Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1983, Síða 1
DAGBLAÐIÐ — VISIR
71. TBL. — 73. og 9. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 25. MARS 1983.
Engin skyndisókn
fyrir kosningar
— „í mesta lagi einhverjar flugeldasýningar”
Skyndisókn gegn veröbólgunni
með 10% niðurfærslu launa, niður-
færslu verðlags og gengishækkun
verður ekki hafin fyrir kosningar.
Þetta hraðaupphlaup er úr sögunni
sem slíkt í bili. „Það verða í mesta
lagi einhverjar flugeldasýningar,”
sagði einn af ráðgjöfum ríkis-
stjómarinnar um aðgerðir í efna-
hagsmálum fyrir kosningarnar.
Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra kvað „unnið af fullum krafti að
athugunum á þeim úrræöum sem til
greinakoma.” „Það er ómögulegt að
segja til um niðurstöðurnar, ” sagði
Gunnar og vildi ekki ræða málið
frekar.
Aðrir ráðherrar úr Sjálfstæöis-
flokknum eru í framboði fyrir flokk-
inn og augljóst að þeir geta ekki
staðiö að stefnumótandi aðgerðum í
efnahagsmálum nú nema í fullu
samráði við flokkinn. En hann er
ekki með í ráðum um efnahags-
úrræðin.
Ráðherrar úr röðum alþýðubanda-
lags- og framsóknarmanna, sem DV
ræddi við, töldu af og frá að umtals-
verðar efnahagsaðgerðir kæmu til
fyrirkosningar.
Steingrímur Hermannsson sagði:
„Við höfum ekki komið okkur saman
um þessi mál hingað til eftir þriggja
ára tilraunir. Og þaö bendir ekkert
til þess aö við náum saman nú í
skyndingu þegar við erum að hætta.
Tæknilega er útilokað að gera
nokkuð fyrir 1. apríl. Og svona
aðgerðir verður að binda við
mánaðamót. 1. maí verður umboð
okkar úr sögunni og ef til vill komin
ný ríkisstjóm.”
Nokkrir ráðherranna hafa lýst því
að ríkisstjómin eigi að segja af sér
strax eftir kosningar. Þótt hún kunni
að sitja sem starfsstjóm meðan
myndun annarrar stjómar stendur
hefur hún ekki eftir afsögn heimild
til útgáf u bráöabirgðalaga.
Fram að kosningum er hins vegar
von á tilfæringum í einstaka málum.
Það kalla þeir flugeldasýningar.
-HERB.
Skyggnir, jarðstöðin í Mosfellssveit, hefurnú eignast félaga. Um er
að ræða stöð sem Póstur og simi er að reisa til að taka á móti sjón-
varpsmerkjum frá gervitungli. Þau eru send frá miðstöð ameríska
Póstur og sími hefur gert fimm ára samning við yfirvöld á Kefla-
víkurflugvelli um þessa þjónustu.
DV-mynd: Loftur
Nýttálvergæti
borgaðþrefalt
fyrirrafmagnið
— sjá fréttábls.5
Draumurínn
rætist
sjá vinsældar-
listana á bls. 35
DVreiðubúiðí
upplagseftiriit
— sjá frétt á bls. 3
Z; ' ;
Verulegurhalli
fjórðaáriðíröð
— sjá frétt um
Flugleiðirá bls.2
DV heldur stjórnmálafund
Fulltrúum allra lista boðið til fundaríHáskólabíói
I tilefni komandi kosninga til
Alþingis hefur Dagblaðið-Vísir
ákveðið að efna til stjórnmálafundar
í Háskólabíói mánudagskvöldið 18.
apríl næstkomandi. Þar munu
flokksformenn eða aðrir forystu-
menn þeirra lista sem bjóða fram
kynna helstu stefnumál framboða
sinna og svara fyrirspurnum fundar-
manna. Til þátttöku er boðið Alþýðu-
flokki, Framsóknarflokki, Sjálf-
stæðisflokki, Alþýðubandalagi,
Bandalagi jafnaðarmanna og
Kvennalista og tilnefnir hver listi
einn mann sem fulltrúa á fundinn.
Fundarstjóri verður Magnús
Bjarnfreðsson fréttamaður, sem um
langt skeið hefur ritað greinar um
stjómmál í DV. Hefst fundurinn
klukkan 20.30 en fyrir fundinn mun
Lúðrasveit Reykjavíkur leika frá
klukkan 20.
Fyrirkomulag fundarins verður
þannig að talsmenn framboðslist-
anna halda framsöguræður, um tíu
mínútur að lengd, og er gert ráð fyrir
einni klukkustund í þennan dag-
skrárlið. Að því loknu ber fundar-
stjóri upp fyrirspurnir sem berast
skriflega frá fundarmönniun og tek-
ur þessi dagskráriiður 30—60 mín-
útur. Fundinum lýkur síðan með
stuttu ávarpi hvers framsögumanns
sem stendur allt að f imm mínútum.
Það er von blaðsins að þessi fundur
geti orðiö til gagns fyrir kjósendur,
jafnframt því sem framboðslistarnir
fá gott tækifæri til að kynna sjónar-
mið sín þeim sem fundinn sitja og
hinum f jölmörgu lesendum blaðsins í
öllum kjördæmum landsins.
-PÁ.