Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1984, Blaðsíða 32
32 DV. MÁNUDAGUR 2. JANUAR1984.
Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið
A/bert tapaði!
Hermann Gunnarsson iþróttafréttaritari og Albert Guðmundsson fjármálaráðherra tóku nokkrar skákir
i Útvegsbankanum um sl. helgi. Þar var haldið mikið skákmót en kapparnir tveir á myndinni létu sér
nægja að tefla i hliðarherbergi og kepptu ekki um nein verðlaun.
„Albert reyndi ýmsar nýjar byrjanir og leikfléttur hans voru afar nýstárlegar en þrátt fyrir það tapaði
hann öllum þrem skákunum," sagði Hermann Gunnarsson i leikslok. Eins og sjá má á myndinni tefldu
knattspyrnukapparnir með höndum en ekkifótum. . .
Kvenfólk og
landafræði
Þaö er undarlegt þetta kvenfólk.
Breytist meö aldrinum og er sjaldn-
ast sjálfu sér líkt. Tiltektir kvenna
myndu ekki rúmast innan heillar
fræðigreinar, þær skara á einn eöa
annan hátt öll sviö mannlegs lífs. Ef
landafræðin ein er notuö til aö skýra
fyrirbærið veröur niðurstaðan þessi:
Kvenfólk á aldrinum frá 16 til 22
ára er eins og Afríka, sumir hlutar
hennar eru kannaöir, aörir ekki.
A aldrinum 25—35 er konan líkust
Asíu, seiöandi, dul og spennandi.
Þrjátíu og sex ára til fimmtugs fer
hún aö minna töluvert á Ameriku.
Ekkert nema tæknin.
A sextugsaldrinum er hún orðin
eins og Evrópa. Dálítið slitin og
þreytt en þó heimsóknar viröi.
Þegar hún er komin yfir sextugt
er hún alveg eins og Alaska. Allir
þekkja staðinn en enginn nennir aö
fara þangaö.
— Gefðu mér
tóninn, sagði
Jón Sigurbjörns-
son við hundinn
sem stóð á svið-
inu í Gamla biói
þegar íslenska
óperan var að
hefja æfingu
fyrir skömmu.
Öllum að óvör-
um spangólaði
hundurinn þó af
öllum lífs og sál-
ar kröftum:
DILETTO!
DV-mynd Bj.Bj.
Winston Churchill og vindillinn fá sér sæti. Takið eftir hermönnunum sem
allir biða eftirþviað forsætisráðherrann hendi stubbnum.
Hvort er það Evrópa eða Alaska sem þarna er að skoða i búðar-
glugga?
Við vitum ekki hvort það er satt og seljum það þvi ekki dýrara en við keyptum. Okkur var sagt að þessi
maður sem þarna situr ilausu lofti ásamt fjölskyldu sinnihefðiborðað yfir sig á jólunum og haldist á lofti i
tvær klukkustundir vegna vindgangs. Sagt var að hann hefði borðað 250 laufabrauðskökur að norðan.
Undarlegfasteign:
Vindlastubbar
Vindlastubbar þykja nú yfirleitt
ekki fjárfesting sem gagn er aö nema
þá aö sérstaklega standi á. Svo var um
nokkra slíka stubba sem fyrir skömmu
voru seldir á uppboði hjá Christies í
London. Þeir seldust báöir fyrir stórfé
þó annar væri ekki nema 8 sentímetra
langur og hinn 6, en þeir höföu hvílt á
vörum Winston Churchills endur fyrir
löngu. Sá lengri (8 sm) náöi betri sölu
vegna þess að Churchill hafði verið
meö hann í munninum þegar hann
ræddi viö Eisenhower um innrás í
Frakkland 15. maí 1944. Hinn var eitt-
hvaö ódýrari enda haföi breski for-
sætisráðherrann reykt hann aö Eisen-
hower fjarstöddum. Þaö var Michael
Pertwee liöþjálfi sem tínt hafði stubb-
ana upp er Churchill haföi reykt nægju
sína og er líklegt aö liöþjálfinn hafi ætl-
aö aö reykja þá sjálfur til enda þegar
karlinn væri kominn úraugsýn.
Svo varö ekki og nú eiga erfingjar
Pertwees liöþjálfa fyrir mjólk og
brauði næstu tvö árin.