Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1984, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1984, Page 8
8 DV. MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRUAR1984. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Fjölmennt lögreglulið fékk ekki þokað stórum trukkunum út af aðalvegum í Frakklandi, en nú hyggjast vörubíl- stjórar færa sig með mótmælaaðgerðirnar á strætin í Paris. Blöðrudreng- urinn alvar- lega veikur á nýjan leik Tólf ára drengur, sem sína lífstíð hefur dvaliö í einangrun á sjúkrahúsi — en fékk loks á dögunum að komast í snertingu við foreldra sína — liggur nú aftur alvarlega veikur. Hafa læknar bamaspítala í Houston í Texas orðið að tappa af lungum hans vatni og sömu- leiðis vökva sem þyngdi að hjarta honum. Drengnum er gefiö súrefni en er með fulla meövitund og þarf ekki að vera í tengslum við öndunarvél. Hann fæddist með svo alvarlega ónæmisbæklun aö líkami hans gat ekki framleitt frumur til varnar gegn sjúk- dómum og því hefur hann alla daga verið hafður í sérstakri einangrunar„blöðru”. I október síðasta var settur í hann beinmergur úr systur hans, Katherine, en núna í mánuðinum fékk hann innvortis blæðingar, þegar líkami hans virtist ætla að hafna mergnum. Tóku læknarnir hann þá úr einangruninni til að geta betur glímt við það vandamál. Trukkamir til Parísar Franskir vörubílstjórar höfnuðu tilboðum samgönguráðuneytisins í viðræðunum í gær, sem miöa áttu að því aö binda enda á mótmælaaðgerðir þeirra á aöalvegum Frakklands. Hóta þeir nú að fara með trukka sína og stífla aðalgötur Parísar. Um 5000 trukkar eru við Alpafjalla- bæinn Cluses en aðrir vörubílar eru sagöir lagðir af staö í átt til Parísar. Þar er ætlunin að leggja trukkunum á aöalgötum og stífla alla umferð ef samgöngumálaráðuneytiö getur ekki sýnt fram á það með áþreifanlegum hætti aö sáttatillögur þess virki raun- hæft í framkvæmd. Samgöngutruflunin er nú farin að segja alvarlega til sín í efnahagslífinu. Kjötflutningar frá aðallandbúnaöar- héruöum Frakklands hafa legiö niðri í nær viku og hafa valdið miklu tjóni. Fiskimenn í Breton hafa ekki komið afla sínum á markað í París og fram- leiðsla bílaverksmiðja Peugeot og Citroen er að stöðvast vegna skorts á bílahlutum, sem ekki hafa borist. Skíðaorlofsstaöir hafa þurft að fá matföng flutt aö með þyrlum. Vörubíl- stjórar, sem sitja fastir uppi í f jöllum, hafa verið upp á súpugjafir lögregl- unnar komnir. Mótmæli bílstjóranna hófust eftir að þriggja daga tafir höfðu orðið viö landamærin við Italíu vegna hæga- gangsaögerða tollþjóna beggja megin. Frönsku tollþjónarnir hafa nú hætt sínum aðgeröum, og vonir standa til þess að um semjist hjá Itölunum einnig. Samgönguráðherrann bauö samtök- um vörubílstjóra aö lagðar yröu 8 milljónir franka í viðlagasjóð til aöstoðar bílstjórum sem sitja uppi meö skemmda trukka eftir tilraunir lögreglunnar til þess að draga þá af vegunum. Hafði hann átta tillögur fram aö færa aðrar til úrbóta í um- kvörtunarefnum bílstjóranna en þeir telja þær ekki ganga nógu langt. G^. Stórbingó verður haldið í Sigtúni fimmtudaginnl. mars. kl. 20.30 stundvíslega. Spilaðar verða 18 umferðir. Meðal vinninga er Skoda-bifreið að verðmæti 139.000 kr., heimilistæki frá Heimilistækjum sf. og matarkörfur frá Hólagarði, Straumnesi og versluninni Víði. Heildarverðmæti vinninga ca 240.000 kr. Verð spjalds 150 kr. STJÓRNANDI ER HERMANN GUNNARSSON SÁ HEPPNI Á SKODA? *# .*»i ' ii .«'•t Á-.VÁV ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ LEIKNIR tgr: ,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.