Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Blaðsíða 5
Dv: LAUÖARDAGUR M. MAÉá 1984. 5 Stafnesið KE mun liklega hafa orðið fyrst allra vertiðarbáta til að fylla kvóta sinn og er nu langt komið með tæplega 200 tonna viðbót af kvótum tveggja annarra háta. DV-mynd H. Baldursson. Stafnes KE kláraði kvótann um síðustu helgi og veiðir nú fyrir aðra: Vaggar svo við bryggj- una í f imm mánuði Netabáturinn Stafnes KE—130 kiáraði kvóta sína um síðustu helgi og er líklega fyrsti báturinn til þess. Báturinn er í eigu Fiskverkunar Hilm- ars og Odds í Njarðvík sem einnig á Vatnsnes KE. Aö sögn Hilmars Magnússonar lagði Stafnesið þó ekki árar í bát, heldur kláraði 90 tonna af- gang af ufsakvóta Vatnsnessins nú í vikunni í tveim róðrum. Að þvi loknu samdist svo um að Stafnes fengi að veiða 100 tonn af þorskkvóta Svein- borgar GK frá Garðinum, en hún er nú á djúprækjuveiöum. „Staðan er sem sagt sú að á meðan báturinn var að veiða ufsakvóta Vatns- ness í vikunni varð hann að forðast þorsk eins og heitan eldinn, þar sem hann var búinn með þorskkvótann, en nú verður hann aö forðast ufsa eins og heitan eldinn því að hann er búinn með ufsakvótann og fékk að láni þorsk- kvóta,” sagði Hilmar. Kvóti Stafness var allgóður, 320 tonn af slægðum þorski, 88 tonn af ufsa, 35 af ýsu og innan við 30 af öðrum fiski. En hvað tekur við þegar Stafnes verður búið með 100 tonna viðbótina í síðasta lagi eftir mánuð? „Honum verður sjálfsagt lagt í röska fimm mánuöi þar til við getum vonandi byrjaö á síld í október. Hann er meö gamla, slitna vél þannig að við leggjum ekki á hana tog við djúprækju- veiöar. Við lögðum honum reyndar í tvo mánuði í fyrrasumar en nú verða þeir a.m.k. fimm. Við reynum ef til vill djúprækjuveiöar á Vatnsnesinu í sumar því að það hefur ekki síldveiði- leyfi í haust, en annars sýnist manni djúprækjuveiðin ekki eins spennandi nú og var fyrir verðfallið,” sagði Hilmar. Skipstjóri á Stafnesi og samstarfs- maður Hilmars við vinnsluna er Oddur Sæmundsson. Þeir félagar eru báðir góðir laxveiöimenn svo að Hilmar var spurður hvort þeir eyddu þá sumrinu í að renna fyrir lax fy rst Stafnesiö mætti ekki róa: „Eg hef bara ekki þorað að fjárfesta í laxveiðileyfum í svona óljósri stöðu. Eg sé til hvað Oddur ger- ir.” -GS. Árni Gunnarsson f iskmatsmaður um gagnrýni á punktakerfið: ERUM EKKIAÐ RÆNA SJÓMENN — kerfið verður aðeins hjálpartæki tilað samræma mat áöllu landinu „Enginn matsmaður meö ein- hverja reynslu hefur ekki einhvern timann verið kallaður þjófur. En að undanfömu hafa brigslyrðin keyrt úr hófi fram og nú eigum við að vera að stórrýra kjör sjómanna með því að meta eftir nýju punktakerfi. En þetta punktakerfi er aðeins hjálpartæki til þess að samræma matsaðferðir um allt land. Skýtur skökku við að sú viðleitni sé gagn- rýnd eftir alla þá gagnrýni sem við matsmenn höfum fengið fyrir að meta misjafnlega eftir stöðum á landinu,” sagöi Ami Gunnarsson, matsmaður í Þorlákshöfn, í viðtali viðDV. „Mat eftir nýja kerfinu er í fullu samræmi við reglugerð sjávarút- vegsráðuneytisins frá 1970. Eini munurinn er að matsmaðurinn skráir á blað ástand hvers einstaks fisks í sýni og virðist besti 2. flokks fiskurinn skv. gamla kerfinu meira að segja hafa tilhneigingu til að fara upp í 1. flokk með nýja kerfinu. Þá vil ég benda á að öll umræða um niðurstööu einstaka mats löngu eftir á hlýtur að vera marklaus. Hún verður að fara fram á þeim stað og tíma þegar verið er að meta sýnið. Allir starfandi fiskmatsmenn hafa fengið tilsögn í notkun þessa nýja kerfis sem ég álít stórt skref til sam- ræmingar fyrir allt landið þegar það verður tekið í notkun með allra sam- þykki. Því vísa ég á bug stóryrðum for- svarsmanna sjómanna að hér sé um nýtt kerfi að ræða sem rýri kjör vertíðarsjómanna um allt að helming. Bendi ég þeim á að beina fremur kröftum sínum í þá átt að bæta enn meðferð afla til að vinna að nokkru upp hina miklu afla- og tekju- rýmun sem við sjómönnum blasir vegna aflatakmarkana,” sagði Arni Gunnarsson að lokum. -GS. Deilurnar um f iskmatsreglurnar: PUNKTAKERFINU VAR ÞJÓFSTARTAÐ — erþó ekki reglugerðarbrot Orsök hinna harðvítugu deilna, sem að undanförnu hafa átt sér staö um starfsaöferðir við fiskmat, virðist vera að hinu nýja punktakerfi hafi verið þjófstartað. Bæði sjómenn og útvegsmenn töldu að gamla kerfið ætti að gilda út þetta verðtímabil og aöeins ætti að meta eftir punktakerf- inu til hliðsjónar. Þannig fengist reynsla á hvort þaömæti í heild öðru- vísi en gamla kerfið, en hið gamla skyldi þó ráða. Sömu skoöunar er sjávarútvegsráðherra og hefur hann tekið af öll tvímæli þannig að gamla kerfið er í gildi. I byrjun febrúar ritaði Jónas Bjarnason, framkvæmdastjóri Framleiðslueftirlits sjávarafurða, öllum matsmönnum bréf þar sem segir m.a.: .^ilins og ég sagði á námskeiðunum fyrir fiskmatsmenn var febrúarmánuður ætlaður til þess að matsmenn æfðu sig í notkun mats- kerfisins (punktakerfisins, — innsk. DV) en í marsmánuði eiga allir að hafa öðlast nægilega æfingu til þess að beita nýju vinnubrögðunum við alltmatá bolfiski.” Það er mat flestra að Jónas hafi ekki brotið reglugerðarákvæði með þessu, þar sem nýja kerfið falli alveg að reglugerð um fiskmat frá 1970. Hinsvegar hafi sjómönnum og útgerðarmönnum verið heitið því, við fiskverðsákvörðun í byrjun febrúar, að mati þessu skyldi ekki beitt á verötímabilinu. -GS. ÍHEKIAHFI BILASYNING UM HELCINA - fNÝJUM CLÆSILECUM SÝNINCARSAL OKKAR Laugardag frá kl. 10 - 5 — Sunnudag frá kl. 1 - 5 1984 ÁRCERDIRNAR FRÁ ITSUBISHI MITSUBISHI MITSUBISHI COLT - COLT TURBO SPACE WACON CALANT TURBO - CALANT STATION LANCER - SAPPORO - TREDIA PAJERO TURBO DIESEL - PAJERO SUPER WACON L 300 SENDIBÍLL - L 300 MÍNI BUS HEIMILISDEILDIN VERÐUR OPIN SAMTÍMIS BÍLASÝNINGUNNI [hIHEKLAHF Laugavegi 170-172 Sími 21240

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.