Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1984, Qupperneq 36
KLETTA
kjúklingur
í KVÖLDMATINN
HEILDSÖLUSÍMI 21194
Sex stafa
númer í dag
Nýja símstöðin við Múla verður
formlega tekin í notkun í dag. Þá verða
fyrstu notendurnir tengdir við hana og
verða þeir fyrstu Islendingarnir til aö
fá 6 tölustafa simanúmer.
Nýja stöðin er með eitt þúsund
númer en um 1—200 númer vantar á
svæöi hennar. Því veröur reynt að
koma þangaö númerum frá öðrum
stöðvum, eins og hægt er. Öll ný síma-
númer í Reykjavík verða 6 tölustafa
héöan í frá.
Með tilkomu nýrrar símaskrár í vor
verða öll símanúmer i Reykjavík sem
byrja á 86 og 85 sex töiustafa. Einhver
bið mun hins vegar verða á því að öll
höfuöborgin verði tengd svona
stöövum.
Sá misskilningur hefur komið upp
að með tilkomu nýju símstöðvarinnar
veröi auðveldara en áður að rekja sím-
töl til upphafs þeirra. Að sögn Jóns
Skúlasonar, póst- og símamálastjóra,
er það tæknilega auövelt en hins vegar
þurfi að koma til dómsúrskurður ef
Póstur og sími á að veita þær upp-
lýsingar.
-GB.
Þyrluslysið:
Rannsókn
beinist að
hurðinni
Viö rannsókn þyrsluslyssins i Jökul-
fjöröum hefur áhersla meðal annars
verið lögð á að kanna hvort það sé
hugsanlega frumorsök aö stór hurö á
hægri hliöhafi rifnaö af á flugi og lentí
skrúfublöðum. Þessi skýring hefur
ekki verið útilokuö.
Þegar flak TF-RAN var skoöaö vakti
þaö strax furðu aö hurðin skyldi hafa
fariö af því þyrlan var mjög heilleg.
Huröin hefur ekki fundist, þrátt fyrir
mikla leit. Hlutar úr skrúfublööum
hafa heldur ekki fundist né lík tveggja
áhafnarmeðlima.
I Bandaríkjunum er veriö aö rann-
saka tæki úr þyrlunni nákvæmlega.
Ymsar skýringar hafa verið útilokað-
ar. Talið er ósennilegt að vélarbilun sé
frumorsök slyssins. Einnig er taliö
ólíklegt að aöskotahlutur í forþjöppu
hægri hreyfils hafi veriö upphaf at-
burðarásarinnar.
-KMU.
LOKI
Þetta ka/lar maður
sjá/fsbjargarvið/eitni!
TALSTÖÐVAR-
BÍLAR
UM ALLA BORGINA
SÍMI 8-50-60.
ÞRDSTIIR
SÍÐUMÚLA 10
27022
AUGLYSINGAR
SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR
AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLT111
86611
RITSTJORN
SÍÐUMÚLA 12-14
MÁNUDAGUR 2. JANUAR 1984.
Deilur um vinning í símahappdrætti Sjálf sbjargar:
Vinkonan vill fá
hlut í vinningnum
Mikið deilumál er komið upp á
milli tveggja kvenna í Keflavík
vegna vinnings i símahappdrætti
Sjálfsbjargar. Hefur vinningurinn —
nýr og glæsilegur bíU — verið
„frystur” hjá Sjálfsbjörg á meöan
veriö er að útkljá máUð.
Eins og kunnugt er eru miðarnir í
símahappdrættinu merktir nafni og
símanúmeri þess sem skráður er
fyrir hverjum síma. Stendur deilan
um vinninginn glæsilega á milli
stúlku sem skráð er fyrir viðkom-
andi síma og þeirrar sem nú hefur
afnot af honum en það var hún sem
keypti miðann.
Stúlkan sem er handhafi miöans
hafði fyrir nokkrum mánuðum
fengið íbúð á ieigu í Keflavík sem
kunningjakona hennar hafði haft.
Fylgdi íbúðinni sími og þar sem
mikil símaekla er í Keflavík og þar
margir á biðUsta eftu sima ákváðu
þær að síminn í íbúðinni yrði áf ram á
nafni hinnar.
Hefur hún borgað ÖU gjöld af
honum eins og vera ber og þar á
meðal borgaði hún happdrættismið-
ann með símanúmerinu á, sem kom
nú fyrir jólin. A þennan miða kom
svo vinningur en stúlkan sem skráð
er fyrir símanum gerir nú kröfur til
að fá hann eða hluta hans.
MáUð er nú komið i hendur lög-
fræðinga og á meðan þeir eru að
reyna að finna emhvern flöt á þvi,
verður vinningurinn ekki afhentur.
-klp-
FERNT Á SJÚKRAHÚS
— eftir bruna að Háuhlíð 12 í gærkvöldi
Slökkviliðið í ReykjavUi var kallað
að húsinu Háuhlíð 12 rétt upp úr
klukkan tíu i gærkvöldi. Ibúar húss-
ins voru komnir út þegar slökkviliðið
kom á staðinn en húsið er skammt
fráslökkvistöðinni.
Reykkafarar fóru inn í húsið og
var þá töluverður eldur í kringum
jólatré og i gardínum. Réðu þeir
niðurlögum hans á skömmum tima
og loftuðu svo út úr húsinu.
Fernt var í húsinu þegar eldurinn
kom upp og var það allt flutt á
sjúkrahús. Eigandi hússins er Þor-
valdur Guðmundsson í Síld og fisk.
Mun hann eitthvað hafa brennst á
höndum og í andliti en eiginkona
hans, dóttir og dótturdóttir sluppu
ómeiddar.
Nokkrar skemmdir urðu á innbúi
af völdum vatns og reyks, Eins og
kunnugt er eru Þorvaldur og kona
hans miklir listaverkasafnarar og
urðu töluverðar skemmdir á
nokkrum listaverkum þeirra í
þessumbruna.
-klp-
Flogið á
alla staði
Allir aðalvegir landsins veröa ruddir
í dag þannig að fært ætti að vera
síðdegis ef veöur helst skaplegt. I
morgun voru allir fjallvegir ófærir en
byrjað var að ryðja leiðina milli
Reykjavikur og Akureyrar.
Búist er við að innanlandsflug verði
samkvæmt áætlun í dag eftir að flug-
brautir hafa verið hreinsaðar.
Erfiðlega gekk þó að hreinsa flug-
brautina á Egilsstöðum í morgun og á
Isafiröi var hálfs metra jafnfallinn
snjór á flugvellinum. Þó var áætlaö að
fljúga til Vestfjaröa fyrir hádegi.
Flugleiðir áætla að fara 21 ferð í dag
með 1100 farþega, þar af 800 sem bíða
úti á landi. -OEF.
Áramótagleðin
endaðiíhnífaslag
Tveir ungir menn og tvær stúlkur
hlutu minniháttar sár er sló í brýnu i
áramótagleöskap í Breiðholti.
Mennirnir urðu ósáttir út af einhverju
og átök hófust. Báðir voru vopnaðir
hnifum og hlutust af þeim skinn-
sprettur og minniháttar sár. Tvær
stúlkur hugðust ganga á milli mann-
anna en ekki tókst betur til en að þær
urðu fyrir hnifsstungum.
Lögreglan var kvödd á staðinn og
flutti fólkið á slysadeild þar sem gert
var að sárum þess. Að því loknu fengu
stúlkumar að fara heim en piltarnir
voru látnir gista hjá lögreglunni.
Málið hefur verið sent til
Rannsóknarlögreglunnar til frekari
rannsóknar. -SþS.
Vigdís
Finnbogadóttir,
f orseti íslands,
íáramótaávarpi:
„Sem fyrirmynd
friðarvilja”
„Það er ósk min okkur Islending-
um til handa að við megum minnast
40 ára afmælis lýðveldisins á tslandi
í sátt viö okkur sjálf og sem fyrir-
mynd friðarvilja öðrum þjóöum til
eftirbreytni,” sagöi Vigdís
Finnbogadóttir, forseti Islands, i lok
áramótaávarps síns í gær.
Vigdís rifjaði upp aðdragandann
að lýðveldisstofnuninni 1944 og um-
gerð hennar. Hún sagöi merki um
það að þessir atburðir væru að fyrn-
ast. ,,En þeir mega aldrei gleymast
og aldrei verða þeir fullþakkaðir.”
„Það er mikið ævintýri hvernig ís-
lensk þjóö hefur vaxið og dafnað á
fjórum áratugum," sagði Vigdís síð-
an og rakti nokkrar staðreyndir þvi
til sönnunar. „Við eigum allt Islend-
ingar, sem velmegunarþjóðir erlend-
is hafa skapaö sér, ef ekki nokkuð
meira.” Og Vigdís ræddi um menn-
ingu okkar og veraldarauö, tengsl
kynslóðanna og áhrif okkar í hörðum
heimi.
Sérstökum orðum beindi Vigdís til
unga fólksins. „Eg bið þaö gæta vel
lifs síns. I því felst von okkar og
framtíö. Allt sem gert er i trássi við
lög og reglur samfélagsins getur
dregið á cftir langan slóða óham-
ingju. Gætið að heilsu og umfram allt
varist vágesti sem spilla henni. ”
HERB