Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1984, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1984, Blaðsíða 14
fií 14 .í-eer haijhai x huoaciumám va DV. MÁNUDAGUR 2. JANUAR1984. Menning Menning Menning Menning Menning UPPRENN- ANDIORG- ANISTI Orgcltónleikar Björns Steinars Sólbergssonar í Kristskirkju í Landakoti 26. desember. Efnisskrá: Johann Sebastian Bach: Prelúdi i C- dúr, Sálmaforleikur „In dulci Jubilo", Slá þú þú hjartans hörpustrengi, Pastorale; L. Cl. ' d’Aquin; Noöl nr. 10; Olivier Messiaen: La nativité du Seigneur; M. Dupró: Variations sur un Noel. Ungur organisti, Bjöm Steinar Sólbergsson, kvaö sér hljóös annan í jólum meö tónleikum í Kristskirkju í Landakoti. Bjöm Steinar mun hafa hleypt heimdraganum eftir nám hér heima og numiö á Italíu og í Frakklandi þar sem hann er enn við nám. Bjöm Steinar ber glögg merki þess skóla er hann nemur viö en ber ekki síöur vitni góðri grunnskólun heiman frá. Af svo ungum organista aö vera er hann óvenju sjálfstæöur í leik sínum. Stíll hans einkennist af nákvæmum leik og geislar af þrótti. I meöferð sinni á Bach minnti hann um margt á jöfurinn Pál Isólfsson. Einhversagöi víst aö þaö væri þversögn viö það sem að framan var sagt um franskan skóla organistans. Vel má vera aö í því sé um aö kenna hve sterklega túlkun Björns Steinars á sálmfor- leiknum „In dulci jubilo” höföaöi til barnsminnis undirritaös, en ein- hvern veginn tengir maöur þennan Tónlist Eyjólfur Melsted fagra sálmforleik viö doktor Pál og aftansöng á aöfangadagskvöld. En þaö var fyrst og fremst með hnitmiðuðum leik sínum í Fæöingu frelsarans eftir Messiaen sem Björn Steinar sýndi hversu upprennandi organisti hann er. Þaö er hreint ekki á hvers manns færi aö koma flóknum hljómmynstrum Messiaens svo skýrt til skila. Messiaen, eitt mesta trúarskáld tuttugustu aldar, lætur ekki deigan síga. Hálfáttræöur upplifir hann frumsýningu á nýjustu óperu sinni, „Heilagur Franz frá Assisi” á fullveldisdegi Islendinga síðastliðnum. Fylgi Bjöm Steinar Sólbergsson þeim árangri sem hann hefur þegar náö trúveröuglega eftir, má mikils af honum vænta og er þá ekki úr vegi aö ætla að hann orki að bera með sér ferska vinda í islenskum organleik. -EM. STORD Storö — Heimur í öðru Ijósi. 3. hefti 1983,1. árg. Þriöja hefti tímaritsins STORÐAR kom út fyrir jólin. Þaö er glansandi fínt eins og hin fyrri heftin, stórvel geröar myndir og texti saminn af kunnáttumönnum. Forsíða: Félagar úr Svörtu og sykurlausu, ljósmynd Páll Stefánsson, stærö: 80 bls., efni: Laxness heimsóttur, Svart og sykur- laust, Hérað í þjóðbraut, Ljóöið og skáldið, Séra Hanna María, Langvían, Steinka stál, Tíska. Utgefandi: SAMEIGNARFELAG Almenna bóka- félagsins og Haralds J. Hamars (Iceland Review). Þaö má segja aö í þessu hefti sé vandað til orösins ekki síöur en til útlits og mynda. I löngu og bráöskemmtilegu samtali Illuga Jökulssonar viö Halldór Laxness fáum viö margt nýtt aö heyra því skáldið tæmir sig aldrei. Halldór endurnýjast „Að vera meðhöndl- uð eins og skítur” Sextán dagar í september. Höfundar: Bibi og Franz Berliner. Pýðandi: Sigurður Á. Friðþjófsson. Útgefandi: Svart á hvitu, 1983. Pía og Brjánn eru 15 ára unglingar, (ekki 16 og 17 eins og segir á baksiðu). Bæöi eru alin upp hjá öðru foreldri sínu á hálfgerðum hrakhólum. Bæði hafa verið undir verndarvæng félagsmála- stofnunar. Bæði vel gefin en njóta sín lítiö í skólanum, einkum stendur Brjánn tæpt sökum lélegra mætinga. Heimilisaðstæöur þeirra eru þó mjög ólíkar. Brjánn hefur alist upp á flakki meö fööur sínum og þarf oft aö vera einn þegar hann er aö vinna. Aðstæöur Píu eru öUu erfiðari. Hún hefur fylgt móður sinni sem búin er aö lifa í þrem- ur hjónaböndum og eignast jafnmörg böm. Móðirin hefur stundaö bjórkrám- ar betur en bömin svo aö heimilis- Bókmenntir Hildur Hermóðsdóttir haldiö lendir aö mestu leyti á Píu. Hún er ófrjáls og veröur aö beygja sig undir óstillt skap mömmu sinnar og tauga- ÍFARARBRODDI AFMÆLISGETRAUN I Dregið verður í fyrsta hluta afmælisget- raunar Vikunnar, um skemmtisiglingu fyrir tvo um Karíbahaf með Maxim Gorki, 12. janúar. Skilafrestur er til 6. janúar. Þeir sem hyggjast freista gæfunnar, þegar dregið verður um þennan vinning, sem er 120 þúsund króna virði, er eindregið ráðlagt að póstleggja getraunaseðlana nú þegar og eigi siðar en 6. janúar. Til þeirra sem ekki eru enn orðnir þátttakendur í ieiknum: Þið getið enn fengið blöðin með getrauninni á mörgum blaðsölustöðum og hjá afgreiðslunni Þverholti 11, sími 27022. Munið: Hver seðill gildir sjálfstætt. Þeir sem hafa sent alla seðlana fimm eiga fimm seðla i pottinum. Og þessir fimm seðlar gilda áfram þegar dregið verður um næsta vinning: Ferð fyrir tvo til Mallorca og tvo til Ibiza. Takið þátt i léttum leik — enginn veit hvar heppnin ber niður. Ath.: Nýir áskrifendur á höfuðborgarsvæðinu geta fengið blöðin send heim vikuna 2.-6. janúar gegn greiðslu áskriftargjalds. Hringið í síma 27022 kl. 9—18. veiklun. Þegar bókin hefst er Pia aö missa þolinmæðina á þessu öllu sam- an, ekki síst vegna þess að enn einn karlmaðurinn er aö flytja inn til móöur hennar. Nú kynnu margir aö halda aö hér væri á ferðinni vandamálabók í nei- kvæðustu merkingu þess orös. Svo er þó alls ekki. Þó aö bókin fjalli um vanda þessara ungbnga af mikilli alvöru þá er hún hæfilega bjartsýn og skemmtileg aflestrar. Leiðir Brjáns og Píu liggja í fyrsta skipti saman þessa septemberdaga sem bókin gerist. Þau laðast strax hvort aö ööru, veröa hrifin. Þegar þau kynnast veröa þau hvort öðru mikils virði, enda eiga þau margt sam- eiginlegt og skilja hvort annað. „Maöur erfir peninga, völd, eignir, .. . maður getur líka erft fátækt, valdaleysi, eignaleysi.” (175). Hiö síöartalda hafa þau bæöi erft, en les- andinn er skilinn eftir meö þá spum- ingu hvort þau geti meö sameiginlegu átaki dregiö hvort annaö upp. „Kannski á hárinu, en skítt meö þaö.” (175). Höfundarnir sýna persónur bókarinnar frá fleiri en einni hliö. Sagan gerist á heimilum þeirra, í skólanum og á félagsmálaskrif- stofunni. Félagsráögjafinn Malla Möller er ein persóna sögunnar. Hún hefur reyndar lika sín persónulegu vandamál (vinnuálag sem heimili hennar þolir ekki), en hún leggur sig mjög fram í málum skjólstæöinga sinna. Ur skýrslum Möllu fær les- andinn aö vita um fortíð aöalper- sónanna. Allar persónur sem koma viö sögu eru skýrar og trúverðugar. Einkum er mamma Píu eftirminnileg meö sitt veika geö. Hún veltir öllu yfir á dóttur sína, sem tekur viö þunganum og buröast meö hann uns hún hefur öölast nægan þroska og kjark til aö rísa upp. Táknrænt fyrir hvaö stelpur veröa oft aö taka á sig heima og eru lokaöar inni í þokkabót vegna ótta viö aö þær veröi óléttar. Frelsi Brjáns þó aö þaö hafi sín vandamál hjá honum, er líka táknrænt fyrir frelsi karlmannsins. Þetta er hin læsilegasta unglinga- bók. Viðburðarík, einkum hvaö varöar mál Píu, ágætlega skrifuö og spennandi þegar maöur hefur kynnst persónunum. Þýöing Sigurðar Á. Friðþjófssonar er á liflegri og eölilegri íslensku miöað viö talaö mál. En þaö má finna nokkra galla á henni einkum þann að oft er málfar ekki nægilega vandað. „Yfirhöfuö” er t.d. leiöinlegt aö sjá á prenti og ég hef ekki fyrr heyrt aö fólk „hljómi” á einhvern sérstakan hátt. Oftar en einu sinni kemur þetta fyrir t.d. á bls. 147, móöirin er aö hringja í félagsráðgjafann út af Píu: „Hún hljómar ööruvísi. Hressari.” Mér sýnist aö hér sé átt viö að þaö sé gott í henni hljóðið. Fleiri galla mætti nefna en oftast er þýöingin þægileg aflestrar. -HH.,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.