Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1983, Blaðsíða 11
DV. MIÐVDCUDAGUR16. NÖVEMBER1983
11
„tg ætlaðialltaf í bændaskóla, ”
— segir Álfhildur Ólafsdóttir, yf irkennari Bændaskólans á Hólum
Bændaskólarnir eru í margra
augum háborg karlasamfélagsins en
þegar betur er aö gáö reynist svo
ekki vera.
„Þessi ímynd er svolítiö röng,”
segir Álfhildur Olafsdóttir.
Og Álfhildur veit um hvaö hún er
aötala þvi aö sjálf er hún yfirkennari
Bændaskólans á Hólum.
Álfhildur lauk kandídatsprófi í
búfræöum frá búvísindadeild
Bændaskólans á Hvanneyri áriö
1981. Sama haust hóf hún kennslu á
Hólum og 1982 var hún gerð aö yfir-
kennara.
— Er þaö ekki óvenjulegt að konur
kenni viö bændaskóla, hvaö þá aö
þær séu yf irkennarar?
„Þaö verður aö teljast svo. Þaö
hafa að vísu konur kennt viö báöa
bændaskólana en ég held aö ég megi
fullyrða aö þær hafi ekki kennt al-
menna búfræöi.”
Alfhildur á ekki langt aö sækja
áhuga sinn á búfræöinni því aö hún
er úr sveit, frá Geröi í Hörgárdal,
þar sem hún hefur dvalið mestan
hluta ævi sinnar.
„Eg ætlaöi alltaf í bændaskóla,”
segir hún, og bætir því viö aö
búvísindadeildin hafi orðið ofan á
þegar hún fór aö huga aö framhalds-
námi eftir stúdentspróf.
— En hvers vegna gerðistu ekki
bara bóndi?
, JEf maður ætlar aö veröa bóndi er
mikilvægt að afla sér annarrar þekk-
ingar en lærist af reynslunni. Eg er
heldur ekki enn komin aö fótum fram
og þaö er aldrei aö vita hvaö maður
gerir.”
— Áttu þér einhverjar uppáhalds-
skepnur?
„Þaö eru þá helst kýmar. Þaö eru
svo margir, sem halda upp á hrossin
ogsauöféð.”
— Hvers vegna kýr?
, JVlaöur veit hvar maöur hef ur þær
en ég vil ekki gera upp á milli þeirra.
Skepnur hafa sín einstaklingsein-
kenni.”
— Blessaöar kýmar eru þá ekki
allareins?
„Því fer víðsfjarri. Þær hafa
býsna sterka skapgerð og geta verið
bæöi skapgóöar og skapvondar.”
— Hvaö gera bændur svo, þegar
ekki er verið aö vinna?
„Það er erfitt aö tíunda þaö en ég
dútla viö hitt og þetta. Eg hef gaman
af að lesa og þaö fer mikill tími í þaö.
Ég les allt sem aö kjafti kemur, eins
og sagt er,” segir Álfhildur Olafs-
dóttir, yfirkennari Bændaskólans á
Hólum.
-GB.
Þorvaldur Mawby í málgagni sjálfstæðismanna
r á Selt jamarnesi:
Ibúðir Byggungs 52
prósentum ódýrarí en
Verkamannabústaðir
félaginu Byggung aö 3 herbergja
íbúöir sem fyrirtækiö er að byggja á
Seltjamarnesi séu 52% ódýrari en
sambærilegar íbúöir hjá Verkamanna-
bústööum.
1 Seltirningi segir Þorvaldur Mawby
m.a.: „Þeir (þ.e.a.s. Verkamanna-
bústaöirnir) eru aö byggja hérna
nánast viö hliöina á okkur og kynntu
nýlega verölagiö hjá sér. Þeir selja 3
herbergja íbúöina á 1,5 milljónir, —
okkar verö á íbúðum sem byggöar eru
á sama tíma er 987 þúsund krónur eða
52%ódýrara.”
Þorvaldur segir ennfremur aö verð-
mismunurinn stafi ekki af því að íbúö-
irnar hjá Verkamannabústöðunum séu
vandaðri en hjá Byggung. „Þeir nota
svalaganga húsanna sem inngang sem
er langtum ódýrari lausn en hjá okkur.
Þakformið á okkar húsum er dýrara
en hjá Verkamannabústöðunum og
loks má geta þess aö viö notum ein-
göngu fyrsta flokks byggingarefni sem
viö flytjum sjálfir inn í magninn-
kaupum og gera innkaupin stórum
hagstæöari en hjá öörum aðilum í
byggingariönaöinum,” segir Þor-
valduríSeltirningi.
Þá er einnig haft eftir Þorvaldi aö
ekki sé fýsilegt fyrir kaupendur hinna
félagslegu íbúða að taka viö þeim því
framtíöin sé ófögur. „Þeir skulda
kerfinu 1350 þúsund krónur sem trú-
lega gerir þá gjaldþrota á næstu 10—15
árum ef lánskjaravísitalan heldur
áfram að hækka umfram vísitölu
kaupgjalds eins og hún hefur gert.”
Samkvæmt upplýsingum Seltirnings
mun fyrsti áfanginn í blokkunum sem
Byggung er aö reisa við Austurströnd
á Seltjarnamesi veröa tilbúinn til
afhendingar næsta vor.
-EIR.
YGGUNG:
52% ODYRARI
SELTIRNINGUR fór á fund
rvaldar Mawby. fram-
æmdastjóra Byggung í lok síð-
[u viku. Eftir nokkra leit fund-
[ skrifstofur Byggung við Sól-
agsbrautina. Þær eru í vinnu-
íir við fremur frumstæðar að-
eður, en fullnægjandi að sögn
rfsmanna fclagsins.
„Já, það er rétt, við gctum ckki
nað séð en að fjórði áfangi
kar, fyrsta blokkin af sex við
isturströnd sé langtum ódýrari
hjá Verkamannabústöðunum.
ir eru að byggja hérna nánast
1 hliðina á okkur og kynntu
lega verðlagið hjá sér. Þelr
Ija 3 herbergja Ibúðina á 1,5
lljónir, — okkar verð á íbúðum y
n byggðar eru á sama tima er i
7 þúsund eða 52% ódýrari.“
— En væntanléga stafar mun-
urinn af vandaðri frágangi
Vcrkamannabústaðanna?
„Nei. svo er nú ekki. Verka-
mannabústaðirnir eru byggðir á
mjög þröngu skipulagi, þar er
reynt að hrúga saman mörgum
íbúðum á eins lítinn blett og hægt
er vegna jarðvegsdýptarinnar.
í öðru lagi nota þeir svalaganga
húsanna sem inngang, sem er
langtum ódýrari lausn en hjá
okkur, því við erum með lokuð
stigahús, sem er dýrari kostur en
hentar okkar veðráttu. I þriðja
lagi er þakformið á okkur húsum
dýrara en það sem Verkamanna-
bústaðirnir nota. Og loks má geta
þess að við notum einungis fyrsta
flokks byggingavöru sem við
flytjum inn sjálfir í magninn-
kaupum, sem gera innkaupin
stórum hagstæðari, en aðrir aðilar
í byggingariðnaði gera.
Þorvaldur sagði að hann gæti
með engu móti séð árangurinn
sem nást átti með byggingu 170
félagslegra íbúða Verkamanna-
bústaðanna við Eiðsgranda. Þær
byggingar ættu í raun stóran j
að koma byggingarsjóði »
greiðsluþrot. S.l
Verkama**
þátt
icira er
1350
Ttíi trúlega gerir
á næstu 10%15 árum
"T tanskjaravisitalan heldur áfram
I að hækka umfram visitölu kaup-
gjalds eins og hún hefur gert.
„Það er augljóst að ef þær 225
milljónir sem Verkamannabú-
staðir sölsuðu til sin til 170 ibúða,
hefðu farið til einstaklinga, þá
hefðu 580 einstaklingar notið
lánanna frá húsnæðismálastjórn.
Ég tel því einsýnt að þcssar svo- i
kölluðu félagslegu byggingar séu !
ekki bara þarflausar heldur einn-
ig þjóðhagslcga óhagkvæmar.
Þctta Verkamannabústaðakerfi
ber því að leggja niður, en veita I
fjármagninu sem til Verka-
mannabústaðanna streymir 1
hindrunarlaust til einstaklinga og I
fyrirtækja i byggingariðnaði.
Verkefni By^gung við Austur-
strönd er stórt. Þarna er búið að I
aka burt 15—20 þúsund rúm- '
metrum af jarðvegi, þannig að I
gamla Plútó-brekkan er horfin. í
hcnnar stað koma 8 blokkir, 6 og
8 hæða. Sú fyrsta er að heita má
uppsteypt. Á jarðhæðum 6 hæða I
blokkanna verða verslanir og
skrifstofur en verslanir í 8 hæða |
blokkqnum.
íbúatala Seltjarnarnes«
taka mikið stökk
þcgar íbú^^
•jar-
Tast stórlega I
til hins 1
Fyrsti áfanginn í Austurstrand-
arblokkunum á að verða tilbúinn
til afhcndingar næsta vor. Þegar
hefur verið byrjað á næstu
blokkarbyggingu, og síðan verður
haldið áfram koll af kolli, þar til
verkefni Byggung er lokið. Sann-
arlega vonum við að sami gang-
urinn verði á framkvæmdunum.
I grein í Seltirningi, málgagni sjálf- haldið fram og vitnað í Þorvald
stæðismanna á Seltjamarnesi, er því Mawby hjá byggingasamvinnu-
„Því fer vfðsfjarri að kýrnar séu allar elns. Þ*r hafa býsna sterka skapgerð,”
segir Álfhildur Ólafsdóttir, yfirkennari á Hólum. DV-mynd Bj.Bj.
„Þetta er bara
leikur að tölum”
— segir Ríkharður Steinbergsson, formaður
st jómar Verkamannabústaða
„Samkvæmt þeim tölum sem birtast
í Seltimingi fæ ég ekki séð aö íbúðir
Byggungs séu 52% ódýrari en Verka-
mannabústaöirnir. Ef gengiö er út frá
þeim tölum sem þarna eru birtar og
haföar eftir Byggungsmönnum sjálf-
um þá reiknast mér til aö íbúöir þeirra
séu 34,2% ódýrari en okkar,” sagöi
Ríkharöur Steinbergsson, fram-
kvæmdastjóri stjórnar Verkamanna-
bústaðanna. Sagöi hann að stóri
munurinn i þessum veröútreikningum
Rikharður Steinbergsson, Verka-
mannabústöðum: — Krónur ekki
færðar til verðlags í dag.
væri sá aö hér væru lagðar saman
krónutölur sem ekki væm færöar til
verðlags í dag. „Þeir hjá Byggung
láta fólk greiða stórar fjárhæðir fyrir-
fram þannig aö fjármagnskostnaöur-
inn liggur á kaupendum sjálfum en er
ekki reiknaöur inn í endanlegt verö
íbúðanna eins og gert er hjá okkur.
Þetta er allt leikur að tölum,” sagði
Ríkharður.
„Þaö er fjölmargt annaö í grein
þessari í Seltirningi sem stenst ekki
nánari skoðun. T.d. er því haldið fram
aö svalagangar eins og hjá okkur sé
ódýrari lausn en annað. Þaö er al-
rangt. Einnig er sagt aö þaklag Bygg-
ungsbygginganna sé dýrara en okkar.
Eg veit ekkert um þaö, hvorki um
kostnaðinn né þaklagið, því aö síðast
þegar ég sá var ekki komiö þak á hús
það sem hér um ræðir. Einnig er því
haldið fram að kaupendur okkar skuldi
kerfinu 1350 þús. kr. og þaö muni
gera þá gjaldþrota á næstu 10—15
árum. Samkvæmt mínum útreikning-
um eru mánaðargreiöslur af slíkri
skuld til okkar um 3000 krónur á
mánuöi og geta menn deilt um þaö af
vild hvort slík upphæð geri einhvem
gjaldþrota,” sagði Ríkharður Stein-
bergsson. -EIR.
IMEGINA TRIÐUM RÉTTEFTIR HAFT framkvæmdastjóri Byggungs
„Það er í meginatriðum rétt eftir
mér haft í grein þeirri sem birtist í
Seltirningi þar sem borið er saman
verö á þriggja herbergja íbúðum frá
okkur og hins vegar Verkamanna-
bústööum,” sagði Þorvaldur Mawby
hjá Byggung. „Það sem veriö er að
bera saman eru íbúöir sem viö höfum
byggt viö Keilugranda á sama tíma og
Verkamannabústaðirnir byggðu sínar
íbúöir viö Eiöisgranda. Eini mis-
skilningurinn sem slæöst hefur inn í
greinina í Seltirningi er sá að þar eru
íbúðirnar fluttar af Keilugranda út á
Austurströnd og einnig er sagt að íbúð-
ir okkar séu 52% ódýrari en Verka-
mannabústaöirnir. Hið rétta er aö
íbúðir okkar eru 34,2% ódýrari, en
Verkamannabústaðirnir 52% dýrari.
Þessi smávægilegi misskilningur
breytir þó engu um staöreyndir
málsins.”
Þorvaldur sagði aö verð íbúöanna
væri að sjálfsögöu framreiknað á verð-
lag dagsins þegar samanburöurinn fór
fram og þá hefði munað rúmlega hálfri
milljón.
„Ef það skýrir eitthvað málið þá get
ég greint frá því að um 82% af því fólki
sem byggir hjá okkur hér í Byggung er
undir því tekjuhámarki sem sett er
fyrir þá sem rétt hafa til íbúðakaupa
hjá Verkamannabústöðunum og þeir
gætu því eins keypt sínar íbúðir þar.
Þaö er þó staðreynd aö færri komast
aö hjá okkur en vilja.”
Sagði Þorvaldur Mawby aö ástæöa
þess aö fólk sæktist eftir aö kaupa íbúð-
ir í gegnum Byggung væri sú að þeir
geröu fólki kleift aö greiða íbúðir sínar
á löngum tíma; föst útborgun og jafnar
mánaðargreiðslur í 40 mánuöi.
„Ef íbúö í Verkamannabústöðum
kostar 1,5 milljón, hvers vegna kaupir
fólk þá ekki frekar á frjálsum markaöi
þar sem svipuð íbúð kostar í dag ekki
nema 1300 þúsund krónur? Eg hef áöur
lýst þeirri skoðun minni aö tími sé
kominn til aö opinber rannsókn fari
fram um við hvaö byggingarverð í
landinu miðast. Þar virðast viðmið-
anirnar vera fleiri en ein,” sagði Þor-
valdur Mawby, framkvæmdastjóri
Byggungs.
-EIR.
Þorvaldur Mawby, Byggung: — Vlð
erum ódýrari.