Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Blaðsíða 15
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. APRlL 1983.
15
Kosningahugleiðingar
Það vill oftlega gleymast í
umræðum um komandi Alþingis-
kosningar að þessar kosningar voru
settar á svið vegna stjórnarskrár-
breytingar sem gerð var í ársbyrjun
og inniheldur nær einvörðungu
fjölgun á þingmönnum úr 60 í 63.
Af öllum þeim umræðum sem ég
hef heyrt hingað til, frá bæði
stjórnarmeðlimum og stjórnarand-
stæðingum, hef ég aldrei heyrt þá
minnast einu orði á sjálft tilefni
kosninganna. Nú skilst manni einna
helst að þetta sé ekkert höfuðatriði.
Kosningamar virðast aðallega
snúast um það að rakka hver annan
niður og upphefja sjálfa sig á
kostnaðhins.
Það hlýtur að vera kominn tími til
þess að alþingismenn fari að bera
ábyrgð á orðum sínum og gerðum, og
að framkvæmdir og efndir séu í réttu
hlutfalli við það sem sett var upp í
stefnu viðkomandi fyrir kosningar.
Fólkið í þessu landi hlýtur að eiga
heimtingu á því aö stjórnmálamenn
komi fram af ábyrgð og einurð.
Gamla tuggan
Hver nennir að hlusta á þessa
sömu gömlu tuggu rétt fyrir
kosningar? Þá hafa þeir lausnir á
öllum öröugleikum þjóðarinnar og
virðist aðeins vanta það eitt aö ná
kosningu svo að þeir geti tekið til viö
að „telja niður veröbólgu” eða hvað
annaö sem þeim dettur í hug að bera
á borð sem lausn þjóðarvandans
fyrir almenning rétt fyrir kosningar.
Þá koma þeir fram rétt eins og þeir
hafi ekki komið nálægt stjómar-
taumunum undanfarin ár. Þeir tala
sakleysislega (og oft sannfærandi)
flokkakerfis hefur slík áhrif og skin í
gegnum alla umræðuna, sbr.
stjómarskrársamkomulag flokk-
anna fjögurra, þar sem jöfnuður
milli flokka var hafður að leiðarljósi
í stað jöfnunar atkvæöa.
Slík og þvílík vinnubrögö em ekki
áhugaverð og ekki til þess fallin að
auka áhuga almennings á stjóm-
málalegum umræðum. Þess vegna
segjum við, sem stöndum að Banda-
lagi jafnaöarmanna: „Þetta stjórn-
leysi verður að stöðva.”
Kosturáper-
sónukosningum
Við viljum að fólkið í landinu fái
valfrelsi til þess að kjósa. Kjósa um
menn og málefni innan lista eða
Kristín S. Kvaran
um þetta eða hitt sem miður hefur
farið. Þegar þeir svo em minntir á
þá staðreynd að það hafi nú einmitt
verið þeir sjálfir sem hafi verið við
stjóm og þeir hafi lofast til þess fyrir
síðustu kosningar að koma lagi á
þessi atriði, þá koma svörin að
bragði og án þess að þeir svo mikiö
semblikni: „Já, en Svavar vildi ekki
gera þetta,” eða „Gunnar ákvað að
svona skyldi þetta vera” eöa „Olafur
sagði að þetta væri ekki fram-
kvæmanlegt eins og ég vildi” o.s.frv.
Umræðan hefur misst marks. Það
hefur verið skotið langt yfir það.
Meiningarlaust orðagjálfur hefur
þau áhrif. Samábyrgð steinrunnins
þvert á lista og með því, samkvæmt
tillögum okkar um breytta kosninga-
aðferð, fái kjósendur kost á
persónukosningum sem leysa af
hólmi prófkjör sem hafa fyrir löngu
gengið sér til húðar. Einnig viljum
við auka á valfrelsi almennings með
aðgreiningu löggjafarvalds og fram-
kvæmdavalds. Samkvæmt þeirri til-
lögu bjóða sig fram til forsætis-
ráðherraembættisins (ríkisstjórnar)
menn, sem fyrirfram hafa lagt fram
ákveðna stefnu. Þá stefnu þyrfti
viðkomandi að kynna og útskýra vel
og vendilega í kosningabaráttu sinni,
ásamt því á hvern hátt hann hygðist
koma þessum atriöum í framkvæmd.
Samkvæmt tillögunum fara þá ekki
fram hrossakaup um stefnur eftir á
við myndun stjórnar, eins og nú
tíðkast. Þá hefðu kjósendur löggjaf-
ann til eftirlits með því að efndir
yrðu á þeim stefnumálum sem fram
hafa veriðsett.
Löggjafinn yrði í slíkri kosningu
einvörðungu kosinn til þess að setja
landinu lög og leikreglur og hafa
eftirlit með því að framkvæmdar-
valdið fari að lögum og ákvörðunum
hans. Þá gætum við búist við þvi aö
þingmenn færu aö afgreiða málin
(þingmál og frumvörp) jafnt og þétt
yfir þingtímann, samhliða rækilegri
kynningu og umræðu í þjóðfélaginu.
Með því móti ætti fólk þess kost að
hafa beinni áhrif og fylgjast meö því
hvað það er sem er að gerast á
Alþingi. Þá ættum viö það ekki á
hættu eins og nú er að fjöldinn allur
af málum er hristur fram úr erminni
á maraþonfundum síðustu dagana
fyrir þingslit. Enda sjá allir að slik
færibandavinna er ekki sæmandi
Alþingi okkar Islendinga. Við í
Bandalagi jafnaöarmanna viljum aö
það fólk sem fer með löggjafar- og
framkvæmdarvaldið sé ábyrgt gagn-
vart fólkinu í landinu og komi fram
sem slíkt.
Þjóðarsamstaða er fyrir hendi við
atburði eins og eldgos og með
málefnum eins og þjóðarátaki gegn
krabbameini. Viö búum við efnahags-
leg móðuharðindi — hví ekki þjóðar-
átak gegn óstjórn og spillingu í
stjómkerfinu?
Með þjóðarhag í hug hvet ég ykkur
til þess að kynna ykkur málefna-
grundvöll Bandalags jafnaðar-
manna. C er okkar stafur — C fyrir
þigákjördag.
Kristin S. Kvaran
jojjý
Á SUMARDAGINN FYRSTA
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík gangast fyrir OPNU HÚSI í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, fimmtudaginn 21. apríl 1983, fyrsta sumardag.
Lúðrasveit Reykjavfkur
leikur frá kl. 14.45
HÚSIÐ OPIMAÐ KL. 14.30.
Dagskrá fyrir alla fjölskylduna hefst kl. 15.15
fi
Setningarávarp — Gudmundur H. Gardarsson, formaöur Einsöngur — tvísöngur: Elísabet F. Eiríksdóttir og Júlíus
Fulltrúaráðsins íReykjavík. Vífill Ingvarsson við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar.
Kvartett nemenda úr Menntaskólanum í Kópavogi syngur.
Ávörp — Albert Guðmundsson, Ragnhildur Helgadóttir, Jónas Þórir Jónasson og Graham Smith leika saman létt lög
Bessí Jóhannsdóttir og Geir Hallgrímsson. ápíanó og fiðlu.
Kynnir:
Svavar
Gests
upplausntil
abyrgðar
Veitingabúðin er opin. Stórhlutavelta Varðar er í kjallarasalnum.
Sjálfstæðismenn, hittumst og fögnum sumri í
OPIMA HÚSIIMU í VALHÖLL
Gleðilegt sumar
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í REYKJAVÍK
FULLTRÚARÁÐIÐ.