Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1983, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1983, Qupperneq 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 9. AGUST1983. 7 Neytendur Neytendur Fjallagrös má tína víða um land og nota i margs konarmat Cetraria islandica nefnist jurt sem Islendingar hafa tínt í hundruð ára. Sennilega hafa þó ekki margir kannast við jurtina undir þessu nafni, aðeins andans menn og aörir sem kunnu latinu. Allur almúgi kallaði jurtina fjaliagrös og þóttu grösin búa yfir miklum lækningamætti. Einnig voru þau notuð til matar, aðallega til að drýgja mjöl sem oft var lélegt og af skornum skammti. Sums staðar var jafnan farið á grasafjall á hverju sumri og var þá gist i tjöldum í nokkra daga uppi á heiöum. Sumir staðir þóttu öðrum betri, t.d. Arnarvatnsheiði, Tvídægra, þingeysku heiðarnar og heiðarnar á Austfjörðum. Fjallagrösin eru oftast brún, stund- um þó ljós á litinn, en sjaldgæfari eru gráhvítu grösin. Þau vaxa í mosa og kjarri og verða um 10 sentímetrar á hæð. Fjallagrösin breiða úr sér í bleytu og er þá gott að tína þau. Þetta vissu for- feður okkar því grös voru ós jaldan tínd á nóttunni þegar þau voru vot af dögg- inni. Þurr grös eru samankrulluð og mun erfiðara er aö tina þau að sögn Helga Hallgrímssonar, safnvarðar á Náttúrugripasafninu á Akureyri. Fjallagrös vaxa víða um heim en nær eingöngu á fjöllum uppi. Má nefna að þau finnast í ölpunum og sums staðar í Bandaríkjunum. Hérlendis er 'víða mikið af þeim enda eru grösin kennd við íslensku. Á ensku heita þau Iceland moss og sem að ofan getur heita þau Cetraria islandica á latínu. En víkjum aftur að lækningamætti þeirra. Það var trú fólks að betra lyf en fjallagrasate væri ekki til við háls- bólgu og ýmiss konar kvillum í nefi og hálsi. I bókinni Islensk flóra, sem ný- lega kom út, er talað um þau nyt sem hafa má af fjallagrösum og öörum grösum. Þar segir um te: „Nærri sjóö- andi vatni er hellt yfir smáskoma plöntuhluta (í blöð, fræ eöa blóm). Síðan er það látið standa í 10—15 mín- útur og hrært í á meðan. Þá er það síð- að. Venja er að drekka það allheitt og í smá slurkum. Oftast er hæfilegt að nota 2—3 teskeiðar (25—50 g) í einn pelaafvatni.” Einnig er í bókinni talað um hvemig hægt sé að búa til seyði. Er þó köldu vatni hellt yfir plöntumar og hitað upp að suðu í tæpan hálftíma. Er því haldið við suðu í töluverðan tíma og segir gamalt ráð að hæfilegt sé aö sjóða seyðið þar til þriðjungur vatnsins hef- urgufaðupp. I bókinni segir aö hæfilegt sé að láta fimm til sjö teskeiðar af fínmöluðum plöntum í hvern lítra af vatni. Eigi að sjóða þar til um fjórðungur vatnsins hafi gufað upp. Þá sé rétt að sía seyðið frá og kreista allan vökva úr plöntun- um. Sá vökvi er síðan látinn kólna og svo settur á flöskur. Sumum finnst gott að hafa duft og nota það þá hrært upp í mysu, vatni eða einhverju öðru. Duftið er best að geyma í krukkum, en seyðið í flöskum á köldum stað. Varasamt er að geyma seyðið of lengi, það getur fúlnað með tímanum. Saft er hægt að laga úr ferskum plöntum. Þá er best að merja plöntum- ar vel og pressa úr þeim allan vökva í gegnum léreftsdúk. Síðan er vökvinn seyddur. Víða um land eru búnir til grautar og súpur úr f jallagrösum. Grautarnir eru ýmist soðnir í mysu eða mjólk. Hér fer á eftir uppskrift að fjalla- grasabúðingi fyrir átta til tíu manns, en uppskriftin er fengin frá Olöfu Dag- mar Ámadóttur, húsfreyju ó Selfossi. Hefur hún sjálf fundiö upp þennan rétt og látið Neytendasíðu DV uppskriftina íté. Fjallagrasabúðingur fyrir 8—10 Góð Iófafylli af f jallagrösum 3egg 100 g ljós púðursykur 2 dl romm Einn pottur súrmjólk (= 1 lítri) Hálfur pottur rjómi 8 blöð matarlim Hreinsa mosa og strá úr grösunum og láta þau liggja í köldu vatni í nokkr- ar mínútur, oft leynist kusk inni í skorpnum blöðum. Siðan er heitu vatni, með ca 2 matskeiðum af sykri, hellt yfir grösin og þau látin bíöa til næsta dags. Þá er suðan látin koma upp á þeim. Eggjarauðurnar eru hrærðar með sykrinum og hræran auk- in með 2 dl af fjallagrasaseyði, grösun- um smátt söxuðum, rommi, súrmjólk og þeyttum rjóma. Þegar hér er komið er rétt að staldra við og bragða á hrærunni. Ganga úr skugga um að ekki vanti í hana meiri sykur, jafnvel seyði eöa romm, áður en stífþeyttum hvítunum og matarlíminu er blandað saman við herlegheitin ó hefðbundinn hátt. Að endingu má minna á að Ferðafé- lag tslands og Náttúrulækningafélagið hafa stundum verið með grasaferðir. Hafa þær mælst vel fyrir og f jölmargir fetaö í fótspor Grasa-Guddu. -sa. til samanburðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarscðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- andi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis- tæki. Nafn áskrifanda i l 1 \ i I I I i I I Síníi l ------- Heftnili I Fjöldi heimilisfólks Kostnaður í júlí 1983. Matur og hreinlætisvörur kr. Annað kr. Alls kr. » SMIÐSBÚÐ BYGGINGAVÖRUVERSLUN GARÐABÆ - SÍMI 44300 UTANHÚSSMÁLNING í PERMA-DXI _______(olíulímmálning)_ 17ARA ending og reynsla á íslandi, 18 litir. Hentar velánýjan og áður málaðan stein, svo og á járn- og asbestklædd hús, bæði veggi og þök. . (olíuvatnsvari) Jt M 1 M Æk r% m Grunnur í sérflokki á þakjárn, lf á hvers konar álplötur, skilti o.m.fl. irrrri- k.p.M. 333 MAÍ i t im Sérstakt gæöakítti til sprunguviðgerða (innþornar ekki). DURATHANE: Sérstak/ega æt/að við g/erísetningu, þéttingar með hurða- og gluggakörmum o.m.fl. ER MÁLNINGIN .. /póstkröfu Verslið hjá fagmanninum FLÖGNUÐ? SZn1!areito\utiör SMIOSBÚO 8 - - LEKUR HÚSIÐ? Go°y Sigurður Pálsson Ken-Orí DRÁTTARBRAUT FYRIR SKIP Getum útvegað dráttarbraut sem tekur a/lt að 70 metra löng og 1200 tonna þung skip með 4 dráttar- brautum ásamt öllum búnaði. FISKVINNSLUVÉLAR Getum útvegað með stuttum fyrirvara nokkrar notaðar 148 og 150 Bater fiskvinns/uvé/ar. Eigum enn- fremur mikið úrval af notuðum rafmagns- og dísillyft- urum af f/estum stærðum til afgreiðs/u strax. VITASTÍG 3, SÍMAR 26455 og 12425.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.