Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Blaðsíða 39
DV. HAUG ARDAGUR24. "MA'RS 1984.' 39 Úrslitaleikurinn á Wembley á morgun: Prófsteinn á framtíð Liverpool Úrslitaleikur Liverpool og Everton í mjólkurbikarnum er prófsteinn á þaö hvort Liverpool-veldið sé búiö að lifa sitt besta skeið eða hvort því tekst að rifa sig upp úr þeim öldudal sem liðið hefur verið í. Á síðasta laugardag missti liðið forystu sina í 1. deildinni og eins og Manchester United hefur leikið að undanförnu þá er það óliklegt að liðið muni gefa þumlung eftir það sem eftir er keppnistímabils. Joe Fagan framkvæmdastjóra hefur ekki tekist aö halda áfram á sömu braut og forverar hans, Bill Shanky og Bob Paisley. Liðið byrjaði að vísu af miklum krafti en eftir áramót hafa hindranir andstæðinganna farið að virka og liðiö sýnir nú augljós veikleika- merki. Þau kaup sem Fagan gerði í upphafi stjómartíöar sinnar hafa alis ekki reynst vel. Mike Robinson ætlar ekki að verða sá maður sem Fagan sá í honum. Kaupin á Gary Gillespie eru ráðgáta keppnistíma- bilsins. Hvaö ætlaöi Fagan að gera meö þennan stórkostlega leikmann á meöan hann hefur besta miövarða- par sem leikur á Englandi? Nú er búið aö kaupa John Wark og það er best að segja sem minnst um þau kaup, en hlutverk hans mun líklega verða svipað og hann gegndi hjá Ipswich og það sama og Terry McDermott gegndi er hann lék með Liverpool, framliggjandi tengiliður. Sjálfsagt fer Dalglish fram og Robinson út, þaö er rökrétt ályktun. En sem sagt, vinni Liverpool í dag þá eiga þedr séns í United í titilbar- áttunni, annars ekki. Eins og sjónvarpsáhorfendur sáu fyrir þremur vikum þá er Everton- liöið að verða ansi sterkt. Það sem háöi leikmönnum í fyrri hálfleiknum var aö þeir trúðu ekki að þeir gætu staðiö í Liverpool og allar sóknar- aðgerðir liðsins miöuöust viö að spila stutt, tilraun sem Liverpool-leik- mönnum tókst alltaf að kæfa í fæðingu. I síðari hálfleik tvíefldust leik- menn Everton-liðsins og þá urðu leikmenn Liverpool að bakka, Ever- ton kom fram, tók völdin og sleppti þeim ekki. Jafntefli var sanngjörn úrslit. Everton-liðið stendur einnig vel að vígi í hinni bikarkeppninni þar sem liðið er nú komið i undanúrslit. En á morgun er það mjólkurbikar- keppnin sem er á dagskrá og vafa- laust munu menn Howard Kendall ekki gefa tommu eftir í baráttunni um bikarinn, þeir vita að þeir geta unnið nágrannana sem þeir hafa staöiö í skugga af í tólf ár. Andy Gray verður ekki með Everton-liðinu í leiknum þar sem hann lék með Wolves í fyrstu um- ferðum keppninnar. Það ætti ekki að koma mikið aö sök þar sem einvala lið er á Goodison. Líklegt er að Andy King komi inn í liðið og Adrian Heath Alan Kennedy — leikmaður- inn eitilharði hjá Liverpool. verði færður upp við hUð Graeme Sharp. Því er líklegt að liðið veröi skipaö svona: Markvörður: Neville Southall. Bakverðir: John Bailey (v), Trevor Steven (h). Miðverðir: Kevin RatcUffe (fyrirliði og Derek Mountfield. Tengiliðir: Peter Reid, Alan Irvine, Kevin Sheedy og Andy King. Framverðir: Adrian Heath og Graeme Sharp. Einnig getur verið að Kevin Richardson leiki og þá annaðhvort fyrir King eða Irvine. Liverpool-liðið verður að öUum líkindum þannig skipað: Mark- vöröur Bruce Grobbelaar. Bak- verðir: Alan Kennedy (v) og Phil Neal (h). Miðverðir: Alan Hansen og Mark Lawrenson. Tengiliðir: Ronnie Whelan, Sammy Lee, Craig John- ston, Graeme Souness (fyrirliði). Framverðir: Kenny DalgUsh og Ian Rush. Möguleiki er að Steve Nicol leiki og þá fyrir Whelan eða John- ston. Einnig er smuga að DalgUsh verði á miðjunni fyrir Johnston og Robinson komi í liðiö eða jafnvel David Hodgson. -SigA. Alan Kennedy Liverpool Leikferill Alan Kennedy hefur einkennst af miklum erfið- leikum við að halda sér í liðinu. Hvað eftir annaö hefur hann verið settur út og maður keyptur í staðinn en Kennedy hefur komið jafnharðan inn aftur. Mikill baráttuknatt- spyrnumaður þar á ferð. Það sem Kennedy hefur afrekað helst eru tvö mikilvæg mörk sem hann hefur skorað á leikferlinum. Fyrst er að telja mark í úrslitum deildabikarsins áriö 1981, er hann kom Liverpool yfir 1—0 gegn West Ham. Þeir jöfnuðu skömmu síðar en það er ekki málið. Öllu mikilvægara var sigurmarkið sem hann gerði gegn Real Madrid í Evrópukeppni félagsliða árið 1982. Það er því ástæða fyrir leikmenn Everton að vera vei á verði gegn þessum skemmtilega sóknarbakverði. m. \ :■' •u, ■ ■ ' Keppuls- Deild MiikCup FACup Alls tímabil Lið Deild leikir mörk leikir mörk leikir mörk leikir mörk 1973-74 Ncwcastlc 1 17+3 3 5+2 22+5 3 1974-75 Ncwcastle 1 28 4 2 34 1975-76 Ncwcastle 1 42 1 8 8 58 1 1976-77 Newcastle 1 42 2 3 3 48 2 1977-78 Newcastle 1 26 3 1 2 29 3 1978-79 Liverpool 1 37 3 2 39 3 1979-80 Llverpool 1 37 1 7 5 49 1 1986—81 Llvcrpool 1 19 2 7 1 1 27 3 1981-82 Livcrpool 1 32+2 2 5 3 40+2 2 1982-83 Llverpool 1 42 3 8 1 3 53 3 1983-84 Livcrpool 1 32 1 11 2 45 1 Alls: 1973-78 Newcastle 155+3 9 16 20+2 191+5 9 1978-84 Liverpool 199+2 12 40 2 14 253+2 13 Samtals: 1973-84 354+5 21 56 2 34+2 444+7 22 Liverpool keypti Kennedy á 300.000 pund árið 1978. Hann hefur unnið reiðinnar ósköp af verðlaunum. Varð Eng- landsmeistari meö Liverpool ’79, ’80, ’82 og '83. Deildar/mjólkurbikar- meistari ’81, ’82, og ’83. Evrópu- meistari 1981. Hann lék í úrslitum bikarkeppninnar árið 1974 en New- castle tapaði þá fyrir Liverpool. I úr- slit deildabikarsins komst hann með Newcastle árið ’76 en liðið tap- aði gegn Manchester City. Kennedy hefur tvisvar verið valinn í landsliðshóp Englendinga, fyrst 1979 og aftur ’83, en ekki leikið lands- leik. SigA. Sanaá Akureyri: BJÓRFRAMLEIÐSLA HAFIN AFTUR Eftir tólf ára hlé hófst aftur bjór- framleiðsla hjá Sana á Akureyri í gær- morgun. Þessi framleiðsla er fyrst og fremst í tilraunaskyni og hefur þrenns konar tilgang. I fyrsta lagi að kynnast hvemig Sanitas bjór smakkast, í öðru lagi að senda á islenskan bjórmarkað sem er Fríhöfnin, sendiráö og skip. Og í þriðja lagi að athuga möguleika á út- flutningi. Gerjun bjórsins hófst fyrir tveimur mánuðum og í gær var 8 þúsund lítrum tappað á flöskur undir eftirliti toll- varðar sem fylgdi framleiðslunni alla leið inn í tollvörugeymslu. Sanitas bjórinn er 5,2% sterkur. -JBH/Akureyri. Ragnar Tryggvason, framleiðslustjórí Sana á Akureyrí, hampar hér bjórnum sem faríð er að framleiða norðan heiða eftir langt hlé. DV-mynd JBH/Akureyri. SJALLAKJALLARI AÐ „ENSKUM PUB” Ætlunin er aö opna ölkrá í enskum pubstíl á Akureyri í vor, líklega í maí. Kráin verður í kjallara Sjallans og hefur hönnun staöiö yfir undanfarið. Nú er beöið eftir tilboðum í innrétting- ar. Þegar breytingamar voru gerðar á Sjallanum fyrir tveimur árum var talað um að seinna kæmi í kjallaranum staður eitthvað í þessum anda. Þama verða sæti fyrir 60—70 manns. Hugs- anlega verður hægt að stækka meö því að opna upp á jarðhæð hússins. Þó verður ekkert opið milli salanna í Sjallanum og hins nýja staðar. A þessum „enska pub” verður hægt að kaupa léttan mat og drekka „Islandsbjór”, þ.e.a.s. ölbollu. Að öðm leyti er margt óráðiö með tilhögun, enda undirbúningur í f ullum gangi. -JBH/Akureyri. Þannig kemur barinn til með að lita út i stórum dráttum. Myndin var tekin i gær og „þá voru ýmsar innansleikjur eftir", eins og Gylfi orðaði það. M.a. átti eftir að setja upp spegla á veggina en i dag mun allt eiga að vera klappað og klárt. DV-mynd S. „DRAUMURINN AÐ RÆTAST” — segirGylfi Guðmundsson semopnar ölkrá á Hverf isgötunni f dag „Þetta hefur verið mikið at, en nú er draumurinn að rætast,” sagði Gylfi Guðmundsson sem í dag opnar ölkrá að Hverfisgötu 46 í Reyk javík. Kráin verður í enskum stíl. Þar verður hægt að fá mat að enskum sið, þar á meðal pæ og fleira. Einnig verða stærri réttir á boðstólum, svo sem steikur ýmiss konar. Styrktur bjór verður að sjálfsögðu fáanlegur ásamt öðrum vínlegundum, „en uppskriftina að bjórniun veit ég ekki einu sinni sjálfur,” sagði Gylfi. „Hún er læst inni í skáp hjá ölmeistara mínum.” Gylfi kvaðst engar áhyggjur hafa af því að aösókn yrði ekki næg að staðnum sem hefur hlotið nafnið veitingastaðurinn Hlóöir. „Það sem fólk vill er að geta sest inn á einhvern notalegan stað og fengið sér mat og eitthvað að drekka með, án þess að það sé eitthvert stórmál. Hér er þaðhægt,” sagði Gylfi. -JSS. Leiðrétting I skákpistli sem birtist í DV á fimmtudag þar sem fjallaö var um skák Guðmundar Sigurjónssonar og Helga Olafssonar á skákmótinu í Nes- kaupstaö, urðu þau mistök, að 10. leikur svarts féll út. 10. leikur svarts var ... d5, og biðst DV velvirðingar á þessum mistökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.