Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Qupperneq 3
DV. LAUGARDAGUR 24. MARS1984.
3
Skógrækt á
Skógasandi
— kvikmyndin Enemy Mine í undirbúningi
Byggingaframkvæmdir i fullum gangi á hinni óþekktu plánetu á Skóga-
sandi.
Um þessar mundir er Skógasandur
að skrýðast fyrstu trjám sem þar
hafa þrifist um aldaraöir. Trén eru
sex að tölu og þau ekkert venjuleg. I
fyrsta lagi eru þau ekki lifandi
heldur steinrunnin. I öðru lagi eru
þetta bara trjástubbar. Og í þriðja
lagi eru þeir engin smásmíði, allt að
20 metrar á hæð.
En hvaðan koma þessi tré og
hvaða hlutverki gegna þau? Jú, þau
eru hluti af sviðsmynd kvikmyndar-
innar Enemy Mine sem kvikmynda-
fyrirtækiö 20th Century Fox ætlar að
hef staðið, segir Þóra Karlsdóttir
hjúkrunarkona sem verður i fylgd
kvikmyndagerðarmannanna fram
á sumar. ■ DV-myndir Bj.Bj.
gera að hluta til hér á landi. Myndin
á að gerast í ókominni framtíö á
óþekktri plánetu, það er að segja
þetta er svonefnd sience-fiction
mynd. Fyrir kvikmyndafróða má
geta þess að myndin mun verða í
svipuðum dúr og myndin Alien sem
var sýnd hér fyrir örfáum árum.
Auk þess sem Skógasandur verður
vettvangur Enemy Mine verður
kvikmyndað í Vestmannaeyjum, í
nágrenni Víkur í Mýrdal og í ná-
grenni Húsavíkur. Ráðgert er að
hefja myndatökur um miðjan apríl
og öllu saman á að vera lokið í lok
maí. Alls munu um 150 manns koma
hingað til lands vegna þessarar
kvikmyndageröar og þar af eru
þegar um 40 komnir. Hluti þeirra
vinnur að smíði trjánna á Skóga-
sandi, aðrir vinna aö smíði 1500 fer-
metra sundlaugar í Prestavík í Vest-
mannaeyjum og enn aðrir sjá um
flutninga og skipulagningu á öllum
framkvæmdum.
I Prestavík á, auk sundlaugarinn-
ar, að búa til foss sem á að falla milli
tveggja hraundranga en víkin
dregur nafn sitt af þessum dröngum.
Skortur á gistirými
Það liggur í augum uppi að það
þarf mikið gistirými fyrir allt þetta
fólk sem vinnur að undirbúningi
Enemy Mine. Og ekki minnkar
þörfin þegar leikarar og allt
aðstoðarfólk verður komið. Nú þegar
hefur 20th Century Fox pantað öll
herbergi á hótelunum á Hellu og
Hvolsvelli fram að mánaðamótunum
maí-júní. Einnig er Gistiskálinn í
Vestmannaeyjum meira og minna
upppantaður. I viðbót hefur fyrirtæk-
ið tekið um 40 einbýlishús á leigu á
Hvolsvelli um lengri eða skemmri
tíma.
Þeir sem nú vinna á Skógasandi
gista á Hellu og Hvolsvelli og þurfa
því að keyra um 60 kílómetra leið í
hvora átt til og frá vinnustaðnum
kvölds og morgna.
Geimskipið hrapar
á Skógasandi
inni austur á Skógasandi fyrir nokkr-
um dögum var þar kalt og hráslaga-
legt veður og gekk á með éljum.
Smíðafólkið lét það lítið á sig
bölvaði veðrinu að vísu í sand og
ösku en hingað til hefur það lítil áhrif
haft á íslenska veðráttu. Verkinu
miðaði nokkuð vel áfram og var talið
að smiöi trjánna sex yrði lokiö eftir
um það bil tíu daga. Um það leyti
verður byrjað að setja saman líkan
af geimskipi sem kemur hingað til
Iands f rá Ungverjalandi þar sem það
var smíðað. Geimskipið mun eiga að
hrapa á hinni óþekktu plánetu og
rekast á einn hinna risavöxnu tré-
stubba á Skógasandi.
Py/sunum reddað
Nokkrir Islendingar eru aökomu-
mönnunum þama á sandinum til
halds og trausts. Þar á meöal er
hjúkrunarkona úr Reykjavík sem
hefur það hlutverk að veita fyrstu
hjálp ef eitthvert óhapp yrði. Hefur
hún til umráða húsvagn sem í er lítil
sjúkrastofa.
Þá eru sjúkrabíll og maður frá
Flugbjörgunarsveitinni til reiðu á
sandinum ef á þarf aö halda.
Tvær íslenskar konur aðstoða við
eldamennskuna en eins og nærri má
geta er það mikið starf að elda ofan í
allan þennan hóp.
Og fyrst minnst er á eldamennsk-
una má geta þess aö flestir þeirra
sem nú eru komnir til landsins eru
Bretar, og Bretar eru með vanafast-
ara fólki í heimi svo vægt sé tekið til
orða. Til að mynda verða þeir að fá
sitt beikon og sín egg á hverjum
morgni og með þeim verða þeir að fá
alveg sérstakar litlar pylsur eins og
lög gera ráö fyrir. Ekkert vandamál
reyndist að útvega eggin og beikonið
hérlendis en verra var það með
pylsurnar. Ekki bætti úr skák að
bannað var og er að flytja þær inn.
En Bretamir dóu ekki ráðalausir.
Þeir létu efnagreina pylsurnar sínar
og fengu svo Síld og fisk í. Reykjavík
til aö framleiða nákvæmlega eins
pylsur. Þarmeðvarþvíreddað. -SþS
Þegar blaðamenn DV voru á ferð-
Þetta er i fyrsta sinn sem við komum hingað til lands, , Þeir eru engin smásmiði, trjá „stubbarnir" sem verið
sögðu flestir Bretanna sem vinna að skógsmiðinni á er að smíða á Skógasandi.
Skógasandi. Og það siðasta, bættu margir við.
Sýndir verða eftirtaldir bílar í Reykjavík
NISSAN SUNNY
station 1500 GL, 4 dyra.
NISSAN SUNNY 1500 GL,
2ja dyra, coupé.
NISSAN SUNNY Sedan, 4 dyra.
NISSAN MICRA.
NISSAN SUNNY COUPÉ
1500 GL, 5-GÍRA, 2JA DYRA.
SUBARU 1800 GLF,
four wheel drive, sjálfskiptur með
rafdrifnum rúðum, rafdrifnum, stillanlegum
spegli, aflstýri.
NISSAN MICRA.
TRABANT.
WARTBURG PICKUP
2BÍLASÝNINGAR ÞESSA HELGI BÆÐI í
KAFRAHÚSINU Á SKEIÐI ÍSAFIRÐI OG
MELAVÖLLUM RAUDAGERÐI REYKJAVÍK
Sýndir verða eftirtaldir bílar á ísafirði
INGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.
AUÐUNN KARLSSON, UMBOÐSMAÐUR SÚÐAVÍK.