrifið — eða lítið inn.
- GAMLAR BÆKUR OG NÝJAR -
BÓKAVARÐAN
Hverfisgötu 52
Sími 29720 — Reykjavík.