Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1983, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1983, Blaðsíða 24
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþrótti íþróttir íþróttir íþi DV. MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST1983. Siguröur Lárusson, fyrirliði Skagamanna, sést hér í kröppum dansi við Eyjamennina Ágúst Einarsson (t.v.) og Snorra Rútsson. Slgurður fékk að sjá rauða spjaldið í ieiknum. DV-mynd: Eiríkur J. Sveinbjörn Hákonarsson. Sveinbjörn og þúsund- kallinn Þar sem lið Akurnesinga stillti sér upp til myndatöku eftir bikarsigurinn yfir Vestmannaeyingum í gær kom ókunnur maður aðvifandi og rétti Sveinbirni Há- konarsyni ávísun sem hljóðaði upp á 1.000 kr. og sagði: „Eg hét á þig Sveinbjörn,” og var þar með rokinn án þess að Sveinbjiirn gæti hreyft legg eða lið. Nú hefur Sveinbjörn mikinn áhuga á að ná tali af þessum gjöfuia manni og er því hér með komið á framfæri. Ávísunin var gefin út af Skúla Guömundssyni og frá banka í Vik í Mýr- dai. -AA. „Þýðingar mesta markið” — sem ég hef skoraö/’ sagði Sveinbjörn Hákonarson „Maður er alveg t skýjunum. Þetta er þýðingarmesta mark sem ég hef skoraö á mínum ferli. Leikurinn var góður þótt óþarfa harka færðist í hann á köflum. Þetta var miun þriðji úrslitaleikur og allir hafa unuist. Það er fyrst og fremst góð þjálfun og sam- stilling innan hópsins sem skóp þenn- an sigur. Nú er bara að vinna tvö- falt,” sagði Sveinbjörn Hákonarson, hetja Skagamanna. -AA. Sveinbjörn Hákonarson, sem var maðurinn á bak við sigur Skagamanna í bikarnum í fyrsta skipti 1978, var hetja Skagamanna á Laugardalsvellinum í gær þegar þeir lögðu Eyjamenn að velli 2—1 í fjörugum og skemmtilegum bikarúrslitaleik. 5.152 áhorfendur sáu þennan litla og snaggaralega leikmann skora sigurmark Akraness á 118. mín. og var mark hans afarglæsilegt. Sveinbjöm fékk knöttinn fyrir utan vítateig Eyjamanna og sendi hann með bananaskoti yfir Aðalstein Jóhannsson markvörð —■ knötturinn hafnaði í hliðaraetinu. Geysileg fagnaöarlæti Skagamanna brutust út en enginn var þó glaöari heldur en Sigurður Lárusson, fyrirliði Skagamanna, sem þurfti að horfa á félaga sína berjast úti á vellinum úr glugga búningsklefa Skagamanna. Grétar Noröfjörð hafði vísað honum af leikvelli fyrir fastan leik. Það átti sér stað þegar sjö min. voru eftir af leik- tíma og léku Skagamenn því aöeins 10 það sem eftir var leiksins og í fram- lengingunni. Framiengja þurfti leikinn þar sem staðan var jöfn 1—1 eftir venjulegan leiktíma. — Það var stórkostlegt að horfa á eftir knettinum þegar hann hafnaöi í netinu, sagði Sveinbjörn Hákonarson eftir leikinn. Þaö var Bjami Sigurösson, markvöröurSkagamanna, sem var upphafsmaðurinn að sóknar- lotunni sem Sveinbjöm skoraði úr. Hann spyrnti knettinum langt fram á völlinn þar sem Árni Sveinsson tók við honum og sendi til Júlíusar Ingólfs- sonar sem hafði komið inn á sem vara- maður. Júlíus skaut að marki en þar var Valþór Sigþórsson fyrir og skallaði knöttinn frá marki. Knötturinn hafnaöi fyrir framan Sveinbjörn Hákonarson sem var einn á auöum sjó og skoraði með glæsilegu skoti. Rétt áöur en Sveinbjörn skoraði höfðu Eyjamenn sloppið með skrekkinn — Guöjón Þórðarson, bakvöröurinn haröi, átti þá þrumuskot sem skall á marksúlunni í marki þeirra. Mikill baráttuleikur Greinilegt var að leikmenn Akraness og Vestmannaeyja ætluðu ekkert að gefa eftir á Laugardalsvellinum — þeir börðust hetjulega frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Skagamenn voru meira með knöttinn, en Eyja- menn beittu skyndisóknum sem voru mjög hættulegar. Þaö var hinn eldfljóti ■ ■ — sagði Páll Pálmason Það var heppnara liðið sem vann að þessu sinni. Það hefur sýnt sig að þaö er oft verra fyrir okkur að leika gegn 10 mönnum. Annars var þessi leikur spegilmynd af leikjum okkar í sumar, við nýtum ekki 1 I I I I I færin og fáum á okkur ódýr mörk. Samt sem áður fannst mér þetta I einn besti bikarleikur sem ég hef _ séð, sagði PáU Pálmason, hínn | gamalkunni markvörður Eyja- ■ manna. -AA. ■ og útsjónarsami Tómas Pálsson sem gerði oft mikinn usla i vöm Skaga- manna með hraða sínum og leikni. Þaö voru Skagamenn sem fengu fyrsta marktækifæri leiksins þegar Ámi Sveinsson átti góöa fyrirgjöf fyrir mark Eyjamanna á 10. mín. en Sigþór Ömarsson var of seinn aö átta sig og sóknin rann út í sandinn. Eyjamenn fengu svo þrjú tækifæri til aö skora — fyrst Tómas og síðan Hlynur Stefánsson tvisvar. I annað skiptið bjargaöi Bjarni Sigurðsson meistaralega með úthlaupi eftir að Tómas haföi sent knöttinn til Hlyns sem var í miðjum vítateig. Hörður Jóhannesson fór illa með gott tækifæri þegar hann komst inn fyrir vöm Eyjamanna — í staöinn fyrir að skjóta strax reyndi hann að leika á Áðaistein Jóhannsson, sem náði að bjarga með úthlaupi. Eyjamenn skora Það var svo á 37. mín. að fyrsta mark leiksins kom. Omar Jóhannsson tók þá hornspyrnu og sendi knöttinn til Hlyns Stefánssonar sem náði að leika á tvo Skagamenn og senda knöttinn fyrir markið. Þar var Valþór Sigþórsson á réttum stað og skoraði öragglega af stuttufæri —0—1. Skagamenn komu síöan ákveðnir tii leiks í seinni hálfleik og ætluöu sér aö jafna metin. Aðalsteinn varði meistaralega skalla frá Sigþóri Omarssyni á 58. mín. — kastaði sér flötum í loftinu og gómaði knöttinn. Bikarleik- urinn Hörður Jóhannesson og Sveinbjörn Hákonarson skoruðu mörk Skagamanna. Valþór Sigþórsson skoraði fyrir Eyja- menn. Áhorfendur: 5.152. Liðin sem léku voru þannig skipuð: Akranes. Bjarni Sigurðsson, Guðjón Þórðarson, Jón Áskelsson, Sigurður Lárusson, Sigurður Halldórsson, Árni Sveinsson, Höröur Jóhannesson (Júlíus Ingólfsson), Guðbjöm Tryggvason, Sigurður Jónsson, Sveinbjörn Hákonarson og Omar Sigþórsson. Vestmannaeyjar. Aðalsteinn Jóhanns- son, Viðar Elíasson, Snorri Rútsson, Val- þór Sigþórsson, Þóröur Hallgrímsson, Sveinn Sveinsson, Hlynur Stefánsson, Ágúst Einarsson, Tómas Pálsson, Jóhann Georgsson og Omar Jóhannsson. Eyjamenn réðu ekki við tíu Skagamenn Sveinbjörn Hákonarson var hetja Skagamanna — skoraði sigurmark þeirra (2-1) í framlengingu — Sigurður Lárusson — fyrirliði Skagamanna, fékk reisupassann

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.