Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1983, Qupperneq 5
DV. MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST1983.
5
Heimsmeistaramót æskumanna í Chicago:
Það var stál undir
silkihanskanuml
— og íslensku strákarnir lögðu þá ensku í 5. umf erð
Jón L. Ámason tapaði biöskákinni
gegn Brasib'umanninum Braga úr 4.
umferð og var það dálítið slæmur
ósigur því að skákin var öll í jafnvægi
framan af. Bragabauð jafntefli en Jón
gerðist full gírugur, lagöi of mikið í
stöðuna, eins og skákmenn komast að
orði, og sprengdi sig í sóknartilraunun-
um.
Urðu því úrslit þau aö sveitimar
skildu jafnar, 2—2. Þaðeralkunna
hve erfitt getur verið að tefla af fullum
þrótti eftir slíkan ósigur en Jón L.
sannaöi í næstu atrennu að stál er
undir siikihanskanum og ekki skortir
hann harðfylgina þegar á reynir.
Islendingar tefldu þá við ensku
sveitina sem er þriðja öflugasta sveitin
á mótinu aö alþjóðlegum skákstigum.
Jón hafði hvítt á öðm borði gegn Hebd-
en og tefldi spænska leikinn, náði
dálítið betri stöðu en þó ekki svo að úr-
slitum réði.
Hebden gat um skeið náð vissum
gagnfærum en gætti sín ekki sem
skyldi og þegar hann sá hróksfóm vofa
yfir sér með skelfilegum afleiðingum,
taldi hann sér þann kost vænstan aö
gefast upp, enda var þá mátið fyrirsjá-
anlegt.
— Mér finnst þetta vel af sér vikið,
Jón, að rétta svona vel úr kútnum eftir
ósigurinn gegn Braga, sagði blaða-
maður í símtali viö Jón L. eftir viður-
eignina.
„Uss, ég er búinn að tapa svo oft um
ævidagana að ég er orðinn vanur þessu
og læt þetta sem minnst á mig fá,”
svaraði Jón að bragði.
Skákirnar á hinum borðunum
þremur gegn ensku strákunum voru
harla erfiðar og fóru allar í bið.
Margeir átti mjög í kröggum gegn
Chandler en klóraði í bakkann og hélt
jöfnu.
Jóhann Hjartarson hélt sömuleiöis
sínum hlut fyrir Flear og Elvar fyrir
Hodgson og lauk því 5. umferö með enn
einum íslenskum sigri, 2,5—1,5.
Furðulegt og jafnframt kátlegt at-
vik gerðist er þeir félagar Jóhanns
sátu yfir biðskák hans gegn Flear og
reyndu að finna honum einhverjar
undankomuleiðir til jafnteflis. Þeir
leituöu vel og vandlega en tjáöu honum
svo að staðan væri að vísu gjörtöpuð en
hann skyldi nú samt berjast að
víkingasið til hinsta blóðdropa og féllst
Jóhann á það að athuguöu máli.
Þegar til leiksins kom, þá kom hins
vegar á daginn að í öllum glímuskjálft-
anum höfðu þeir rannsakað vitlausa
stöðu — drottning Jóhanns stóð á mun
hagstæðari reit en þeir höfðu sett hana
á og átti Jóhann þá ekki í neinum
telj andi erf iðleikum með vömina.
-BH.
Þeir eru kampakátlr, strákamir í íslensku skáksveitinni á beimsmeistaramóti æskumanna í Chlcago, enda hafa
þeir sma ástsðu til þess að gleðjast eftir stórgissilega frammistöðu. Efst til vinstri stendur Margeir Pétursson
sem teflir á 1. borði, við hlið hans Jón L. Ámason á 2. borði, Karl Þorsteins í fremri röð til vinstri teflir á 4. borðl,
Jóhann Hjartarson fyrir miðju teflir á 3. og Elvar Guðmundsson til hsgri er varamaður.
DV-mynd E J.
NÝJA STRENGJASVEITIN
HELDUR TVENNA TÓNLEIKA
Nýja strengjasveitin heldur
tónleika í Ytri-Njarðvík mánudaginn
29. ágúst klukkan 20.30 og í Bústaða-
kirkju á þríöjudag á sama tíma.
Sveitina skipa tuttugu strengja-
leikarar sem æft hafa reglulega frá
árinu 1980. Helmingur félaganna
leikur með Sinfóníuhijómsveit fslands
en hinir eru við tónlistamám.
Stjórnandi á tónleikunum verður
Josef Vlach frá Tékkóslóvakíu. Hann
hefur unniö með sveitinni á námskeiði
aö undanfömu og gefur árangurinn að
heyra á tónleikunum fyrrnefndu.
-EA.
Nýja strengjasveitin.
Póstsendum
Barnaúlpur kr. 1785.
Unglingaúlpur kr. 1785.
Fullorðinsúlpur kr. 2635.
Puma og Nike
skór í miklu úrvali.
ÍÞRÓTTABÚÐIN
Borgartúni 20, sími 20011.
V0RUM AÐ FÁ
HINARVINSÆLU
Flug og bfll
á eínstöku verði
Við bjóðum flug til Amsterdam og glæsilegan bílaleigubil á verði
sem á sér enga hliðstæðu í íslenskum ferðatilboðum.
Brottfarardagar:
September: 2, 9, 20.
Verð frá kr.9.706.-
Miðað við fjóra i bilaleigubíl í A-flokki í eina viku.
Barnaafsláttur kr. 4.00C.
Innifalið: Flug til og frá Amsterdam, bílaleigubill, ótakmarkaður
kílómetrafjöldi, allar nauðsynlegar tryggingar, og söluskattur.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTR/ET112 - SÍMAR 27077 & 28899