Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1984, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1984, Qupperneq 11
DV. MANUDAGUR 2. JANUAR1984. 11 VIÐTALIÐ: VIÐTALIÐ: VIÐTALIÐ: „Skepnumar forðast mig” — segir Magnús H. Guðjónsson, nýbakaður dýralæknir „Þetta er kref jandi starf og oft á tíö- um er maður örvæntingarfullur, þegar maöur er með skepnur, sem erfitt er aö lækna, sérstaklega þegar ekki eru til þau tæki sem þyrfti.” Þetta sagöi Magnús Hinrik Guöjóns- son, svo til nýbakaður dýralæknir, í samtali viö DV, þegar hann var spurö- ur um starfiö. Starf dýralæknisins hefur löngum verið sveipaö rómantískri hulu í- margra augum. Magnús var spuröur hvort svo heföi verið um hann. „Já, ég fór út í þetta vegna þess aö mér þótti vænt um skepnur,” sagði hann, en bætti svo viö. „En nú er maö- ur í þeirri stöðu aö skepnur foröast mann því þær þekkja mann af iiiu einu, eins og stinga í þær sprautum. Þannig aö rómantíkin vill nú mást af viöþetta.” Magnús hefur starfað sem aö-' stoöarmaöur Brynjólfs Sandholt héraösdýralæknis, jafnframt því sem hann hefur starfaö sem sjálfstæður dýralæknir. Hann var spuröur hvemig vinnudagur dýralæknisins væri. „Vinnudagurinn byrjar kl. 10. Þá förum viö í aögerðir á gæludýrum fram undir hádegi. Eftir hádegi keyrum viö út í vitjanir til stóru dýr- anna, hestanna og kúnna, og erum aö því fram eftir degi. ” Þegar þeim vitjunum er lokið, er síöan einn dýralæknir á vakt á stofunni milli kl. 16 og 18. Og loks fylgir starfinu aö vera á kvöld- og næturvakt eina vikuísenn. Aögerðirnar sem dýralæknirinn framkvæmir á gæludýrunum em hinar fjölbreytilegustu. Þar má nefna ófrjó- semisaögerðir á tíkum og læðum, geld- ingu á karldýrum, eymaaögeröir og lækningar á minniháttar beinbrotum. Þá eru æxli fjarlægð og ungar teknir meö keisaraskurði, aö ógleymdum slysatilfellunum. Magnús læröi dýralækningar í Osló og sagöi hann aö þetta væri mjög strangt 5 1/2 til 6 ára nám. Áöur en hann hóf þetta nám haföi hann verið; einn vetur í bændaskólanum á Hvann- eyri og tvo vetur í landbúnaðarhá- skólaíKanada. — Ertu kannski ættaður úr sveit? „Nei, ég er Reykvíkingur. Mér virð- ist að þeir sem fara í dýralækningar séu jafnt úr þéttbýli og sveit.” i — Á dýralæknirinn svo sjálfur skepnur? „Eg átti hund í niu ár, en þaö er þvi miöur nýbúiö aö lóga honum, og ég hef :átt hesta í fjöldamörg ár,” sagði Magnús Hinrik Guðjónsson dýralækn- ir. -GB Þetta er krefjandistarf og ofti tíðum er maður örvmntíngarfuUur,"segir WagnúaH. Guðfónssondýraimknir. DV-myndBJ.BJ. Kópasker: Röndótt jóladagskrá sjónvarps Frá Auðuni Benediktssyni, fréttarit- ara DV á Kópaskeri. Jólaveður hér á noröausturhominu var með eindæmum gott og upp úr kl. 21 á aöfangadagskvöld mátti sjá loga á kertum í gluggum flestra húsa hér i þorpinu sem tákn um friðarvilja. Jólamessa var hér á jóladag og var hún vel sótt sem vera ber á hátíö ljóss og friðar. Kvenfélagskonur stóðu fyrir barnaskemmtun á 2. dag jóla með jóla- tré og tilheyrandi. Ekki er þó lengur hægt aö tala um jólasveina í fleirtölu, því jafnrétti kynjanna er hér í háveg- um haft og reyndist vera hin fönguleg- asta yngismær á bak viö annað hvita alskeggið. Jóladagskrá sjónvarpsins kom aö venju röndótt og illa til reika fyrir augu notenda hér viö öxarf jörö, og trú- lega myndi fljótlega minnka aðsókn aö leik- og kvikmyndahúsum höfuöborg- arinnar ef þaö væri haft fyrir fasta venju aö draga röndótt tjald fyrir sviö- ið misjafnlega hratt og misjafnlega lengi í senn. Trúlega þá eftir því hversu hollt efnið væri taliö áhorfend- um. Stundum efast menn einnig um aö f jármunum sé vel varið, þegar veriö er aö kaupa eöa vinna efni til sýningá í sjónvarpi. Þannig gafst mönnum kost- ur aö sjá sem lokaatriði á 2. jóladag hvernig „leikstjóra fáránleikans”, meö dyggri aðstoö fyrrverandil leik- listargagnrýnanda, tókst nær fullkom- lega aö eyöileggja það, sem í gegnum tilheyrandi rendur og strik virtist vera sæmilegasti efniviöur. Annars má segja, aö jólahald hafi fariö hér fram með hefðbundnum hætti, þ.e.a.s., menn reyna aö boröa sem mest og gera sem minnst. En sem betur fer eru jólin stutt að þessu sinni, svo aö menn geta strax byrjað niður- talninguna á kílóunum, sem bæst hafa viö síöustu daga. -GB ALLTAFÍ GANG SVJrJPJBK RAFGEYMAR Smidshofda 17. Simar 83748 og 83722 a 6NDURSKOÐUN OG RCIKNINGSSKIL SF Hér með tilkynnist að við höfum opnað nýja endurskoðunarstofu. Veitt verður öll þjónusta á sviði endurskoðunar og reikningsskila. CNDURSKOÐUN OG RCIKNINGSSKIl SF LfíUGflV€GUR 18 101 R6VKJFIVÍK SÍMI91 27888 NNR2133 8362 LÖGGILTIR 6NDURSKOD6NDUR ÉRNfl BRVNDÍS HfllLDÓRSDÓTTIR GUÐMUNDUR FRIÐRIK SIGURÐSSON JÓNRTRN ÓLRFSSON Stigid gæfuspor á i^ja árinu ' * Kennumalla almenna dansa Innritun og allar nánarí upplýsingar dagjega milli M. IO~I9 % DANSSKÓU SIGURDAR HÁKONARSONAR SÍMl46776

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.