Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1983, Síða 1
Leit leiðangursmanna á Skeiðarársandi ber árangur:
VARIR VfÐ HLUT
ÚRTRÉOGJÁRNI
— á átta metra dýpi. Styrkja þarf stálþilið enn frekar
Á Skeiðarársandi biða menn nú spenntir eftir að sjá hvað leynist i sandin-
um. Að öllum likindum mun það koma I Ijós nú i vikunni, þegar hœgt
verður að dæla vatninu burtu sem nú er innan þilsins. Á myndinni sést
dælupramminn sem sér um að dæla sandinum upp. DV-mynd E.B.
Leitarmönnum á Skeiöarársandi
hefur gengið mun betur aö dæla
sandinum ofan af gullskipinu en í
fyrstu var áætlaö. I gær þegar búið var
aö dæla niður um átta metra uröu þeir
varir við eitthvert stórt stykki úr jámi
og tré en þrátt fyrir tilraunir tókst ekki
aö ná stykkinu upp. Ekki var heldur
hægt aö sjá stykkið vegna þess aö
komið haföi í ljós viö dælinguna, aö
styrkja þurfti þiliö, sem rekið var
niöur allt í kringum skipiö.
Var því gripið til þess ráös aö fylla
upp innan þilsins meö vatni til aö létta
þrýstingnum af þiiinu þangaö til
styrkingu þess væri lokið.
Dælingu á sandinum var engu aö
síður haldiö áfram, en undir vatni og
því ekki hægt aö sjá hvaö leyndist
þaroa í sandinum.
Leiöangursmenn búast viö aö
stjTkingu þilsins veröi lokiö einhvern
næstu daga og þá veröi hægt aö dæla
vatninu ofan af. Þaö má því búast viö
aö síöar í þessari viku fari aö draga til
tíðinda austur á Skeiðarársandi.
SþS
35 hestar flugu utan í morgun:
Eiga ekki afturkvæmt
— þar af 7 gæðingar sem taka þátt í Evrópumóti
íslenskra hesta í Þýskalandi
Þeir vissu ekki alveg hvaðan á sig Nettershein í Þýskalandi sem er þaö Hestamir veröa þvi allir seldir hæst-
stóð veðrið, íslensku hestarnir sem sjöunda í rööinni og fer fram dagana bjóöanda en erlendis er verö fyrir
flugu utan klukkan 8.30 í morgun. 2., 3. og 4. september. Enginn hest- slíka gripi töluvert hærra en hér
Flotið var til Rotterdam og þaöan anna mun eiga afturkvæmt til fóstur- heima.
dreifastþeirvíðsvegarumEvrópu. jaröarinnar því þær reglur gilda hér Það sem af er þessu ári hafa 225
1 hópnum voru 7 úrvalsgæðingar á landi að skepna sem einu sinni er íslenskir hestar haldið utan á móti
og 7 knapar sem taka munu þátt í komin til útlanda má ekki undir neir.- 170ífyrra.
Evrópumóti íslenskra hesta í um kringumstæöum snúa aftur. -EIR.
Sr. Ólafur Skúlason vigslubiskup predikaði við hátiðarguðsþjónust-
una i Skarðskirkju i gær. D V-m yndS veinn
Hátíðarguðsþjón-
usta á Skarði
Mikill mannfjöldi sótti hátíöar-
guðsþjónustu sem haldin var aö
Skaröi í Dalasýslu í gær í tilefni af
því aö endurbyggingu kirkjunnar á
staðnum er nú lokiö. Hlýddu marg-
ir kirkjugesta á guðsþjónustuna úr
hátölurum sem komiö haföi verið
fyrir utan kirkju þar sem hún rúm-
aði ekki alla þá er á vildu hlýða.
Sr. Jón Einarsson prófastur þjón-
aöi fyrir altari, sóknarpresturinn,
sr. Ingiberg J. Hannesson prófast-
ur, flutti ágrip af sögu kirkjunnar
og sr. Olafur Skúlason vígslubiskup
predikaði.
Ábúendur á Skaröi nú eru hjónin
Kristinn Jónsson og Þórunn
Hilmarsdóttir. Svo skemmtilega
vildi til aö í gær voru nákvæmlega
17 ár frá því að sr. Olafur Skúlason
gaf þau saman í hjónaband.
Ætt Kristins hefur búiö aö Skaröi
um langt skeiö eöa allt frá 11. öld.
Mun hann kominn af Húnboga
Þorkelssyni er bjó á staönum í
þann tíð og er Kristinn 26. ættliður-
inn sem situr staöinn.
Gagngerar endurbætur hafa
veriö geröar á Skaröskirkju. Meöal
annars var steyptur undir hana nýr
grunnur, hún einangruö og endur-
byggö að miklu leyti. Þorvaldur
Vilhjálmsson haföi yfirumsjón meö
framkvæmdumviðkirkjuna. -JSS
r íslandsrallið: r
OMAR OG JON
SIGLDU YFIR ÁNA
— rallinu lýkur á morgun
Islandsrallið er nú komiö vel á veg
og aðeins einn dagur eftir. A laugar-
dag var Fjallabaksleið ekin og í gær-
dag Kjalvegur. Staöan aö þessum
leiðum eknurr var sú aö franskir
ökumenn, sem aka á breyttum Aro
jeppa, hafa forystuna en italskir
ökumenn á Range Rover eru í ööru
sæti.
Á eftir þessum köppum koma svo
íslensku keppendurnir, þeir Omar og
Jón á Subaru í þriöja sæti og Þor-
steinn og Gunnlaugur á Lödu Sport í
f jórða sæti.
Hefur Islendingunum gengið mun
betur en búist var viö og sagöi Omar
Ragnarsson í samtali í morgun aö
þeir bræöur heföu mjög gaman af
þessu ralli og væru aö sjálfsögðu
mjög ánægöir meö árangurinn. I gær
sagðist Omar hafa sigít á bíl í fyrsta
sinn er þeir óku yfir á eina í Fljóts-
hlíðinni. Var áin þaö djúp aö bíllinn
náöi ekki niður og því ekkert annaö
aö gera en aö láta sig sigla niöur
ána uns komið væri aö landi hinum
megin.
A morgun veröa siðustu sér-
leiöimar eknar í Islandsrallinu en
það eru Kaldidalur og Hlööufells-
vegur.
-SþS.
Vegna mikilla rigninga undanfarna daga var mjög blautt i Kjalvegi þar
sem ökuþórarnir i íslandsrallinu óku um í gmr. Hór sjást þeir bræður
Ómar og Jón Ragnarssyniré fullri ferðigegnum vatnsagann.
DV-mynd Ó.G.