Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1983, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1983, Qupperneq 4
Víglundur Þorsteinsson, formaður Félags íslenskra iðnrekenda, á ársþinginu: TVÖFÖLDUNIÐNAÐARFRAM- LEIÐSLU Á10-12 ÁRUM Ársþing Félags íslenskra iönrek- enda, hiö 49. í rööinni, var haldiö á Hótel Loftleiðum 23. mars. Fyrir hádegi héldu Víglundur Þorsteinsson, f ormaöur félagsins, og H jörleifur Gutt- ormsson iönaöarráöherra ræöur. Eftir hádegi var síðan rætt um fjár- mögnun iðnaðar. Björn Jóhannsson ræddi um rekstrarfjármögnun, Brynjólfur Bjarnason um langtímalán iönaöar og Kristján Jóhannsson um eiginfjármögnun og áhættufé. í upphafi ræöu sinnar gagnrýndi Víglundur Þorsteinsson eyðslustefnu þjóöarinnar undanfarin 12 ár og sagöi aö viö heföum ekki látiö þaö á okkur fá þótt sjávarafli minnkaöi um 16%. Vegna þess aö engir tilburöir voru til aö draga úr þjóöarútgjöldunum á síðasta ári hefði halli á utanrikisvið- skiptum þjóöarinnar numiö 10% af þjóðarframleiðslunni. Ohjákvæmilegt sé nú aö laga þjóöarútgjöldin aö minnkandi útflutningstekjum svo unnt reynist aö ná jafnvægi í utanríkisvið- skiptum. Tvöföldun iðnaðarframleiðslu Seinna í ræöu sinni sagöi Víglundur Víglundur Þorsteinsson, formaöur Félags íslenskra iðnrekenda. aö hann teldi raunhæft markmiö aö tvöfalda iðnaðarframleiðsluna á næstu 10—12 árum. Fjölmörg iönfyrirtæki í landinu ættu möguleika á aö stórauka innlenda markaðshlutdeild sína meö betri starfsskilyrðum. Meðalmarkaös- hlutdeild innlends iönaöar er um það bil 50%. Taldi Víglundur aö þetta ætti aö auka í 70—80%. Jafnframt þessari auknu markaðshlutdeild væru starf- andi fyrirtæki líkleg til að hefja fram- leiðslu á nýjum vörum sem ekki eru framleiddar hér á landi í dag. Þessu til viðbótar sagði Víglundur aö yröi aö auka útflutning iönaöarvöru verulega. Á árinu 1982 voru útflytjendur iðnaöar- vöru án áls og jámblendis 58 aö tölu. Heildarverðmæti útflutnings þessara fyrirtækja nam samtals 800 milljónum króna eða um 9,5% af heildarút- flutningnum. Til þess aö hægt yröi að tvöfalda iðnaðarframleiðsluna á næstu 10—12 árum sagöi Víglundur aö hlutur stór- iðju þyrfti aö koma til í ríkum mæli. Þyrfti fhún aö þrefaldast frá því sem nú er. I því sambandi kom hann inn á álmálið og sagöi deginum Ijósara aö stefna iðnaöarráöherra og þar meö nú- verandi ríkisstjórnar væri aö koma í veg fyrir stækkun álversins. Stækkun núverandi stóriöjuvera væri fljót- virkasti og arðsamasti stjóriöjukostur- innídag. Síöansagöi Víglundur: Þreföldun stóriðju „Ef við viljum ná því markmiöi sem ég setti fram um tvöföldun iönaöar- framleiöslu, sem þýöir í raun tæplega þreföldun núverandi stóriöju á 10—12 árum, verðum viö aö sætta okkur viö meirihlutaeign og jafnvel fulla eign er- lendra aöila á stóriðjuverum. Slík stefna er skynsamleg og áhættulítil fyrir okkur jafnframt því sem hún skapar okkur möguleika á verulegri f jölgun atvinnutækifæra á næstu árum og leggur til myndarlegan skerf í hag- DV. FÖSTUDAGUR 25. MARS1983. vexti. Meirihlutaeign okkar Islendinga er í raun ekki æskilegt markmið við nú- verandi aöstæöur. Jafnframt því sem hún hægir mjög á stóriöjuuppbyggingu eykur hún þá f járhagslegu áhættu sem viö yrðum aö bera. ” Undir lok ræöu sinnar vék Víglundur Þorsteinsson aö því aö kjarasamning- ar renna flestir út 1. september næst- komandi og sagöi: „I þeim samn- ingum veröa aðilar vinnumarkaöarins aö ná saman um leiðir til aö yfirvinna vísitölubindingu launa þannig aö unnt sé aö ná verðbólgunni hérlendis veru- lega niöur. Við núverandi aöstæöur er þaö ekki raunhæfur möguleiki að framlengja samninga sem fela í sér áframhaldandi vísitölubindingu.” Samningsaöilar veröa aö nýta tímann til haustsins vel til að ná samkomulagi. Hlutverk ríkisstjórna á síöan aö vera að treysta samninga þeirra meö aðgeröum í efnahagsmálum og rikis- fjármálum. Niöurlagsorö Víglundar voru þessi: „Islenskur iönaöur getur vaxiö mjög verulega. Þaö er augljóst aö hann mun vaxa á næstu árum. Þaö hversu hratt hann vex ræöst af stefnumótun stjórn- málamanna, framtaki fyrirtækjanna sjálfra og af góðu samstarfi iðnaöarins og þjóðarinnar allrar. Islensk iðnfyrir- tæki leita nú þessa samstarfs viö allan almenning í landinu. Sameinuö til átaka getum viö lagt grunn aö hag- vexti og áframhaldandi velsæld okkar allra.” JBH Mæli ekki með hafta- búskap í innflutningi — sagði Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra á ársþingi Félags iðnrekenda Hjörleifur Guttormsson iðnaöarráö- herra flutti ávarp á ársþingi Félags íslenskra iðnrekenda. Hjörleifur Guttormsson iönaöar- ráöherra hóf ræöu sína á því að f jalla um efnahagskreppuna hér og erlendis. Taldi hann ýmis sjúkdómseinkenni í efnahagslífi okkar eiga sérislenskar skýringar sem stöfuöu af aflasam- drætti og sölutregöu á fiskafurðum. Annaö tengdist hinni alþjóölegu kreppu svo sem veröfalli á afurðum þungaiönaöar og harönandi sam- keppni með iönaðarvörur innanlands og á útflutningsmörkuðum. Iðnaður hagnast á fríverslunarsamstarfi Hömlulaus innflutningur undanfarin misseri á hvers konar varningi, sagöi Hjörleifur, ásamt afar óhagstæöri gengisþróun gagnvart ýmsum greinum samkeppnisiönaðar á árinu 1981 og fram eftir ári 1982, hefur átt drjúgan þátt í vaxandi viöskiptahalla undanfarin misseri. Gegn þessum aðstæðum hafi ekki veriö brugöist með ráöum sem tiltæk séu innan ramma friverslunarsamninga. Hjörleifur kvaöst ekki mæla meö haftabúskap og teldi hann innlendan iönaö á marga lund hafa hagnast á fríverslunarsam- starfi frá 1970, auk hagsbóta fyrir út- flutningsafurðir landsmanna. Síöan sagöi hann: „Ég tel ekki að við eigum að hverfa aftur í gamla fariö á meðan fríverslunarsamstarf er í sæmilegum heiöri haft í helstu viöskiptalöndum okkar. En það er langur vegur frá slíkri stefnu annars vegar og aö halda aö sér höndum hins vegar. Svo menn skilji betur hvað felst aö baki þessum oröum mínum vil ég minna á margítrekaðar tillögur sem iðnaðar- ráöuneytiö hefur boriö fram um framlengingu aölögunargjalds á inn- fluttan iönvaming en slíkt gjald var í gildi í eitt og hálft ár, frá miöju ári 1979 til ársloka 1980. Ærin rök eru enn fyrir álagningu þess og undir þau hefur veriö tekiö af samtökum ykkar. Ég minni á andstöðuna viö aö beita jöfnunartollum og öörum sértækum aðgerðum þegar augljós undirboö og ríkisstyrki hefur veriö aö ræöa á inn- fluttum vörum. Ég minni á tregðuna á að taka fiskiskip af frílista og koma á sjálfsögöum hömlum gagnvart ríkis- styrktum skipaiðnaði nágrannalanda okkar, 'jafnt varöandi nýsmíöi og meiriháttar viögeröir. Eg minni á eriend vörukauplán sem alltof lengi viögengust og hugmyndum um tollkrít innflytjendum í hag.” Starfsskilyrði atvinnu- veganna samræmd Hjörieifur kom í ræöunni inn á samræmingu á starfsskilyrðum at- vinnuveganna og sagöi samstöðu innan ríkisstjórnar um jöfnun aðstöðu- gjalds á fiskvinnslu, almennan iönaö og landbúnaö. Fullbúið frumvarp lægi fyrir um þaö efni en andstöðu gætti frá sveitarfélögum sem teldu sig missa spón úr aski viö lækkun aöstööugjalds- ins. Einnig kom fram að tekist hefur aö ifá fram leiðréttingar á aðgangi iðnfyrirtækja og margra iðngreina aö endurkaupalánum Seðlabankans. Á árunum 1979—1982 hefur aukning endurkaupalána til iönaöar numið 850% á sama tima og þau hafa vaxiö um 580% til sjávarútvegs og 29% til landbúnaöar. Iðnfyrirtækjum sem fengu aögang aö þessu f jármagni heföi fjölgað á tímabdinu frá júlí 1981 til nóvember 1982 úr 120 í 263 og hlutfall þessara lána í heildarfjármögnun í iönaöi heföi vaxið úr 28,2% í um 40% á síðasta ári. Þrátt fyrir þessa jákvæöu þróun fyrir iönaðinn vantaöi enn tals- vert á aö jafnræöi ríkti varðandi hlut- deild fjármögnunar meö endurkaupa- lánum í landbúnaöi (54,7) og sjávarút- vegi (53,4%) annars vegar og í iönaði (39,8) hins vegar miöaö við síðustu áramót. 1 ræðu iönaöarráðherra kom fram að iðnaðarráöuneytiö hefur beitt sér fyrir víötækum athugunum á orkunýtingu og úrvinnslu hráefna í landinu, bæöi með innanlandsmarkaö og útflutning í huga. Hefur alþingi veitt umtalsvert fé til athugana á þessu sviði. Ráöuneytið ætlar Þróunardeild Iöntæknistofnunar verulegan hlut sem eins konar þekkingarbanka og örvandi aðila á þessu sviöi. I lok ræöu sinnar þakkaöi iönaðar- ráöherra samstarfiö viö Félag íslenskra iðnrekenda á undanförnum árum og lagði áherslu á að treysta þyrfti efnalegar undirstööur og lífskjör í landinu. Um það gætu menn oröiö sammála þótt skoöanir væru oft skiptar um leiöir, sagði ráðherra. JBH Svo mælir Svarthöfði Svomælir Svarthöfði____________Syomælir Svarthöfði Flokkslistar og vasaframboð Björn á Löngumýri hélt því Iöngum fram, að tveir menn á íslandi hefðu harmað kosningu sína, þeir Hermann og Eysteinn. Og nú virðist sem sonur Hermáíihs æiii aö hámá átram ættarkuldanum gagn- vart systursyni Björns, honum Páli á! Höilustöðum. Páll stendur í ströngu þessa daga, því að andstæðingar hans í kjördæminu úr röðum framsóknarmanna hafa boðið sér- stakan göngumannalista fram gegn honum og hafa krafist þess að fá listan merktan BB. Því hefur kjördæmisráð flokksins í kjördæm- inu alfarið hafnað. Þá bregður hins vegar svo einkennilega við, að mið- stjórn Framsóknarflokksins ákveður að hafa skoðun kjördæmisráösins að engu og Steingrímur tilkynnir að listi göngumanna verði merktur BB, þvert á vilja heimamanna. Eðlilega hefur Páll á Höllustöðum brugðist illa við og hvetur nú sax sitti og býst til víga, þótt hann telji sig í engu afkomanda Grettis Ásmunds- sonar. Páll ætlar sér heldur ekki að verða eins konar útlagi í Framsóknarflokknum og höfuðset- inn af foringjum hans, þvert á móti telur hann sig i engu hafa brotið gegn flokksreglum, afbrot hans sé einung- is fólgið í því að vera meiri málafylgjumaður en samþingmenn hans. í þessu máli blasdásí ínn framboðsmál sjálfstæðismanna á Vestfjörðum. Steingrímur á í höggi við harða andstæðinga þar, og honum er talsvert í mun að efla óánægju meðal sjálfstæðismanna þar. Hefur hann séð sér leik á borði að hlaupast aftan að Páli á Höllustöðum til þess að geta notað göngumanna- málið gegn Matthíasi Bjarnasyni. Steingrímur teiur eðlilega, að Matthías lendi í talsverðum vandræöum með að verja harða afstöðu Sjálfstæðisflokksins gegn sérframboði Vigurættarinnar, fyrst framsóknarmenn neita að hjálpa Guðlaugsstaðakyninu í vandræðum þess. En það eru fleiri en sjálfstæðis- menn og framsóknarmenn, sem hafa lent í framboðsraunum. Vilmundur Gylfason hafði lýst því yfir, áður en tii framboða kom og hann var að safna liði, að flokkur hans væri gegn flokkum, flokkur hans ætti að verða eins konar regn- hlif fyrir áhugahópa um stjómmái. En sú dýrð stóð ekki lengi. Menn á Suðuraesjum virðast hafa tekið Vilmund á orðinu og ákváðu framboð í nafni Bandalags jafnaðar- manna. En þeir höfðu ekki náð að setja tilkynninguna um framboðið í póst, þegar í ljós kom, að leiðtogi bandalagsins var með sitt eigið framboð tilbúið í vasanum og skipti engu um skoðanir heimamanna, vasaframboðið var knúið fram. Þannig virðist Vilmundur vera ákveðnari um traust völd miðstjóraarinnar og sjálfs sín en leiötogar annarra flokka, og væri staða Geirs Hallgrímssonar önnur, eða til dæmis Sighvats Björgvins- sonar, ef ákvæði um vasaframboð væru í skipulagsreglum þeirra flokka. Nú er það vitanlega ljóst, að Bandalag jafnaðarmanna er fyrstog fremst stofnað utan um persónu Vilmundar Gylfasonar. Hann virðist nú vera með alræðisvald í flokknum, sem sé privateign hans eins og Framfaraflukkurinn í Danmörku er eign Mogens Glistrup. A.m.k. hafa foringjarair sömu völd í raun. Það er i skipulagsreglum Framfaraflokks- ins, en Vilmundur hefur sín framboð í vasanum og reiðir þau fram eins og lögreglumaður handjárn, þegar flokksfólkið ætlar sér að byrja pólitiskar gripdeildir. Ekki er vitað til þess að kvenna- listarnir hafi lent i svipuðu uppi- standi og karlrembuflokkarnir, enda er það viðurkennt, að oft leysast mál betur undir prjónaskap og kaffibolla en i löngum orðræðum. Listar þeirra hafa á sér vinstri blæ og stefnuskrá kvennanna er fjarri því að vera borgaraleg. Það er enda í ósamræmi við borgaralegar hugmyndir um jafnrétti karla og kvenna, að konur eigi að halda sig sér með lista í nútimanum. Það gat verið nanðsynleet í gamla daga en nú á dögum er það jafnvitlausi og öí þ»1 væri haldið fram, að konur ættu ekki að hafa kosningarétt. Svarthölöi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.