Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Side 2
2
DV. LAUGARDAGUR 4. JUNI1983.
Tollvöru-
geymslan hf.
Aðalfundur Tollvörugeymslunnar hf. Reykjavík verður hald-
inn í hliðarsal 2. hæðar Hótel Sögu þriðjudaginn 14. júní 1983 og
hefst hann kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Samkvæmt samþykktum félagsins.
2. Útgáfa jöfnunarhlutabréfa.
STJÓRNIN.
Húsgagnasýning
laugardag kl. 9—4
sunnudag kl. 2—4
Við sýnum m.a.
Furusófasett með og án svefnmöguleika.
Einnig sýnum við
það nýjasta í framleiðslu okkar, fallegar
veggsamstæður í stofuna, Ijósar og dökkar.
Allt í stíl
í unglinga- og barnaherbergi
Minnum á þessi vinsælu og vönduðu
islensku húsgögn.
Margar viðartegundir — ekta viður.
Góð lakkáferð.
Ath. ný þjónusta
• Smíðum fataskápa eftir máli.
• Góðir greiðsluskilmálar
á öllum vörum verslunarinnar.
„ÓLÖGLEG
BROTTVIKNING”
— segir Páll A. Pálsson lögf ræðingur um brottvísun
dýralæknis f rá Dýraspftalanum
„Þetta er ólögleg brottvikning og
mun verða krafist bóta vegna
hennar,” sagði Páll Arnór Pálsson
lögfræðingur Dýralæknafélags
Islands í samtali við DV í gær. Páll
fer meö mál Helga Sigurðssonar sem
nýlega var vikið frá störfum við spít-
alann.
Brottvikningarástæðuna sagði
Páll þá að Helgi hefði tekið laun án
þess að fá samþykki eigendanna.
Slíkt væri hreinn tilbúningur því
farið hefði verið eftir gerðum samn-
ingi við dýralæknana tvo frá í haust.
1 honum og gjaldskránni sem líka
var gerð, væri lýst nákvæmlega hvað
aðgerð er. Eins og fram kom í frétt
DV í gær hefur verið deilt um
hvemig skilgreina eigi aðgerð.
Læknarnir hafa fengið meira greitt
fyrir það sem kallast aðgerðir en
önnur verk. Sagði Páll að um þessi
atriði hefðu verið í samningnum
ákvæði um árlega endurskoöun.
Stjómin hefði hins vegar um miðjan
maí ákveðið einhliöa að hætta að
greiða eftir samningnum.
Stjórn Dýraspítalans skrifaði
uppkast að bréfi til Helga með
dagsetningunni 25. maí og var
honum afhent þaö daginn eftir. I því
var farið fram á að hann segði upp
störfum. Átti hann að skrifa undir en
gerði ekki. Föstudaginn 27. maí fær
Helgi svo uppsagnarbréf í hendur,
dagsett 24. maí eða áður en honum
hafði verið boðið að segja upp.
Uppsögnin var miðuð við 1. j úní.
Aö sögn Páls var stjórninni ritað
bréf þann 31. maí þar sem brottvikn-
ingin er lýst ólögleg og gerð krafa
um að fallið verði frá henni. Því bréfi
heföi ekki verið svarað. Hjá honum
kom einnig fram að stjórn Dýraspít-
alans telur aö Gísli Halldórsson, sem
var dýralæknir við spítalann en réð
sig frá 1. apríl til Hofsóss, hefði meö
því brotið samninginn frá í haust.
Svo hefði ekki verið, sagði Páll,
vegna ákvæða í samningnum um að
læknamir gætu ráðið fyrir sig menn
að sinna störfum í forföllum. Hefði
það verið gert í samráði við
þáverandi stjóm Dýraspítalans og
maður ráðinn frá Noregi frá 1. júní.
Hefði sá sagt upp störfum þar til að
koma heim en ný stjóm spítalans nú
afturkallaö þá ráðningu.
JBH.
Marie Luce flutt um borð í sjukraþotu, sem flaug með hana til Frakklands fimm dögum eftir árásina á Skeiðarár-
sandi. Franska stúlkan kemur aftur til Islands um helgina.
DV-mynd: Þó. G.
Morðmálið í Öræfasveit:
Franska stúlkan
kemur sem vitni
Franska stúlkan Marie Luce
Bahuaud, 22 ára gömul, kemur til Is-
lands um helgina til aö bera vitni í máli
ákæruvaldsins gegn Grétari Sigurði
Ámasyni.
Grétar Siguröur var handtekinn 18.
ágúst í fyrra í fylgsni, sem hann haföi
útbúiö í hlíðum Hafrafells í Öræfum,
sólarhring eftir að lík Yvette Marie
Bauhuaud, systur Marie Luce, fannst í
farangursrýni bíls hans. Grétar
Sigurður var þá vopnaður riffli og
haglabyssu.
Marie Luce lá þá slösuð á Borgar-
spítalanum eftir aö hafa verið barin í
höfuðiö með byssuskefti í sæluhúsi á
Skeiðarársandi.
Marie Luce mun mæta fyrir
dómarann í málinu, Gunnlaug Briem,
á þriðjudag. Magnús G. Jónsson
verður dómtúlkur.
—KMU.
Veiðiferðir á Arnarvatnsheiði
— fyrstu ferðirnar byrja í júnílok
Hesta- og veiðiferðir á Arnarvatns-
heiði frá Aðalbóli í Miöfiröi verða með
líku sniði í sumar og undanfarin ár.
Það er Arinbjörn Jóhannsson sem sér
um þessar ferðir og eru upplýsingar
veittar hjá Farandi Travel Service,
Vesturgötu 4 í Reykjavík.
Ferðirnar í sumar era sem hér
segir: 25.6.—1.7., 2.7.—8.7., 9.7.—15.7.,
16.7,—22.7. og 30.7.—5.8, Áætlað verð er
6.800 krónur. Verð á ferðum 13.8.—19.8.
og 20.8,—26.8. er 6.100 krónur. Gisting
er í húsi á Aðalbóli og í leitarmanna-
kofa við Lónaborg. Allur útbúnaður
verður lagður til, meðal annars veiði-
stengur.
Einnig verður boðið upp á lengri
ferðir. Eru það hestaferðir til Hvera-
valla frá Aðalbóli og áætlað verð er
7.200. Einnig þá er gist innan dyra og
útbúnaöur lagður til, auk tveggja mál-
tíða á dag. Á þaö við allar ferðimar. I
Hveravallaferðunum verða auk
trússahestanna nokkrir lausir hestar
til skiptanna með í feröinni. Hver þátt-
takandi verður því að geta teymt hest.
Ferðir þessar eru reyndar ætlaðar
þeim sem em eitthvað vanir hestum.
-jbh.