Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1983, Síða 21
20
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. MARS1983.
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. MARS1983.
21
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
„Forskot Lodz mun
ekki duga
gegn okkur”
— segir Bob Paisley,
framkvæmdastjóri Liverpool
Leikmenn pólska liðsins Widzew Lodz, sem mæta
Liverpool á Anfield Road í Evrópukeppni meistara-
liða á morgun, hafa verið í æfingabúðum frá því að
liðin léku fyrri leikinn í Evrópukeppninni en þann
leik vann Lodz 2—0.
Sigur pólska liðsins kom mjög á óvart og eftir leik-
inn sagði Bob Paisley, framkvæmdastjóri Liver-
pool, að sínir menn gætu ekki verið óheppnir tvo leiki
í röð gegn Lodz. — Við áttum að vinna sigur í Pól-
landi, cftir gangi leiksins. Okkur tókst það ekki en'
annað verður uppi á teningnum á Anfield — tveggja
marka forskot Pólverjanna mun ekki duga gegn
okkur, sagði Paisley. -SOS
Lárus ekki með
gegn Parísarliðinu?
— Uppselt á Evrópuleikinn
íWaterschei
Frá Kristjáni Bernburg — fréttamanni DV í
Belgíu: — Það er nú óvíst hvort Lárus Guðmunds-
son getur leikið meö Waterschei í Evrópukeppni
bikarmeistara gagn París St. Germain í Waterschei
á morgun. Lárus var tekinn út af í leikhléí í deildar-
leik gegn Beerschot á sunnudaginn.
— Ég fann til smávægilegra verkja í hnénu og það
var ákveðiö að ég myndi ekki leika seinni hálfleik-
inn. Ég vona að ég verði orðinn góður fyrir Evrópu-
leikinn. Það mun ekki koma í ljós fyrr en rétt fyrir
leikinn hvort ég verð með, sagði Lárus.
Mikill áhugi er fyrir leik Waterschei og París St.
Germain og er fyrir löngu uppselt á Ieikinn.
KB/-SOS
Aðeins ein V-Evrópu-
þjóð í Los Angeles
— þegar keppt verður um
OL-gullið íhandknattleik
Aöeins ein V-Evrópuþjóð tekur þátt í handknatt-
leikskeppninni á ólympíuleikunum í Los Angeles.
Þaö eru Danir. Sjö þjóðir frá A-Evrópu keppa þar —
Tékkar, Pólverjar, Rússar, Ungverjar, A-Þjóð-
verjar, Júgóslavar og Rúmenar.
Sex af þessum þjóðum tryggja sér farseðilinn á A-
keppnina, sem verður í Sviss 1986, en tvær af þeim
verða að vinna sér farseðil þangað með því að taka
þátt í B-keppninni í Noregi 1985. Nú þegar er ljóst að
sex þjóðir keppa í Noregi — íslendingar, V-Þjóð-
verjar, Spánverjar, Frakkar, Svíar og Norðmenn,
sem eru gestgjafar. Svisslendingar eru þegar búnir
að tryggja sér rétt tíl að keppa í A-keppninni í Sviss,
þar sem keppt er í heimalandi þeirra.
í Noregi verður keppt um fimm sæti sem verða
laus í A-keppninni i Sviss og aö sjálfsögðu hafa
islendingar sett sér það takmark að verða í einu af
fimm efstu sætunum í Noregi, þannig að farseðillinn
til Svíss 1986 náist. -SOS
Þórdís Gísladóttir
Met Þórdísar
í Michigan
— þar sem hún stökk 1,88 m íhástökki.
Þórdís hef ur tryggt sér farseðilinn á
heimsmeistaramótið í Helsinki
Þórdís Gísladóttir, frjálsíþróttakona
úr ÍR, setti glæsilegt islandsmet í
hástökki innanhúss um helgina á
frjálsíþróttamóti í Michigan í
Bandaríkjunum. Þórdís stökk 1,88 m
og varö sigurvegari í mótinu. Íslands-
met Þórdísar utanhúss er 1,86 m.
Meö þessum árangri Þórdísar hefur
hún tryggt sér farseðilinn á heims-
meistarakeppnina í frjálsum íþróttum,
sem veröur í Helsinki í Finnlandi 7,—
14. ágúst í sumar. Þrír aðrir frjáls-
íþróttamenn hafa náð árangri, sem á
að tryggja þeim rétt til aö fara til Hels-
Valur- Keflavík í
Laugardalshöll
Leikur Vals og Keflavíkur í undan-
úrslitum bikarkeppninnar í körfubolta
verður í Laugardalshöll í kvöld. Hefst
hann kl. 20.30. Ferðir verða á leikinn
frá íþróttahúsinu í Keflavík kl. 19.15.
inki. Það eru þeir Oskar Jakobsson,
kúluvarp, Einar Vilhjálmsson, spjót-
kast, og Oddur Sigurðsson, sprett-
hlaup.
Þórdís er í mjög góðri æfingu um
þessar mundir og má fastlega búast
við því að hún bæti árangur sinn fljót-
lega.
Óskar í Norður-
landaúrval
Fyrir heimsmeistaramótið í Helsinki
keppir Norðurlandaúrvaliö gegn
Bandaríkjunum í Stokkhólmi 26.-28.
júlí. Oskar Jakobsson er nokkuð
öruggur í Norðurlandaúrvalið, þar
sem hann er einn besti kúluvarpari
Norðurlanda. Oddur Sigurðsson gæti
keppt í boðhlaupum. Þórdís hefur náð
fjórða besta árangrinum í hástökki
kvenna á Norðurlöndum og ef hún
heldur áfram að bæta sig þá gæti farið
svo að hún yrði valin í Norðurlandaúr-
valið. -SOS
Útdráttur í ensku bikarkeppninni:
Sterkustu liðin lentu
saman í undanúrslitum
Það mátti heyra þungar stunur þeirra
sem voru viðstaddir, þegar dregið var í
undanúrslitin í ensku bikarkeppninni á
skrifstofu enska knattspyrnusambandsins
kl. 12.30 í gær. Hálfgeröur ódráttur því bestu
liðin, sem eftir eru í keppninni, Man. Utd. og
Arsenal, lentu þar saman.
Dregið var fyrst um töfluröð og var hún
þannig. 1. Burnley eða Sheff. Wed. 2.
Arsenal3. Man. Utd. og 4. Brighton.
Síðan hófst drátturinn og miði nr. fjögur
kom fyrst úr hattinum, Brighton og menn
stundu, þegar næst kom nr. eitt, Burnley eða
Sheffield Wednesday. Brighton mætir því
annað hvort Burnley eða Sheff. Wed. í
undanúrslitum. Þriðji miðinn var nr. 3,
Man. Utd. og þá aðeins Arsenal eftir.
Draumaúrslitin því fyrir bí, þar sem Man.
Utd. og Arsenal lentu saman í undanúrslit-
um. Ekki hefur enn veriö ákveðið á hvaöa
völlum undanúrslitaleikirnir verða háðir en
þeir fara fram 16. apríl. Hlutlausir vellir aö
venju.
Arsenal og Man. Utd. léku til úrslita í bik-
arkeppninni á Wembley 1979. Arsenal
sigraði 3—2 og þrjú af mörkunum skoruö
rétt undir lokin. Arsenal komst í 2—0 en
United jafnaði í 2—2. Árinu áður hafði
Arsenal tapað 1—0 fyrir Ipswich í úrslitum.
Leikurinn við Arsenal var hins vegar þriðji
úrslitaleikur Man. Utd. á f jórum árum. Tap-
aði fyrir Southampton 1—0 í úrslitum 1976
en vann Liverpool2—1 árið eftir, 1977.
Brighton hefur aldrei leikið til úrslita í
bikarkeppninnl Hefur reyndar aidrei komist
í undanúrslit fyrr en nú .17 ár eru síðan
Sheff. Wed, eitt þekktasta knattspymufélag
Englands þó það leiki nú í 2. deild, komst í
úrslit. Það var 1965 og Everton sigraði
Wednesday 3—2 í stórskemmtilegum leik. 21
ár er síðan Bumley komst í úrslit. Tapaði
1962 fyrir Tottenham 3—1 en Burnley á
merka sögu í ensku knattspymunni þó gengi
félagsinshafi verið lítiðsíðustuárin.
Þegar Arsenal og Man. Utd. ieika 16.
apríl veröur sextándi leikur hvors félags í
undanúrslitum. Arsenal hefur 11 sinnum
leikið til úrslita og á þar met með New-
castle. Fimm sinnum sigrað. Man. Utd.
hefur átta sinnum leikið til úrslita. Sigrað
fjórum sinnum. Sheff. Wed. hefur fimm
sinnum leikið til úrslita, þrisvar sigrað og
Bumley hefur þrisvar leikið til úrslita, einu
sinni sigraö. Sheff. Wed. 13 sinnum leikið í
undanúrslitum, Bumley átta sinnum. Hins
vegar fyrsti leikur Brighton í undanúrslitum
16. apríl.
hsím.
Víkineur vann upp
fimm marka forskot
FH-inga og sigraði
— skoraði þrjú síðustu mörkin í bikarleiknum og vann 27-26
„Það var frábært að vinna upp mun-
inn og sigra. Við lékum vel í síðari hálf-
leiknum. Ég bjóst alls ekki við sigri
fyrir leikinn, því sterka leikmenn
vantaði, auk þess sem við höfum æft
heldur illa að undanförnu,” sagði Páll
Björgvinsson, eftir aö Víkingur sigraöi
FH i bikarleiknum í handknattleik 1
Laugardalshöll í gærkvöld, 27—26. Páll
lék sinn 404. leik í meistaraflokki og
fékk blómvönd frá Víking fyrir leikinn.
Það voru miklar sveiflur í leik lið-
anna í gærkvöld. FH, sem var án Þor-
gils Ottars Mathiesen, var mun betra
liðiö í fyrri hálfleik og náði þá fjögurra
marka forustu. Víkingur, án Arna
Indriðasonar, Kristjáns Sigmunds-
sonar og Þorbergs Aöalsteinssonar,
náöi sér hins vegar vel á strik í síðari
hálfleiknum. Viggó Sigurðsson var
hreint óstöðvandi. Þeim tókst að vinna
upp muninn. Jafna í 22—22 en FH
komst aftur tveimur mörkum yfir, 26—
24 og aðeins þrjár mínútur eftir. Gífur-
leg spenna lokakaflann. Víkingum
tókst að jafna í 26—26, náðu svo
knettinum aftur og 10 sek. fyrir leiks-
lok innsiglaði Hilmar Sigurgíslason
sigurinn með marki af línunni eftir
glæsisendingu Sigurðar Gunnars-
Mansf ield vann
Aðeins einn leikur var í ensku
knattspyrnunni í gærkvöld. Mansfield
sigraði Hartlepool 3—0 á heimavelli,
vellinum við Skírisskóg hans Hróa
Hattar. hsím.
Kristján var algjör yfirburðamaður í
FH-liðinu og Víkingum gekk illa að
stöðva hann þó hann væri með yfir-
frakka á sér allan leikinn. Um tíma
Viggó Sigurðsson var í miklum ham i
síðari hálfleiknum og stórleikur hans
þá lagði grunn að Víkingssigrinum.
Viggó skoraði 10 mörk í leiknum, átta
þeirra í síðari hálfleik.
DV-mynd Friðþjófur.
tóku Víkingar einnig Hans Guðmunds-
son úr umferð en það gaf ekki góða
raun.
Jafnt framan af
Jafnt var á öllum tölum upp í 4—4 en
síðan náðu Víkingar tvívegis tveggja
marka forustu, 6—4, 8—6 og 9—7. FH
jafnaði í 6—6 og 9—9 og skoruðu fimm
mörk í röð. Breyttu stöðunni úr 9—7 í
12—9 og léku Víkinga grátt lokakafla
fyrri hálfleiksins. Víkingar bættu ekki
úr með því að misnota tvö vítaköst.
Staðan 15—11 í hálfleik.
Framan af síðari hálfleiknum
breyttist munurinn lítið. FH yfir 20—15
en síðan fór munurinn að minnka. FH-
ingar voru um tíma tveimur færri.
Víkingur jafnaði í 22—22 á 48. mír.
Síðan jafnt 23—23 og 24—24 þar sem
FH skoraði á undan. Ellert varði þá
víti frá Kristjáni. Síðan komst FH
tveimur mörkum yfir en það nægði
Hafnfirðingum ekki eins og áður segir.
Mörk Víkings skoruðu: Viggó 10/2,
I Sigurður Gunnarsson, semhéltVíkingi
á floti í fyrri hálfleiknum, 9/3. Hilmar
2, Olafur Jónsson 2, Steinar Birgisson
2, Guömundur Guömundsson og Páll
eitt hvor. Mörk FH: Kristján 13/6,
Pálmi Jónsson 4, Guðmundur Magnús-
son 3, Hans 2, Guðjón Árnason 2,
Sveinn Bragason og Valgarð Valgarðs-
son eitt hvor. Dómarar Grétar
Vilmundarson og Ævar Sigurðsson.
Bæði lið fengu sjö vítaköst og þremur
leikmönnum úr hvoru liði var vikið af
veHi. hsím.
Alfreð sat á bekknum
— þegar KR-ingar lögðu Ármann að velli 31-21
KR-ingar Ieyfðu sér þann munað að
láta landsliðsmanninn Alfreð Gislason
sitja á varamannabekknum þegar þeir
mættu Ármenningum í 16-liða úrslitum
bikarkeppninnar í handknattleik i gær-
kvöldi. Það kom ekki að sök — þeir
náðu strax góðri forustu 11—3 og voru
yfir 21—10 í leikhléi. Seinni hálfleikur-
inn var sannkaUaður delluleikur og
þegar upp var staðið var munurinn tín
mörk — 31—21 fyrir KR.
Þegar staðan var 24—13 fyrir KR-
inga tóku þeir Anders-Dahl Nielsen og
Gunnar Gíslason sér hvíld og upp frá
því var ekki heil brú í Ieik KR-liðsins.
DeUan var í hámarki þegar Jens Ein-
arsson markvörður fór í sókn og reyndi
langskot frá punktalínu. Ekki tókst
honum að skora en Ármenningar
sendu knöttinn yfir vöUinn og í markið
hjá KR-ingum.
Stefán HaUdórsson skoraði flest
mörk KR-inga,. eða 10. Gunnar Gísla-
son skoraði 7. Bragi Sigurðsson skor-
Juventus
óstöðvandi
Stjörnulið Juventus er nú óstöðvandi á
ítalíu — félagið vann öruggan sigur
4—1 yfir AveUino á sunnudaginn.
Gaetano Scirea skoraði fyrst fyrir
Juventus og síðan bætti Pólverjinn
Boniek marki við. Það var svo Frakk-
inn Michel Platini sem skoraði tvö
síðustu mörk Juventus.
Roma vann sigur 2—1 yfir Pisa og
hefur félagið nú þriggja stiga forskot á
ítalíu — hefur fengið 33 stig úr 23 leikj-
um. Juventus er með 30 stig og síðan
kemur Verona með 28 stig.
aði 5 mörk fyrir Ármann en varð síðan
að yfirgefa völhnn, meiddur. Haukur
Haraldsson skoraði einnig fimm mörk
fyrirKR. -SOS
Sigurvegarinn í fyrsta billjardmótinu á nýja biUjardstaðnum að Hverfisgötu 46,
Kjartan Kári Friðþjófsson. DV-mynd Friðþjófur.
Kjartan Kári fékk
Amsterdamferðina
Kjartan Kári Friðþjófsson vann sér
inn flugferö til Amsterdam með Arnar-
flugi með því að bera sigur úr býtum i
kynningarmótinu mikla á nýju
bUljardstofunni að Hverfisgötu 46 í
Reykjavík.
í mótinu var mikU þátttaka og hörð
keppni. Kjartan Kári lék tU úrslita í
mótinu við Stefán Aðalsteinsson. Náöi
hann forustu strax í fyrstu lotu en
Stefán saumaði að honum undir lokin.
Hafði Kjartan Kári sigur í þessu fyrsta
biUjardmóti á þessum stað með síð-
ustu kúlunum. -klp-
PáU Björgvinsson, fyrirUði íslandsmeistara Víkings mörg undanfarin ár, lék sinn 404. leik með félaginu í meist-
araflokki í gær. Á DV-mynd Friðþjófs sést Rósmundur Jónsson afhenda PáU fagran blómvönd, fyrir leikinn, sem
hann átti að fá þegar hann lék sinn 400. leik.
Kristinn landsliðs-
þjálfari í sundi
Kristinn Kolbeinsson hefur verið
ráðinn landsliðsþjálfari í sundi. Guð-
mundur Ólafsson, þjálfari SH, verður
aðstoðarmaður Kristins.
Næsta verkefni landsUðsins í sundi
er Kalott-mótið, sem verður í Kirkenes
í Noregi 16. og 17. apríl. íslandsmótið í
sundi innanhúss verður í SundhöU
Reykjavíkur 25.-27. mars og verður
landsliöshópurinn sem fer til Noregs
valinneftir mótið. _S0S
Ómar Egilsson
íVíking
Ómar Egilsson, sem verið hefur einn
besti leikmaður Fylkis undanfarin ár,
tilkynnti sl. föstudag félagaskipti úr
Fylki í Víking. Ömar er hávaxinn,
sterkur leikmaður, sem leikið hefur
sem miðvörður eða miðherji. hsim.
Celtic mætir
Aberdeen
í gær var dregið í undanúrsUt
skosku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu. Rangers leikur við St. Mirren
á Parkhead, leikveUi Celtic, en Celtic
og Aberdeen leika á Hampden Park.
Leikirnir vcrða laugardaginn 16. april.
-hsim
Maradona með á
ný hjá Barcelona
— en liðið náði samt ekki nema jaf ntef li
Argentínski knattspyrnumaðurinn
Diego Maradona lék sinn fyrsta leik
með Barcelona i þrjá mánuði á laug-
ardag eftir erfið veikindi. Strax á
þriðju min. fékk hann sendingu frá
þýska landsUðsmanninum Bernd
Schiister. lék á tvo mótherja og gaf
síðan á Francisco Carrasco, sem skor-
aði auðveldlega. En ekki nægði þetta
mark Barcelona til sigurs á Real Betis
frá Sevilla. Francisco Parra jafnaði á
25. min. og fleiri urðu mörkin ekki í
leiknum. Þetta var fyrsti leikurinn
sem Cesar Luis Menotti, fyrrum lands-
liðsþjálfari Argentínu, stjórnaði hjá
Barcelona.
Barcelona hefur nú litla sem enga
möguleika á spánska meistaratitlin-
um. Þar er um einvígi Real Madrid og
Atletico BUbao að ræða. Bæði liðin
hafa 42 stig, fjórum meira en Bar-
celona og aðeins sex umferðir eftir. Á
sunnudag vann BUbao-Uðið Salamanca
á heimaveUi 4—0 og Real Madrid vann
Celta 3—OíMadrid.
Staða efstu Uða er nú þannig:
Real Madrid
BUbao
Barcelona
Zaragoza
Atl. Madrid
Sevilla
28 17 8 3 49-21 42
28 18 6 4 56-26 42
28 14 10 4 45-21 38
28 14 6 8 49-29 34
28 14 6 8 41-34 34
28 12 9 7 33-25 33
-hsím.
Þjálfari
U.M.F. Víkingur Olafsvík óskar aö ráða knatt-
spyrnuþjálfara fyrir meistaraflokk í sumar.
Uppiýsingar í síma 93-6106 eftir kl. 5.
Bréffrá Akureyrí:
Ekki nógu vel að
skíðamótum staðið
Skiðaráð Akureyrar hefur farið fram
á við DV að birta eftirfarandi bréf
um bikarmótið, sem haldið var í Skála-
feUi um fyrri helgi. MUtil óánægja var
meðal skíðafólks með þetta mót eins og
fram kemur í greininni. AB, Akureyri.
Og hérer þá bréfiö.
„Helgina 5. og 6. mars sl. var haldiö
bikarmót fullorðinna í ReykjavUt.
Mótiö var haldið í SkálafelU, en þar er
aðstaöa til skíðaiðkunar oröin ein sú
besta á landinu.
Til þeirra er halda bUtar- og punkta-
mót eru gerðar miklar kröfur af hálfu
keppenda og Skíðasambands Islands.
TU að fylgja þessum kröfum eftir er
tUkominn svokallaður eftirUtsmaður,
sem tihiefndur er af SKl, og skal hann
sjá um að búnaður og aöstaða til
keppni sé öll hin besta. Nú er málum
svo háttað þegar mót eru haldin úti á
landsbyggðinni að strangt er eftir
þessum kröfum gengið. EftU-Uts-
mennimir virðast hafa nægan tíma og
eljusemi til að setja út á hina ólíkleg-
ustu hluti. Það ergir því orðið móts-
haldara úti á landi er þeir þurfa aö
horfa upp á það ár eftir ár að félagar
þeirra á höfuðborgarsvæðinu geta
fengið stórmót á hverju ári. I nær
hvert skipti skulu keppendur, er mikið
hafa á sig lagt viö æfingar, taka þátt í
iUa undh-búnum mótum þar. Þetta ætti
að vera verðugt umhugsunarefni fyrir
líttstarfandi Skíðasamband Islands.
Fyrri dag mótsins var keppt í stór-
svigi karla ogkvenna.
I kvennaflokki sigraði Trnna
Traustadóttir, en hún hefur átt litlu
gengi að fagna í vetur, önnur varð
Nanna Leifsdóttir og þriðja Ásta
Ásmundsdóttir.
I kariaflokki sigraöi Elías Bjamason
nokkuð ömgglega eftir að hafa átt
glæsilega seUini ferð, færi vel að Elías
ætti fleiri ferðir sem þessa. Annar
varð ReykvíkingurUin Ámi Þ. Ámason
og þriðji varð Kristinn Sigurðsson
ernnig frá Reykjavík.
Síðari dag mótsins var keppt í svigi.
Nanna Leifsdóttir sigraði nokkuð
ömgglega í kvennaflokki. Eftir þennan
sigur sinn hefur hún náð góðri forystu í
keppninni um Islandsbikarinn. Önnur
varð Tinna og þriðja Guðrún J.
Magnúsdóttir.
AkureyrUigamU- bættu við fjórða
guUi sinu á þessu móti með sigri
Björns Víkmgssonar í sviginu. Stutt á
eftir honum kom hinn efnUegi skíða-
maður Dalvíkinga, Daníel HUmars-
son, þá kom Kristinn Sigurðsson,
Reykjavík.
Fab.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir (þróttir (þróttir íþróttir
Þjálfaranámskeið
Námskeið fyrir deildarþjálfara verður haldið dagana 25.-27.
mars nk.
Dagskrá:
1. Heimsmeistarakeppnin á Spáni 1982.
Umfjöllun.
Taktik liða og fleira.
(Fyrirlestur, videósýningar og umræður.). Fyrirlesari:
Mr. Pekka Luthanen, fulitrúi Norðurlanda í tækninefnd
UEFA.
2. Fundur landsliösþjálfara Evrópu í Júgóslaviu um H.M. ’82.
Fyrirlesari Jóhannes Atlason landsliðsþjálfari.
3. Meiðsl (þjálfarar og liðstjórar).
Fyrirlesari Sigurjón Sigurðsson íþróttalæknir.
Þátttaka tilkynnist á skrifstofu KSI fyrir 22. mars nk.
TÆKNINEFND
KNATTSPYRNUSAMBANDSISLANDS.
FÓTBOLTASKÓR
ÆFINGASKÓR
TÖSKUR
ÆFINGAGALLAR
Sportvöruvcrslun
Póstscndum
Ingólfs Oskarssonar
Klapparstíg 44 — Sími 11783