Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Blaðsíða 25
Ísgrímsson,
•r« og varaformaður
iins, í helgarviðtali
Texti:
Kristln
Þor§tein§dóttir
Myndlr:
Gunnar V.
Andr駧on
'h
**! ÍlfÍIÖ
^ tlÍÍl
tlaði
rei
iiíh9 9
mun auövitaö á næstunni setja mig
sem best inn í það. Aöalatriöiö er aö
menn geri allt sem hægt er, h ver á sínu
sviöi, til þess að sjávarútvegurinn hafi
rekstrargrundvöll. Hann veröur ekki
rekinn á stöðugum reddingum og
lánum. Allir sem í slíku standa munu
gefast upp viö þaö. Þaö er þvi miður
víöa í þjóðfélaginu uppgjafartónn í
mönnum. Ég vonast hins vegar eftir
því að viö þaö aö taka á málum af
raunsæi og festu þá öðlist menn aftur
þá bjartsýni sem þarf til að ná sér upp
úr öldudalnum.”
— Steingrímur Hermannsson þótti
veitull á fyrirgreiöslu til kaupa á
togurum, sem ekki gátu staðiö undir
sér, eins og Raufarhafnartogara og
Hólmavíkurtogara. Munt þú fylgja
sömu stefnu eöa gera meiri kröfur um
hagkvæmni f járf estinga í fiskiskipum?
„Það er alls ekki rétt aö Steingrímur
hafi leyft til dæmis Hólmavíkurtogar-
ann. Hann var smíðaöur hér innan-
lands og menn hafa veriö að smíöa
skip hér sem ekki hafa veriö nægilega
hagkvæm. En menn veröa að hafa þaö
í huga. að ef byggðir út um land eiga aö
hafa einhverja möguleika veröa aö
vera til atvinnutæki á stööunum. Hins
vegar er þaö mín skoðun aö þaö sé ekki
ráðlegt aö fjölga fiskiskipum nú.
Síðasta ríkisstjórn tók þá ákvörðun aö
heimila ekki innflutning fiskiskipa
næstu tvö árin. Eg tel enga ástæðu til
aö breyta þar nokkru um. Hins vegar
er ekki hægt að taka slíka ákvöröun
um langa framtíð, menn veröa aö meta
stöðuna á hverjum tíma. Fiskiskip
ganga úr sér, rétt eins og kútter
Haraldur! Þaö dytti engum í hug að
gera hann út í dag! Þaö veröa áreiðan-
lega fá af þeim fiskiskipum sem nú eru
á miðunum þar enn eftir þrjátíu,
fjörutíuár.”
— Ef kæmi hér maður inn og bæöi
um fyrirgréiöslu vegna kaupa á
togara, myndiröu snúa honum viö í
dyrunum?
„Ja, þaö er náttúrlega ekki í mínum
verkahring aö lána honum peninga til
slíks, svo sú ferö væri ekki til f jár. Hins
vegar veröa engin fiskiskip flutt inn í
bráðina og engin áform uppi um aö
byggja ný hér innanlands, aðeins þeim
verkefnum haldiö áfram sem komin
eruárekspöl.”
— I málefnasamningi ríkisstjómar-
innar segir að gera eigi án tafar ráö-
stafanir til aö mæta rekstrarvanda
sjávarútvegsins og athugun á hvernig
auka megi hagkvæmni í útgerö og
vinnslu. 1 hverju eiga þessar ráðstaf-
anir aö felast og hvar má helst auka
hagkvæmnina?
„Fyrstu ráöstafanir ríkisstjómar-
innar miðuðust við þaö að bæta
rekstrargrundvöll sjávarútvegsins.
Þaö hefur veriö gert. Síðan em fjöl-
mörg verkefhi, sem vinna þarf aö til aö
auka verömæti okkar afurða. Eg er
þeirrar skoðunar að það verði ekki
gert meö stjómvaldsákvörðunum eöa
stefnuyfirlýsingum stjórnarinnar. Þaö
er verkefni stjómvalda aö skapa sem
best skilyrði fyrir því að svo megi
veröa. Þaö má gera meö því að beina
f jármagni til hagkvæmra f járfestinga,
eins og tækjakaupa í frystihúsum,
tækja til aö vinna afla eins og lifur og
slóg, sem hent er í hafið, auka má
orkusparnaö. Lög og reglur varöandi
veiðar þarf að endurskoða, ýmislegt
þar aö lútandi torveldar þaö í reynd að
gerð séu sem mest verömæti úr afl-
anum. Þá þarf aö ná sem bestri sam-
vinnu milli allra stétta í landinu sem
vinna að sjávarútvegi. Þaö er leiöin til
bættra lífskjara.”
„Útflutningsbætur
ekki hægt að nema brott
í einu vetfangi"
— Á sama tíma og útgjöld þjóðar-
búsins em dregin saman og laun skert
hjá almenningi em notaöar miklar
fjárhæðir í útflutningsbætur á land-
búnaðarafuröir eða meö öörum orðum
að kjöt er greitt niöur til erlendra
neytenda. Er þaö sanngjamt á tímum
samdráttar að landbúnaðurinn fái
slíkar ívilnanir?
„Landbúnaöurinn er ekki síður
mikilvægur þjóöarbúinu en aðrar at-
vinnugreinar. Það er afskaplega erfitt
að reikna meö því að framleiðslan geti
verið alveg nákvæmlega jafnmikil og
neyslan. Hins vegar þarf að vinna að
því aö landbúnaðarframleiöslan veröi
nokkurn veginn samsvarandi innan-
landsneyslunni. Þaö er líka veriö aö
gera með því aö taka upp nýjar
búgreinar. En þaö er mjög varasamt
aö ætla sér aö gera þaö meö einhvers
konar byltingu. Það tekur allt sinn
tíma. Utflutningsbætur eiga sér langa
sögu og ef þær væm numdar af í einu
vetfangi heföi það mjög alvarlegar
afleiöingar. Ekki aðeins fyrir bændur
heldur og allt þaö fólk sem byggir af-
komu sína á landbúnaðarafurðum. Við
verðum líka aö hafa það í huga að
sveitirnar tengja saman byggöimar í
landinu og þær verða að byggjast
áfram. Auövitað er ekki þar meö sagt
að þar megi engu breyta, þaö er allt
annaömál.
Því miður hafa heyrst æ háværari
raddir aö undanfömu um aö land-
búnaöurinn og sjávarútvegurinn taki
eitthvaö frá þjóöfélaginu. En hvað er
þaö sem heldur þessu þjóöfélagi uppi?
Á hverju lifa menn? Hvaðan kemur sá
gjaldeyrir sem menn fara svo mis-
jafnlega meö? Mér er spum. Ætli hann
komi ekki fyrst og fremst frá þessum
undirstöðuatvinnuvegum. ”
„Algjört atkvæðajafnvægi
getur aldrei orðið"
— Framsóknarflokkurinn hefur tek-
iö aö sér aö vera málsvari bænda-
stéttarinnar og dreifbýlis gegn hags-
munum þéttbýlis. Er flokkurinn ekki
orðinn tímaskekkja eða málpipa
þröngs þrýstihóps?
„Þaö er orðið býsna vinsælt síöustu
ár að tala um þrýstihóp hér og þrýsti-
hóp þar. Fólki er skipt niður í ákveðna
þrýstihópa og sjálfsagt er það rétt aö
þeir eru fyrir hendi. Hins vegar er þaö
mjög slæmt að vera aö skipta okkur
upp í slíka hópa og þaö hefur veriö gert
í of miklum mæli. Þaö er mikilvægt aö
fullur skilningur sé á milli fólks í þétt-
býli og dreifbýli því sannleikurinn er
sá að án hvor annars getum viö ekki
lifað í þessu landi. Mér finnst stór-
hættulegt aö vera aö stilla upp þéttbýli
og dreifbýli sem andstæðum. Þetta
skapar aðeins baráttu, sem leiðir til
niöurrifsstarfsemi. Eg hef bæöi búiö í
þéttbýli og dreifbýli og mér finnst
afskaplega sárt að hlusta á þessa
umræðu því hún byggir á misskilningi
einum.”
— Framsóknarflokkurinn hefur
fleiri þingmenn en atkvæðatala hans
segir til um og margir flokksmenn
hafa lagst gegn breytingum á kjör-
dæmaskipuninni. Er ekki óeölilegt aö
flokkurinn byggi völd sín á ranglátri
kjördæmaskipan?
„Ég veit ekki betur en allir flokkar
hafi fallist á að atkvæðavægið yröi fært
í svipað form og var ’59. Hins vegar
getur enginn neitað því aö algjört jafn-
vægi getur aldrei orðið í þessu. Hvar í
heiminum höfum viö dæmi um þaö?
Eg held mér sé óhætt að fullyrða að
þaö sé hvergi, að minnsta kosti ekki
þar sem ég þekki til. Menn vilja
stundum gleyma fjarlægðunum því
þaö er að fleiru að huga en höfðatölu
íbúa. Viö búum dreift og kjördæmin
eru afskaplega misstór, það er að
segja í ferkílómetrum. Og við getum
ekki litiö framhjá því að fólkið úti á
landi býr ekki viö sömu skilyröi og fólk
í þéttbýli. Þaö hefur til dæmis ekki
sama aðgang aö stofnunum, sem
flestar eru staösettar í Reykjavík, og
því um langan veg aö sækja fyrir þetta
fólk.”
— Er þá sanngjamt að bændur og
fólk í dreifbýli ráði meiru um mótun
utanríkisstefnu Islands, um stefnuna í
menntamálum eöa um önnur tilfall-
andi mál en fólk í þéttbýli? Veröur
ekki aö leysa vanda hinna dreifðu
byggöa á annan hátt en meö fjölda
þingmanna?
„Þaö er engin lausn á vanda þessara
byggöa aö hafa fleiri eöa færri þing-
menn. Sjáöu til dæmis þátttöku okkar í
Norðurlandaráði. Ef jafnvægi ætti aö
gilda þar ættum viö aðeins að hafa
einn fulltrúa, viö erum aöeins 240
þúsund af 22 milljónum sem byggja
Norðurlönd. Einn fulltrúi ætti erfitt um
vik aö kynna málstaö okkar og þess
vegna eigum við sex fulltrúa þar eöa
þriðjung af fulltrúatölu hinna land-
anna. Á því byggist aUt lýöræöi, aö
aUir menn hafi jafnan rétt tU aö kynna
sinnmálstað.”
„Framkvæmdastofnun
þjónar ekki lengur því
hlutverki sem henni var
ætlað"
— I málefnasamningi ríkisstjórnar-
innar segir aö stjórnin muni beita sér
fyrir breytingum á stjórnkerfinu tU aö
gera það virkara. I hverju ættu þessar
breytingar helst aö vera fólgnar aö
þínumati?
„Það hefur allt tiUineigingu tU aö
staöna. Þaö er nauðsynlegt aö taka
hlutina upp tU endurskoðunar annað
veifið. TU dæmis finnst mér að þurfi aö
endurskoða verkaskiptingu í ráöuneyt-
unum, svo og ýmsum ríkisfyrir-
tækjum. Þar er ýmislegt sem ekki er
rekiö með nógu hagkvæmum hætti.
Þarna vantar meiri samhæfingu.
Stjóm fjárfestingamála er heldur ekki
hagkvæm, stjórnarfarsleg ábyrgö er
sums staðar ekki eins og hún á að vera.
Þá finnst mér ríkið ekki endilega eiga
aö hafa afskipti af öllu því sem þaö
hefur afskipti af nú. Einnig þyrfti lög-
gjafarvaldið að hafa meira eftirUt meö
framkvæmdavaldinu. Þar þarf aðhald
og eftirlit og ég er viss um að slíkt
verður best gert ef ríkisendurskoðun
yrði efld undir stjórn Alþingis, eins og
ég hef margoft lagt til. ”
— Framkvæmdastofnun hefur verið
harðlega gagnrýnd fyrir óeðlUega
fyrirgreiðslu viö gjaldþrotafyrirtæki
og annan vonlausan rekstur í nafni
byggðastefnunnar. Hvaða breytingar
eru fyrú-hugaöar á rekstri hennar?
„Framkvæmdastofnun hefur gert
margt gott fyrir undirstööuatvinnu-
vegina sem þurfa að ganga. En hins
vegar þarf aö endurskoða rekstur
hennar. Eg tel aö starfssvið hennar
hafi færst frá upprunalegum tUgangi.
Hún þjónar ekki lengur því hlutverki
sem henni var ætlað. Framkvæmda-
stofnun er ein af þeim stofnunum sem
líta ber á af fullri gagnrýni. En hins
vegar er ég á því að hún þurfi að starfa
áfram.”-
„Erfitt að ná árangri
á stuttum tíma"
Halldór Ásgrímsson er fjölskyldu-
maöur, giftur Sigurjónu Siguröar-
dóttur frá Hrísey og eiga þau þrjár
dætur, þriggja til þrettán ára. Mér er
sagt aö þú sért stjórnmálamaður fyrst
og síðast og lítiö annaö komist aö hjá
þér. Hvemig er meðtómstundir?
„Eg hef haft og hef alltof lítinn tíma,
bæði tU að sinna fjölskyldunni og
áhugamálunum. Hins vegar hef ég
gaman af allri útiveru, fer gjarnan á
skíöi, ég les töluvert, spUa bridge með
félögunum og hlusta á góöa tónlist en
ég er mikUl jassaðdáandi þegar tími
gefst tU.”
— Hyggur þú á fjögurra ára setu í
stól sjávarútvegsráðherra?
„Já, ég vænti þess. Það er erfitt aö
ná árangri á mjög stuttum tíma. Það
tekur og töluverðan tíma að setja sig
inn í máUn, þaö gerist ekki á einni
nóttu. Svo viU maöur fá tækifæri til aö
vinna og gera eitthvert gagn, til þess
þarf góðan tíma.”
— Og ein aö lokum, hvemig „fU-
arðu” stólinn?
„Eg hef nú ekki haft neitt tækifæri tU
á þessum stutta tíma aö fá einhverja
ákveðna tilfinningu fyrir þvi hvað ég
er aö fara út í. En ég finn þaö örugg-
lega á næstunni.” -KÞ.