Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1983, Side 9
DV. FÖSTUDAGUR 25. MARS1983.
9
Útlönd
Útlönd
J aklcasala
JE
A A A A A A c
u nuriLSl fw
u u«
u i
Jón Loftsson hf. __
Hringbraut 121
HuiwnaaiauHUtii tiaiu
Sími 10600
V* A T Ci 1 i-i 1 1 VI 1 1 V 4—s Li 1 1 i
döjnujökkum
á fínil verði - Sjón er sögu ríkari
Opiö á morgun frá kl. 10—16.
KÁPUSALAN BORGARTÚNI22
Næe bilastæöi.
Hér heldur safnvörður Fornminjasafnsins í Hróarskeldu, Frank Birkebæk, á
hinni nýfimdnu öxi.
Heilsugæsla
í neyð
Heilbrigðisþjónustukerfi Vestur-
Evrópurikja kunna að hrynja saman
ef ekki verður tekist á við hina „nýju
sjúkdóma”, svo sem umferðarslys og
áhrif atvinnuleysis. Þetta segir í nýút-
gefinni bók frá Alþjóða heilbrigðis-
málastofnuninni (WHO). Bókin, sem
heitir Heilsukreppan 2000, og er eftir
Peter O’Neill, er miðuð við þau 33
Evrópuríki sem eiga aðild að WHO.
„Það gæti komið til neyðarástands
um árið 2000 í heilsugæslumálum ef
ekki verður þegar gripið til róttækra
ráðstafana af almenningi, fyrirtækjum
og stjómvöldum á þessu svæði,” segir
O’Neill. I bókinni er drepið á þríþættri
áætlun gegn þessu neyðarástandi, sem
felst í því að fólk taki upp heilbrigðara
líferni, betri heilsugæslu á hverjum
stað og fyrirbyggjandi aðgerðir gegn
nýjum sjúkdómum.
Danir fínna
bronsaldaröxi
Nýlega fannst í danska þorpinu
Viby, nærri Hróarskeldu, öxi frá
bronsöld. Danskir fomleifafræðingar
hafa lýst þennan fund stórmerkilegan,
þó ekki væri nema vegna þess að öxi
þessi á sér tvíbura, sem fannst fyrir
nokkrum árum u.þ.b. 100 metrum frá
þeim stað sem nýfundna öxin var
grafin upp.
öxin vegur fimm kíló og segja forn-
leifafræðingar að þær hafi á sínum
tíma verið óhemju dýrmætar og verið
tákn hinna pólitísku og trúarlegu valda
sem höföingjar á bronsöld fóru með.
Nú er það verk þjóðminjavarðar Dana
að rannsaka öxina og ákvarða hvaða
fundarlaun Peter Nielsen, sem fann
hana, skuli fá.
PÁSKA-
Á NIÐURSUÐUVÖRUM FRÁ
K. JONSSON OG CO. AKUREYRI
Grænar baunir Leyft verð Okkar verð
Heil dós .... 2«,70 17,65
Hálf dós .... 15,20 10,85
1/4 dós ....11,25 8,00
Gulrætur og grænar baunir
Heil dós .. .. 31,25 22,30
Hálf dós .. ..18,90 13,40
1/4 dós . .. . 14,35 10,20
Amerísk grænmetisblanda
Heil dós 23,90
Hálf dós 14,35
1/4 dós 10,20
Frönsk og ítölsk grænmetisblanda
Heil dós ... 38,65 27,55
Hálf dós ... 23,70 16,90
1/4 dós .. .. 16,55 11,80
Gulrætur í teningum
1/4 dós ... 18,45 13,15
Maískorn
Heil dós .. . 52,45 37,40
Hálf dós . .. 34,55 24,60
1/4 dós . .. 24,10 17,20
OPIÐ: Mánud.-miðvikud. 9—18.
Fimmtud. kl. 9—20.
Föstud. kt. 9-22.
Laugard. kl. 9—12.
20-50% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM SKÓFATNAÐI
FRAM AÐ PÁSKUM
0PIÐ LAUGARDAG
Kristín Gunnarsdóttir
fótasérfræðingur
ÁLFTAMÝRI 1-5. - SÍMI 31580
ATH. í HÚSI BORGARAPÓTEKS
Bátafólktil
Hollands
43 víetnamskir flóttamenn lögðu í
gær frá Suður-Kóreu en þeir munu
setjast að í Hollandi. Þeir voru í
hópi 65 Víetnama sem hollenskt
öiíuskip fann í Suður-Kínahafi
þegar skipið var á leið í desember
til S-Kóreu. Hin 22 fara til Banda-
ríkjanna, Kanada og Ástralíu. —
JFrá því í júní 1977 hefur S-Kórea
skotið skjólshúsi yfir 595 víet-
namska flóttamenn og útvegað
þeim landvist í öðrum löndum.