Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Blaðsíða 39
DV.MIÐVIKUDAGUR20. APRIL1983.
39
Sandkom Sandkorn Sandkorn
1 Morgunblaðiau á
miövikudaginn var birtist
frétt um Walesa og hljððaði
fyrirsögnin á þá leið að [
Walesa hefði fundað „með j
ncðanjarðarleiðtogum”.
Hvaö er strangkaþólskur
maðurinn að funda með
myrkrahöfðingjum?
Kynlegur
kveðskapur
1 Sviðsljðsi í fyrradag [
birtust nokkrar vísur, ekki
ortar eftir ströngustu kröfum
bragfræðinnar. Sem dæmi
má nefna þessa hér:
Niöurtalningin nýtist enn
notist í smáum skömmtum
flytjum inn bæði mýs og
menn
með innflutningshöftum.
Ekki voru allir lesendur
sáttir við þennan kveðskap og
einn þeirra, Hörður Einars-
son tannlæknir, sem er dável
hagmæltur, orti í sama stíl:
Svona lagað þykir mér
ekki gott að yrkjast.
Efað églesþettahér
ætlaég aðkyrkjast.
Á rásinni
Nöfn umsækjenda um for-
stöðu fyrir rás tvö hjá útvarp-
inu hafa nú litið dagsins ljós.
Athygli vekur að af þeim tíu
sem ekki hafa óskað nafn-
leyndar eru flestir fremur
ungir að árum. Slíkt hlýtur að
teljast vænlegt miðað við þaö
hlutverk sem rásinni er ætl-
að. Fjórir umsækjendur hafa
óskað nafnleyndar, en slíkt
virðist nú færast i vöxt í at-
vinnuumsóknum. Eitt nafn er
þó talið afar líklegt að sé í
þessum bópi, nefnilega nafn
Ástu Ragnheiðar Jóhannes-
dóttur, sem um langt skelð
hefur unnið við ýmiss konar
dagskrárgerð hjá útvarpinu.
Skoöana-
könnun
Skoðanakannanir eru
alvarlegt mál eins og allir
vita. Það hefur heyrst að á
Morgunblaöinu hafi ráða-
menn tekið Hagvangskönn-
unina svo alvarlega að
enginn biaðamanna hafi
fengið að sjá hana fyrr en
hún var blrt í blaðinu. Þaö
gekk svo langt að útlits-
teiknarar blaðsins fengu efn-
ið ekki í hendur fyrr en
tryggt þótti að blaða-
mennirnir væru farnir.
Nýju fötin
ráðuneytis-
mannanna
Framsóknarmenn nota nú
hvaðeina sem hendi er næst
til að verjast gagnrýni Al-
þýðubandalagsins á Tómas
Árnason, vlðskiptaráðherra.
Þetta birtist m.a. í Tímanum
í seinustu viku, en þar var
sagt frá því að starfsmenn
stjórnarráðsins hefðu verið í
kaffi og voru þar mættir
starfsmaður viðskipta-, fjár-
mála- og iðnaðarráðuneytis-
ins. Talið barst að iðnaðar-
j málum. Starfsmaður
i viöskiptaráðuneytisins (sem
reyndar er í framboði) sagði
viðskiptaráðuneytið ein-
dregið styðja framgang
íslensks iðnaðar og sýndi sig
það í því að þeir gengju í
islenskum fötum. Var nú gerð
skoðanakönnun um hvers
konar fötum menn klæddust,
fjármálaráðuneytis- og við-
skiptaráðuneytismennirnir
voru klæddir ísienskum föt-
um en iðnaðarráðuneytis-
maðurinn var klæddur í vest-
ur-þýskan jakka. Þetta birti
Tíminn og þótti góð frétt. —
Síðastliðinn föstudag var
haldin velsla góð í tilefni 40
ára afmælis Félags stjórnar-
ráðsstarfsmanna og voru
menn klæddir í sitt finasta
púss. Nú hittust sömu menn
en í þetta skipti með glas í
hendi og enn var gerð
skoðanakönnun um hvernig
fötum menn klæddust. En nú
snerist dæmið við, fjármáia-
;
og iðnaðarráöuneytismaður-
1 inn voru klæddir í finustu
Kóróna föt (meðal hluthafa í
því fyrirtæki er Tómas Arna-
son), en viðskiptaráðuneytis-
maðurinn var nú kominn i
bresk föt
Af hverju?
Það var óvenju stórt og
myndarlegt Alþýðublaöiö í
gær og kom mönnum þess
vegn ókunnuglega fyrir
sjónir. Það heyrðist til eins
lesenda blaðsins, þar sem
hann horfði á leiðara
blaðsins, sem hafði að
fyrirsögn: „Af hverju
Alþýðuflokkinn?”. Maðurinn
starði um stund, lagði frá sér
blaðið og sagði stundarhátt:
„Það er von þeir spyrji,
blessaðir.”
Umsjón:
Ölafur B.
Guðnason
Kvikmýndir
í Kvikmyndir
Regnboginn, í greipum dauðans:
Magnaður Stallone
Regnboginn, ( greipum dauðans (FIRST
BLOOD)
Stjórn: Ted Kotcheff
Handrít: samkvœmt skáldsögu David Morrell
Kvikmyndahandrít: Michael Kozoll, William
Sackheim Silvester Stallone
Kvikmyndun: Andrew Laszlo
Aðalleikendur: Silvester Stallone, Richard
Crenna, Brían Dennehy, David Caruso , Jack
Starrett, Michael Talbott, David Crowley
Tónlist: Jerry Goldsmith.
Framleiðendur: Mario Kassar, Andrew Vajna.
örlög heillar kynslóðar Banda-
ríkjamanna réðust í Víetnam á sín-
um tíma, meö einum eða öðrum
hætti. Þar var háð einhver grimmi-
legasta og ógeðslegasta styrjöld síð-
ari ára. Og vissulega skyldi hún eftir
sig djúp sár í þjóðum þeirra ríkja
sem þar börðust sín á milli. Hundruð
þúsunda létu lífið — og þeir
stríðsmenn sem enn eru ofan grafar
bera ævarandi ör — likamleg og ekki
síst sálræn og þeim er erfitt að horfa
framhjá.
Þessi ör, ef svo má kalla, hafa
greinilega komið fram í bandarískri
kvikmyndaframleiöslu á síðustu ár-
um. Þær bandarísku kvikmyndir
sem að einhverju leyti skirskota til
Víetnamviöbjóðsins fara vafalitið að
nálgast hundraðið. Nokkrar þeirra
hafa borist inn í íslensk kvikmynda-
hús, og sumar þeirra veröa að teljast
til betri verka kvikmyndasögunnar.
Nægir þar að benda á Apocolypse
Now, The Deer Hunter og Coming
Home.
I greipum dauðans, eða First
Blood, eins og hún heitir á frummál-
inu, hefur nú bæst í marglitan og
misjafnan hóp Víetfilma. Handrit
hennar er byggt á vinsælli skáldsögu
David Morrel sem hann sendi frá
sér ekki alls fyrir löngu:
John Rambo nefnist söguhetjan.
Hann hafði áður tilheyrt hópi
grænhúfukappanna í Víetnam sem
var sérþjálfaö drápshö í fenja- og
skógasvæðum landsins. Rambo
hlaut mörg heiðursmerki fyrir vask-
lega framgöngu og dirfsku i
Víetnam. En nú eru mörg ár liðin frá
þeim raunveruleika. Rambo hefur
átt við sálræna erfiðleika að etja
eftir stríðið. Hann á erfitt með að ná
sambandi við fólk, er einrænn og
þögull. I Víetnam hafði hann lent í
höndum óvina og verið pyntaður á
hinn hroðalegasta hátt, svo að líkami
hans er alsettur örum. Þau minna
hann sífellt á stríðið. Hann getur ekki
gleymt.
Það er þessi maður sem gengur
einn góðan veðurdag til smábæjar
eins í leit að síðasta félaga sínum úr
drápsflokknum frá Nam sem hann
telur enn vera lífs. Hann hittir konu í
útjaðri bæjarins sem reynist vera
móðir vinar hans. Hún tjáir honum
að sonur hennar sé nýlátinn; af völd-
um krabba sem rekja megi til eitur-
gass frá Víetnam. Þessi tíöindi taka
mjög á Rambo og hálfutan við sig
röltir hann áfram inn í bæinn. Þar
verður á vegi hans hrokafullur lög-
reglustjóri sem lítur á lögsagnarum-
dæmi sitt sem eign sína. Hroki þess-
arar löggu, grobb og stærilæti vinda
upp á söguþráðinn.
Rambo er stungiö í steininn fyrir
það eitt að vilja ekki fara að „lög-
um” stjórans „að hunskast úr bæn-
Ekki síður hefur leikstjórinn náð
góðum tökum á sviðsetningu og ögun
helstu leikara myndarinnar. Reynd-
ar er leikur myndarinnar meö mikl-
um ágætum. Fyrir Stallone er mynd-
in leiksigur, því að ég minnist þess
ekki að hafa sé hann tjá persónu af
jafnmiklu öryggi og með jafnmiklum
tilfinningalegum tilþrifum og í þess-
ari mynd. Þá leysa leikarar í auka-
hlutverkum hlutverk sín vel af hendi,
sérstaklega Richard Crenna sem
leikur höfuðsmann Rambo úr Víet-
stríðinu.
Öll tæknivinna myndarinnar er
fáguð og að því er virðist hnökralaus.
Klipping og kvikmyndun er sum-
Silvester Stallone f hlutverki sinu í myndinni First Blood. Leikur hans er með
miklum ágætum.
um því þangað eiga flækingar ekkert
að sækja.”Sú meðferð sem Rambo
fær síðan á lögreglustöðinni vekur
upp minningar frá pyntingum Víet-
Kongara. Við þá tilhugsun ærist
Rambo, lemur frá sér sem hann
getur og brýst út úr lögreglustöðinni.
Og stefnir til fjalla á flótta. Eltinga-
leikurerþarmeðhafinn.. .
Þetta er hinn sæmilegasti sögu-
þráður, eins og hann birtist í kvik-
myndinni. Atburðarásin mollar ró-
lega fyrsta fjórðung myndarinnar,
en sveigir sig æ meira upp á viö þegar
líða tekur, og undir lok nær hún á sig
fullkomleika spennumyndar. Stíg-
andin er þannig góð, markviss og
missir aldrei jafnvægi. Hún gerir
jafnvel efniviðinn trúverðugan.
Þennan kost myndarinnar má þakka
leikstjóranum. Hann hefur greini-
lega náð góðum tökum á sögunni sem
slíkri.
staðar sérlega smekkleg.
Það eru einkum tveir ókostir sem
mér viöist þessi mynd hafa. Annars
vegar hefði betur mátt vanda val á
smáleikurum í myndinni. Litlu hlut-
verkin eru sum hver klúðurslega af
hendi leyst. Hins vegar sækir leik-
stjórinn einum of mikið inn í stór-
slysaþemað. Honum hættir til að
ýkja andrúmsloftið og gera sögu-
hetjurnar einum of öfgakenndar:
Það gerist of mikið af stórkostlega í
myndinni.
Ef frá þessum tveimur ókostum
er litið, verður ekki annað sagt um
kvikmyndina First Blood, en að hún
sé prýðileg afþreyingarmynd.I viss-
um skilningi er hún mögnuð og eítir-
minnileg, en vantar herslumuninn til
aö komast í flokk þeirra úrvals Víet-
filma sem áðan voru nefndar.
-Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
■■■■■MVELKOMIN TILHH
ÍSAFJARDAR
BÚIÐ MIÐSVÆÐIS - ELDIÐ SJÁLF
Svefnpokapláss m/eldunaraðstöðu "r-
(í rúmgóðum herbergjum) 200,00
Eins manns herb. m/eldunaraðstöðu 300,00
2ja manna herb. m/eldunaraðstöðu 450,00
Eins manns herb. í mánuð m/eldunaraðst. 3.000,00
2ja manna herb. í mánuð m/eldunaraðst. 4.000,00
GISTIHEIMILIÐ ÍSAFIRÐI
(áður Hjálpræðisherinn)
Sími 94-3043
BETRI I.ETÐIR BJÓÐAST:
Vísitölumöndl er
blekking.
Tökum upp
lágmarkslaun og
liískjaratryggingu.
Alþýduflokkurinn
Cunnar v Andréssoo (CVA)
Ijósm Dagblaöið og Visir
TÓmSTUnOflHÚSID HF EBm
Laugauegi 164-Reqtiauit s=21901
Rafhlöður
með hleðslutæki fvrir:
Útvarpstæki,
vasaljós,
kassettutæki,
leifturljós,
leikföng.
vasatölvur og margt fleira.
Pað er margsannað, að
SANYO hleðslutæki og
rafhlöður spara mikið fé.
I stað þess að henda
rafhlöðunum eftir notkun
eru SANYO CADNICA hlaðin
MEIRA
EN 500
HLEÐSLUR
aftur og aftur
meira en 500 sinnum.
Pess vegna segjum við.
.Fáðu þér SANYO CADNICA
í eitt skipti fyrir öli".
.Ég hef notað
SANYO CADNICA rafhlöður
i leifturljós mitt
i þrjú ár og tekið mörg
þúsund myndir.
Min reynsia af þessum
rafhlöðum er þvi mjög
góð'.