Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Síða 47
DV. LAUGAKDAGUR 4. JUNI 1983.
47
Utvarp
Sjónvarp
IJt og suður í iitvarpl á sunnudag kl. 10.25:
Frá vinabæjamðti í
Nárpes í Finnlandi
Þorvaldur Þorvaldsson kennari á
Akranesi segir frá vinabæjarmóti i
Finnlandi í útvarpi á morgun, en
það var öðrum þræði þjóðdansa
mót og mættu þangað dansarar
víðs vegar af Norðurlöndum til að
sýna listir sinar.
Út og suöur, þáttur Friðriks Páls
Jónssonar, verður í útvarpi á morgun,
sunnudag, kl. 10.25.
1 þessum þætti segir Þorvaldur Þor-
valdsson, kennari á Akranesi, frá vina-
bæjamóti í Narpes í Finnlandi. Narpes
er sveitaþorp í sænskumælandi héraði
skammt sunnan viö Vasa, en þangaö
fór Þorvaldur í hópi 16 Akumesinga ár-
ið 1978. Hópurinn dvaldi í Narpes í
fjóra daga og gisti á einkaheimilum í
góðu yfirlæti.
Bryddað var upp á mörgu þessa
fjóra daga sem mótið stóö yfir, en það
var öðrum þræði þjóðdansamót og
mættu þangað dansarar frá Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð auk Finn-
1 ands til að sýna listir sínar.
Að dórni Islendinganna náði ferðin
þó hámarki í mjög sérstæðu útileikhúsi
um 100 áhugaleikara í Narpes. Ahorf-
endur sátu á palli, sem snerist í hringi,
en sviðiö var umhverfis og dimmur
skógurinn þar fyrir utan. Sýningin var
mjög áhrifarík og ógleymanleg öllum
sem hana sáu, en Þorvaldur segir án
efa nánar f rá henni í þættinum á morg-
im. EA
Utvarp
Laugardagur
4. júní
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
7.25 Lelkfimi.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir. Morgunorð:
8.50 Leikfimi.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Lóa
Guðjónsdóttir kynnir. (10.00
Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. For-
ustugr. dagbi. útdr.). Oskalög
sjúklingafrh.
11.20 Sumarsnældan — Helgarþátt-
ur fyrir krakka. Stjómandi: Sig-
ríður Eyþórsdóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Iþróttaþáttur.
Umsjón: Ragnar öm Pétursson.
Helgarvaktin. Umsjónarmenn:
Arnþrúður Karlsdóttir og Hró-
bjartur Jónatansson.
15.10 Hafnarfjörður 75 ára. Dagskrá
frá afmælishátíð bæjarins.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Þá, nú og á næstunni. Þáttur
fyrir böm og unglinga. Stjóm-
andi: Hildur Hermóðsdóttir.
16.40 A ferð með Ragnheiði Davíös-
dóttur og Tryggva Jakobssyni.
17.00 Síðdegistónieikar. a. Nýja
kompaníið leikur í útvarpssal tón-
list eftir Tómas R. Einarsson og
Jóhann G. Jóhannsson. Tómas R.
Einarsson leikur á kontrabassa,
Jóhann G. Jóhannsson á pianó,
Sigurður Flosason á altósaxó-
fón, Siguröur Valgeirsson á
trommur og Sveinbjöm I. Bald-
vinsson á gítar. b. Lúðrasveitin
Svanur, Lúörasveit Tónmennta-
skóla Reykjavíkur og Unglinga-
deild Svansins leiks á tónleikum í
Háskólabíói 9. apríl sl. Stjómend-
ur: Kjartan Oskarsson og Sæbjöm
Jónsson.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 „Lifandi tré f jölga lengi grein-
um”. Dagskrá í tilefni „skógrækt-
ardagsins”. Umsjón: Asgeir Svan-
bergsson og Vilhjálmur Sigtryggs-
son.
20.00 Harmonlkuþáttur. Umsjón:
Bjami Marteinsson.
20.30 Sumarvaka. a. 1 gylltu mistri
Grímsey hvilir. Guðmundur Sæ-
mundsson flytur fyrri hluta frá-
sögu sinnar. b. Undarleg er íslensk
þjóð. Bragi Sigurjónsson spjallar
um kveðskaparlist og flytur sýnis-
hom. c. Ég undi ekki lengi við
lcistann. Þorsteinn Matthíasson
segir frá lífi og starfi Bjarna
Erlendssonar frá Víðistöðum.
21.30 Hljómplöturabb
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dag-
skrá morgundagsins. Orð kvölds-
ins.
22.35 „Sögur frá Skaftáreldi” eftir
Jón Trausta. Helgi Þorláksson
fyrrv. skólastjóri les (2).
23.00 Laugardagssyrpa —Páll Þ?r-
steinsson og Þorgeir Astvaldsson.
00.50 Fréttir. Dagskráriok.
Sunnudagur
5. júní
Sjómannadagurinn
8.00 Morgunandakt. Séra Sigmar
Torfason prófastur á Skeggja-
stööum flytur ritningarorö og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
8.35 Létt morgunlög. a. Milos Sadlo
leikur á selló vinsæl spænsk lög,
Alfred Holocek leikur með ápíanó.
b. Iselin syngur þekkt norsk lög við
undirleik kammersveitar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar. a. Frans
Briiggen, Anner Bylsma og
Gustav Leonhardt leika svítu í A-
dúr fyrir blokkflautu, selló og sem-
bal eftir Francic Dieupart. b.
Heinz Holliger leikur ásamt félög-
um úr Ríkishljómsveitinni í Dres-
den Konsert í G-dúr fyrir óbó
d’amore og strengjasveit eftir
Georg Philipp Telemann; Vittorio
Negri stj. c. Agnes Giebel, Marga
Höffgen, kór og hljómsveit Fen-
eyjaleikhússins flytja Magniíicat
í g-moll eftir Antonio Vivaidi;
Vittorio Negristj.
10.25 Ut og suöur. Þáttur Friðriks
Páls Jónssonar.
11.00 Sjómannamessa i Dóm-
kirkjunni. Biskup Islands, herra
Pétur Sigurgeirsson, prédikar.
Séra Þórir Stephensen þjónar
fyrir altari. Organleikari;
Marteinn H. Friðriksson.
Hádegistónleikar.
12.10 Dagskrá.Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tílkynningar. Tónleikar.
14.00 Frá útisamkomu sjómanna-
dagsins i Nauthólsvík. Fulltrúar
frá ríkisstjóminni, útgerðarmönn-
um og sjómönnum flytja ávörp.
Aldraðir sjómenn heiöraðir með
heiðursmerki sjómannadagsins.
15.15 Söngvaseiður. Þættir um
íslenska sönglagahöfunda.
Fimmti þáttur: Loftur Guðmunds-
son. Umsjón: Ásgeir Sigurgests-
son, Hallgrímur Magnússon og
Trausti Jónsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.25 „Sigling í Sacramentódal” —
Sagt frá Kaliforníuferð. Umsjón:
Anna Snorradóttir.
17.00 Landsleikur: Island—Malta.
Ragnar öm Pétursson lýsir frá
Laugardalsvellinum.
17.45 Tilkynningar.
18.00 Framhald á lýsingu frá Laug-
ardalsvellinum.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.25 Myndir. Jónas Guömundsson
rithöfundur talar við hlustendur.
20.00 Utvarpungafólksins.Umsjón:
Helgi Már Barðason (RUVAK).
21.00 Sigling. Guðmundur
Hallvarðsson sér um sjómanna-
dagskrá.
22.00 Tónieikar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Kveðjulög sklpshafna. —
Margrét Guðmundsdóttir og
Sigrún Sigurðardóttir.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Sjónvarp
Laugardagur
4. júní
17.00 íþróttir. Umsjónarmaður
Bjami Felixson.
19.00 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttirog veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Östaðfestar fregnir herma.
Þriðji þáttur. Bresk skopmynda-
syrpa í fjórum þáttum. Þýðandi
Guöni Kolbeinsson.
21.05 Forboðnir lelkir. Endursýning.
(Jeux Interdits). Frönsk verð-
launamynd frá 1952. Leikstjóri
René Qément. Aðalhlutverk:
Georges Poujouly og Brigitte
Fossey. Myndin gerist í sveit á
stríösárunum. Fimm ára telpa
sem hefur misst foreldra sína af
völdum stríösins og tíu ára dreng-
ur veröa óaðskiljanlegir vinir.
Styrjöldin í heimi fullorðna fólks-
ins endurspeglast í leikjum bam-
anna en þeir snúast einnig um
dauðann. Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir. Myndin var áöur sýnd í
Sjónvarpinu 1967.
22.35 Uppreisnin á Vigfara (Damn
the Deflant!). Bresk bíómynd frá
1962. Leikstjóri Lewis Gilbert.
Aðalhlutverk: Alec Guinnes, Dirk
Bogarde, Maurice Denham og
Anthony Quayle. Myndin gerist á
tímum Napóleonsstyrjaldanna.
Breskt herskip lætur úr höfn og
heldur til móts við breska flotann.
Á leiðinni slær í bardaga við
franskt skip og innanborös logar
einnig allt í ófriði vegna harðríkis
fyrsta stýrimanns. Þýðandi Krist-
mann Eiðsson.
00.15 Dagskrárlok.
Sunnudagur
5. júní
18.00 Sunnudagshugvekja. Margrét
Hróbjartsdóttir, safnaðarsystir í
Laugameskirkju, flytur.
18.10 Nóttln milli ára. Sænsk bama-
mynd um litla telpu sem bíður
þess með óþreyju að verða sex
ára. Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. (Nordvision — Sænska sjón-
varpið).
18.30 Daglegt líf í Dúfubæ. Breskur
brúðumyndaflokkur. Þýðandi Osk-
ar Ingimarsson. Sögumaöur Sig-
rún Edda Bjömsdóttir.
18.45 Palli póstur. Breskur brúðu-
myndaflokkur. Þýöandi Jóhanna
Þráinsdóttir. Sögumaður Sigurður
Skúlason. Söngvari Magnús Þór
Sigmundsson.
19.00 Sú kemur tíð. Franskur teikni-
myndaflokkur um geimferðaævin-
týri. Þýðandi Guðni Kolbeinsson,
sögumaður ásamt honum Lilja
Bergsteinsdóttir.
19.25 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáll.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingarogdagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
20.50 Fólk í fiski. Islensk kvikmynd
gerð á árunum 1979—80 um fisk-
veiðar og fiskvinnslu. Fylgst er
með lífi og störfum fólks í frysti-
húsi og sjómanna á línubáti og
skuttogara. Kvikmyndun annaöist
Sigurður Grímsson en tónlist er
eftir Hólmfríði Sigurðardóttur.
21.30 Ættaróðalið. Lokaþáttur.
Breskur framhaldsflokkur gerður
eftir skáldsögu Evelyns Waughs.
Æfni tíunda þáttar: Eftir tveggja
ára sambúð hyggjast Charles og
Júlia ganga í hjónaband. Bridie er
einnig í giftingarhugleiðingum.
Hann sakar Júlíu um syndsamlegt
lifemi og vekur það hjá henni trú-
arlega sektarkennd. Cordelia snýr
heim frá Spáni og segir síðustu
fregnir af Sebastian. Þýðandi Osk-
ar Ingimarsson.
23.05 Dagskrárlok.
Mánudagur
6. júní
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Tommi og Jenni.
20.45 íþróttir. Umsjónarmaður
BjarniFelixson.
21.20 Biedermann og brennuvarg-
arnir. Leikrit eftir Max Frisch í
sviðsetningu finnska sjónvarpsins.
Leikstjóri Tom Segerberg. Aðal-
hlutverk: Nils Brandt, Gustav
Wiklund, Göran Schauman og
Vivi-Ann Sjögren. Adeilufarsi sem
lýsir tómlæti manna um mótJæti
annarra, blindu þeirra og tregðu
til að beita sér gegn aðvífandi ógn-
um meðan þeir þykjast sjálfir
óhultir. Þannig er afstaöa aöalper-
sónunnar, Biedermanns, til
brennuvarganna, sem leggja eld í
hvert húsið á fætur öðru, en kvöld
eitt berja þeir að dyrum hjá hon-
um sjálfum. Þýðandi Jóhanna
Þráinsdóttir. (Nordvision —
Finnska sjónvarpið).
22.35 Kosningar i Bretlandi. Ný
bresk fréttamynd. Margaret
Thatcher hefur efnt til þingkosn-
inga 9. júní, en kosningaspár eru
Ihaldsflokknum í vil. Myndin lýsir
kosningabaráttunni sem m.a.
snýst um atvinnuleysið, vamar-
mál og aðild Breta að Efnahags-
bandalagi Evrópu. Þýðandi Þor-
steinn Helgason.
23.05 Dagskrárlok.
Veðurspá
fyrir helgina
Gert er ráð fyrir aö skipti um
veðurlag nú um helgina, gengur í
sunnanátt meö rigningu á Suður-
og Vesturlandi. Á Norður- og
Austurlandi verður hins vegar úr-
komulítið.
Fyrir norðan hlýnar verulega.
Hámarkshiti um helgina er þar
áætlaður 16—18 stig. Sunnan fjalla
verður mun svalara eða í kringum
lOstig.
Upp úr helginni gengur í suðvest-
anátt og kólnar lítillega.
Veðrið
hér og þar
Veðrið klukkan 12.00 í gær: Akur-
eyri léttskýjað 8, Bergen léttskýjað
12, Helsinki rigning 14, Kaup-
mannahöfn skýjað 16, Reykjavík
léttskýjað 6, Stokkhólmur þoku-
móða 16, Þórshöfn skýjað 6, Aþena
hálfskýjað 28, Berlín léttskýjað 22,
Feneyjar þokumóða 29, Frankfurt
rigning á síðustu klukkustund 21,
Nuuk léttskýjað 4, London skýjaö
18, Lúxemborg hálfskýjað 20, Las
Palmas léttskýjað 21, Mallorca
hálfskýjaö 24, Montreal skýjað 14,
París skýjað 24, New York skýjað
19, Róm skýjað 26, Malaga létt-
skýjað 24, Vín skýjað 24, Winnipeg
léttskýjaö 10.
Tungan
Heyrst hefur; Þeir fóru
sitthvora áttina.
Rétt mun talið að segja:
Þeir fóru sinn í hvora
áttina.
En best færi: Þeir fóru í
sína áttina hvor.
Gengið
GENGISSKRÁNING
NR. 99 - 02. JUN11983 KL. 09.15.
Einingkl. 12.00 ‘ Kaup Sala Sala
1 Bandaríkjadollar 27,210 27,290 30,019
1 Sterlingspund 43,196 43,323 47,655
1 Kanadadollar 22,114 22,179 24,396
1 Dönsk króna 2,9804 2,9891 3,2880
1 Norsk króna 3,7902 3,8014 4,1815
1 Sænsk króna 3,5930 3,6036 3,9639
1 Finnsktmark 4,9293 4,9438 5,4381
1 Franskur franki 3,5514 3,5618 3,9179
1 Belgískur franki 0,5345 0,5360 0,5896
1 Svissn. franki 12,9233 12,9613 14,2574
1 Hollensk florina 9,5024 9,5303 10,4833
1 V-Þýsktmark 10,6769 10,7083 11,7791
1 ítölsk líra 0,01801 0,01807 0,01987
1 Austurr. Sch. 1,5163 1,5208 1,6728
1 Portug. Escudó 0,2699 0,2707 0,2977
1 Spánskur peseti 0,1924 0,1930 0,2123
1 Japanskt yen 0,11385 0,11418 0,12559
1 irsktpund 33,754 33,853 37,238
SDR (sérstök 29,1416 29,2275
dráttarréttindi) 0,5342 0,5358 0,5893
Símsvari vegna gengisskráningar 22190.
Tollgengi
fyrir maí 1983.
Bandaríkjadollar USD 27,100
Sterlingspund GBP 43,428
Kanadadollar CAD 22,003
Dönsk króna DKK 3,0208
Norsk króna NOK 3,7974
Sænsk króna SEK 3,6006
Finnskt mark FIM 4,9588
Franskur franki FRF 3,6097
Belgískur franki BEC 0,5423
Svissneskur f ranki CHF 13,0257
Holl. gyllini NLG 9,6195
Vestur-þýzkt mark DEM 10,8272
ítölsk líra ITL 0,01824
Austurr. sch ATS 1,5376
Portúg. escudo PTE 0,2724
Spánskur posoti ESP 0,1948
Japansktyen JPY 0,11427
Írsk pund IEP 34,202
SDR. (Sérstök 25,0113
^dráttarróttindi)