Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1984, Side 11
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRUAR1984.
11
„Aðalmenningar-
stðð borgarinnar’
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir janúarmánuð 1984, hafi hann
ekki verið greiddur í síðasta lagi 27. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrj-
aðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en síðan
eru viðurlögin 3,25% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð,
talið frá og með 16. mars.
Fjármálaráðuneytið.
— segir Skúli Halldórsson, tónskáld og skrif stof ustjóri, um
SVR þarsemhannhefurunniðí50ár
„Ég sýni svo gott fordæmi á öðrum sviðum að ég er stikkfri á þessu,"
segir Skúli Haiidórsson, skrifstofustjóri SVR, sem notar einkabíiinn i stað
strætisvagnanna.
Skúli HaUdórsson tónskáld á 50 ára
starfsafmæli hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur þann 1. mars næstkom-
andi.
„Mér hefur fundist ágætt aö vera hér
og ég hef haft mjög gott starf allan tím-
ann,” sagöi Skúli í samtali við DV.
„Þaö hefur nú ýmislegt gerst á þessum
50 árum. Á stríðsárunum var t .d. mikiö
los á mannskapnum en ég sat fast'
viö minn keip. Þaö sem geröi gæfu-
muninn var að ég var í tónlistarskóla í
8 ár og haföi nóg aö gera í tónlistinni.
Eg haföi heldur aldrei áhuga á aö
stofna eigin fyrirtæki. Þaö er kannski
ástæðan fyrir því, aö ég hef lafaö í
sama starfinu í 50 ár.”
Þegar Skúli kom til Strætisvagna
Reykjavíkur hf. 1. mars 1934 varö
fyrsta starf hans að gera upp viö vagn-
stjórana eftir hverja vakt. Síðan var
þaö bókhaldið og önnur skrifstofu-
vinna. Ariö 1945 varö hann skrifstofu-
stjóri fyrirtækisins og hefur veriö þaö
síðan.
— Hverjar eru skemmtilegustu
minningar þínar á þessum langa
starfsferli?
„Þær eru margar skemmtilegar, en
ætli sú skemmtilegasta sé ekki frá því
þegar fyrsta skrifstofustúlkan kom til
okkar. Þaö var mikil barátta um hana
en ég náöi henni og hún er nú konan
mínídag.”
Þessi unga stúlka hét Steinunn G.
Magnúsdóttir, og heitir enn. Henni
tileinkaði Skúli svo Dómínóvalsinn
þegar hún þurfti að hætta.
— Það hefur aldrei flogiö aö þér aö
hætta hjá Strætó?
„Nei, mér hefur aldrei dottið í hug aö
segja upp. En einu sinni datt okkur
nokkrum í hug aö kaupa SVR. Þetta
var 1947 eöa 48 og borgin vildi selja.
Þaö varö þó aldrei neitt úr því því að
borgin dró svo að sér höndina. ”
Skúli fékk leyfi hjá borgarstjóra áriö
1970 til aö hafa píanó inni á skrifstofu
sinni.
„Þetta er gamait píanó sem móöir
mín átti. Eg nota þaö eftir vinnutíma,
æfi mig og kompónera. Eg er nýbúinn
að skrifa sinfóníu, „Heimurinn
okkar”, sem veröur frumflutt 17. maí í
vor og ég vann mikið aö henni hér.
Þetta er aðalmenningarstöð borgar-
innar.”
— Er örvandi umhverfi hjá strætó?
„Já, mjög örvandi fyrir tónskáld-
skap. Þess vegna eru verk mín svona
góö, betri en annarra, vegna þess aö
þeir vinna ekki hjá strætó. Það er sér-
stök stemmning, sem fylgir strætó.
Þar hittist fólk og þar er stemmningin
og hún á eftir aö veröa meiri með stóru
vögnunum.”
— Ferðastu kannski sjálfur mikiö
meöstrætó?
,,Ég geröi þaö í gamla daga en núna
geri ég það ekki nema billinn bili. Þaö
er skömm að því hve ég hef ferðast lítið
meðstrætó.”
— En ættir þú sem skrifstofustjóri
SVR ekki að sýna gott fordæmi?
„Auðvitað ætti ég aö selja bílinn. En
ég sýni svo gott fordæmi á öörum
sviðum að ég er stikkfrí á þessu,”
sagöi Skúli Halldórsson tónskáld og
skrifstofustjóri.
Þau Skúli og Steinunn eiga tvö börn,
uppkomin.
-GB
FROWIG -
160 DC — H,
EIIMS FASA,
léttbyggð og fullkomin
hátióni - Tig - vél sem
sýður ryðfrítt stál á full-
kominn hátt. Þreplaus
týristorstýring á startstraumi,
suðustraumi, lokastraumi
og gaseftirflæði.
Ennfremur pinnasuðuvél með
alla góðu eiginleika jafn-
straumsvélanna.
Verð án söluskatts.
M/vagni kr. 39.955,-
Án/vagns kr. 36.335,-
2 ára
ábyrgð.
J. HINRIKSSON HF.
Súðavogi 4.104 R.
S-84677 - 84559.
BETRA VERÐ EN AÐUR HEFUR ÞEKKST
NÝTÍSKU
SÚFASETT
•
VERÐ FRÁ
KR. 36.400,-
(3JASÆTA0G
2 STÓLAR)
MARKMIÐ OKKAR ER AÐ.
SELJA BESTU HÚSGÖGNIIM
TM-HUSGOGN
SíSumúla 30 - Sími 86822
SíSumúla 4 - Sími 31900
I