Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1983, Síða 40
40
DV. MANUDAGUR 29. ÁGUST1983.
Edvard Frimannsson leiösögumaöur
lést 13. ágúst sl. Hann fæddist í Borgar-
nesi 28. ágúst 1917, sonur hjónanna
Margrétar Runólfsdóttur og Frímanns
Frímannssonar. Hann lauk prófi frá
'Verslunarskóla Islands áriö 1936, fór
síðan til Bandaríkjanna og dvaldi þar í
nokkur ár. Eftir dvölina þar fór hann
til Tékkóslóvakíu. Að lokinni dvöl þar
sneri hann heim til Islands og setti með
stuttu millibili á stofri þrjár tískuversl-
anir við Laugaveginn, en síðustu árin
starfaöi hann sem leiðsögumaður er-
lendra ferðamanna. Edvaid kvæntist
Ástu Láru Jónsdóttur og eignuðust þau
þrjú böm. Þau slitu samvistum fyrir
nokkrum árum. Utför Edvards verður
gerðfrá Dómkirkjunniídag kl. 1.30.
Jóhannes Ö. Guðmundsson, viöskipta-
fræðingur, Melabraut 47 Seltjarnar-
nesi, veröur jarðsunginn frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 30. ágúst
kl. 13.30.
Georg Pálsson lést í Hafnarbúðum 25.
.ágúst.
Asta Margrét Guðlaugsdóttir,
Miklubraut 42, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í Reykjavík miðviku-
daginn 31. ágúst nk. kl. 15.
Ágústa Gróa Skúladóttir, Víðimel 23,
andaðist í Landakotsspítala 25. ágúst
sl.
Andrés Andrésson framkvæmdastjóri
lést 16. ágúst sl. Hann var fæddur
1. nóvember 1928 á Stöövarfirði. For-
eldrar hans voru Andrés Karlsson og
Vilfríður Þórunn Björnsdóttir. Andrés
lauk prófi frá Verslunarskóla Islands
1947 og stundaði síðan verslunarstörf
og bókhald í Reykjavík. Hann varð
framkvæmdastjóri rafvirkjadeildar
Sameinaðra verktaka 1954 (nú raf-
virkjadeildin hf.) og veitti forstöðu
skrifstofu ákvæðisvinnunefndar FLRR
og FlR frá upphafi til dauðadags.
Nokkur síðustu árin var hann einnig
stundakennari í bókfærslu við meist-
araskóla Iönskólans í Reykjavík.
Eftirlifandi kona hans er Pálína
Björnsdóttir. Eignuöust þau tvö böm.
Utför Andrésar verður gerð frá Foss-
vogskirkju í dag kl. 13.30.
Ásgrímur Þorgrímsson bóndi, Borg
Miklaholtshreppi, andaöist í sjúkra-
húsi Akraness 25. ágúst.
Guðbrandur Þorkell Sæmundsson veit-
ingaþjónn, er andaðist 23. ágúst,
verður jarðsunginn þriðjudaginn 30.
ágúst kl. 13.30 frá Fossvogskirkju.
Sólveig Bjarnadóttir Ansnes, sem and-
aðist aðfaranótt 21. ágúst, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni
þriöjudaginn 30. ágúst kl. 15.
Ólafur Tryggvason, Brekkustíg 14
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 30. ágúst
kl. 10.30.
Tónleikar
Maestro Vlach kominn
, aftur til landsins
Nýju strengjasveitinni hefur með aðstoð
Flugleiða tekist að fá tékkneska fiðluleikar-
ann og stjórnandann Josef Vlaeh til samstarfs
áný.
Vlach lék um árabil í kvartett sem við hann
var kenndur og ferðaðist víða um heim til tón-
leikahalds. A seinni árum hefur hróður hans
sem hljómsveitarstjóra farið mjög vaxandi
og hefur hann komið fram sem stjórnandi
bæði í Evrópu og Ameríku. Hann er nú aðal-
stjórnandi Tékknesku kammersveitarinnar.
Vlach hefur einnig starfað mikið að því að
leiðbeina ungum strengjaleikurum og þykir
þar hafa náð frábærum árangri.
Nýja strengjasveitin, sem nú er skipuð 20
manns, hóf æfingar með Vlach í Kvenna-
skólanum í Heykjavík sl. laugardag. Þetta er
í annað sinn sem Josef Vlach kemur hingað á
vegum sveitarinnar, en hann stjórnaöi á tón-
leikum hennar í Reykjavík fyrir tveimur
árum.
Nýja strengjasveitin fyrirhugar tvenna tón-
leika í byrjun næstu viku, í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju mánudaginn 29. ágúst og í Bústaða-
kirkju þriðjudaginn 30. ágúst. A efnisskránni
verða verk eftir Purcell, Mozart, Janacek og
Britten.
Bergþóra Árnadóttir
lýkur tónleikaferð sinni
á Húsavík í kvöld
Söngkonan landskunna og lagasmiðurinn,
Bergþóra Arnadóttir, hefur verið á tónleika-
ferð um Austurland. Hefur hún sungið á
vinnustöðum verkalýðsfélaganna á Höfn í
Hornafirði, Neskaupstað og Seyðisfirði og
mun hún ljúka þeim í kvöld meö því að syngja
í Félagsheimili Húsavíkur kl. 21. Á efnisskrá
eru m.a. lög af væntanlegri plötu hennar,
Afturhvarfi.
Tilkynningar
Ný Ijóðabók
á markaðinn
Hið nýstofnaöa útgáfufélag Bjartsýn s/f hefur
nú sent frá sér sína fyrstu bók. Nefnist hún
tuttugu og 2 skapakossar og er eftir húsföður-
inn Ágúst Hjört.
Eins og nafn bókarinnar bendir til eru í
bókinni 22 ljóð enda er höfundurinn réttra 22ja
ára. Ljóðin eru ort síðustu 22 árin. Bókin er 70
blaðsíður, kostar 200 kr. og hana er hægt að fá
hjá Eymundssyni, Bókhlööunni og í Bóksölu
stúdenta. Upplag er mjög takmarkað, aöeins
200 eintök, svo aö hafi menn áhuga á aö
tryggja sér eintak er betra að hafa hraöan á.
Lalli prentaði.
Hvað er til ráða þegar
slys ber að höndum?
Reykjavíkurdeild RKl beitir sér nú sem oft
áður fyrir því að halda námskeið í skyndi-
hjálp. Nú gefur deildin kost á námskeiði í al-
mennri skyndihjálp og hefst þaö 1. sept.
Námskeiðiö verður haldiö í húsnæöi RKI aö
Nóatúni 21. Þeir sem vilja taka þátt í
námskeiðinu geta látiö skrá sig að öldugötu 4,
sími 28222.
Á námskeiðinu veröur fariö í skyndihjálp
við ýmiss konar slys og óhöpp. Auk þess
verður blástursaðferðin kennd, farið í mark-
vissa skyndihjálp á slysstað og sýndar fræö-
andi myndir þar að lútandi.
Hér gefst fólki gott tækifæri til að afla sér
undirstööumenntunar eöa rifja upp fyrri
þekkingu í þessum efnum og læra til hlítar
meginatriði skyndihjálpar.
Á norrænu umferðaröryggisári hvetur RKl
fólk til að bæta skyndihjálparkunnáttu sína.
Þeir sem hafa látið skrá sig áður og ekki mætt
eru beðnir um að skrá sig aftur.
Námskeiðinu lýkur meö verkefni sem hægt
er að fá metið í fjölbrautaskólum og iön-
skólum.
Allir þátttakendur fá skjal til staðfestingar
á þátttöku í námskeiðinu.
Bliki, rit er fjallar
um fuglalíf á
íslandi,
Ritið er gefið út af dýrafræðideild Náttúru-
fræðistofnunar Islands, í samvinnu við fugla-
verndarafélag Islands og áhugamenn um
fugla.
Bliki er fyrsta rit sinnar tegundar sem gefið
er út hér á landi. Þar er ætlunin að birta sem
fjölbreytilegast efni um islenska fugla, bæði
fyrir leikmenn og læröa. Ahersla verður þó
lögð á nýtt efni sem hefur ekki birst áður á
prenti.
Bliki mun koma út óreglulega en a.m.k. eitt
hefti á ári. Þeim sem óska að fá ritið sent er
boðið að vera á útsendingarlista. Þetta fyrsta
hefti Blika kostar kr. 130. Innheimt er með
gíróseðli. Afgreiðsla ritsins er á Náttúru-
fræðistofnun Islands, Laugavegí 105, 125
Reykjavík, en síminn er (91J-29822.
Norræn lyfjatækna-
ráðstefna í Reykjavík
Dagana 3.-6. september nk. verður haldin að
Hótel Holti Reykjavík norræn ráðstefna
Lyfjatækna.
Ráðstefna þessi, sem er liður í samvinnu
lyfjatækna á Norðurlöndunum, er haldin
annað hvert ár og er þetta í fyrsta sinn sem
hún er haldin hér á landi.
A ráðstefnunni verður rætt um brýnustu
hagsmunamál lyfjatækna á Norðurlöndun-
um, en þau eru meðal annars menntun lyfja-
tækna, kjaramál og tölvuvæðing apóteka.
Auk fundarhalda munu ráðstefnufulltrúar
ferðast um landið og meðal annars fara til
Vestmannaeyja og um Suðurlandsundirlend-
ið.
Formaður undirbúningsnefndar ráðstefn-
unnar er Herdís Á. Sæmundardóttir.
Lyfjatæknafélag Islands er stofnað árið
1976 og gerðist aöili að samstarfi norrænna
lyfjatækna árið 1979. Formaður félagsins er
Arndís Jónsdóttir.
75 ára er í dag, 29. ágúst, Maris har-
aldsson frá Bolungarvík, Kleppsvegi 2
Rvík.
’ FYRIRTÆKI -
ATVINNUREKENDUR -
Samkvæmt fjölmiðlakönnun
Hagvangs er langhagstæð-
ast að auglýsa í VIKUNNI
af íslenskum tímaritum. -
Kostnaður auglýsenda við
að ná til hvers lesanda er
lægstur hjá VIKUNNI.
Auglýsingasími
VIKUNNAR er
85320.
85 ára er í dag, mánudaginn 29. ágúst,
frú Ágústa Jónasdóttir, Yrsufelli 28,
hér í Reykjavík. Eiginmaöur hennar
var Leópold Jóhannesson, sem er
látinn. Þau bjuggu lengst af vestur á
Hringbraut 88 hér í bænum. Á afmælis-
daginn ætlar Ágústa aö taka á móti
gestum sínum á heimili dóttur sinnar
að Sævangi 2 í Hafnarfirði.
Tapað -fundið
Guðbrandur týndur
Brandur er ókominn heim. Vitað er um að
keyrt var yfir kött við Sóleyjargötu sl. laugar-
dag. Ef einhver getur gefið upplýsingar um
það er hann vinsamlegast beðin að hringja í
síma 23611 að Laufásvegi 2a.
Tvö ár um
tvítugt
Meinleg prentvilla læddist inn í
helgarblað DV um þessa helgi.
Á forsíðu helgarblaðsins hamaðist
prentvillupúkinn og skrumskældi
fyrirsögn á þá leið að 20 ár væru liðin
frá því Austur-Þjóðverjar hófust
handa um að reisa Berlínarmúrinn.
Þetta er að sjálfsögðu ekki rétt. Eins
og fram kemur í meginmáli greinar-
innar eru 22 ár frá þessum atburði.
Bella
Það er skammarlegt að það skuli vera
að fara úr tísku að baða sig nakinn, nú
þegar ég er búin að léttast um eitt kíló.
SMÁAUGLÝSINGADEILD
sem sinnir smáaug/ýsingum, myndasmáauglýsingum og þjónustuauglýsingum erí
ÞVERHOLT111
Tekið er á móti venjulegum smáauglýsingum þar og i sima 27022:
Smáauglýsingaþjónustan er opin frá kl. 12—22 virka daga og laugar-
daga kl. 9—14.
Virka daga kl. 9 — 22,
laugardaga kl. 9 — 14,
sunnudaga kl. 18 — 22.
Tekið er á móti myndasmáaugiýsingum Og þ/onvstuauylýsingum
virka daga kl. 9—17.
ATHUGIÐ!
Ef smáauglýsing á að birtast i helgarblaði þarf hún að hafa borist
fyrirkl. 17 föstudaga.
SMÁAUGLÝSINGADEILD
Þverholti 11, simi 27022.