Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1984, Blaðsíða 15
Dv'.1klbVl{{tÍÖXGÍJÍ{^?F'@BTRM!{rt984.r
15'
Menning Menning
ÍSLENSK SÖNG-
KONA FÆR GÓDA
GAGNRÝNI í
ÞÝSKALANDI
Sópransöngkonan Margrét Bóasdótt-
ir, sem nú dvelst við nám í sönglist í
Þýskalandi, hélt nýlega tónleika í
Heidelberg á vegum tónlistar- og list-
vinafélagsins þar í borg og hefur
fengið fyrir þaö góða dóma gagn-
rýnenda. Segir tónlistargagnrýnandi
Rhein-Neckar-Zeitung, m.a. í um-
fjöllun sinni: „Þaö er ekki falleg rödd
sem skapar ljóðakvöld heldur þaö sem
ljóðin hafa aö segja. Eitt ekta tár er
betri ábending um velheppnaöa ljóöa-
tónleika en margra mínútna lófatak
... I þessum anda buöu Margrét Bóas-
dóttir og Ulrich Eisenlohr áheyrendum
sínum upp á ljóðakvöld sem var í
fyllsta máta rómantískt. Og sá sem
vildi heyra boöskapinn gat líka skiliö
hann.”
Gagnrýnandinn segir einnig aö
þetta hafi verið ljóöakvöld fyrir þá
sem vit heföu á óg segir aö lokum um
túlkun Margrétar á ljóðum Mahlers úr
Des Knaben Wunderhom: „Sá sem
kann að tjá svona mikiö háö, hann mun
lifaaf.”
Að ekki
liggi aftur
svo mikið á
Tónleikar Tónlistarfólagsins í Austurbæjarbíói
18. febrúar.
Flytjendur: William Parkor, barýtonsöngvari og
William Huckaby, píanóleikari.
Efnisskrá: Ludwig van Beethoven: An die ferne
Geliebte; Franz Schubert; An Silvia, An Schwag-
er Kronos, An die Musik; Henri Duparc: La vie
anterieure, Serenade florentine, Le manoir de
Rosemondo, Chanson triste, Phidyió; Maurice
Ravel: Histoires naturelles; Dominick Argento:
Winter, The Andróe Expedition, Spring.
Hvorki þarf aö kynna William
Parker né William Huckaby fyrir
íslenskum söngunnendum. Hingað
Tónleikar
Eyjólfur Melsted
komu þeir og léku og sungu á tónleik-
um Tónlistarfélagsins í april áttatíu og
tvö. Síðan má segja aö menn hafa
beðið þess meö óþreyju að heyra til
þessara kappa aftur.
Líkt og á fyrri tónleikum þeirra hér
byrjuðu þeir á Beethoven, — nú á „An
die feme Geliebte”. Á eftir fylgdu
þrjár af perlum Schuberts. Ekki þarf
aö taka fram aö báöir eru þeir vel
heima í hinum germanska ljóösöng, en
hafandi fyrri tónleika þeirra félaga í
huga, þá hlakkaöi ég ekki síöur til þess
aö heyra þá fara meö hina galUsku
söngva. Henri Dupark samdi ekki
mörg sönglög. Hann var haldinn gláku
og hugarangur sem var fylgifiskur
sjóndeprunnar lagöist svo þungt á
hann aö hálffertugur hætti hann aö
semja. En hann náöi að smíöa nokkrar
perlur gaUísks ljóösöngs, en
wagnerískur hugsunarháttur Utaöi
hljómsveitarverk hans. Og fimm þess-
ara perla söng Parker, þeirra á meðal
Baudelaire ljóðiö ,,La vie anterieure”
og ljóö Leconte de Lisle „Phidylé”. I
aöra röndina var ég aö vonast eftir aö
hann gaukaöi aö okkur hinu
Baudelaire ljóðinu, sem Duparc samdi
lag viö, ..L’invitation au voyage”, en
viö eigum þaö bara til góöa þangaö tU
næst.
Túlkun Parkers var einkar næm,
lagvísin frábær og ekki var meöferö
textans síöri. Á það eins viö um
söngva Ravels um fuglana, blessaöa,
og raunar allt sem hann söng.
Dominick Argento er nafn sem ég
hef heyrt getiö, en ekki heyrt neitt eftir
fyrr en nú. Söngvar hans, nýróman-
tískir, falla vel að texta, og í textavali
leitar hann víöa fanga.
Argento er maöur línunnar. Lagið
er í forgrunni og píanóröddin gjaman
nær því aö vera önnur söngrödd en aö
vera píanistisk í eöU sínu.
Heldur þurfti aö heröa á tónleikun-
um því aö WUUam Huckaby átti aö ná
flugvél héöan skömmu eftir að þeim
lauk. Sama sagan og síðast þegar
hann lék hér. Leitt, en kannski eins
gott, því guö má vita hvort áheyrendur
hefðu sleppt þessum tveimur frábæm
Ustamönnum fyrr en um síðir og víst
er að næstu tónleika þeirra veröur
beðið meö óþreyju. Og þá væri ráð að
hefja tónleikana fyrr, ef herra Hucka-
by skyldi enn einu sinni þurfa aö ná
næstu vél í Keflavík.
-EM.
EV- SALURINN
Ford Cortina station 1974.
Ilp2*---- V
Fiat 127 900 special 1982.
Ford Mustang 1966.
Fiat 127 900 cl 1977.
Mercedes Benz dísil 1968.
Fiat 131
Mirafiori
1980.
Dodge Aspen 1979.
Volkswagen Passat 1976.
ÓDÝRIR BÍLAR. ÁIM ÚTBORGUNAR.
Volkswagen Passat 1974. Munið EVkjörin.
EV- SALURINN
notodir bílor
í eigu umbodssins
VILHJÁLMSSON HF
Smiðjuvegi 4c — Kópavogi — Simi 79944
Chevrolet Concours 1977.
Tuttugu s/ódum