Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Page 16
16
DV. LAUGARDAGUR 4. JUNI1983.
Sigurður Líndal:
Austur-
Eyjafjallamálin
- EÐA VINMIBRÖGB OG SIÐFERÐIBLAÐAMAMS
Þorvaldseyri, þar sem fangarnir voru hafðir i haldi.
Takmarkalaus valdníðsla
Laugardaginn fyrir hvítasunnu birt-
ist á foj ..;j.'u þessa blaös fyrirsögn
sem hljóöaöi á þessa leiö:
„Takmarkalaus valdníðsla og yfir-
gangur sýslumanns — gluggaö í ein-
staka heimild sem Siguröur HaU-
dórsson, bóndi í Skaröshlíð undir
EyjafjöUum, reit fyrir nær öld. —
Greinir þar frá drambslegri
framkomu sýslumannsins, Páls
Briem, við fátæka hreppsbúa sem
hann fangelsaði saklausa og beitti
óvenjulegu harðrétti á árunum 1890
tO ’95.”
Hér er veriö aö vísa til frásagnar af
svoköUuöum Austur-Eyjafjallamálum
eftir Sigurö Halldórsson bónda aö
Skaröshlíð í Austur-EyjafjaUahreppi
sem birt er inni í blaöinu í útgáfu
blaðamannsinsS.E.R.
I fyrirsögn þar er enn hnykkt á stór-
yrðum og þessu bætt viö:
„... gegndarlaus valdníðsla og
hrokafuUar aðfarir sýsiumannsins
Páls Briem að hreppsbúum undir
FjöUum sem hann ákærði saklausa
fyrir stuldi og hafði í langan tíma
saklausa i haldi á Þorvaldseyri við
illan og ömurlegan aöbúnað.”
I inngangi aö frásögn Siguröar HaU-
dórssonar heldur blaöamaöurinn
áfram og segir meöal annars:
„Erfitt er að finna skýringu á
þessum athöfnum hans, aðra en þá
að hann hafi verið haldinn sérstakri
mannfyrirlitningu, eUegar undar-
iegri þörf fyrir að sýna yfirmáttugt
vald sitt með þessum miður drengi-
legahætti.”
Og í niðurlagi klykkir blaðamaður út
meö hugleiöingum um þaö „ógnar-
vald” sem veraldlegir yfirmenn hafi
getað „tekið sér” á fyrri tímum og
hversu þegnamir hafi veriö „ber-
skjaldaðir fyrir ýmsum duttlungum
þeirra”. — Og greininni lýkur meö
þessumorðum:
„Hér er þó ekki verið að leiða líkum
að þvi að sýslumenn landsins á um-
ræddum tíma hafi almennt verið
þvíiíkir drambsseggir og téður PáU,
en hitt þykir sýnt að sitthvað hefur
verið bágborið í stjómkerfi þjóðar-
innar á þessum árum fyrst slíkir
menn og Páll hafa fengið að starfa
óáreittir af hálfu landsyfirstjómar-
innar.”
Vildarheimild
lögð til grundvallar
Ég minnist þess varla aö hafa lesiö
önnur eins hrakyrði um löngu látinn
mann í frásögn af liönum atburðum.
Almennt hygg ég aö þeir sem rifji þá
upp veigri sér viö slíkum áfellisdómum
nema aö vandlega athuguðu máli og á
grundvelli traustra heimilda.
Eins og áöur segir em þessi ummæli
reist á frásögn Sigurðar Halldórssonar
bónda í Skaröshliö undir Eyjafjöllum.
Hún sýnir að Sigurður hefur átt í úti-
stööum viö sýslumann vegna þessara
mála, en tildrögum þeirra er svo lýst í
dómi Landsyfirréttarins uppkveðnum
11. febrúar 1895 (Dómasafri V.18):
„Mál þetta hófst með því í nóvem-
bermánuði 1890, að rannsókn var
hafin út af orðrómi um þjófnað á
brekánum tveim, en við þá rannsókn
komu í ljós fleiri þjófnaðarbrot og
sérstaklega ýmisleg ólögmæt hirðing
á rekavið af hendi leiguliða og ann-
arra á fjörum i Austur-Eyjafjalla-
hreppi, svo að málið smátt og smátt
færðist svo út, að það tók yfir alla
hina ákærðu.”
Af frásögn Sigurðar má ráöa aö til-
efni þess aö hann var kallaöur fyrir
sýslumann hafi í fyrsta lagi veriö kæra
Jóns Hjörleifssonar hreppstjóra í
Skógum fyrir atyröi Sigurðar þess
efnis aö Jón bæri í sýslumann „óhróö-
urssögur” um sveitunga sína og beitti
óheiðarlegum vinnubrögöum viö rann-
sókn málsins. I annan staö hafi Sig-
uröur flutt til Vestmannaeyja nokkra
menn sem bönnuð haföi verið för úr
hreppnumvegna rannsóknarinnar.
Hvorttveggja var fullt tilefni til aö
kveöja Sigurð til yfirheyrslu á Þor-
valdseyri þar sem sýslumaöur hafði
bækistöö en viöbrögö Eyfellinga uröu
þau að efna til samtaka um aðför aö
sýslumanni. Prófasturinn, séra Kjart-
an Einarsson í Holti, kannaöi þá hvort
þeim væri alvara en þeir svöruðu aö
ekki yröi ráöizt á sýslumann í þetta
sinn — en svo kynni aö fara ef hann
héldi málinu áfram.
Þessir samblástursmenn eru síöan
kvaddir til yfirheyrslu á Þorvaldseyri,
en að því búnu sleppt utan einum að
því er Siguröur Halldórsson segir. Um
það þarf ekki aö fjölyrða að athafnir
eins og þessar voru lögbrot (og eru
enn), sem sýslumaður gat ekki leitt
hjá sér ef hann vildi gegna skyldu
sinni. Það bíöur hins vegar frekari at-
hugunar hvað Siguröi Halldórssyni
gekk til með illmælum sínum í garö
Jóns Hjörleifssonar og undanskoti
grunaöra manna. Sjálfur ber hann viö
vorkunnsemi viö vesalinga og ekki er
mér um annað kunnugt en hann hafi
verið sómamaöur. Hann mun þó hafa
átt í einhverjum persónulegum erjum
viö Jón. Hitt ber þó öðru fremur aö
hafa í huga aö þjófnaöaröld var í sveit-
inni, margir viö slíkan verknað riönir
og vísast viljaö geyma þau mál í þagn-
argildi. Þetta er nærtækust skýring á
viðbrögðum Sigurðar Halldórssonar
og annarrabænda.
En hvaö sem þessu líður er ljóst að
kastazt hefur í kekki milli Siguröar og
Páls Briem sýslumanns. Af þeim
sökum er frásögn hans varhugaverð
heimild sem telja veröur mjög
vilhalla. Ein sér er hún því algerlega
ónothæf til að fella dóm yfir embættis-
athöfnum Páls Briem.
Er frásögnin
rítuð 1920?
I inngangi segir blaöamaöur aö Sig-
urður hafi orðið beint vitni aö „aöför-
um sýslumannsins aö hrepps-búum”
og frásögnin sé rituð fyrir tæpri öld —
eöa m.ö.o. skömmu eftir að atburðir
gerðust.
Nú er þaö ljóst aö þetta er ekki nema
að nokkru leyti rétt. Sigurður ritar
mikiö af frásögninni eftir sögusögn
þeirra sem brotlegir voru eöa teknir
höföu verið til yfirheyrslu og rýrir þaö
enn frekar gildi hennar sem sögulegr-
ar heimildar. Þá er undir lok frásagn-
arinnar vitnað til þess sem er 1920 —
að ,,nú 1920” búi ekki nema þrír aö
Stóru-Borg —. Ekki kemur þetta heim
og saman viö þaö aö frásögnin sé rituð
fyrir nærri öld — eöa skömmu eftir at-
burði, eins og blaöamaöur segir,
heldur a.m.k. aldarfjóröungi síöar.
Þaö er alveg ljóst að eftir jafnlangan
tíma og þennan eru engar likur til aö
Sigurður hafi munað hvern þann at-
burð sem hann lýsir, hvað þá orörétt
löng samtöl sem hann rekur ýtarlega.
Hér heföi nánari greinargerð um tilurð
heimilda rinnar veriö nauösynleg.
Ranghermi
í frásögninni
Ekki veröur sagt að frásögn Sigurð-
ar sé skilmerkileg og ljóst er aö ýmis-
legt er þar mishermt enda þótt ekki
hafi verið aðstaöa til aö kanna sann-
fræöina nema aö nokkru leyti.
Af þeim sem Sigurður telur aö oröiö
hafi fyrir haröræöi af hendi sýslu-
manns nefnir hann fyrst Steinvöru og
Pétur á Krókvelli. Hefðu þau í fátækt
sinni tekiö eina kind og skoriö. Hér er
bersýnilega átt við Pétur Níelsson og
Steinvöru Einarsdóttur sem í dómi
Landsyfirréttar 11. febrúar 1895 voru
talin sek um þjófnaö og hlutdeild í
þjófnaði. Pétur haföi m.a. tekiö f jórar
kindur auk þess sem hann var talinn
sekur um mörg þjófnaðarbrot önnur.
Steinvör var talin sek um hlutdeild í
sauöaþjófnaöarbrotum Péturs og
nokkur sjálfstæö þjófnaðarbrot aö
auki.
Frásögninni af þeim Steinvöru og
Pétri lýkur Sigurður meö þessum
orðum:
„Ég held mér sé óhætt að segja það,
að þetta voru þær einu manneskjur
sem sekar fundust af öllum þeim
fjölda sem tekinn var fastur....”
I dómi Landsyfirréttar voru 20
manns dæmdir sekir en 3 sýknaöir og
má af þessu marka sannindi frásagn-
arinnar.
Langur þáttur er í frásögn Sigurðar
af Guðmundi í Yzta-Bæli. Hann var,
samkvæmt því sem segir í dómi Lands-
yfirréttar, Guömundsson. Ekki man
Sigurður hvaö Páll Briem dæmdi hann
mikiö „en Landsyfirréttur dæmdi
hann í 7 mánaöa tugthús. Guðmundur
fór alsaklaus í tugthúsiö um haustið”,
segir Sigurður.
Páll Briem dæmdi Guðmund í 10
mánaöa betrunarhússvinnu og var sá
dómur staðfestur í Landsyfirrétti svo
aö enn bregst Sigurði minnið. Sakir
Guömundar voru einkum ítrekaður
rekaþjófnaður — reyndar einnig
sauðaþjófnaður. Sú fullyrðing aö
Guömundur hafi fariö alsaklaus í tugt-
húsiö er rakalaus meö öllu.
Þá lætur Sigurður aö því Uggja aö
Þorsteinn Jónsson á Rauösbakka hafi
veriö sakaður um þjófnaö á einum
planka fjögurra álna löngum mörgum
árum eftir aö hann hafi verið hirtur og
Þorsteinn Magnússon dóttursonur
hans um hlutdeUd í því broti.
Samkvæmt því sem segir í dómi
Landsyfirréttar voru rekaþjófnaöar-
brotin öUu fleiri en þetta og hin síöustu
ekki framin ýkja löngu áöur en rann-
sókn málsins hófst.
Loks má geta þess aö þau ummæli
Siguröar aö sýslumaöur hafi dæmt
„eitthvað nálægt 20 manns” í tugthús
eru röng. Til betrunarhúss- eða fang-
elsisvistar voru 11 dæmdir en 9 tU sekt-
argreiðslna.