Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1984, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1984, Qupperneq 33
Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið ► oo- n artt/*11 r. aTTnArriT/rA m \rn DV. MÁNUDAGUR 2. JANUAR1984. Soffia er hrifin afJ.ft. J.R færistallur íaukana. r Lucy" Tilton villskilja við karlinn. LOREN OG J.R. — saman í kvikmynd Hayekog Hólmsteinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson, heimspekingur búsettur í Oxford, situr ekki auðum höndum í háborg vest- rænna mennta. Hann er formaður i fé- lagi Hayek-sinna en sá félagsskapur fékk fyrir skömmu sjáifan Friedrich A. Hayek í heimsókn sem oft er nefnd- ur faðir frjálshyggjunnar. Ekki vitum við hvaö Hayek sagði við Hannes eöa Hannes viö Hayek en á myndinni, sem Marie Grey tók við þetta tækifæri, eni taliö frá vinstri: Melnyk, ritari félagsins, Kukathas, gjaldkeri þess, Hayek, faðir frjáls- hyggjunnar og Hannes Hólmsteinn for- maður. „Ætti maður að skella sér á hana, það er kannski aldrei ofseint að byrja æfingarn- ar, " gæti hún verið að hugsa þessi frú sem varð á vegi Einars Ijósmyndara í jólaös- inni miðri. Það má gera ráð fyrir að ýmsir hafi verið rakir við vigsluathöfnina á Vogi — a.m.k. á fótunum þvi allir voru á gúmmitúttum. D V-mynd Bj. Bj. Átta þúsund tillögur og sólarlandaferð fyrir einn: Um Vog — og ýmsar aðrar góðar tillögur hjá SÁÁ Þegar hin nýja sjúkrastöð SAA var vígö fyrir skömmu var tilkynnt um úrslit í verðlaunasamkeppni um nafn á stöðina. Aðalheiður Bjarn- freðsdóttir tilkynnti að nafnið VOGUR heföi oröið fyrir valinu við mikil fagnaðarlæti viðstaddra sem allir voru í gúmmískóm! Færöi hún þau rök fyrir valinu að VOGUR væri orð sem erfitt væri að skrumskæla eöa snúa út úr. Verölaunahafinn hlaut að launum ferö til Costa del Sol en hinir 7999 sem sendu inn tillögur sitja eftir hér heima á skerrnu og bíða eftir sumarfríinu sínu. Viö ætlum þrátt fyrir alit aö birta hér nokkrar af þeim tillögum sem ekki hlutu náö fyrir augum dóm- nefndarinnar, sumar hverjar það snjallar aö synd væri ef þær féllu í gleymsku. Geriösvovel....: Arás, Astund, Atak, Attaviti, Aman, An áfengis, Alki, Alkahöll, Alkóhólar, Alkavík, Alkavon, Alka- skjól, Alkabót, Alkó, Alsgáður, Al- heimar, Andriki. Alkahólshjáleiga, Akkcriö, Aldingarðurinn, Afok, Af- þreyingarstöö, Afturhvarf, Aþena Atómstöð, Atlas, Anvím, Björgólfs- vellir, Botnsskáli, Bótastaðir, Bið- lundur, Betl, Betlehem, Betlikot Batabrekka, Bláa blómið. Bláa áug- að, Betra lif, Brúin til betra lifs. Bakkusarböðull, Bót og bati, BBB (bænahús borgarbúa), Casablanca, Dyr vonarúinar, Dallas, Dropadrep Endi, Fríhöfn, Frami, Fjölskylda, Frekja, Flóðhesturinn, Gufuncshæli, Gróðrarónahöfði, Hressá, Heimleið, Hlé, Ilættu.., Hús miskunnsama Samverjans, Innút, Junkaragerði, Isedrú, Ljóti andarunginn, Lands- hjálparhúsið, Mjaðmarendi, Mar- tcinn Lútcr, Naust, Nýrækt, Ohó, Odrukkið fólk, Pass, Stoppistöðin, Solidarnos, Sanasober, Sahara, Spírakot, Sinalco, Sólnes, Sankti María, Stcfnuljós, Tárið, TIF (tapp- inn í flöskuna), ,,Þ”ið (þornið) Þurrkhöllin, Vinendi, Vonarstræti. Kvikmyndaleikkonan Soffía Loren neitaöi að leika í einum Dallasþætti þó svo að i boði væru milljónir króna. „Það myndi eyðileggja ímynd mína sem listakonu,” sagði Soffía en bætti því við aö hún væri ákafur aðdáandi Dailas-þáttanna. ,,Ég horfi á Dallas viö hvert tækifæri og sérstaklega er ég hrifin af Larry Hagman í hlutverki J.R. ” Það er líka eins gott að þeim komi vel saman, Soffíu og J.R., því í undir- búningi er kvikmynd með þeim tveim í aöalhlutverkum, upptökur eru að hef j- ast og nefnist myndin Something Blonde. Aðrir Dallasleikarar verða ekki í myndinni enda hafa þeir i nógu aö snúast. Charlene Tilton, sem leikur Lucy litlu með stóru brjóstin, stendur nú í skilnaðarmáli við eiginmann sinn, kántrísöngvarann Johnny Ice. Þau hafa verið gift í þrjú ár og eiga 17 mán- aða gamla dóttur. „Lucy” segist ekki lengur þola barráp kántrisöngvar- ans... „honum þykir bersýnilega skemmtilegra að drekka með strákun- um en aö dvelja heúna hjá mér,” segir Tilton. Sjónvavp ogbarn Þið fáiö litsjónvarp og við fáum barnið sögðu hjón nokkur í fylkinu Tenessee í Bandaríkjunum við ung skötuhjú sem áttu von á erfingja. Ungu hjónin gengust inn á það, það leið aö fæðingunni, sjónvarpseigend- urnir létu innrétta barnaherbergi og ailtvirtistveraklappaðogklárt. Þá komst lögreglan í málið og nú eiga málsaðilar von á allt að fúnm ára fangelsi fyrir bragðið. A meðan veröur barniö að horfa á sjónvarpiö og biða eftir eigendum og foreldrum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.