Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1983, Blaðsíða 1
Albert vill selja
18 fyrírtæki:
Frumvörp-
unum illa
tekiö
— í röðum samráð-
herra hans
Fjármálaráðherra, Albert Guð-
mundsson, hefur látið semja frum-
vörp um sölu á át ján ríkisfyrirtæk j-
um sem heyra undir hin ýmsu
ráðuneyti.
Viðbrögð samráðherra fjármála-
ráðherra vegn framtaks hans hafa
verið mjög mismunandi, að þvi er
fram kemur í morgunblööunum.
Sverrir Hermannsson iönaðarráð-
herra kveöst sjálfur muni búa til
lagafrumvörp um sölu á fyrirtækj-
um sem heyri undir hans ráðuneyti
og þurf i hann enga aðstoð til þess.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra segir það ekki hlut-
verk fjármálaráðherra að semja
sbk frumvörp. Geir Hallgrímsson
segir samstarfsflokkinn mótfallinn
sölu á fyrirtækjum er heyra undir
utanrikisráðuneytið. Er þar um að
ræða Sölunefnd varnarliöseigna og
Fríhöfnina í Keflavík.
Ekki tókst að ná tali af viðkom-
andi ráöherrum i morgun þar sem
þeir voru i móttöku, en blaðiö mun
ræða siöar við þá um þetta máL
-JSS
Landhelgisgæslumenn stóðu heiðursvörð meðan kistur mannanna tveggja voru bornar úr varðskipinu i
vikurhöfn imorgun. Þyrlan sést fjær. DV-mynd GVA
ÞYRLAN TF-RAN TIL
REYKJAVÍKUR
Varöskipið Oðinn kom í morgun til
Reykjavíkur með flak þyrlunnar TF-
RÁN og lík þeirra tveggja manna sem
þegar hafa fundist..
Annað varðskip er komið í Jökulfirði
til að stjóma leit að þeim tveimur
mönnum sem eru ófundnir. Leitað
verður með þyrlu í dag ef veður leyf ir.
Vika er liðin ffá flugslysinu. Þyrlan
stakkst i sjóinn um klukkan 23 aö
kvöldi þriöjudagsins 8. nóvember og
sökk niður á 84 metra dýpi.
Á miðvikudag kom þúst inn á dýptar-
mæla leitarbáta. Áfimmtudag tókst að
nema sendingar neyðarsendis .
Neðansjávarmyndavélar staðfestu síð-
an að flakið væri f undið.
Flugslysanefnd stjómar rannsókn
slyssins. Hún mun fá aðstoð þyrlusér-
fræðings frá öryggisnefnd samgöngu-
mála í Bandaríkjunum sem væntan-
legur er til Islands í dag. Hérlendis er
einnig staddur fulltrúi Sikorsky-verk-
smiðjanna.
Rannsóknin mun að líkindum taka
nokkrar vikur. Mikið ríður á að komast
að því hvað genst hefur því fjöldi sams
konar þyrlna flýgur víða um heim.
-KMU
sjá einnig á bls. 2 og á baksíðu
Egætlaðialltaf
íbændaskóla
— sjá viðtalið bls. 11
Tölvur,
heimili, konur
- sjá Tíðarandann
á bls. 34 og 35
Ringómeð
tværí takinu
— sjá Sviðsljósið
á bls. 36 og 37
Teinarétturí
tilraunaeídhúsi
— sjá Neytendur
ábls.6og7